Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988.
27
Sæl nú!...
Þungarokksveitin AC/DC er
um
við hljómleikaferð um gjör-
leikum vestur i Bandarikjun-
um að gitarleikari hljóm-
sveitarinnar, Malcolm Yo-
ung, hefur ekki verið með á
sviðinu heldurfrændi hans,
Stevie Young. Talsmenn
hljómsveitarinnar segja
skýringuna vera þá að Mal-
'colm Young sé einfaldlega
búinn að fá nóg af hljómleik-
um í bili og hafi ákveðið að
taka sérfrí svona í lokferð-
ar. Þessi skýring þykir ekki
fréttaskýrendur getum að því
að Malcolm sé hættur í
AC/DC... Það hefur nú ver-
ið staðfest að söngkonumar
Sinead O'Connor og Björk
Guðmundsdóttir hyggja á
samstarf og er búist við að
þærfari í hljóðver þá og
þegar til að hljóðrita tvö log
eða svo. Annað lagið ku eiga
að vera íslenskt þjóðiag en
hitt irskt þjóðlag. Einnig
hafa borist fréttír af því að
Sinead O'Connor hafi áhgua
á að koma hingað til lands
til hljómleikahalds...
Gamla soul-brýnið James
Brown er kominn í versta
klandur eftir að hafa gert
tilraun til að kála konu sinni
með byssu. Hann er einnig
ákærður fyrir að hafa barið
konuna með einhvers konar
barefli og reynist þessar
ásakanir sannar á hann yfir
höfði sér tugthúsvist um
langahrið... Les Warner,
trommuleikari hljómsveitar-
innarThe Cult, hefur verið
sagt að hypja sig á brott
og sem nærri má geta er
hann ekki mjög hress með
þessa ákvörðun. Hann segir
að þeir lan Astbury og Bill
Duffy séu á bak við þetta
og þeir hafi ekki einu sinni
séð sóma sinn i þvi að til-
kynna sér þessa ákvörðun
sjálfir, heldur iátið umboðs-
mann hljómsveitarinnar um
að koma skilaboðunum
áleiðis. Wamer hyggur á
málaferli vegna ógreiddra
launa en til að hafa i sig og
á á meðan hefur hann stofn-
að hljómsveit með fyrrum
Raven... Whitney Houston
hefur verið ráðin tii að
syngja inn á plötu einkenni-
slag fyrir ólympiuleikana i
Seoul i haust.. .stopp...
-SþS-
dv___________________________________________________ Nýjar plötur
Woodentops - Wooden Foot Cops on the Highway
Þýð og stríð á víxl
Woodentops.
Nýjasta plata Woodentops, Wood-
en Foot Cops on the Highway, er með
köflum þokkalega ómþýð. Af lögun-
um níu eru þrjú í þægilega kantin-
um, You Make Me Feel, Heaven og
Tuesday Wednesday. Önnur eru tals-
vert meira krassandi, rifinn gítar,
harður trommusláttur, grjóthörð
nýbylgja (eða er hún kannski ekki
til lengur) þegar hæst lætur.
Ég verð að játa að ég þekki fyrri
verk hljómsveitarinnar Woodentops
hvorki út né inn. Hins vegar hef ég
heyrt allnokkur lög með sveitinni í
einum meðvitaðri poppþáttum út-
varpsstöðvanna. Miðað við það virð-
ist mér Woodentops ekki í neinni
sérstakri framfór. Og tónhstin á
Wooden Foot Cops on the Highway
er meira fráhrindandi en oft áður.
Þótt ég sé ekkert himinhrópandi
glaður yfir plötunni er ég þó síður
en svo að afskrifa hana. Útsetningar
allnokkurra laga eru áheyrilegar.
Talsvert er nostrað við smáhluti sem
eru lítt greinanlegir við fyrstu hlust-
un eða hlustanir en síast inn smátt
og smátt. Platan er því langt því frá
að vera hrá þó aö svo virðist á yfir-
boðinu.
