Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1987, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1987, Blaðsíða 32
32 SM4 $Kj F\>^ ÞJOÐRAÐ VIKUNNAR BUBBI MORTHENS - ÞJÓÐ- LAG (GRAMM) Bubbi er bara að verða eins og eðalvín; hann verð- ur betri með hverju árinu og ef svo heldur fram sem horfír bíður hans enn betri tíð með enn fleiri blómum í haga ... Hér hefur hann samið gullfallegt lag við gullfallegt ljóð Snorra Hjartarsonar og mega bæði lag og ljóð una sambúðinni vel. Með þessu lagi hlýtur Bubbi að bæta enn fleiri aldurshópum í aðdáenda- safnið. ÖNNUR ÁGÆT RÁÐ LOS LOBOS - LA BAMBA (SLASH) Hér kveður við annan tón; fjörið leikur hér laus- um hala svo gusast upp um alla veggi. Los Lobos gera þessu gamla þjóðlagi glæst skil og eru raunar sjálf- kjörnir til þess; hljóta að vera uppaldir við þessa tónlist frá blautu barns- beini. Útihátíðalag ef nokkurt slíkt er til. SHAKIN STEVENS - A LITTLE BOOGIE WOOGIE (IN THE BACK OF MY MIND) (CBS) Stebbi hristingur að hressast og hristir hér fram úr erminni laufléttan sum- arsmell sem auðvelt er að syngja og tralla með. Klappið, stappið og smell- irnir, allt er á sínum stað. ATLANTIC STARR - AL- WAYS (WEA) Dettur allt í dúnalogn; lungamjúk ballaða upp á gamla móðinn frá Atlantic Stair, virkilega þægilegt lag en ekkert stórvirki. Gott svo langt sem það nær. NÚ GERAST GÓÐ RÁÐ DÝR SAMMY HAGAR - GIVE TO LIVE (GEFFEN) Hvað skyldi Eddy segja við þessu? Söngvarinn far- inn að smíða smelli upp á eigin spýtur. Hann þarf þó ekki að hafa stóráhyggjur, þetta er sama gamla tugg- an bara undir öðru nafni. Amerísk rokkballaða að- eins í þyngri kantinum, alveg eins og allar hinar, hvorki betri né verri. GLORIAESTEFAN & MIAMI SOUND MACHINE RYTHM’S GONNA GET YOU (EPIC) Latín-amerískt sól í diskóstíl, ósköp verk- smiðjulegt og sérhannað fyrir þá sem stunda fóta- mennt. -SþS- Greifaniir-Sviðsmynd Fjögurra stafa orð Þetta er platan sem átti að verða stór. I stað þess er hún stór-lítil. Fjögur lög á fjörutíu og fimm snúningum, þar af hefur eitt komið áður út á safii- plötu. Þymirós er heldur ekkert annað en uppfylling á Sviðsmynd Greifanna. Upphaflega hugmyndin var að gera stóra plötu sem telja má eðlilegt fram- hald miðað við þögurra laga plötuna í fyrra. Vegna ýmissa ástæðna bíður sú breiðskífan haustsins. Þess vegna ber Sviðsmynd öll merki þess að vera varaskeifa. I rauninni er aðeins eitt lag sem sýnir að Greifamir hafa tekið út þroska frá því á Bláu blóði. Lagið Ast eftir Kristján Viðar og Felix ber af á þessari plötu. Ljúft (Jægurlag, i smekk- legri útsetningu, og textinn um ástina sem brást er blessunarlega laus við væmni. Rómantískt popplag fyrir hryggbrotna. Annað á plötunni er satt best að segja harla ómerkilegt. Framan við sviðið og Frystukistulagið em ódýrir sumarslagarar eins og nú er svo mjög í tísku að setja á plast. Svipuð dæmi em einmitt að finna á plötum Stuð- kompanísins og Sú Ellen. Ákaflega óspennandi. Sviðsmynd er millibilsástand hjá Greifunum. Þeir em að beijast við að losa sig við unglingaímyndina en þurfa meira en lag eins og Ást til að færa sönnur á það. Breiðskífa í haust tekur vonandi af öll tvímæli um þroska Greifanna sem þenkjandi tón- listarmanna. Yfir þessa mynd af hljómsveitinni er hægt að nota eitt fjögurra stafa orð-ókei. -ÞJV 1 m Sniglabandið - Áfram veginn - með meindýr í maganum A réttri braut Sniglabandið vakti á sér verðskuldaða athygli um síðustu áramót með tveggja laga plötu sem naut tölverðrar hylli enda prýðistónlist á ferðinni. Kom í ljós að þessir piltar kunnu ýmislegt fleira fyrir sér en að þeysa um á mótorhjólum, sem er þeirra helsta tómstundaiðja. On nú bæta sniglamir um betur og senda frá sér fjögurra laga plötu en því miður fyrir þessa pilta hefur platan þeirra að mestu drukknað í vorflóðun- um á íslenska plötumarkaðnum. Skýringin á þessu er eflaust sú að ekkert lag af plötunni hefur náð vem- legum vinsældum, einna helst Gunnakaffi en það lag er samt ekki dæmigerður smellur, vantar afgerandi viðlag. Og raunar er ekkert laganna á plötunni þess eðlis að geta slegið í gegn og er þar kannski komin skýring- in á því að plata þessi hefur fallið í skuggann. En vinsældir og gæði fara ekki allt- af saman og kannski sjaldnast enda em á þessari plötu ágætis lög þó ekki hafi þau náð vinsældum. Þijú af lögunum em frekar í mýkra lagi en við var að búast frá Sniglunum en eitt er þéttur rokkari. Það fer ekki á milli mála að Snigla- bandinu hefur farið mikið fram frá fyrstu plötunni og