Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Side 38
50
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987.
Andlát
Einar Pálsson lést 9. apríl sl. Hann
fæddist á Víðihóli á Hólsfjöllum
þann 29. janúar 1898. Foreldrar hans
voru Páll Hjaltalín Jónsson og kona
hans Ingveldur Einarsdóttir. Einar
'-r hóf störf hjá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur árið 1931 og starfaði þar
þangað til hann náði hámarksaldri
opinberra starfsmanna, síðustu árin
sem deildarstjóri. Eftirlifandi eigin-
kona hans er Gyða Guðmundsdóttir.
Þeim hjónum varð ekki bama auðið.
Utför Einars verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 15.
Einar Ingi Jónsson prentsmiðju-
stjóri andaðist í Landakotsspítala
aðfaranótt 15. apríl.
Erlingur Hjaltested, fyrrv. banka-
ritari, lést í Landspítalanum 15. apríl.
Lárus Óskar Ólafsson lyfjaíræð-
ingur er látinn. Útförin fer fram 22.
apríl frá Fossvogskapellu kl. 13.30.
Siguijóna Jóhannesdóttir frá
Laxamýri, áður til heimilis á Há-
teigsvegi 23, lést á Elli- og hjúkr-
unarheimilinu Grund miðvikudag-
inn 15. apríl.
Sæmundur Þórarinsson, Kings
Lynn, Englandi, lést 31. mars sl.
Bálför hefur farið fram.
Ragnar Jónsson, Rauðalæk 15,
andaðist þriðjudaginn 14. apríl.
Símon Teitsson, Þórólfsgötu 12,
Borgarnesi, verður jarðsunginn frá
Borgarneskirkju miðvikudaginn 22.
apríl kl. 14.
Tilkyiiningar
Sálfræðistöðin flytur
í nýtt húsnæði
1. apríl sl. flutti starfsemi Sálfræðistöðvar-
innar í nýtt og glæsilegt húsnæði að
Þórsgötu 24. Stofnunin, sem hefur starfað
um þriggja ára skeið, býður nú mjög fjöl-
breytta þjónustu. Námskeiðahald fyrir
almenning, fyrirtæki og stofnanir ásamt
hæfileikamati og einkaviðtölum hafa ver-
ið fastir liðir í starfsemi stöðvarinnar. Með
tilkomu nýs húsnæðis verður boðið upp á
ýmiss konar nýjungar, eins og námskeið
fyrir minni hópa í samskiptatækni, slök-
unartækni og hjónanámskeið, ásamt
námskeiðum fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Hæfileikamat, skipulagning á persónuleg-
um frama, val á fólk í þjónustustörf og
sölumennska verður þjónusta sem fyrir-
tæki og stofnanir geta nýtt sér í auknum
mæli. Eigendur Sálfræðistöðvarinnar eru
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna
Eydal. Síminn á nýja staðnum er 623075.
T rúnaðarmannaráðsfundur
Félags íslenskra leikara.
Meðfylgjandi ályktun var samþykkt sam-
hljóða á trúnaðarmannaráðsfundi Félags
íslenskra leikara 7. apríl sl. „Fundur í
trúnaðarmannaráði Félags íslenskra leik-
ara, haldinn þann 7. apríl 1987, samþykkir
að beina því til menntamálaráðherra að
hann beiti sér fyrir því að fjárhagsgrund-
völlur ríkisútvarpsins verði tryggður hið
fyrsta. Fundurinn lítur svo á að hlutverk
RUV í menningarbaráttu þjóðarinnar hafi
aldrei verið mikilvægara en nú og því
brýnt að því sé gert kleift að sinna því
hlutverki svo sómi sé að.“
Námskeið í akstri og meðferð
dráttarvéla
Eins og undanfarin ár verður haldið nám-
skeið í akstri og meðferð dráttarvéla að
Dugguvogi 2 í Reykjavík dagana 29. apríl
til 4. maí nk. Námskeiðið er tvíþætt: For-
námskeið fyrir 14 og 15 ára nemendur og
dráttavélanámskeið fyrir 16 ára og eldri.
