Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Síða 34
46 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988. Handknattleikur imglinga______________________________________________________dv Mikið um óvænt úrslit Nokkuð varð um óvænt úrslit í 3. flokki kvenna í handbolta. Sum lið komu sterkari til leiks heldur en búist var við og önnur hð ollu nokkr- um vonbrigðum. Reykjavíkurmeistarar KR og Sel- foss háðu haröa baráttu um meist- aratitihnn í 1. deild. Bæði liðin töpuðu einum leik, KR fyrir hði UMFG, 13-14, en Selfoss tapaði inn- byrðisviðureign þessara liða í miklum baráttuleik sem endaöi með eins marks sigri KR, 6-5. UMFN og Grótta tryggðu sér rétt til að leika í úrslitum Islandsmótsins í vor með því að enda í 3.-4. sæti. Þessi lið tryggðu sér réttinn með því að sigra lið Víkings og UMFG og gera jafntefli sín á milli. Víkingar, sem léku til úrslita í Reykjavíkurmótinu fyrr í vetur, unnu aðeins lið UMFG og falla því í 2. deild ásamt þeim. Víkingur og UMFG hafa tækifæri til að vinna sér sæti í úrslitum í vor en til þess þurfa þau að vinna 2. deild í næstu umferð. Framarar, sem féllu í síðustu um- ferð í 2. deild, stöldruðu stutt við og unnu alla leiki sína. Var sigur þeirra ekki í hættu í neinum leikja þeirra nema helst gegn liði UMFA sem stúlkurnar sigruðu, 13—11. Haukar, UMFA og ÍBV börðust hatrammri baráttu um annað sætið sem laust var í 1. deild. ÍBV tókst að tryggja sér 1. deildarsæti þrátt fyrir að hafa tapað fyrir Fram og FH, þar sem þær lögðu að velli, auk UMFA og Hauka, lið Þróttar og Fylkis. UMFA varð í þriðja sæti, sigraði FH, Þrótt og Hauka og gerði jafntefli við Fylki, 10-10. Haukar urðu að sætta sig viö fjórða sætið þar sem stúlkurnar unnu að- eins lið Fylkis og FH en gerðu jafn- tefli við Þrótt. FH hélt sæti sínu í 2. deild með sigr- um á ÍBV og Fylki en Þróttur og Fylkir veröa aö leika í 3. deild í næstu umferð. Lið ÍBK og ÍA virtust skera sig nokkuð úr í 3. deild. Töpuðu þau ekki leik og gerðu jafntefli sín á milli, 10-10. Markatala ÍBK var nokkru betri þar sem Keflvíkingar unnu andstæðinga sína flesta með miklum mun. UBK varð í 3. sæti með sjö stig. í 4. sæti varð lið ÍR með sex stig en Reynir í 5. sæti með fimm stig. HK og UFHÖ urðu í tveimur neðstu sætunum. Á Akureyri var síðan fyrsta um- ferðin af þremur leikin og komu Þórsarar sterkir til leiks, unnu KA, 6-3, og Völsung, 13-5. KA sigraði svo Völsung í jöfnum leik, 9-8. Þau lið, sem nú eru í 1. deild, hafa þegar tryggt sér sæti í úrslitum um Islandsmeistaratitilinn þrátt fyrir að ein umferð sé eftir í deildum. Auk þess hætast við tvö efstu hð 2. deildar næstu umferðar og lið frá Akureyri og Austfjörðum. Dehdimar verða þannig í næstu umferð sem fram fer helgina 20.-21. febrúar nk. 1. deild: 2. deild: 3. deild: KR Víkingur Þróttur Selfoss UMFG Fylkir UMFN UMFA UBK Grótta Haukar ÍR Fram FH Reynir ÍBV FBK HK ÍA UFHÖ Dómara vantaði í lokaumferð 1. deildar - litlu munaði að fresta yrði síðustu umferðinni Það var jöfn og spennandi keppni í flestum deildum 3. flokks karla í síð- ustu umferð. Úrslit leikja-réðust oft ekki fyrr en á síðustu sekúndunum og markatala réð sætaröð. Á Akureyri var háð hörð keppni í fyrstu umferð íslandsmóts Norður- landsriðils en leiknar eru þrjár umferðir og það hð sem sigrar í riðl- inum leikur í úrshtum meðal þeirra bestu en liö í 2. sæti leikur í B-úrslit- um. Af úrshtum leikja virðist sem öh þrjú liðin séu af svipuðum styrk- leika. Mikil gróska virðist vera komin í handknattleik á Húsavík með tilkomu nýs íþróttahúss og tek- ur Völsungur þátt í Norðurlandsriðh í öllum flokkum. Völsungar stóðu sig nokkuð vel í 3. flókki þótt þeir töpuðu báðum leikjum sínum í 1. umferð. Munurinn var ekki mikill, tap fyrir KA, 18-14, og Þór, 17-14. KA og Þór gerðu síðan jafntefli sín á milli, 14-14, og KA-menn eru því í efsta sætinu til að byrja með vegna hagstæðari úrshta gegn Völsungi. Valur, dehdarmeistari síðustu um- ferðar, hélt uppteknum hætti og vann flesta leiki sína í 1. dehdar keppninni sem háð var í Vestmanna- eyjum. Þeir gerðu þó jafntefli gegn FH. Harða keppni um 3.