Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1988, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1988, Qupperneq 4
4 LAUG'ARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988. Fréttir Ættingjar manns með heilarýrnun kæra til rannsóknarlögreglunnar: Telja að bújörð hafi verið véluð af honum Rannsóknarlögreglan rannsakar nú hvort Árni Þórarinn Jónsson, 71 árs gamall vistmaöur á dvalar- heimili aldraðra á Kirkjubæjark- laustri, hafi verið sér meðvitandi um það þegar hann veitti tveimur frændum sínum fullt og ótakmark- að umboð til að ráðstafa eignarjörð sinni. Aðrir ættingjar mannsins telja hann það þrekaðan af heilar- ýrnun að ómögulegt sé að hann hafi verið vitandi vits um hvað fram fór þegar umboðið var veitt. Forsaga málsins er sú að þann 12. febrúar síðastliðinn var skrifað undir umboð gamla mannsins til frænda sinna, Þórarins Sigurjóns- sonar, fýrrverandi alþingsmanns á Laugardælum, og Sigurðar Æyars Harðarsonar, trésmiðs í Vík. Árni Þórarinn skrifaði þó ekki sjálfur undir umboðið heldur handsalaði það til Harðar Davíðssonar, for- stöðumanns vistheimilisins, sem skrifaöi undir fyrir hans hönd. Vottar að handsalinu og fjárræði Árna Þórarins voru tveir, Hanna Hjartardóttir, kennari á Klaustri,. og Siggeir Björnsson, hreppstjóri í Holti. Þegar öðrum ættingjum Árna Þórarins barst afrit af umboðinu síðastliðinn sunnudag kærðu Kjartan Jónsson, bróðir Árna Þór- arins, og Gunnar Jónsson lögmað- ur alla hlutaöeigandi til Rannsóknarlögreglunnar. Auk þess fóru þeir og fleiri ættingjar fram á að Árni Þórarinn yrði svipt- ur fjárræði. Rök fyrir kærunni eru þau að gamli maðurinn sé svo langt leiddur af heilarýrnun að hann hafi enga grein getað gert sér fyrir því hvað átti sér stað þegar umboð- ið var útbúið. Benda þau meðal annars á að hann hafi ekki skrifað sjálfur undir enda geti hann það ekki vegna sjúkdóms síns. Árni Þórarinn er einn skráður eigandi jarðarinnar Hrífuness í Skaftártungu og tók umboðið sérs- taklega til hennar allrar ásamt húsum, hlunnindúm og fullvirðis- rétti. Þrátt fyrir það telja þeir sem kærðu að arfur foreldra hans sé enn óskiptur að hluta og því sé hann í raun ekki eini eigandinn. Árni Þórarinn á engin börn en lög- legir erfmgjar hans eru þau systk- ini hans er enn lifa, Kjartan og Þórunn Jónsbörn. Einar Oddsson, sýslumaður í Vík, hefur málið nú til rannsóknar. Hann mun kalla til lækni til að meta hvort Árni Þórarinn hafl get- að gert sér grein fyrir afleiðingum umboðsins. Einnig beinist rann- sóknin að því með hvaöa hætti það var útgefið. -gse Menningarverðlaun DV: Zukofsky með verðfaunagripinn Sem kunnugt er hlaut bandaríski hljómsveitarstjórinn og fiðlusnillingurinn Paul Zukofsky Menningarverölaun DV fyrir tónlist, sem þakkarvott fyrir framlag hans til íslenskrar tónlistar, tónlistarkennslu og hljómplötuútgáfu á síðasta ári. Zukofsky kom til landsins i gærmorgun og tóku þá á móti honum Aðalsteinn Ingólfsson, rit- stjóri menningarmála á DV (t.v.), og Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld (t.h.) og fengu honum verðlaunagripinn i hendur. Zukofsky bað fyrir þakkir til allra sem komið höfðu nálægt þessari veitingu og sagði að sér þætti afar vænt um hana. -ai/DV-mynd KAE Ráðheira biður um rannsókn Ríkisskips - vanskilin 356 milljónir Þjóðminjasafnið: Afmælishátíð á sunnudag Hátíðarsamkoma af tilefni 125 ára afmælis Þjóöminjasafns íslands verður haldin á sunnudag í Há- skólabíói á vegum menntamálaráðu- neytis. Samkoman er opin öllum og hefst hún kl. 15.30. