Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988. 27 stefna selur jafnmikið af plötum i Bandarikjunum og milliþunga iðnaðarrokkið. Það nýjasta á þeim markaði ku vera hljómsveit sem nefn- ist Kingdom Come sem sendirfrá sér sína fyrstu plötu innan skamms. Sér- fróðir menn vestra keppast Tröllasögur af meintri bilun Michaels Jackson ganga alltaf við og við í erlendum popptímaritum. Sú nýjasta hermir að drengurinn sé nú önnum kafinn við að læra tungumál eða hijóð simpan- sapa, enn eitt slíkt kvikindi er i eigu Jacksons. Api þessi heitir Bubbles og fór með húsbónda sinum til tónleika- halds í Japan á dögunum. Og þar sem Michael Jack- son er frekar mannfælinn maður eyddi hann meiri tíma í selskap apans en viti bor- inna manna. Sátu þeir Jackson og apínn löngum á skrafi en sá var gallinn að ekki skíldi Jackson mikið hvað apinn var að fara og þá apinn ekki heldur hvað Jackson var að fara. Og þar sem sérfræðingar fullviss- uðu Jackson um að apinn gæti aldrei lært ensku til gagns, ákvað Jackson að læra tungutak apans... Gamli Led Zeppelin gitar- leikarinn Jimmy Page hefur haft hægt um sig upp á siðk- astið en innan tíðar kemur á markaðinn sólóplata frá honum sem gamlir rokkarar binda miklar vonir við. Í framhaldi af útgáfu þessarar plötu stendúr hljómleikaferð um Bandarikin fyrir dyrum og þar verða í för með Page valinkunnir menn eins og Jason Bonham, sonurgamla Zeppelin trommarans Johns Bonham, Chris Farlow og Íslandsvinurinn gamli, John Miles, sem steig sin fyrstu frægðarsor í Klúbbnum gamla innvið Borgartún hér um árið... Það rætistúr mönnum... -SþS- Nýjar plötur George Michael - Faith Maður í mikilli framför Þegar Wham! dúettinn leystist upp var löngu ljóst að framtíðin blasti við George Michael en fortíðin við félaga hans, Andrew Ridgeley. Sú hefur líka orðið raunin: George Michael er orð- in stórstjarna í eigin nafni á alþjóð- legan mæhkvarða en Andrew Ridgeley er gleymdur og grafinn. Faith nefnist þessi fyrsta sólóplata George Michael og það er víst að hann hefur fulla trú.á því sem hann er að gera og þá ekki síður. plötu- kaupendur því platan er með sölu- hæstu plötum heimsins um þessar mundir. Margir héldu að George Michael yrði bara einn glanspopparinn enn; mörg lög Wham! bentu til þess að hann ætti auðvelt með aö semja ein- faldar dægurflugur sem flygju inn um annað eyrað og út um íútt. En annað hefur komið á daginn, pilturinn hefur sagt skilið við glans- popþið að mestu og greinilega orðið fyrir miklum áhrifum frá kollega sínum, Prince. Reyndar hefur amer- ísk soultónlist alla tíð sett mark sitt á tónsmíðar George Michael en þessi amerísku áhrif eru sérstaklega áber- andi á þessari plötu enda hefur henni verið mun betur tekiö í Bandaríkjun- um en í Bretlandi. Tónlistin á þessari plötu er ekki af því taginu sem maður grípur við fyrstu áheyrn. Það er þung undiralda í flestum lögum, takturinn þéttur og takthljóðfærin í stærstu hlutverkun- um. Og þó svo að George Michael hafi breytt svo lítið um áherslu í tónlist sinni hafa hæfileikar hans sem laga- smiðs ekki dvínað, þvert á móti tel ég hann hafa vaxið um allan helming sem lagasmiður; er áberandi þrosk- aðri en bara fyrir tveimur árum. Hann er greinilega mikill tilfmn- ingamaður, það er drjúgur hiti í mörgum lögum hér og ennfremur er mikil tilfinning í söngnum. / George Michael gerði tvímælalaust rétt þegar hann leysti upp Wham! dúettinn þó þar væri um gulltryggða tekjulind að ræða. Hann haföi enn- fremur vit á að faUa ekki í þá gryfju að endurtaka það sem hann var að gera með Wham! og plata þessi er gott vitni um aö hér er maður sem veit hvað hann er að gera. -SþS- Madonna - You Can Dance Grímulaust gróðabrall Möguleikar snjallra tónlistar- og bisnessmanna á að græða á tónlist sinni eru óneitanlega miklu meiri í dag en var fyrir einum áratug eða svo. Þá og reyndar áður gáfu menn einfaldlega út eitt stykki stóra plötu og síðan hugsanlega einhverjar smá- skífur. Nú hafa bæst við þessa útgáfu alls kyns mixútgáfur sem gera það að verkum að hægt er aö selja sama lagið í fjórum