Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1988, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988.
Klemenz Jónsson leikari fæddist á hlaupársrtaginn fyrir 68 árum
Fyrst er að búa bilinn rétt út. Hér eru þeir Klemenz Jonsson og Vignir Sveinsson búnir að finna réttan stað fyrir skiltiö.
Vélin skoðuð.
Öryggisbeltið verður að vera spennt. Þetta er eitt af
því fyrsta sem nemarnir læra.
„Þetta er afbragðs nema'ndi,"
sagði Vignir Sveinson ökukennari
sem tók að sér að kenna Klemenz
Jónssyni, leikara og leikstjóra, á bíl.
Svo er mál með vexti að Klemenz
heldur upp á 17. afmælisdaginn sinn
á mánudaginn. Það er hlaupársdagur
og Klemenz því einn þeirra manna
sem ekki eiga afmæli nema íjórða
hvert ár. ^
Eins og aörir 17 ára unghngar dreif
Klemenz sig í bílpróf og DV fylgdist
grannt með. Að vísu tók hann bílpróf
fyrir íjöldamörgum árum en það er
önnur saga. Prófið gekk eins og í
sögu með aðstoð Vignis og Bifreiða-
eftirhtsins og Klemenz vitjar skír-
teinisins eftir helgina.
Betra seint
en aldrei
„Það er betra seint en aldrei að
taka prófið," sagði Klemenz þegar
hann stóð upp frá prófborðinu. „Ég
geri ráö fyrir að ég noti afmælis-
daginn til að ná í skírteinið og æfa
mig. Það gefst varla tími til annars,“
sagði Klemenz.
„Það er allt annað að kenna Klem-
enz en sumum krakkanna," sagði
Vignir, sem reyndar er þekktari sem
útvarpsmaður en ökukennari. „Þeir
fara svo lítið eftir því sem þeim er
sagt og eru ekki fy rr sloppnir úr próf-
inu en þeir sitja um að bijóta allar
reglur.“
Byrjað var á að aka um bæinn eftir
að kennslubíllinn hafði verið ræki-
lega merktur. í Bifreiðaeftirlitinu tók
Ingimundur Eymundsson á móti
nemanda og kennara og prófaði
Klemenz í skriflegu og verklegu.
Ekki hattinn
Venja er að leysa nemendur út
með einni ráðleggingu. Ungir glann-
ar þurfa lífsreglur til að fara eftir en
Vignir mælti með því að Klemenz
tæki niður hattinn. Það eru alræmd-
ustu bílstjórar sem aka hreppstjóra-
legir um götur með hatt á höfði og
eiga umferðina. „Það er óþarfi að
merkja sig sérstaklega," sagði Vign-
ir.
„Ég held ég fari að þessum ráðum
og sleppi hattinum,“ sagði Klemenz.
Hattinn góða notaði hann í Veiðiferö-
inni, kvikmynd sem hann lék í fyrir
nokkum árum, þar sem hann ók sín-
um Skóda og fór sér hægt. Hatturinn
verður því að víkja.
Klemenz segir að á fjögurra ára
fresti í þrjátíu ár hafi hann eiginlega
verið hundeltur á afmælisdaginn
sinn og það á raunar við um fleiri
sem eru fæddir á hlaupársdag. „Við
hljótum að vera svona miklir furðu-
fuglar sem fæddir erum þennan
dag,“ sagði Klemenz.
-GK
beina á sér
oftaststað til 20 ára aldurs. Mesta
vaxtarskeið drengja er í kringum
12-14 ára aldurinn og stúlkna um
10-12 ára.
I
Fólk sem hreyfir sig mikið hefur meiri
beinmassa á efri árum en þeirsem
hreyfasiglítið.