^J. sæti háðu heimahðin, Týr og Þór. Bæði hðin töpuðu fyrir Völsurum en Týr hafði betur og hlaut 2. sætið með sigri á Þór i dæmigerðum leik Eyjaliðanna. Hörðum og spennandi leik lauk með eins marks sigri Týs, 11-10. í 4. sæti varð lið FH sem auk jafn- teflisins við Val sigraði Stjömuna og UMFA. Stjarnan og UMFA féhu í 2. deild, unnu engan leik en geröu jafntefli í leik sín á milh, 16-16. Frammistaða Stjömunnar kom nokkuð á óvart þar sem Stjaman var í baráttu um dehd- armeistaratitihnn í síðustu umferð. Litlu munaöi að fella yrði niður eða fresta síðustu umferðinni sem fara átti fram á sunnudeginum þar sem erfiðlega gekk að fá dómara til starfa. Mikil bið varð á að fyrsti leikur á sunnudagsmorgni hæfist. Að honum loknum dæmdu þjálfarar hðanna t. þ.a. hægt væri að ljúka keppninni. Keppnin í 2. dehd fór fram í Digra- nesi og komu Framarar þar sterkast- ir th leiks en fyrirfram var búist við harðn baráttu þeirra við Víking og HK. Öll þessi lið unnu leiki sína við Þrótt, UBK og ÍR þannig að viðureign þessara liða innbyrðis réð röð þeirra. Fram sigraði Víking, 14-10, og HK, 14-11, og tryggði sér þar með sæti í 1. dehd og úrslitum í vor. Það var því mikil spenna í leik Vík- ings og HK því það hð sem sigraði fylgdi Fram í 1. dehd. Lið HK kom ákveðnara til leiks og náði fljótlega fomstu sem það hélt th leiksloka. Leiknum lauk með sigri HK, 1845. Það var einnig mikh spenna á botni 2. dehdar og var mikh barátta um að ná að halda sér í dehdinni ásamt Víkingi. UBK féh í 3. deild með ekkert stig en Þróttur og ÍR hlutu þijú stig, gerðu jafntefli sín á milli. Þegar farið var að athuga markahlutfah þessara hða kom það í ljós að það var jafnt. Þurfti því að athuga hvort hðið hefði skorað fleiri mörk og héldu Þróttarar sér í 2. dehd á fleiri skoruðum mörk- um en ÍR-ingar falla í 3.deild ásamt UBK. í Keflavík fór fram keppni í 3. deild og sigraði lið Gróttu dehdina á fuhu húsi stiga. Selfoss fer með þeirp upp í 2. dehd en þeir töpuðu aðeins leikn- um á móti Gróttu. KR, sem kom úr 2. deild, situr eftir ásamt Fylki, hlutu þau bæði fimm stig. Lið heimamanna, ÍBK, féh ásamt ÍA í 4. deild. ÍBK tapaði öllum sínum leikjum en ÍA sigraði aðeins hð Keflavíkur. Aðeins þijú lið voru í 4. dehd og sigraði lið Hauka báða andstæðinga sína. Ármann og UFHÖ gerðu jafn- tefli í innbyrðisviðureign, 17-17, og Ármann fylgir Haukum upp í 3. deild vegna hagstæðari úrshta gegn þeim heldur en UFHÖ. Leikið verður næst í 3. flokki karla helgina 20.-21. febrúar nk. og beijast þá aðallega lið í 2. deild um sæti í úrslitum því 1. dehdar hðin hafa þeg- ar tryggt sér sæti í þeim. Deildaskiptingin verður þannig: 1. deild 3. deild Valur ÍR Týr UBK Þór Fylkir FH KR Fram Haukar HK Ármann 2. deild 4. deild Stjarnan ÍA UMFA ÍBK Víkingur UFHÖ Þróttur Grótta Selfoss • Glæsileg tilþrif úr leik Vikings og ÍR í 3. flokki karla. Barátta og leikgleði réð ríkium í 5. flokki karla var keppni jöfn og spennandi eins og venjulega þegar þessi aldursflokkur á i hlut. Leik- gleðin er ávallt í fyrirrúmi og keppnisharkan gifurleg enda aldrei gefið eftir. Það er því oft töluvert af