Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1988, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1988, Page 8
8 LAUGÁRDAGUR 27. FEBRÚAR 1988. Ég veit hvemig bjórinn er - segir Olafur Þ. Þórðarson, þingmaður og bjórandstæðingur „Ég veit hvernig bjórinn er,“ segir Ólafur Þ. Þóröarson, þingmaöur Framsóknarflokksins og einn helsti andstæðingur bjórfrumvarpsins á þingi. Hann átti nú undir vikulokin í harðri sennu um frumvarpið sem komið er fram í nýrri mynd. Þar lenti hann m.a. í orðaskaki við samflokks- menn sína enda málið kallað þver- pólitískt. Nema flokkarnir séu þverpólitískir en bjórmálið ekki. Áfengisneysla hefiir ekki aukist Menn hafa verið að tala um að neyslan sé að aukast. Ég efa mjög að það sé rétt. Það hefur aukist gífurlega ferðamannastraumur til landsins. Auðvitað hefur það áhrif á skýrslur Hagstofunnar sem þeir neyta af áfengi. Menn hafa líka haldið því fram að neysluvenjur íslendinga séu mjög slæmar. Þetta er mjög vinsælt slagorð. Að mínu viti er þetta ekki rétt. Neysluvenjur íslendinga á áfengi eru hreint ekki svo slæmar ef borið er saman við aðrar þjóðir. Fyrst og fremst vil ég hrósa íslendingum fyrir að það heyrir til algerra undantekn- inga ef menn eru drukkpir við vinnu. Það er meginreglan að neysla íslend- inga á áfengi fer fram í þeirra frítíma. Auðvitað hafa menn fullt frelsi til að ráðstafa sínum frítíma eins og þeir vilja. Éitt er það í dag sem grúfir eins og skuggi yfir vestrænum þjóðum og það er sívaxandi eiturlyöaneysla. Salan á eiturlyfjum er mjög vel skipulögð og það er óhugnanlegt að á einum stað á Norðurlöndum hafa menn gefist upp við að halda uppi lögum og reglum í öllu landinu. Úr áfenginu í eiturlyfin Nýjustu rannsóknir benda til þess að eiturlyfjaneysla byrji þegar menn hafa neytt áfengis. Það er eins og eiturlyfjasalarnir sitji nú meira um að ná mönnum þegar þeir hafa neytt áfengis. Fyrir nokkrum árum var algengt að þeir sátu fyrir skóla- fólki. Ég tel að menn hafl þó nokkuð varað sig á þessu gagnvart skólunum og fræðslan hafl haft þau áhrif að það er minna um það að skólanemar láti leika á sig. Aftur á móti er það svo að þegar menn hafa neytt áfengis að þá losnar um hömlur og gallinn við bjórinn er öðrum þræði sá að menn líta ekki á hann sem áfengi. Þetta gerir hann sérstaklega hættulegan fyrir æsk- una.“ - En nú er langur vegur frá bjór yfir í eiturlyf? „Sem betur fer.“ - Það vantar líka allar sannanir fyrir því að neysla á bjór valdi eitur- lyíjaneyslu. „Auðvitað þarf ekki að vera sam- hengi á milli. Það hefur þó verið lögð gífurlega mikil vinna í að rannsaka þetta. Það þarf ekki annað en að lesa mannnkynssöguna til að komast að því að öflug ríki falla ekki nema inn- anfrá. í Bandaríkjunum, sem eru enn öflugasta ríki þessa heims, þar hefur verið snúist gegn eiturlyfjunum af gífurlegri hörku. Það skapar for- dæmi. Við fáum líka fréttir af því að t.d. Sviss, sem hefur lengi verið tákn hins hreina, það er orðið dreiflngar- stöð fyrir eiturlyf. Ég vil ekki að orð mín séu skilin svo að ég líti á bjór sem jafnhættu- legt eiturlyf og þau sem eru bönnuð víðast um heim. Ég óttast bara það að gamli málshátturinn, að það þurfl sterk bein til að þola góða daga, sann- ist á okkur. Menn gá ekki að sér og drykkjan færist sífellt niður á yngri aldursflokka." Við höfiun talaðenekki beitt málþófi - Nú hafið þið andstæðingar bjórsins beitt öllum brögðum til að drepa málinu á dreif. Af hverju má ekki kjósa um málið á þingi og sætta sig viö niðurstöðuna? „Þetta er því miður ekki rétt. Við höfum ekki varist bjórfrumvarpinu með málþóíi en við höfum talað.