Fornámskeiðið stendur yfir í 6 kennslu-
stundir og kostar kr. 1.100. Námskeið
hinna eldri verður 11 stundir og kostar
með öllu kr. 4.000. Það eru sjö aðilar sem
standa fyrir námskeiðshaldinu. Innritun
fer fram á námskeiðsstað, Dugguvogi 2
(við Elliðavog), föstudaginn 24. aprfl,
mánudaginn 27. apríl og þriðjudaginn 28.
apríl kl.16-18.30. Þátttökugjald greiðist
við innritun. Tilgangur námskeiðsins er
fyrst og fremst sá að auka öryggi og akst-
urshæfni unglinga en einnig að stuðla að
hagkvæmari vinnubrögðum og bættri
meðferð þeirra á vélunum. Nánari upplýs-
ingar eru veittar hjá Umferðarráði í síma
27666 eða Búnaðarfélagi Islands í síma
19200.
verður með fatnað frá þekktum fyrirtækj-
um í Bretlandi, Finnlandi og fleiri
Evrópulöndum. Eigendur verslunarinnar
eru Sesselja Hermannsdóttir og Elísabet
Einarsdóttir. Tískuverslunin Hera er opin
virka daga frá kl. 10-19 og laugardaga frá
kl. 10-16.
ný kvenfataverslun
Tískuverslunin Hera heitir ný kvenfata-
verslun sem var nýlega opnuð undir
þakinu í verslunarmiðstöðinni við Eiði-
storg. Verslunin hefur á boðstólum fatnað
fyrir konur á öllum aldri og kappkostar
Iðnskólinn fær gjöf
Prentsmiðjan Edda hefur fært Iðnskólan-
um í Reykjavík að gjöf Ommitek ljóssetn-
ingarvél með 26 leturgerðum. Vélin er
mjög fjölhæf og getur, auk beinnar setn-
ingar, unnið strikaforma og síðuumbrot.
Þörf Iðnskólans fyrir slíkt kennslutæki
var mikil og þótti prentsmiðjunni Eddu
sem varð nýlega 50 ára, tilvalið að minnast
áfmælisins með þessum hætti. Á myndinni
er einn nemandi bókagerðardeildar að
vinna á nýju tölvuna, þá kemur Þóra Elfa
Bjömsson setningarkennari, Haukur Már
Haraldsson, deildarstjóri bókagerðar-
deildar, og Þorbergur Eysteinsson, for-
stjóri prentsmiðjunnar Eddu hf.
Þorvaldur Ingi Jónsson deildarstjóri:
Eigin listsköpun: Því meira því betra
Það var af mörgu að taka í út-
varpi og sjónvarpi yfir páskana.
Hæst hefúr eflaust borið nýtt ís-
lenskt sjónvarpsleikrit; Öskubuska
og maðurinn sem átti engar buxur,
en því miður gafst mér ekki tæki-
færi á að sjá þetta leikrit að þessu
sinni. Ég hef heyrt á mörgum að hér
hafi verið um gott verk að ræða og
óska ég því aðstandendum þess til
hamingju. Það er alltaf mjög já-
kvætt þegar við getum sjálf staðið
að okkar eigin listsköpun. Því meira
því betra.
Ef litið er á dagskrá gærdagsins
þá var mjög vel gert við unnendur
dægurtónlistar, þar var hin stórgóða
Tina Tumer á ferðinni og okkar frá-
bæru Stuðmenn í Atlavík og að
endingu var franskur listamaður í
léttu stuði. Ríkissjónvarpið hefur
einnig náð sér í einn þann besta
gamanþátt sem gerður hefur verið
en það er einmitt þátturinn Já, for-
sætisráðherra sem gefur alltaf
jafhspaugilega mynd af lífi þessara
ágætu manna.
