Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988.
Fréttír
Með pálmann í höndunum:
Foxtrott seldist fyrir 30
milljónir kióna í Cannes
Guðbjörg Guðmundsdóttir, DV, Carmes
í fyrrakvöld undirrituðu að-
standendur íslensk-norsku kvik-
myndarinnar „Foxtrott" samning
við danska fyrirtækið Nordisk
Film a/s um kaup á myndinni fyrir
alheimsmarkað.
Hljóöar kaupverðiö upp á u.þ.b.
30 milljónir íslenskra króna, sem
greiðast þegar búiö er að ná
inn framleiðslukostnaði myndar-
innar, sem er um 42 milljónir
króna.
Að sögn þeirra Karls Óskarsson-
ar, Jóns Tryggvasonar og Svein-
björns I. Baldvinssonar, sem eru í
Cannes til að fylgja mynd sinni eft-
ir, er þetta í fyrsta sinn sem íslensk
kvikmynd er seld í einum pakka á
alheimsmarkað, og bættu því við
að engin skandinavísk kvikmynd
hafi áöur selst fyrir þetta verö á
kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Sögðu þeir að undanfarna viku
hefðu fjögur kvikmyndafyrirtæki
sýnt áhuga á að kaupa alheimssýn-
ingarrétt á „Foxtrott“, en á endan-
um hefði Nordisk Film a/s boðið
best í þennan rétt.
íslendingar og Norðmenn eiga þó
áfram sýningar- og söluréttinn að
myndinni í eigin löndum.
Heimsmet
Þeir Karl, Jón og Sveinbjörn voru
að vonum ánægðir með árangur-
inn.
„Það er eins og ljúfur draumur
hafi orðið að veruleika," sagði Karl
við blaöamann DV.
„Ekki óraði okkur fyrir því að
við ættum eftir að setja heimsmet
í sölu skandinavískra kvikmynda.“
„Týpísk strákamynd“
Aðspurður sagði Friöbert Páls-
son, forstjóri Háskólabíós, sem
staddur var í Cannes, að „Foxt-
rott“ heföi komið sér „skemmtilega
á óvart“.
Viðbrögö þess fjölmiðlafólks sem
DV talaði við voru einnig frekar
jákvæð.
Voru karlmenn þó öllu jákvæðari
en konur, enda sagöi einn viðmæl-
enda blaösins að „Foxtrott" væri
„týpisk strákamynd, með kapp-
akstri, slagsmálum og byssuleikj-
um“. gg/-ai
Flokksformennirnir og ráðherrarnir, Steingrimur Hermannsson og Þorsteinn Pálsson, sátu að snæðingi í matsal
Alþingishússins í gær. Þriðji flokksformaðurinn og ráðherrann, Jón Baldvin, var á þingflokksfundi þegar myndin
var tekin en hnifapörin biðu hans. DV-mynd GVA
Efnahagstillögur ríkisstjómarinnar:
Lóg á laun og lán
- margþættar aðgerðir til stuðnings atvinnuvegunum
Rikisstjómin setti í gær bráða-
birgðalög á alla þá launþega sem
ósamið er við. Laun þessa fólks eiga
ekki aö hækka meira en þeirra sem
þegar hafa samiö. Afnámi rauðu
strikana í samningum, sem hafa
verið undirritaðir, var frestað.
Ákvöðrun um það verður tekin í
tengslum við ákvöðrun um næsta
skref í að afnema vísitölubindingu
á lánum. Stjórnin bannaði í gær
allar slíkar bindingar á lánum til
skemmri tíma en tveggja ára frá
og meö 1. júli. Þá verður bannað
að miða við lánskjaravísitölu á
þessum fiárskuldbindingum.
Aðrar aögerðir ríkissfiómarinn-
ar í kjaramálum em aö hækka elli-
lífeyri til samræmis við launa-
hækkanir og flýta hækkun per-
sónuafsláttar um einn mánuð eða
til 1. júní. Hækkanir á opinberri
þjónustu veröa frá og meö gærdeg-
inum háðar samþykki ríkissfióm-
arinnar. Sfiómin ætlar aö koma í
veg fyrir að hækkanir á sérfræði-
þjónustu fari ekki fram úr almenn-
um launahækkunum. Þá verður
verölagseftirht hert og þá sérstak-
lega með greinum þar sem sam-
keppni er áfátt.