“ - En nú hefur þú jafnvel gripið til þess að lesa langa nafnalista úr ræðustóli? „Já, og ég gerði það viljandi vegna þess að ég tel að þessir 133 læknar, sem eru á listanum, þeir ráði úrslit- um ef þetta frumvarp verður samþykkt. Það er óneitanlega tekið mark á þessum mönnum. Þetta eru nú einu sinni menn sem vinna aö heilbrigðismálum. Þeir berat.d. sam- an áfengissýki á íslandi og í Banda- ríkjunum. Hér á landi greiðir Tryggingastofnun ríkisins fyrir dvöl manna á Vogi. Það er ekkert slíkt kerfi til í Bandaríkjunum og það sama á t.d við um Danmörku. Þeir telja sig ekki hafa efni á því. Fyrir örfáum árum kom fram um það tillaga í Hollandi að heróínneyt- endur skuli fá ókeypis heróín svo lengi sem þeir lifa. Þetta þótti þeim ódýrast því ella mundu þeir með of- beldi leggjast út í glæpi sem sköðuðu þjóðfélagið. Mér flnnst þetta kalt en ég viðurkenni að þetta er rökrétt. Ég vil vekja athygli á því að ef ís- lensku fjárlögin eru skoðuð þá er enginn málaílokkur sem stöðugt tek- ur til sín örar meira og meira flármagn en heilbrigðismálin. Við erum með næsthæsta meðalaldur í heimi og ég segi að við erum með mannvænlegustu æsku í heimi og hún hefur aldrei verið mannvæn- legri. Sigrar hennar í andlegum efnum og þar sem reynir á líkamlega hreysti eru stórkostlegir." Samstöðuna vantar - En við erum að ræða um bjór- inn. Af hverju ekki að láta Alþingi skera úr því án málalenginga? „Málið hefur komið til atkvæða en það hefur verið ágreiningur um það í þinginu hvort það eigi að fara í þjóð- aratkvæði eða afgreiðast hér á þinginu. Málið var einu sinni sam- þykkt í neðri deild en þá fellt í efri deild í hreinni atkvæðagreiðslu. Það kom fram frumvarp hér í haust og ég bað ekki um að það frumvarp kæmi ekki hér til atkvæða. Það var meirihluti nefndarinnar sem fjallar um málið sem ekki vill að frum- varpið komi til atkvæða og er þó með bjór. Þeir flytja nýtt frumvarp en ég hefði miklu heldur viljað fá atkvæða- greiðslu um hitt frumvarpið vegna þess að þar var rökstuðningurinn á þann veg að bjórinn átti að draga úr áfengisneyslu." - Hefði það frumvarp fallið? „Ég er ekki viss um það. Hins veg- ar voru menn mjög ósáttir við greinargerðina. í frumvarpinu, sem nú liggur fyrir, eru menn á því að selja eigi bjórinn í áfengisútsölum. Jón Baldvin gerði grein fyrir sinni skoðun þegar hann flutti bjórfrum- varp og talaði þar um að þingmönn- um hentuðu smáu skrefm. Hann átti við að auðvitað ætti að selja bjórinn í öllum matvöruverslunum en það væri ekki hægt að koma slíku í gegn strax. Það yrði að taka lítil skref og koma bjórnum fyrst í áfengisversl- anirnar. Það gengur ekki upp í dag nema með miklum fjárfestingum þessara verslana. Það væri þó skyn- samlegra en að selja bjórinn í matvöruverslunum. ‘ ‘ Veit ekki hvað meirihlutinn vill - Nú benda allar skoðanakannan- ir til að meirihluti landsmanna vilji fá bjór. Breytir það engu? „Þegar þú segir meirihluti fólksins þá vil ég minna á aö það eru 52% prósent fólksins sem vilja leyfa bjór- inn og þá er því slegið föstu að skoðanakannanir úrskurði um meiri- og minnihluta. Við höfum upplifað kosningar þar sem mönnum hefur verið lofað ákveðnum hlutum í skoðanakönn- unum og það ekki