Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Qupperneq 41
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987.
53
Bjöllukjólamir
á toppnum
Nú eru það bjöllukjólarnir sem
blíva eftir að Diana mætti í slíku
átfitti til leiks þegar krónprinshjónin
voru í opinberri heimsókn í Portúg-
al. Hönnuðurinn var sá þekkti
Fransmaður Jean-Paul Gaultier og
hafa minni spámenn endurgert hug-
myndina í hinum ýmsu myndum.
Þessi kjóll er sköpunarverk þýskar-
ans Barböru Bernstorff á tískusýn-
ingu þarlendra spekinga í Múnchen.
Að ofanverðu er sýningarstúlkan
klædd vatteruðum vestisjakka sem
verður íjölfaldaður á almennan
markað ef að líkum lætur.
|' m ■ .if ■ ■ im.: ■> 1
L W - S i 1' 'f Í
i ’ Jm
- Símamynd Reuter
Friðelskandi
forsetadóttir
Amy Carter er þekkt fyrir að vera
alveg öruggiega á lífi og minnir
kvensan á þá staðreynd með reglu-
legu millibili. Síðasta lífsmarkið var
þátttaka í mótmælaaðgerðum ásamt
fjórtán samstúdentum og þykir þetta
með afbrigðum óviðeigandi hegðun
fyrir dóttur fyrrverandi forseta. Á
meðfylgjandi Reutersmynd sést Amy
yfirgefa réttarsalinn í Northampton
eftir að ákæran hafði verið lesin yfir
hausamótunum á henni - umkringd
öðrum sektarlömbum og harðfylgn-
um fréttasnápum.
Sfmamynd Reuter
Svidsljós
Simamynd Reuter
Krílisbiblía
Á bókasafni The American Bible
Society í Nújork kennir ýmissa grasa
og örlítil útgáfa hinnar helgu bókar
er eitt verkanna á safninu. Opnuð
var sýning á safninu á ýmsum merki-
legum gripum þann ellefta apríl og
mun hún standa yfir enn um sinn.
Krílisbiblían er prentuð árið 1822 og
er ein fjörutíu þúsund guðsorðabóka
á sýningunni. Guðsorðin fyrirfinnast
svo á eitt þúsund og átta hundruð
tungumálum og mállýskum þannig
að velflestir ættu að geta fundið þar
eitthvað við sitt hæfi.
Símamynd Reuter
Huggulegir
heimiliskettir
Hans Greulich, sem býr í nágrenni
Dusseldorf, hefur mikið dálæti á
köttum og heldur fimm stórmyndar-
leg stykki þeirrar ættar í húsagarð-
inum heima hjá sér. Þetta eru
tígurp.ardusljón - eða þannig katt-
dýr af cheethaskyni og telur fjöl-
skyldan einn karlkött, tvær
Stefanía prins-
essa prúö
Hin óstýriláta Stefanía prinsessa
af Mónakó mætti bara pen og virðu-
leg með blómvönd í hendi á rósaball-
ið hjá íþróttaklúbbi í Monte Carlo.
Systir hennar, hún Karólína, er sögð
hafa hrósað Stefaníu fyrir að hafa
nú látið af öllum hneykslunaruppá-
tækjum sem ekkert bar á í þetta
skiptið að minnsta kosti. Rainier,
faðir hennar, er einnig sagður hafa
andað léttar.
kerlingar og tvo sjö mánaða gamla
kettlinga. Og sem sjá má á meðfylgj-
andi Reutersmynd er ástin ekki
aðeins á annan veginn á Greulich-
heimilinu því annað kattkrúttið
þvær höfuð vinar síns með óbland-
inni ást og umhyggju.
Ólyginrí
sagði...
Lorenzo
Lamas
var skilinn við eiginkonuna
þegar dóttir númer tvö fæd-
dist. Þetta er hið versta mál
fyrir stjörnuna og hafa all-
margar kerlingar vestra
ýmislegt við slíka hegðun að
athuga. En staðreyndum
verður ekki haggað svo
áfram heldur Lorenzo sína
leið einn og sjálfur - en frið-
aði þó helstu gagnrýnis-
raddirnar með því að vera
viðstaddur fæðinguna og
aðstoða hjúkrunarliðið við
að nugga naflastrengnum í
tvennt. Dóttirin heitir Sha-
yne og er að sögn fróðra
nákvæm eftirmynd síns
brottflogna föður.
Mariana Borg
veitti sitt síðasta blaðaviðtal
með Börn Borg sem um-
ræðuefni í síðasta mánuði.
Þar sagðist hún ekki finna
fyrir neinum biturleika vegna
fyrrverandi eiginmannsins
og hefði reyndar engan tíma
til slíkra hluta - ástin skiptir
hana öllu máli um þessar
mundir. Jean-Louis
Schleisser heitir núverandi
elskhugi Mariönu og saman
hafa þau skötuhjúin lent í
tveimur alvarlegum bílslys-
um á þessu ári. Mariana
segist ákaflega ástfangin og
vísar á bug öllum slúðursög-
um um að hún geti ekki átt
börn í framtíðinni - það er
einungis ekki á verkefnalist-
anum næstu mánuðina.
Amy Carter
hefur lítið stillst frá því að
hún hentist um alla ganga
Hvíta hússins. Faðir hennar,
Jimmy Carter, og móðirin,
Rosalynn, láta ekkert hafa
eftir sér þegar minnst er á
síðustu uppátæki frökenar-
innar - en hún stendur í
stöðugum mótmælasetum
vegna hinna ýmsu mála á
hinum pólitíska himni. Amy
er nemandi við háskólann í
Mássachusetts og milli þess
sem hún brennir í gegnum
þykka fræðidoðranta mætir
kvensan í yfirheyrslur hjá
lögreglunni til þess að út-
skýra veru sína og athafnir
við mótmælavafstur af ýmsu
tagi í nágrenninu-og víðar.
<*