áhorfendum sem fylgist með en þeir mættu vera fleiri því þetta er hin besta skemmtun. Það kom í hlut Akraness að sjá um 1. dehdina að þessu sinni og leystu Akumesingar þaö ágætlega af hendi. Eins og við var að búast var keppnin gífurlega jöfn og spennandi og ógern- ingur er að spá hver hlýtur hinn eftirsótta íslandsmeistaratitil þegar upp verður staðið. í fyrsta leik tapaði HK nokkuð óvænt fyrir Víkingum sem sphuðu sinn besta leik í langan tíma og nældu sér í dýrmæt stig. Ekki var baráttan minni hjá KR og UBK þvi UBK sigraði með eins marks mun, 12-11 í annarri umferð sigraði KR hð heimamanna með fjögurra marka mun, 13-9. í næsta leik mættu HK piltamir mjög ákveðnir th leiks og vom staðráðnir í að tapa ekki aftur og sigruðu Stjörnuna örugglega, 13-8. Víkingur tapaði síðan naum- lega fyrir UBK með eins marks mun, llr10. í þriðju umferðinni, sem sphuð var seint á laugardaginn, mættust KR og HK í fyrsta leik og sigraði HK 13-9. UBK sigraði síðan ÍA nokkuð ömgg- lega, 12-8. Síöasti leikur dagsins var síðan á mhli Stjörnunnar og Víkings og var hann gifurlega jafn og spenn- andi og ekkert gefið eftir. Leiknum lauk meðjafntefli, 11-11, og voru það sanngjöm úrsht þegar upp var stað- iö. Á sunndagsmorguninn mættust síðan tvö bestu hðin, HK og UBK. Þegar hér var komið sögu hafði UBK ekki tapað leik en með sigri heföu strákarnir tryggt sér efsta sætið. Strákamir í HK vom ekki á þeim buxunum, spiluðu mjög góðan hand- bolta, börðust vel í vörninni og sigruðu örugglega, 10-6. Stjarnan tapaði síðan fyrir KR. ÍA sphaði við Víkinga og sigraði nokkuð auðveld- lega, 12-9. I síðustu umferðinni sigraði UBK Stjömuna 12-9 og HK sigraði ÍA12-7. í síðasta leik mótsins sigraði KR Vík- inga 10-9 í æsispennandi leik. Urslit voru því ráðin. HK og UBK voru efst og jöfn með 8 stig en HK hneppti fyrsta sætið vegna þess aö HK sigraði í innbyrðis viðureign þessara liða. KR varð í þriðja sæti, Víkingar lentu í fjórða sæti með jafn- mörg stig og Stjarnan en hagstæðara markahlutfall réð því að Víkingar héldu sæti sínu í 1. deild. Skagamenn lentu í neðsta sæti að þessu sinni en þeir hafa alla burði til þess að gera betur. Markahæstu menn þessarar umferðar vora: Gunnleifur Gunnleifsson, HK, 25 mörk. Alfreð Karlsson, ÍA, 21 mark. Daði Ingólfsson, KR, 19 mörk. Sæþór Olafsson, HK, 18 mörk. Þórhallur Ö. Hinriksson 16 mörk. Önnur dehdin var leikin í Álfta- mýrarskóla. Þar sigruðu hinir snjöllu leikmenn Týs frá Vest- mannaeyjum og leika því í 1. dehd í næstu umferð. FH fylgir þeim þang- að en lenti í öðru sæti með jafnmörg stig og Selfoss sem hafnaði í þriðja sæti vegna þess aö FH hafði hagstæð- ara markahlutfall. Þór lenti í fjórða sæti. Það kom síðan í hlut Fram og ÍR að falla í þriðju deild að þessu sinni en bæði liöin fengu tvö stig. Þriðja deild var leikin í Sandgerði. Valsmenn komu, sáu og sigruðu. Þeir unnu alla leiki sína og spila því í 2. deild í næstu umferð. Reynir frá Sandgerði lenti í öðru sæti og fer því einnig upp í 2. deikl ÍBK lenti í þriðja sæti, Fylkir í fjórða sæti en Grótta féll í 4. dehd ásamt UMFN sem fékk ekkert stig. Fjórða deild var leikin í Borgar- nesi. Heimamenn unnu aha leiki sína og sigruðu þar með í fjórðu deild- inni. UMFA varð í öðru sæti. Haukar og Ármann lentu í 3.-4. sæti. Þróttur í hafnaði í 5. sæti og UFHÖ í 6. sæti. Deildirnar eru því þannig skipaðar: 1. deild: 3. deild: HK Fram UBK ÍR KR ÍBK Víkingur Fylkir Týr, Ve. Skallagrímur FH UMFA 2. deild: 4. deild: Stjarnan Grótta ÍA UMFN Selfoss Þróttur Þór, Ve. Haukar Valur Ármann Reynir, Sandg. UFHÖ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.