Þorvaldur Ingi Jónsson.
Á Stöð 2 eru þættirnir I eldlínunni
hjá Jóni Óttari mjög góðir, þeir taka
fyrir mannleg vandamál og ég tel
að þessir þættir séu mjög nauðsyn-
legir, þeir hafa eflaust ýtt við
mörgum og eru því mjög jákvæðir.
Stöð 2 getur sýnilega náð í nýrri og
betri bíómyndir en ríkissjónvarpið
en ég nýt þeirra ekki þar sem ég er
ekki afruglaður. Þó finnst mér að
Stöð 2 mætti reyna að ná í metnaðar-
fyllri bíómyndir inn á milli sem
hlotið hafa alþjóða viðurkenningu
og ekki væri verra að þær væru frá
öðrum löndum en engilsaxneskum.
I Ríkisútvarpinu er oft um mjög
fróðlega og góða þætti að ræða. í
gærmorgun var þátturinn Úr sögu-
skjóðunni sem heldur við umræðum
um fslandssöguna og er það ágætt,
einnig er þáttur Ævars Kjartansson-
ar, í síðdegiskaffinu, oft góður. Á
Bylgjunni var nokkuð gott kosnin-
gaútvarp frá Hótel Sögu þar sem
almenningur hafði möguleika á að
spyrja forsvarsmenn flokkanna
beinna spuminga og kom sá þáttur
nokkuð vel út þó að flestir séu orðn-
ir kolruglaðir yfir þessu pólitíska
tali og skrifum þessa síðustu daga.
Ég vona að Ríkisúvarpið og hinar
frjálsu útvarps- og sjéfnvarpsstöðvar
leggi metnað sinn'í að skapa og gefa
íslenskum listamönnum tækifæri á
að finna hvað í þeim býr. Þannig
verðum við í meira mæli skapandi
en ekki beinir þiggjendur.
Breiðfirðingafélagið
heldur sinn árlega vorfagnað í Risinu,
Hverfisgötu 105, síðasta vetrardag (mið-
vikud. 22. apríl) kl. 22.
Alþjóðlegi dansflokkurinn í
Reykjavík.
Alþjóðlegi dansflokkurinn Allnations
Dance Company frá New York kemur til
Islands 22. apríl nk. og heldur hér eina
danssýningu daginn eftir, á sumardaginn
fyrsta. Dansflokkurinn, sem eru átta dans-
arar af mörgum þjóðemum hefir aðsetur
í International House í New York, sem
er alþjóðlegt stúdentaheimili þar sem m.a.
margir íslendingar í framhaldsnámi hafa
dvalið. Auk listamannanna eru tækni-
menn og stjómandi með í förinni. Dans-
flokkurinn sýnir dansa frá mörgum
löndum, og listamennimir sýna margir
hveijir dansa frá sínu heimalandi. Stofn-
andi og stjórnandi Alþjóðlega dansflokks-
ins er bandaríkjamaðurinn Herman
Rottenberg. Listamenn sem fram koma á
danssýningunni eru frá Kína, Filipseyjum,
Mexíkó, Bandaríkjunum og Sovétríkjun-
um. Dansflokkurinn er á leið til Norður-
landa þar sem hann mun sýna í mörgum
borgum og bæjum í fjórar vikur. Að þessu
sinni verður aðeins ein sýning hér á landi,
í Islensku óperanni á sumardaginn fyrsta
kl. 17. Verði aðgöngumiða er mjög í hóf
stillt, kostar kr. 250. Miðar að dansýning-
unni verða seldir í söluskrifstofu Flug-
leiða, Lækjargötu 2 þann 21. og 22. apríl
og við innganginn.
Happadrætti DAS með Visa
Frá og með nýju happdrættisári hefur
stjóm DAS ákveðið að taka upp þá ný-
breytni, fyrst stóra happdrættanna, að
ganga til samstarfs við Visa um kerfis-
bundnar endumýjanir happdrættismiða.