hefur greinilega verið lögð miklu meiri vinna í þessa plötu en þá fyrri. Drengimir em líka orðnir hagvanari í hljóðverinu. Og nú er bara að halda áfram veginn og gef- ast ekki upp. -SþS- Stuðmenn - Á gæsaveiðum Vel ber í veiði Hin virta stofhun og fyrirtæki, Stuð- menn hf., hefur um langt árabil létt landsmönnum stundimar með fram- leiðslu á léttu gæðapoppi með skop- legu ívafi og óneitanlega væri íslenskt tónlistarlíf miklu mun fátækara ef ekki hefði Stuðmanna notið við. Og enn er framleiðslan í fullum gangi og af þessari nýjustu afurð fyrir- tækisins að dæma hefur gæðum framleiðslunnar ekki hrakað nema síður sé. Og skýringin á því er fyrst og fremst sú að í liði fyrirtækisins em landsliðsmenn í hverju sæti eins og íþróttafréttamenn myndu orða það. Liðið er þvi orðið nokkuð vel sam- spilað og verður ekki annað sagt en að á þessari plötu leiki menn við hvum sinn fingur. Sem fyrri daginn er grunnt á spaug- inu hjá Stuðmönnum en sem betur fer falla þeir ekki í þá gryfju, sem margar af þeim sveitum sem reyna að feta í fótspor þeirra í dag falla i, að detta í subbuskap i skemmtiviðleitninni. Á gæsaveiðum inniheldur tíu lög og þar af eiga Jakob Magnússon og Ragnhildur Gísladóttir fjögur lög, Valgeir Guðjónsson á tvö, Egill Ólafs- son eitt og þeir tveir í sameiningu eitt, Valgeir, Jakob og Egill eitt og Val- geir, Egill og Stuðmenn eitt. Fjölbreytnin í lögunum er mikil án þess þó að platan sé sundurleit og hef ég gmn um, þó svo að lögin séu skráð á ákveðna höfunda, að endanleg út- færsla laganna sé samvinna allrar hlj óms veitarinnar. Þegar hafa nokkur lög af þessari plötu öðlast þjóðfrægð og ekki furða þar sem um er að ræða vandaða popp- tónlist eins og hún gerist best, bæði lög og flutningur. Er ég á því að Stuðmannafabrikkan hafi ekki sent frá sér betri framleiðslu síðan Með allt á hreinu kom út um árið, sællar minningar. Einn galli er þó á þessari afurð og er hann sá að textablað fylgir ekki með plötunni og er það miður vegna þess að hljómsveitin leggur óneitan- lega mikið upp úr textum og ætti ekki að vera mikið mál að láta þá fljóta með í plötuumslagi. En þetta er bara lítils háttar galli, í heildina er þessi plata gæðagripur og enn ein rósin í vöndinn í hnappagati Stuðmanna. cutj FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987. POPP SMÆLKI Sæl nú!... Michael Jack- son er loksins að rjúfa einangrunína eftir fjögurra ára þögn og 40 milljón plöt- ur seldar af Thriller. Fyrir nokkrum dögum kom út fyrsta smáskífan af væntan- legrí breiðskífu Michaelsog er þar að finna lagið I Just Can't Stop Loving You. Og þar syngur M ichael dúett með Siedah nokkrum Garrett og ku þetta vera hugguleg- asta lag. Breiðskífan BAD er svo væntanleg einhvern tíma i ágúst og i september hefst heimsreisa Michaels og leggur hann upp frá Jap- an. Ekki erreiknaðmeð honum til Evrópu fyrr en með næstu vorskipum ... Heldur er orðið fátæklegt um að litast í hreiðri þeirra Jack- son-bræðra eins og það var og hét á velmektardögum bræðrabandsins. Piltarnir hafa verið að læðast burtu einn og einn til að reyna fyrir sér á eigin spýtur og hefursumum bara gengið þokkalega eins og kunnugt er. Nú eru bara þeir Randy, Tito og Jacky eftir og fer engum sögum af plötuútgáfu þeirra ... Madonnahéltá dögunum tónleika í Madison Square Garden í New York og rann allur ágóði af tón- leikunum til baráttunnar gegn eyðni. Heimildir herma að tónleikarnir hafi verið meiriháttar og ku sú stutta hafa farið á kostum á svið- inu og þá ekki síður í sveifl- um ensöng . .. Mr. Mister, sem gerði það svo gott á siðasta ári, er með nýja breiðskifu á næstu grösum. Kemur platan út I ágústmán- uði og heitir Go On ... Stevie Wonder og sjálfur stórsjarmurinn Julío Igles- ias dúett og til að gera nú ekki upp á milli stórstjarn- anna verður þetta lag að finna á væntanlegum breið- skifum þeirra beggja . . . Þvi er nú fleygt, og fyrir þvi tald- artraustar heimildir, að dagar Frankie GoesTo Hollywoodséu núallir. Hljómsveitin tók sér hlé frá störfum i vor sem kunnugt er en ekkert hlé virðist ætla að verða á hléi. Peter Giil, trommuleikari hljómsveitar- innar, sagði á dögunum i giftingarveislu Mark O'To- ole, bassaleikara FRGTH, að samkomulag þeirra við söngvarann Holly Johnson væri ekki upp á það marga fiska að það tæki þvi að lappa upp á það. Taldi Gill ekkióliklegtað þeirsem eftir væru i hljómsveitinni héldu hópinn undirnýju nafni. .. verði þeim að góðu . . . -SþS-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.