Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Side 41
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988.
53
Lífsstfll
Sumarverðlistar ferðaskrifstofanna
25-35% hækkun á ferðum
Nú um helgina birtast nýir sum-
arbæklingar flestra ferðaskrifstof-
anna. Þessara bæklinga er beðið með
nokkurri eftirvæntingu af þeim sem
hyggjast ferðast í sumar. Eins og
venjulega eru bæklingarnir fullir af
girnilegum ferðamöguleikum og
myndum. Verð hefur þó breyst tölu-
vert frá því síðastliðið sumar og er
hækkunin á bilinu 25 til 35 prósent.
Að sögn ferðafrömuða eru margar
ástæður fyrir hækkunum þessum og
er verðbólgunni gjarnan kennt um.
Meðaltal framfærsluvísitölu hefur
hækkað 26,1 prósent á þessu tíma-
biii.
Á dögum aukins verðbólguhraða
rifjast upp það tímabil þegar ekki var
hægt að að gera sér grein fyrir hvað
ferðalagið myndi kósta fyrr en síð-.
asta afborgunin var greidd. Þeir sem
ætluðu að skipuleggja og panta ferð
sína tímanlega gátu átt von á því að
ferðin kostaði helmingi meira en
upphaflega var áætlað. Þegar spurst
var fyrir hjá ferðaskrifstofum hvort
þessi þróun myndi eiga sér stað í ár
svöruðu þær því neitandi. Þrátt fyrir
það má áætla að vegna gengisþróun-
ar og hækkana innanlands muni
þessi glænýju verð, sem gefin eru
upp í bæklingunum, geta orðiö nokk-
uð hærri í sumar.
En það er ljóst að bæklingar ferða-
skrifstofanna hafa aldrei verið eins
vel úr garði gerðir og nú. Ferðatil-
boðin eru fjölmörg, nokkuð um
nýjungar og enn sem fyrr virðist
meginþunginn og flest ferðatilboðin
vera í sólarlöndin. Síöasta sumar
voru flestar ferðir til Mallorca.
Sýnishorn af nýjum sumarverðlistum ferðaskrifstofanna.
Nýjar leiðir
—fleiri möguleikar
Af nýjum áfangastöðum má nefna
hefja Flugleiöir beint flug til Helsinki
og Arnarflug beint flug til Mílanó. í
kjölfar þessara nýju flugleiða opnast
Kýpur en þangað verður farið í ennnýirmöguleikarfyrirferðamenn
skipulagða hópferð F sumar. Nýjar
skipulagða hópferð rsumar. Nýjar
flugleiöir opnast með sumrinu, þá
sumarsins.
Ef staða dollars verður svipuð í
sumar og hún er í dag má áætla að
fleiri ferðamenn leggi leið sína vestur
um haf en oftast áður. Þar eru feröa-
möguleikamir fjölmargir.
Ekki er að efa aö þeir sem eru farn-
ir að velta fyrir sér sumarleyfinu fái
sér þessa nýju verðlista ferðaskrif- ;
stofanna, síðan er það spuming
hvort íslendingar verða eins ferða-
glaðir og í fyrra þegar það liggur ljóst
fyrir að verðhækkanirnar em veru-
legar. EG
Hagstæð fargjöld innan Bandaríkjanna
Augu ferðamanna beinast í vestur-
átt um þessar mundir vegna stöðu
dollarans. Vegna legu okkar lands,
miöja vegu á milh Moskvu og Was-
hington, má segja að við séum vel í
sveit sett með vesturferðir. Héðan er
beint flug til flmm áfangastaða í
Bandaríkjunum. Þeir eru New York,
Boston, Baltimore, Chicago og Or-
lando. Fargjöld á þessa staöi eru
mishá eftir þvrhvers konar farmiðar
eru keyptir, apex, normal eða saga,
og einnig skipta vegalengdir máli.