Þetta þýðir að bæði gamlir og nýjir við-
skiptamenn, sem vilja freista gæfunnar um
leið og þeir styrkja þarft málefni, geta nú
spilað áhyggju og fyrirhafnarlaust um alla
framtíð, án þess að þurfa að óttast að stóri
vinningurinn komi á miðann þeirra, ein-
mitt þegar þeir gleymdu eða komust ekki
til að endumýja hann í tæka tíð. Hægt
er að biðja um um fastar mánaðarlegar
millifærslur með Visa hjá öllum umboðs-
mönnum happdrættisins. Bara eitt símtal
og miðarnir verða endurnýjaðir sjálfvirkt
um Visa-kerfið svo lengi sem þú vilt og
kortið er í gildi.
Styrkveitingar á vegum
Ólympíunefndar íslands.
I samkomulagi milli Ólympíunefndar og
fulltrúa Afreksmannasjóðs ÍSl er tilhögun
styrkveitinga til íþróttamanna og sérsa-
banda fólgin í því að úr Afreksmannasjóði
er veitt fé til einstakra íþróttamanna, en
styrkir Ólympíunefndarinnar renna til
sérsambandanna. Nýlega veitti Ólympíu-
nefndin samtals 3,5 milljónum króna til
eftirtaldra sérsambanda sem styrki fyrir
þetta ár. Frjálsíþróttasabmandið kr.
350.000. Handknattleikssambandið
1.500.000. Judosambandið 200.000. Knatt-
spyrnusambandið 400.000. Siglingasam-
bandið 200.000. Skíðasambandið 500.000
og Sundsambandið 350.000. Samtals
3.500.000.
Matvæla-og næringafræðifé-
lag íslands.
Fundur var haldinn í Matvæla- og nær-
ingarfræðingafélagi Islands hinn 13. apríl
1987. Til afgreiðslu var nýgerður kjara-
samningur milli félagsins og Fjármála-
ráðuneytisins. Samningurinn var
samþykktur méð 16 samhljóða atkvæðum.
Mínútustjórnun komin
út í kiljuformi
Mínútustjórnun, bókin um stjórnunarað-
ferðina sem farið hefur sigurför um allan
hinn vestræna heim, er nú komin út í kilju-
formi hjá Vöku-Helgafelli. 1 bókinni er
lýst nýrri og árangursríkri stjórnunarað-
ferð. Efnið er sett fram í söguformi og
sýnir á einfaldan og skemmtilegan hátt á
hvaða meginatriðum aðferðin byggist.
Mínútustjórnun einskorðast ekki við at-
vinnulífið heldur má nota þessa stjórnun-
araðferð með góðum árangri, til dæmis í
skólum og á heimilum. Mínútustjómun
hefur verið uppseld hjá Vöku-Helgafelli
um nokkurt skeið. Ætti þessi handhæga
endurútgáfa að vera fengur þeim sem vilja
hagnýta sér þessa nýstárlegu stjómunar-
aðferð sem getur skilað árangri á ótrúlega
skömmum tíma. Utsöluverð bókarinnar
er 986 krónur með söluskatti.
GANGLERI
VOR )W I'ÓSTIK’ÍLF t-3?
Tímaritið Gangleri,
fyrra hefti 61. árgangs, er komið út. Það
flytur greinar um andleg og heimspekileg
mál og alls era 18 greinar í þessu hefti,
auk smáefnis. Grein er um essena eftir
Ævar R. Kvaran. Þá er grein um nudd-
lækningar og önnur um lækningamátt
bama. Gangleri er ávallt 96 blaðsíður og
kemur út tvisar á ári. Áskriftargjald er
kr. 550. Sími 39573.