Ríkissfiómin bannar vísitölu-
bindingu stuttra lána frá 1. júlí og
nefnd á að gera tillögur um næsta
skref, meöal annars um hvernig
megi lækka vexti á vísitölutryggð-
um lánum. Seðlabankanum er ætl-
að aö hafa eftirUt með því að vextir
lækki eftir að ríkisstjórninni hefur
tekist að minnka verðbólgu og
skapa með því skilyrði fyrir því.
Þá mun áöumefnd vísitölunefnd
gera tillögur um hvernig koma
megi í veg fyrir misgengi launa og
lengri lána.
Ríkisstjómin ætlar að heimila
erlend lán til fiárhagslegrar endur-
skipulagningar útflutningsfyrir-
tækja eftir tfilögum viðskipta-
banka fyrirtækjanna. Byggðasjóð-
ur fær 200 mfiljónir tfi sömu nota.
Jöfununarsjóður sveitarfélagana
fær 40 miUjónir. Nefnd um Verð-
jöfnunarsjóð fiskiðnaðarins mun
hraða störfum og er stefnt aö þvi
að rækjuverksmiðjur fái endur-
greiðslu úr sjóðnum. Starfshópur
mun athuga erfiðleika í fiskeldi.
AUir liðir fiárlaga utan launaliði
veröa frystir. Næstú fiárlög verða
afgreidd hallalaus og verður dregið
úr sjálfvirkni útgjalda. Stefnt er aö
því aö ríkissjóöur taki engin ný lán
á næsta ári.
Bindiskylda bankanna verður
óbreytt. Verðbréfasjóöunum verð-
ur gert skylt að kaupa ríkisskulda-
bréf fyrir 20 prósent af aukningu
rástöfunarfiár. Á næsta þingi verða
lögð fram þau frumvörp, sem hafa
veriö í smíöum, og tryggja jafna
aðstöðu viðskiptabanka og annarra
. fiármagnsfyrirtækja. Innlend fiár-
mögnunarskylda á fiármagnsleig-
um verður hert. og skattameðferö
á samningum þeirra verður breytt
til samræmis viö annars konar
kaup. Þá verður athuguð skatt-
lagning eignatekna.
Loks mun ríkisstjórnin skipa
nefnd til að gera tillögur um aukna
hagkvæmni í rekstri fyrirtækja á
grundvelli athugunar Byggöa-
stofnunar á atvinnulífi á lands-
byggðinni. Þá mun fiskveiðistefnan
verða endurskoðuð, framleiöslu-
stjórnun í landbúnaði, búvöru-
samningurinn og reglur um út-
flutning á ferskum fiski.
-gse
Olafur hættur
vildi meiri gengisfellingu
Ólafur Þ. Þórðarson, þingmaður
Framsóknarflokksins, er hættur
stuðningi við ríkisstjómina. Hann
staðfesti það á þingflokksfundi í gær.
Ólafur lagði fram bókun þar sem
segir: „Ástæðan fyrir því er ábyrgð-
arleysi í stjórn efnahagsmála lands-
ins. Við þær aöstæður, sem nú eru
komnar upp, hefði gengisfelling þurft
að vera 20 prósent. Jafnframt hefði
þurft að koma á kreppulánum til að
fækka nauðungaruppboöum. Beita
hefði þurft ríkissjóði til aðgerða er
dragi úr verðbólgu. Fráleitt er að
stinga höfðinu í sandinn eins og nú
er gert og kalla yfir sig efnahagsráð-
stafanir á fiögurra ára fresti. Þetta
er aðför að landsbyggðinni og hvorki
í þágu þjóðarinnar eða Framsóknar-
flokksins.