-ÁT-
Feargal Sharkey - Wish
Veit sín takmörk
A-ha - Stay on These Roads
Á „réttri" braut
Feargal Sharkey hefur frá þvi hann
hóf sólóferil náð nokkuð góðri fót-
festu í breska poppbransanum. Kem-
ur þar aðallega til auðlærð og meló-
dísk lög sem hann með sinni sér-
stæðu rödd gæðir lífi. Nýjasta plata
hans nefnist Wish og fetar hann
dyggilega í kjölfarið á fyrri afurðum.
Útsetningar svipaðar, lögin svipuð
og Sharkey keyrir á góðum hraða í
gegnum auölærð lög.
Rödd Sharkey nýtur sín best í hröð-
um og taktföstum lögum á borð við
More Love, Girls in Pardise og If
This Is Love þar sem nokkuð er lagt
í útsetningar og blásturhljóðfæri not-
uð og stuðst við bakraddir. Þetta eru
þau lög sem koma til með að halda
Wish á lofti. Þegar Sharkey hættir
sér í rólegri lög getur hann ekki frek-
ar en Bubbi Morthens leynt „víbr-
ingnum“ i röddinni og um leið
hversu takmörkuð rödd hans er.
Feargal Sharkey gerir enga stóra
hluti á Wish. Hann rennir sér átaka-
laust í gegnum misgóö lög, þekkir sín
takmörk og hættir ekki út í neinar
nýjungar. Við bestu lögin stoppar
maður aðeins en ekki lengi. Feargal
Sharkey þarf að gera mun betur ef
nafn hans á ekki að falla í gleymsku.
HK.
Fergal Sharkey.
A-Ha.
Síðan sænska sveitin ABBA sáluga
var og hét hefur engri norrænni
hljómsveit tekist að ná viðlíka vin-
sældum um heimsbyggðina, nema ef
vera skyldi norska tríóinu A-ha.
Frægðarferill þess hófst vestanhafs
með laginu Take on Me en síðan
hafa vinsældir þess verið mestar í
Evrópu.
Þriðja breiðskífa A-ha leit dagsins
ljós nú fyrir nokkru og þegar hefur
eitt laga hennar náð nokkrum vin-
sældum hérlendis, titillagið Stay on
These Roads, eða haltu þig á þessari
braut. Og segja má að það séu ein-
kunnarorð þessarar plötu því A-ha
heldur sig á sömu braut og hljóm-
sveitin markaði sér með fyrstu plöt-
unni, Hunting High and Low, og hélt
áfram á plötunni Scoundrel Days.
Þó má merkja á þessri nýju plötu
að þetta eru reyndari og þroskaðri
menn en áður, lögin rista að mörgu
leyti dýpra, eru flóknari en áður og
þurfa um leið meiri hlustunar við.
Þessi þróun er fullkomlega eðlileg en
samtímis gæti það gerst að þessi
plata næði ekki jafnmiklum vinsæld-
um og fyrri plötur hljómsveitarinnar
vegna þess að hér eru einfaldlega
ekki jafnmörg lög og á fyrri plötum,
sem gætu slegið í gegn sem smáskíf-
ur.
Hins vegar gæti þetta verið skref í
rétta átt fyrir A-ha í þá veru að höfða
til eldri hóps en sveitin hefur gert
hingað til. Shkt tekur vitaskuld tíma
en takist það hefur hljómsveitin
tryggt sér það að þurfa ekki eilíflega
að semja sömu smellina fyrir sama
aldurshópinn.
En hvernig semmenn vilja yfirleitt
aldursgreina og stimpla tónlist er
tónhst A-ha fyrst og fremst vönduð
og fáguð popptónhst sem getur höfð-
að til allra aldurshópa.
-SþS-
ÍSLANDSMOTIÐ jT
si-miéfr
í DAG KL. 15.01 Á GERVIGRASVELLINUM í LAUGARDAL
© Metab HENSON |f| 0