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, Birgir ísleifur Gunnars- son menntamálaráöaherra og Þór Magiyísson þjóðminjavörður flytja ávörp. Á dagskrá verða ýmis skemmtiatriði sem tengd eru sögu Þjóðminjasafnsins. Kristinn Sig- mundsson og Jónas Ingimundarson flytja lög og ljóð tengd Þjóðminja- safninu, Sigurður Rúnar Jónsson leikur á gömlu íslensku fiðluna, sýnd verður kvikmynd frá uppgreftrinum í Skálholti 1954, íslenskir búningar frá liðnum öldum verða sýndir með aðstoö Þjóðdansafélagsins og Gunn- ar Egilsson leikur á hljóðpípu Sveinbjamar Egilssonar. -JBj Skipaútgerð ríkisins skuldar rík- issjóöi 356 milljónir vegna vanskila og hefur Matthías Á. Mathiesen samgönguráðherra því fariö fram á viö Ríkisendurskoðun aö gerð verði athugun á ijárhagsstöðu Skipaútgerðar ríkisins og orsökum vanskiiaskuldanna sem myndast hafa á árunum 1982-1987. Jafn- framt er óskaö eftir raunhæfu mati á efnahag fyrirtækisins um síðast- liöin áramót. Ríkisskip skuldar fjármálaráöu- neytinu 73 milljónir og Ríkis- ábyrgðasjóði 283 milljónir. Vanskilin viö fjármálaráöuneytið eru vegna greiöslu afborgana af lánum og uppsafnaðra launaskulda en vanskilin við Ríkisábyrgðasjóö eru að meirihiuta vanskilavextir. Orsök skuldasöfnunarinnar er fyrst og fremst miklar fjárfestingar á árunum 1981-1984 og þvf mikil greiðslubyröi vegna afborgana og vaxta af lánum. Fjárveitingar hafa hins vegar reynst ónógar. Á þess- um árum var nýtt skip, Esja, smlðaö og keypt voru tvö notuö skip frá Noregi, Áskja og Hekla. Auk þess var byggt vöruafgreiöslu- hús viö Reykjavíkurhöfn. -JBj Akaflega ein- kennilegt mál - segir Gunnar Jonsson lögfræðingur „Þetta er allt saman ákaflega ein- kennilegt mál. Allt frá því að gamli maðurinn fór af jörðinni hefur verið grimmdarleg ásókn utanaðkomandi manna í hana. Nú, þegar Kjartan bróðir hans hugðist flytja að Hrífu- nesi, hafa þeir ákveðiö að láta sverfa til stáls með þessum svívirðilega hætti," sagði Gunnar Jónsson, lög- fræðingur og einn þeirra ættingja Árna Þórarins sem kært hafa umboð hans tif Þórarins Sigurjónssonar og Sigurðar Ævars Harðarsonar. „Persónulega lít ég ekki eins alvar- lega á aðstoðarmennina og aðal- mennina. Þó er þeirra þáttur einkennilegur. Þeir geta ekki skír- skotað til þekkingarleysis þar sem þeim var fullkunnugt um andlegt ástand gamla mannsins. Það er hreint vansalegt að forstööumaður- inn skuli taka þátt í þessu. En þáttur aöalmannanna er þó verri og þá sér- staklega frænda míns, Þórarins Sigurjónssonar. Þessi maður, sem aldrei sagði orð á þingi nema einu sinni „lokið glugganum“, heldur vann á bak við tjöldin, virðist nota sömu aðferð nú. Hann hefur engin samskipti haft við okkar ættfólk fyrr en nú að hann seilist í jörð gamla mannsins. Ef hann skilaði umboðinu gæti ég fyrirgefið honum hina lágu reisn, en þrátt fyrir ítrekaðar áskor- anir situr hann á því sem fastast," sagði Gunnar Jónsson. -gse Oskaði ekki eftir umboði - segir Þórarinn Sigurjónsson „Ég fékk þetta umboð sent með ósk um að ég tæki að mér að sjá um eig- ur gamla mannsins. Ég óskaði aldrei eftir þessu hlutverki. En nú, þegar svo er komið að umboðiö hefur verið kært, mun ég renna austur eftir og hafa samráð við Árna,“ sagði Þórar- inn Sigurjónsson, fyrrverandi al- þingsmaður og bóndi að Laugardæl- um. Þórarinn sagðist hafa heyrt aö mál þetta heföi verið kært en ekkert feng- ið um það að vita frá opinberum aöilum. „Ég dæmi ekki um heilsufar manna,“ sagði Þórarinn um hvort Arni Þórarinn hefði verið vitandi vits um hvað fólst í umboðinu. „Mað- ur getur aldrei dæmt um það. Eg hef heimsótt gamla manninn og talað við hann. Hann er ansi misjafn, en þessi sjúkdómur leggst einkum á líkam- ann svo hann verður óstyrkur.“ -gse TryggingaeftirIitiö staðfesti hækkunina: Iðgjöld eyfliskra bíla hækka um nærri 200% Tryggingaeftirlit "ríkisins hefur staðfest hækkunarbeiðni trygginga- félaganna á iðgjöldum bifreiöatrygg- inga. Ábyrgðartrygging hækkar um 60%, kaskótrygging um 28% og framrúðutrygging um 39%. Auk þess kemur til ný skyldutrygging, slysa- trygging ökumanns og eiganda, og kostar hún 3.200 krónur. Fram til þessa hefur landinu verið skipt í þrjú áhættusvæði. Þeim verð- ur nú fækkaö um eitt. Bílar á A-númeri hafa verið á öðru áhættu- svæði en flytjast nú á fyrsta svæði. Hækkun iðgjalda bíla á A-númerum hækkar því mikið. Áður kostaði. ábyrgöartrygging meðalbíls á A- númeri, án bónuss, 17.573 en hækkar nú í 50.240 krónur. Erlendur Lárusson, forstöðumað- ur Tryggingaeftirlitsins, segir að ef þessi hækkun eigi að duga trygginga- félögunum verði fækkun slysa að koma til. Hér sé um algjöra lág- markshækkun að ræða. ■sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.