Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Side 37
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987. 49 Sólþing eftir Gunnar Sverrisson Út er komin bókin Sólþing, ljóð, smá- sögur og greinar eftir Gunnar Sverris- son. Höfundur segir eftirfarandi um sjálfan sig: „Ég er fæddur hér í Reykjavík 30. okt- óber árið 1936 og varð því fimmtugur á síðast liðnu ári. I því tilefni réðst ég í það að gefa út þessa fjórðu bók mína, sem kemur þér, lesandi góður, hérmeð fyrir sjónir og væntanlega ánægjulegs lestrar. Móðir mín heitir María Magnúsdóttir, kjördóttir Magnúsar heitins Benjamíns- sonar úrsmiðs, frá Stekkjarflötum í Eyjafirði, og konu hans Sigríðar Einars- dóttur, er var ættuð frá Vestur-Skafta- fellssýslu, en bjó síðar um tíma í Gufunesi, þar sem áburðarverksmiðjan er í dag. Móðir mín var upphaflega Lár- usdóttir Gíslasonar sem ættaður var úr Suðursveit í Austur-Skaftafellssýslu, og konu hans, frú Hallfríðar Guðmunds- dóttur, er var ættuð frá Skarði í Lundar- reykjadal. Faðir minn hét Sverrir Sigurðsson.var forstjóri fyrir verslun Magnúsar Benja- mínssonar úrsmiðs, en verslun hans var við lýði hér í bæ um árabil. Faðir minn andaðist hér í Reykjavík 28. nóvember árið 1981, og var sonur Sigurðar Magn- ússonar læknis, er ættaður var frá Viðvík í Skagafirði, en hann var um tíma læknir á Patreksfirði. Kona afa míns heitins hét Esther Nýjar bækux Veiðivon Helga Jensen - Laurits H. Jensen veit- ingamanns við Vertshúsið Bauk, sem var og hét á Akureyri í eina tíð“. Bókin er 64 bls. að stærð, prentuð í Félagsprentsmiðjunni. Ný bók um þjóðararfleifðina lceland Review Vegleg, myndskreytt sýnisbók um ís- lenskar þjóðminjar, eftir Þór Magnússon þjóðminjavörð, er komin út á tveim er- lendum tungumálum hjá Iceland Review. Jafnt heima og erlendis hefur fólk áhuga á íslenskri sögu og þjóðminjum og mun án efa fagna útkomu hennar. Til að bók- in verði aðgengileg stærstum hópi ferðamanna sem til landsins koma eru útgáfumar tvær. Enskg úgáfan ber heit- ið A Showcase of Icelandic National Treasures og sú þýska titilinn Islánd- ische Kulturschátze Aus archáologisch- er Sicht. Þjóðminjavörður, Þór Magnússon, hefur valið saman 96 muni og byggingar sem endurspegla í fjölbreytni sinni menningu þjóðar í 1100 ár. 1 inngangs- kafla dregur Þór saman höfuðdrætti Islandssögunnar á 22 síðum, allt frá því er líklegt er talið að írskir munkar hafi komið að landinu. Bókin er öll litprentuð og inngangs- kaflanum fylgja skýringarmyndir og ljósmyndir af ýmsum fornminjum. Meg- inhluti bókarinnar, sem er 96 síður að lengd, er litmyndir eftir Pál Stefánsson ljósmyndara af minjum hvaðanæva af landinu með ítarlegum skýringum þjóð- minjavarðar. Meðal þess sem orðið hefur fyrir valinu við gerð þessarar sýnisbókar íslenskra þjóðminja eru hversdagslegir brúkshlutir eins og tóbakspontur og askar, sjaldgæfari minjar eins og heiðin gröf, sérkennilegir kirkjugripir og heil hús og kirkjur sem vernduð eru með lög- um. Sumir gripanna í bókinni eru mjög gamlir eða taldir vera frá fyrstu áratug- um búsetu í landinu, en þeir yngstu frá fyrri hluta 20. aldar. Þeir segja sína sögu um húsagerð, greftrunarsiði, kristnitök- una, siðaskiptin, hallærin sem gengu yfir þjóðina á 17. og 18. öld og loks efnahags- lega viðreisn í upphafi þessarar aldar. í bókarlok er svo stutt yfirlit um varð- veislu fomminja á Islandi. Bókin kostar 993,75 kr. í bókabúðum. Stangaveiðifélag Reykjavíkun Býður upp á ódýr veiðileyfi í lax og silung „Við erum búnir að fá Geitabergs- vatn og Þverá í Svínadal og veiði fyrir löndum Kiðjabergs og Hests í Hvítá í Ámessýslu,“ sagði Jón G. Baldvinsson, formaður Stangaveiði- félags Reykjavíkur, í samtali við DV. En Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur nú ákveðið að bjóða sínum félagsmönnum upp á silungs- og lax- veiðileyfi ódýrt. „Veiðin er fyrir löndum Kiðjabergs og Hests í Hvítá en þar hefur aldrei verið veitt nema í net og það er verið að taka upp net á þessu svæði sem er að vísu jökulvatn. Þá kemur stangaveiði í staðinn og er veitt á íjórar stangir því að við vitum að það passar vel. Þetta verða ódýr veiðileyfi fyrir lax þama að Kiðjabergi og þar kostar dagurinn frá 1.500 til 1.800 krónur stöngin. Þama rétt fyrir ofan, á Gíslastöðum, veiddust í fyrra á ann- að hundrað laxar á eina stöng og þetta var mikið af stórlaxi, 20 pund og yfir. í Svínadalnum, í Geitabergs- vatni, verðum við með eins margar stangir og við þurfum. Svo er hægt að kaupa á 1.800 krónur veiðileyfi í Þverá og þar er veitt á eina stöng og með því fylgja tvær stangir í Geitabergsvatni. Þama er gott veiði- hús sem veiðimenn geta verið í en það keyptum við af veiðifélaginu Straumum. Þetta em því mjög ódýr veiðileyfi fyrir félagsmenn og aðra sem hafa áhuga á og það em miklir möguleikar á báðum þessum stöð- um.“ G.Bender Það á örugglega mikið eftir að gerast i Hvítá eða i Þverá í Svinadal í sumar og margar glímurnar eiga eftir aö verða við laxa og silunga. DV-mynd EJ Kosningahappdrættíð stendur straum af kosningabaráttunni Sjálfstæðismenn, greiðum heimsenda gíróseðla. Skrifstofa happdrættisins í Valhöll er opin alla daga kl. 09.00-22.00. DREGIÐ 24. APRÍL 1987 Stórglæsilegir vinningar að verðmæti kr. 3.998.160 3 fólksbifreiðir 34 glæsilegir ferðavinningar 20 húsbúnaðarvinningar SJÁLFSTÆÐISMENN STÖNDUM SAMAN UM D-LISTANN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.