Minningarkort Áskirkju
Minningarkort Áskirkju hafa eftirtaldir
aðilar til sölu: Þuríður Ágústsdóttir, Aust-
urbrún 37, sími 681742. Guðrún Jónsdóttir,
Kleifarvegi 5, sími 681984. Ragna Jóns-
dóttir, Kambsvegi 17, sími 82775.
Holtsapótek, Langholtsvegi 84. Þjónustu-
íbúðir aldraðra, Dalbraut 27. Verslunin
Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27 og Helena
Halldórsdóttir, Norðurbrún 1. Þá gefst
þeim sem ekki eiga heimangengt kostur á
að hringja í Áskirkju, sími 84035, milli kl.
17 og 19 á daginn og mun kirkjuvörður
annast sendingu minningarkorta fyrir þá
sem þess óska.
Kaupið Sólheimapennann
Á næstu dögum hefst sala Sólheimapenn-
ans til styrktar byggingu tveggja íbúðar-
húsa fyrir vistmenn á Sólheimum í
Grímsnesi. Á Sólheimum, sem er sjálfs-
eignarstofnun, dvelja 40 þroskaheftir
vistmenn. Meiri hluta alls framkvæmda-
fjár heimilisins hefur frá stofntm þess fyrir
57 árum verið safnað með frjálsum fram-
lögum frá almenningi. Fyrir tveimur árum
var safnað fyrir byggingu Iþróttaleikhúss
með göngu Reynis Péturs Ingvarssonar
umhverfis landið, en húsið var tekið í
notkun á síðasta ári. Styrktarstjóður Sól-
heima stendur fyrir söfnuninni með aðstoð
skáta og annarra velunnara heimilisins.
Penninn ber merki heimilisins og verður
boðinn fólki til kaups á 200 kr. víða um
land. Það er von aðstandenda sjóðsins að
almenningur taki sölufólki Sólheimapenn-
ans vel, en með því að eignast nýtan grip
er stutt við góðan málstað.
Fundir
Kvenfélag Neskirkju
heldur fund þriðjudaginn 21. apríl kl. 18
síðdegis. Rætt verður um kaffisöluna og
basarinn á kosningadaginn.
Tapað - Fundið
Kettlingur í óskilum
Ljósrauður bröndóttur högni með brúna
ól er í óskilum að Bergstaðastræti 50.
Upplýsingar í síma 20318 eftir kl. 18.
Læða týnd
Grá og hvít læða tapaðist frá Grettisgötu
fyrir tæpum hálfum mánuði síðan. Ef ein-
hverjir hafa orðið varir við hana þá
vinsamlegast hafið samband í síma 29758.
Afmæli
Afmælisdagskrá til heiðurs
Halldóri Laxness
Á sumardaginn fyrsta, 23. apríl nk„ efnir
menntamálaráðherra til afmælisdagskrár
í Þjóðleikhúsinu í tilefni af 85 ára afmæli
Halldórs Laxness. Forseti Islands, frú Vig-
dís Finnbogadóttir, flytur þar ávarp,
Matthías Johannessen ávarpar afmælis-
bamið og loks flytur Sigurður Pálsson
afmæliskveðju frá Rithöfundasambandi
Islands. Sigrún Hjálmtýsdóttir og Kristinn
Sigmundsson flytja lög við ljóð Halldórs
við undirleik önnu Guðnýjar Guðmunds-
dóttur og Jónasar Ingimundarsonar,
Herdís Þorvaldsdóttir les kafla úr íslands-
klukkunni og loks verður leikið atriði úr
Kristnihaldi undir Jökli og era flytjendur
þeir Gísli Halldórsson, Jón Sigurbjömsson
og Jakob Þór Einarsson. Umsjón með dag-
skránni hefur Sveinn Einarsson. Halldór
Laxness og frú Auður verða viðstödd af-
mælisdagskrána sem hefst kl. 14 og er
öllum heimill ókeypis aðgangur meðan
húsrúm leyfir.