Til New York og Boston kostar apex-
farmiði 23.740 kr., Baltimore 25.140
kr., Chicago 26.770 kr. og Orlando
30.750 kr.
Við ætlum að benda ferðamönnum,
sem hyggja á vesturferð, á svonefnda
flugpassa. Fyrir erlenda ferðamenn
eru í boði flugpassar um Bandaríkin
þver og endilöng á mjög hagstæðu
verði. Við skulum taka nokkur
dæmi.
Það eru fáanlegar nokkrar gerðir
af flugpössum, t.d. hopp-passi
(„stand-by“ passi) sem veitir hand-
hafá hans heimild til aö fljúga til
þeirra borga innan Bandaríkjanna
sem hann kýs, eins margra og hann
getur en á ákveönu tímabil. í flestum
tilvikum er um þrjátíu til sextíu daga
passa aö ræða. Helsti kostur við slík-
an passa er að ferðamaðurinn er
engum háður, getur um fijálst höfuð
strokið og valið eigin ferðaleiðir þeg-
ar honum hentar. Einn galli er á
þessu fyrirkomulagi: ekki eru alltaf
laus sæti í því flugi sem fyrirhugaö
er að nýta sér hverju sinni. Slíkt get-
ur sett stórt strik í reikninginn nema
það sé látið ráða hverju sinni hvar
sæti er laust. Þeim ferðamönnum,
sem kaupa hopppassa, er ráölegra
að bera sig ekki eftir eftirsóknar-
' verðum sætum á háannatíma sem
er eftir hádegi á fóstudögum og yfir
helgar fram á hádegi á mánudögum.
Bandaríska flugfélagið Delta býður
30 daga hoppflugpassa (stand-by)
sem kostar 399 dollara (14.800 kr.).
Northwest Airlines og Air Canada
bjóða líka hopppassa. Passinn hjá
Northwest kostar 379 dollara (14.000
kr.) og mánaðarpassi 449 dollara
(16.700 kr.).
Fjögurra áfanga
passar
Aðrir flugpassar eru einnig fáan-
Ferðir
Þórunn Gestsdóttir
Erlendur Garðarsson
legir fyrir þá farþega sem vilja bóka
flugleiðir sínar með fyrirvara og hafa
sett sér ákveðin ferðamörk. Þriggja
áfanga passi kostar hjá Pan-Am 7.500
kr. og fjögurra áfanga passi hjá Delta
kostar 12.000 kr. Hjá Pan-Am er hægt
að bæta við þriggja áfanga passann
og kostar þá hver viðbótaráfangi um
2.500 kr. Hjá Delta-flugfélaginu er
hægt að kaupa fjögurra staða flug-
passa með fyrirfram ákveðnum
bókunum fyrir rúmar tólf þúsund
krónur.
Þaö eru alltaf einhverjir varnaglar
reknir í öllum tilboðum. Ferðamenn
verða að athuga að lesa smáa letriþ
þar sem greint er frá því sem leyfl-
legt er og hinu sem ekki má. Til
dæmis er verð á fjögurra staöa pöss-
unum miðað við ákveönar dagsetn-
ingar og ef þeim er breytt þarf sums
staðar aö greiða aukalega eitt til tvö
þúsund krónur.
Það er einnig rétt að aðgæta á
hvaða staði flugfélagiö flýgur sem
passamir eru keyptir hjá. Og einnig
hvort í gildi er samkomulag á milli
hinna ýmsp flugfélaga um notkun
passanna. Innan Bandaríkjanna eru
starfandi fjölmörg flugfélög og mörg
þau smærri bjóöa oft lægra passa- ,
verö en þá kemur á móti að flugnet
þeirra er ekki eins þétt og stóru flug-
félaganna.
Flest flugfélögin bjóöa erlendum
flugfarþegum sérfargjöld innan
Bandaríkjanna, sbr. flugpassana.
Þau eru líka mörg með sérfargjöld
til Mexíkó, Hawaii og Kanada fyrir
rúmar sjö þúsund krónur.