allt farið eftir. Ég gæti stutt þjóðaratkvæðagreiðslu ef menn mundu virða þá niðurstöðu sem þar kæmi. í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðslu á sínum tíma sagði einn af stuðningsmönnum bjórsins að það ætti að leyfa bjór jafn- vel þótt það félli í þjóðaratkvæða- greiðslu því það væri mannréttinda- mál minnihlutans að fá að neyta bjórs. Það er viðurkennt, bæði af Banda- ríkjamönnum og Rússum, að tekj- urnar sem þeir hafa af áfengi á móti útgjöldunum eru í hlutföllunum 1 á móti 4. Ein króna, sem fæst í tekjur, skapar flórar í útgjöld. Þá vaknar þessi spurning: Treysta menn sér til þess að leggja þessa skatta á. Treysta menn sér til að styrkja heilbrigðis- kerflð að því marki sem aukin áfengisneysla krefst? Eöa eigum við að segja eins og Danir og Bandaríkja- menn: Gott og vel þú valdir að fara í vímu og það er þitt mál ef þú liggur í ræsinu. En það er ekki samfélag mannúðar' sem þannig tekur á mál- um.“ Ekki ofetjómarsinni - Og þið andstæðingar bjórsins haflð tekið að ykkur að hafa vit fvrir fóiki. „Öll lagasetning, öll lagasetnig miðar að því. Ég er ekki ofstjórnar- sinni og vildi ekki samþykkja að sekta menn fyrir að aka ekki með bílbelti. Mér er þó ljóst aö ég gæti þyrft að greiða kostnaðinn eins og aðrir skattgreiðendur ef maður þyrfti að fara á spítala vegna þess að hann var ekki í bílbeltum. Ef ég væri sannfærður um að meirihluti þjóðarinnar teldi að það ætti aö leyfa bjór þá mundi ég ekki telja eðlilegt að banna bjórinn. Það hefur verið rekinn hér grimmur áróður fyrir bjór og Stöð 2 hefur t.d. gengið langt í því. Ég hef ekkert á móti því að menn hafi sínar skoðanir á málinu en verði þjóðaratkvæða- greiðsla um bjórinn þá fara báðir hóparnir af staö. Skoðanakannan- V Útboð Vesturlandsvegur í Hvalfirði, 4. áfangi Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum i ofan- greint verk. Lengd vegarkafla 3,64 km, fylling og burðarlag 21.000 m3 og klæðning 24.000 m2. Verki skal lokið 10. júlí 1988. Útboðsgögn veróa afhent hjá Vegagerð rikisins i Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 2. mars nk. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann 14. mars 1 988. Vegamálastjóri UTBOÐ Norðurlandsvegur, Víðidalsv. vestari - Víðidalsv. eystri 1988 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 6,5 km, magn 91.000 m3. Verki skal lokið 15. október 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vega- gerð ríkisins á Sauðárkróki og í Reykja- vík (aðalgjaldkera) frá og með 29. febrúar nk. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 14. mars 1988. Vegamálastjóri Til SÖIu Vegna endurnýjunar á vélakosti okkar óskum við eftir kauptilboðum í eftirfarandi vélar og tæki, í því ástandi sem þau nú eru: 1. vörubifreið, Volvo N-720, árgerð 1979, með krana, Hiab 850. 2. Pallbifreið, Mercedes Benz 808, árgerð 1969. 3. Dráttarvél, Zetor 6945,1980, með lyftitækjum. 4. Traktorsgrafa, Massey Ferguson 50 B, árgerð 1974. 5. Land-Rover skúffubíll með körfulyftu, árgerð 1972. Tækin verða til sýnis á vélaverkstæði okkar að Kapla- hrauni 3, Hafnarfirði, dagana 29. febr. til 4. mars nk. Tilboðum, er tilgreini kaupverð og greiðslutilhögun, skal skila á sama stað eigi síðar en kl. 16.00 þann 4. mars. Fyrirtækið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða til- boði sem er eða hafna öllum. BWGGÐAVERK HF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.