Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Page 34
46 ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987. SÖLUSKATTUR Viðurlög falla á söluskatt fyrir marsmánuð 1987 hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 27. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20% en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. maí. 21. apríl 1987 Fjármálaráðuneytið —Feiti er okkar fag — Djúj) steÍKÍngar feiti flMm Dreifing: Smjörlíki hf. Þverholti 19. Framleiðandi: Hydrol hf. v/Köllunarklettsveg Reykjavík Laus Við heimspekideild Háskóla íslandser laustil umsókn- ar lektorsstaða í rómönskum málum með sérstöku tilliti til spænsku. Umsóknarfrestur er til 15. maí nk. Laun samkvæmt launkerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og náms- feril og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík. 14. apríl 1987. Menntamálaráðuneytið. BORGARAFLOKKURINN, SKEIFUNNI 7 SÍMAR: Kosningastjórn 68 98 35 Happdrætti 68 98 28 Skrifstofustjórn - Gjaldkeri 68 98 29 Skráning sjálfboðaliða 68 98 34 Utankjörstaðakosning - Þjóðskrá 68 98 22 68 99 81 Upplýsingar 68 98 32 68 98 33 Pósthólf 440, 121 Reykjavík Símsvari 28060 BORGARAFLOKKURINN Sérstaða Kvenna- listans Fyrir hverjar kosningar gefst fólki tækifæri til að velta fyrir sér þeirri spumingu í hvers konar samfélagi við viljum lifa. Við spyrjum líka hverjum við treystum best til að skapa gott mannlíf í anda þeirra hugsjóna sem við viljum koma í framkvæmd. Við veljum fulltrúa fólksins í landinu til að taka sæti á alþingi eða í sveitarstjórnum og ætl- umst til þess að þeir vinni í anda þeirrar stefnu sem þeir hafa boðið sig fram til að þjóna. Að vísu er þetta mjög takmarkað lýðræði að mínum dómi, áhrif fólks á eigið umhverfi, atvinnulíf og stefnumörkun sam- félagsins í heild em afar takmörkuð og algjör undantekning að almenn- ingur sé spurður álits á einstökum mólum nema ef opna skal brenni- vínsbúð. Fyrir þær kosningar sem nú fara í hönd er um óvenjumargt að velja í litskrúðugri flóru íslenskra stjóm- mála. Því er mikilvægt að fólk átti sig á sérstöðu hinna ýmsu framboða (ef hún er fyrir hendi). Hver er stefn- an, hver eru markmiðin? Þeim spumingum ætla ég að svara að nokkm hér sem kvennalistakona. Það má ljóst vera að sérstaða Kvennalistans er mikil. Ekki aðeins á íslenskan mælikvarða heldur einn- ig ef litið er á stjómmál heimsins. Hvergi hefur það gerst mér vitanlega að kvennahreyfing hafi náð neitt svipuðum árangri á vettvangi stjóm- mála né haft eins mikil áhrif á umræðuna í þjóðfélaginu og hér hefur gerst á undanfömum 5 árum. Það er þó fjarri okkur kvennalista- konum að miklast yfir órangrinum því hann er allt of lítill ef litið er á kjör og áhrif kvenna í samfélaginu. Þar er verk að vinna. Skoðum og skilgreinum upp á nýtt Sérstaða Kvennalistans felst ekki eingöngu í þvi að hann er kvenna- hreyfing og að konur skipa öll sæti framboðslistanna, heldur einnig í því að við byggjum á ákveðinni hug- myndafræði sem konur hafa skapað út frá sinni eigin reynslu. Sérstaðan felst líka í þeim vinnubrögðum og skipulagi sem við höfum tileinkað okkur og er ólíkt því sem gerist hjá öðrum stjómmálahreyfingum. Hugmyndafræði okkar segir okkur að taka ekkert sem gefið. Við viljum skoða og skilgreina allt upp á nýtt, spyija spuminga, setja fram hug- myndir þó þær raski ró og komi illa við hagsmuni einhverra. Við viljum hugarfarsbyltingu, bre}4t hugárfar gagnvart konum og bömum, breytt hugarfar gagnvart því hvað skiptir máli í lífinu. Byltingu sem setur mannlegar þarfir, andlega og líkam- lega velferð ofar öðm. Sérstaða okkar felst líka í því að við viljum aðra forgangsröð verk- efna en þá sem nú tíðkast. Við hefðum t.d. sett eflingu skóla ofar nýju flugstöðinni. Við hefðum sett rannsóknir í þágu atvinnulífsins ofar Blönduvirkjun. Við hefðum sett end- urmat ó störfum kvenna ofar elt- ingaleik við stóriðjudrauginn í útlöndum og þannig mætti lengi telja. Við vitum að konur búa yfir ann- Kjállariim Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur arri reynslu en karlar og að verð- mætamat kvenna er um margt ólíkt verðmætamati karla. Það er þessi kvenlega sýn á veröldina sem við viljum gera að afli, afli sem breytir. Við viljum hverfa frá þeirri stefriu sem leggur mesta áherslu á stundar- gróða og að lifa fyrir líðandi stund. Við viljum hverfa frá þeirri stefhu sem gengur óheft á gæði jarðarinnar og skilur eftir sig land í sárum, dýra- stofria í útrýmingarhættu og mengun sem ógnar lífríki jarðar. Við viljum hverfa frá þeirri stefriu sem trúir á mátt vopnanna, sem trúir á ógnaijafhvægið og heldur hjólum vígbúnaðarkapphlaupsins gangandi. Það er ákveðið hugmyndakerfi sem einkennir öll samfélög á norðurhveli jarðar (og víðar). Því er viðhaldið af fámennum hópi karla sem gína yfir veröldinni allri. Það getum við ekki sætt okkur við, því verðum við að breyta. Sinntu ekki kalli tímans Það stjómmálakerfi sem við búum við tók að mótast eftir 1916 þegar Alþýðuflokkurinn og Framsóknar- flokkurinn voru stofnaðir. Um 1930 var kerfið nánast fullskapað, en nú má spyija hvort það sé ekki komið að fótum fram? Að mínum dómi hafa stjómmálaflokkarnir byrgt glugga sína svo rækilega að þeir hafa ekki séð hvað gerðist fyrir utan. Þeir sáu ekki þegar konumar fóm út á vinnu- markaðinn (og hafa ekki séð það enn), þeir sáu ekki hvemig §öl- skyldulifið breyttist, þeir sáu ekki hnignun landsbyggðarinnar og mis- réttið milli íbúa landsins, þeir sáu ekki nýjar þarfir, nýjar kröfur um breyttar áherslur og breytt vinnu- brögð. Þeir sinntu ekki kalli tímans. Þess vegna hefur allt logað í inn- byrðis deilum, bræðravígum og aftökum. Þess vegna hafa gömlu flokkamir klofnað og nýjar stjóm- málahreyfingar orðið til. Sérhyggja, hagsmunapot og valdatafl hefur leikið gömlu flokkana grátt. Sumir þeirra em rígbundnir hagsmuna- böndum sem á stundum svipta þá frelsinu. Og enn komum við að sér- stöðu Kvennalistans. Við erum algjörlega óháðar verkalýðsforyst- unni, SÍS-veldinu, heildsalaveldinu og öðrum hagsmunahópum og get- .um því sagt og gert það sem við teljum réttast hveiju sinni. Þess vegna tókum við afktöðu gegn síð- ustu kjarasamningum ASI og VSÍ sem enn einu sinni buðu konum skammarlega lág laun og staðfestu láglaunastefnuna. Þess vegna höfum við verið harðar í andstöðu við stór- iðjustefnu gærdagsins sem gömlu flokkamir hafa i farteski sínu. Þess vegna höfum við tekið afstöðu gegn öllum hemaðarframkvæmdum hér á landi og viljum vinna gegn hemað- arhyggju og hemaðarbrölti. Þess vegna urðum við að gerast virkar í stjórnmálum, til að geta staðið vörð um hag kvenna, bama og fjölskyldn- anna í landinu. Til að vinna að hugarfarsbreytingu og breyttum áherslum. Það getur margt gerst í komandi kosningum. Mikilvægast er þó hvað gerist eftir kosningar. Á að halda áffarn að tæma sveitimar? Á fijáls- hyggjan og sérhyggjan að ráða ríkjum? Á skammsýni og fyrir- hyggjuleysi að ráða för? Á enn um sinn að hygla vinum og flokksfélög- um með góðum stöðum? Á áfram að bmðla með almannafé og láta at- vinnulífið reka á reiðanum? Eiga konur að vera áhrifalitlar, lágt laun- aðar og vanmetnar sem áður? Eiga bömin að glíma við guð og gaddinn? Eða hvað? Að dómi Kvennalistans er stefnu- breytingar þörf. Við bjóðum fram hugmyndir okkar, stefnu og starfs- krafta í þága allra landsmanna; karla, kvenna og bama. Við búum í landi möguleikanna. Við erum ein fárra þjóða sem geta boðið öllum sínum þegnum gott og ömggt mann- líf. En því aðeins að við látum samvinnu og samábyrgð sitja í önd- vegi og minnumst þess að við eigum að gæta hver annars og skila af okk- ur betra samfélagi til komandi kynslóða. Að þvi vill Kvennalistinn vinna. Kristín Ástgeirsdóttir Greinarhöfundur er í fyrsta sœti Kvenna- listans á Suðurlandi. „Sérstaða Kvennalistans felst ekki ein- göngu í því að hann er kvennahreyfing og að konur skipa öll sæti framboðslist- anna, heldur einnig í því að við byggjum á ákveðinni hugmyndafræði sem konur hafa skapað út frá sinni eigin reynslu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.