„Ólafur hefur veriö ýmist úr eða í
nokkuð lengi. Nú er hann úr,“ sagði
Steingrímur Hermannsson. „Ólafur
má gjarnan vera áfram í þingflokkn-
um. Það er gaman að hafa hann.“
Guðmundur G. Þórarinsson lagði
fram svipaða bókun á þingflokknum
án þess að hætta stuðningi við stjórn-
ina.
-gse
Bjöm og Karvel vildu Ásmund
Þaö var Karvel Pálmason, vara-
formaður Verkamannasambands-
ins og þingmaður Alþýðuflokksins,
sem lagöi til á fundi forystumanna
verkalýðshreyfingarinnará mánu-
daginn að samflot yrði haft í við-
ræöum viö ríkisstjómina. Upphaf-
lega hafði Björn Þórhallsson, form-
aður Landssambands verslunar-
manna, stungiö upp á því aö Ás-
mundur Stefánsson fylgdi öllum
þeim hópum sem ríkisstjómin
haföi boöað á sinn fund sem tengi-
liður hópanna. Það er því villandi
í firétt DV aö Ásmundur var einn
nefndur á nafn sem fylgismaöur
þessarar tilhögunar.
„Þrátt fyrir þetta samflot litum
við svo á aö stóra viöræðunefndin
hefði ekkert umboð til að semja um
samninga einstakra landssam-
banda. En viö töldum eölilegt að
viðræöur um mál sem snertu alla
jafnt yröu á vettvangi Alþýöusam-
bandsins,“ sagði Bjöm Þórhalls-
Húsnæðisstofnun ríkisins:
son.
-gse
Lágir vextir lánanna
hækka verð á húsnæði
Eins og komið hefur fram þá er
Húsnæðisstofnun ríkisins farin aö
deila út lánsloforðum á ný eftir nokk-
urt hlé og er stefnt aö því aö afgreiða
250 umsóknir á mánuði út árið.
Margir þeirra, sem DV haiði sam-
band við, sögðu að það það væri erf-
itt að spá í hvort lánsloforðaútdeil-
ingin nú hefði áhrif á hækkun hús-
næðisverðs. Þaö hefði gerst síðast
þegár loforðum var deilt út en menn
voru ekki eins vissir um þaö myndi
eiga sér stað nú. Flestum bar saman
um aö húsnæðisverð væri í hámarki
nú og því vafasamt að það hækkaði
svo mikið miöað við vísitölu það sem
eftir er ársins.
Að sögn Guömundar Gylfa Guð-
mundsson, deildarstjóra hjá Fast-
eignamati ríkisins, þá hækkaöi fast-
eignaverð mjög haustiö 1986 í kjölfar
þess að nýju lögin tóku gildi. Síðan
hefðu engin stökk komiö á árinu 1987
en fasteignir hins vegar hækkað jafnt
og þétt til áramóta. Guðmundur
sagðist ekki treysta sér til að spá um
verðþróun síðan um áramót en veriö
er að vinna úr gögnum varðandi
þann tíma nú. Hjá fasteignasölum
fengust hins vegar þær upplýsingar
að verð fasteigna væri í hámarki nú.
Þá hefur því verið haldið fram aö
hinir lágu vextir á lánum Húsnæöis-
stofnunar hafi þau áhrif að fólk sé
tilbúið aö spenna sig hærra í verð-
tilboöum. Þar meö hækki verö á
íbúðum oft á tíðum. Þeir fasteigna-
salar sem við var rætt vildu ekki
gera of mikið úr þessu en sögðu að
hagstæð lán virkuðu alltaf til hækk-
unar. Ein sagöi reyndar að hér væri
kannski um ómeðvitaða hækkun að
ræða. .SMJ
Leiðrétting
Vegna mistaka í tölvuvinnslu
birtist röng afmælisgrein um Helgu
H. Bergmann hér í blaðinu og eru
hlutaöeigandi beðnir velviröingar.
Kona Samúels Inga Þórarinssonar
heitir Sigríöur Hanna Einarsdóttir.
Helga tekur á móti gestum í félags-
heimih Sjálfsbjargar, Hátúni 12,
laugardaginn 21. maí kl. 17-19.