fimm rnismunandi út- gáfum og verður það að teljast góð nýting á einu lagi. Þessi nýútkomna plata með Ma- donnu er einmitt af þessu gjörnýting- artagi. Hér eru sérstakar dansútgáf- ur á lögum sém fraukan hefur áður sent frá sér á stórum og litlum plöt- um. Eitt lag nýtt er látiö fljóta með, líklega til að geta sagt við væntanlega kaupendur að þeir séu ekki bara að kaupa gamlar lummur. En hér er sem sagt gamla diskóið lífgaö við, sami takturinn er gegnum- gangandi alla plötuna út í gegn og lögin fljóta saman í eina hellu sem á sér ekkert upphaf og engan endi. Þetta er ekki tónlist sem menn setja á fóninn hjá sér á síðkvöldi til að slappa af og njóta og þaðan af síður til að pæla í á nokkurn hátt. Þessi tónlist er nefnilega gjörsamlega and- laus og vélræn og gerir nákvæmlega engar kröfur til hlustenda nema þá helst að þeir geti hreyft lappirnar í takt við bankið Ekki get ég sagt að Madonna hafi hækkað í áliti hjá mér viö hlustun á þessa plötu; hins vegar veit ég að hún getur samið ágætis popplög og kannski ekki viö hana eina að sakast þegar svona augljóst gróðabrall er á ferðinni eins og við blasir að þessi plata er. -SþS- Fréttir Flotamálaráðherra Bandarikjanna, James H. Webb jr„ og Steingrimur Hermannsson, utanríkisráðherra íslands, kveðjast eftir sameiginlegan blaðamannafund í Ráðherrabústaðnum i fyrradag. Með þeim á mynd- inni er Nicholas Ruwe sendiherra Bandaríkjanna á íslandi. DV-mynd BG Steingrímur fundaði með flotamálaráðherra Flotamálaráðherra Bandaríkj- anna, James H. Webb jr„ dvaldi hér á landi á miðvikudag og fimmtudag til að kynna sér starf og aðbúnað varnarliðsins á Keflavíkurflug- velii. í fyrradag átti hann stuttar viðræður við Steingrím Her- mannsson utanríkisráöherra og Þorstein Pálsson forsætisráðherra. Steingrímur Hermannsson sagði fund sinn með Webb hafa verið ákaflega stuttan en þar ræddu þeir olíulekann á Keflavíkurflugvelli og hvernig hægt væri að lagfæra það tjón sem varð af völdum hans. Þá ræddu þeir ýmis vandamál sem upp hafa komið á liðnum árum. T.d. vöruflutninga til varnarhðsins og kjötmálin svokölluðu. -JBj Ronald Currie kom frá Svíþjóð til að kynna tækið. Á innfelldu myndinni má sjá skó þar sem endurvarpsplata hefur verið fest við skóinn. DV-mynd S FlugbjörgunarsveHJn: Nýjung til leitar í snjóflóðum Flugbjörgunarsveitin hefur kynnt nýtt tæki til leitar í snjóflóðum. Tæk- ið er sænskt og sendir það frá sér radiogeisla. Til aö leitartækið komi að gagni er nauðsynlegt að sá sem leitað er að sé með á sér sérstakt endurvarp. Endurvarpið er htil þunn plata. Hún tekur á móti geislunum og tvöfaldar kraft sendingarinnar. Leitarækið nemur síðan geislann aft- ur. Leitartækið ætti við góðar aöstæð- ur að geta fundið mann sem grafinn er allt að 10 metra undir snjó. Vatn og málmur draga úr stýrk sending- anna. Endurvarpið verður selt víða og mun ekki kosta mikið. Þegar er hafin framleiðsla á skíða- og göngu- skóm þar sem endurvarpsplatan er fest í skóna. Ingvar Valdimarsson hjá Flug- björgunarsveitinni sagði að þessi nýjung væri góð viðbót við þau áhöld sem nú eru th til leitar í snjóflóðum. Áfram verður þó að þjálfa hunda óg leita með eldri aðferöum. Vatn getur verið neðst í snjóflóðum, eins er hætta á að viðkomandi verði ekki með endurvarp og eins er mögulegt að endurvarpsplatan losni af þeim sem verður fyrir snjóflóði. -sme Stóra hassmálið: Öll þrjú laus úr gæsluvarðhaldi Sá aðili, sem setið hefur í gæslu- varöhaldi frá því um miðjan nóv- ember vegna innflutnings á tugum kílóa af hassi, hefur verið látinn laus. Áður hafði manni og konu, sem tekin voru fyrir aöild að máhnu, veriö sleppt úr gæsluvarðhaldi. Guðjón Marteinsson, deildarlög- fræðingur fikniefnadeildar, segir að nú hilli undir lok rannsóknar máls- ins. Hann varðist ahra frétta af niðurstöðum hennar. „Þegar við ljúkum rannsókn á áíkæruvaldið leik,“ sagði Guðjón. Áður hefur komið fram að við rannsókn málsins játaði fólkið að hafa flutt til landsins á milli 60 og 70 kíló af hassi á tveimur árrnn. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.