Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Blaðsíða 34
46 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988. Knattspyma unglinga 3. flokkur kvenna: Fylkisstelpumar mættu ekki til leiks 3. fl. kvenna í Fylki átti aö leika gegn KR sl. þriðjudag á KR-vellinum en stelpumar létu ekki sjá sig og fengu KR-stelpumar þar tvö ódýr stig. Þetta er afar slæmt til afspurnar fyrir knattspymuiökun kvenna og ef stúlkurnar ætlast til aö þær séu teknar alvarlega mega svona hlutir ekki gerast. HH Þjálfari hjá 3. fl. Leiknis, örn Eyjólfsson, talar um fyrir sínum mönnum í leikhléi i leiknum gegn Val sl. þriöjudag. DV-mynd HH 3. flokkur karla A: Slök dómgæsla á Valsvelli Valur-Leiknir, 5-2 Leiknir sótti Val heim sl. þriöjudag í leik 3. fl. A. Leikurinn einkenndist allt of mikiö af hörku sem haföi mjög neikvæð áhrif á knattspyrnuna. Dómarinn lék þar stórt hlutverk. Hann leyfði gróf brot í tíma og ótíma og þróaðist leikurinn að mestu í óþarfa hörku. Um tíma var leikurinn þónokkuð spennandi og þá sérstak- lega þegar staðan var 3-2 fyrir Val. En með seiglunni tókst Valsstrákun- um að skora tvö mörk undir lokin. Hinn eldfljóti Valsdrengur Páll Þórólfsson skoraði þrennu og var óumdeilanlega maður leiksins. Gunnar Gunnarsson og Óttar Páls- son gerðu sitt markið hvor. Mörk Leiknis gerðu Finnur Númason og Kjartan G. Björnsson. HH leik Fram og Fylkis. Páll Þórólfsson, 3. fl. Vals, skoraði þrennu gegn Leikni. DV-mynd HH 2. flokkur karla A: Víkingur stendur best að vígi eftir sigur á Þrótti Þróttur og Víkingur áttust við í 2. fl. A sl. þriðjudagskvöld. Víkingar styrktu mjög stööu sína í Reykjavík- urmótinu með þessum sigri. Fyrsta mark leiksins skoraði markmanns- hrelhrinn Þórður Jónsson fyrir Vík- inga. Rétt fyrir leikhlé jafnaði Pétur Sigurösson fyrir Þróttara úr vitá- spymu. Maðurinn bak við þennan veigamikla sigur Víkinga var Jó- hann Jónsson sem skoraði sigur- markið um miðjan seinni hálfleik. HH Þessir snaggaralegu pollar úr 6. fl. Víkings voru til varnar i bráðabananum gegn KR á sunnudaginn var og stóðu sig mjög vel. Frá vinstri: Hilmar Þ. Hafsteinsson varnarmaður og Jón Baldur Valdimarsson markvörður. DV-mynd HH ! Álagið má ekki ! verða of mikið I í kaffihléi á síðasta ársþingi KSÍ Ivoru mjög fjörugar umræður um allt er lýtur að knattspyrnu. Ég tyllti mér niður þar sem í gangi voru miklar umræður um | knattspyrnu þeirra yngri og bar þar margt á góma. Einum fannst | miður að keppnisfyrirkomulagi í 15. fl. skyldi vera breytt þannig að lagt yrði niöur íslandsmót í fyrr- Inefndum flokki á stórum velli en leikið þess í staö þversum og 7 I manna lið í stað 11. Öðrum fannst 1 það til bóta og það má vel vera. Það | skiptir nú kannski ekki öllu máli . því aðalatriðið er aö börnin hafi | gaman af að leika knattspyrnu og Inái að þroska þá hæfileika sem gera þau að góðum knattspyrnu- Imönnum. Einn þátttakendanna í þessum I hringborðsumræðum hafði það að segja aö leggja ætti niður íslands- | mót í 5. fl. og hafa bara svæðis- . bundin mót. Sá hinn sami hélt því | fram aö keppni um íslandsbikar Iværi of mikið álag fyrir svo unga krakka. Norðmenn héldu sig við ■ svæðisbundin mót sem sköpuöu ekki þá spennu sem fylgir lands- móti. Þetta fannst mér merkileg fullyrðing. í sambandi við álag á börnin skipt- ir þjálfarinn afar miklu máli. Tök- um sem dæmi tvo þjálfara. Annar ætlar til keppni í minni háttar móti innan héraðs. Hinn ætlar með sitt lið til þátttöku í landsmóti. Sá sem ætlar á minni háttar mótið getur lagt mun meira upp úr sigri og íþyngt krökkunum mun meir en sá sem heldur á íslandsmótið. Það er nefnilega allt undir þjálf- aranum komið hvernig til tekst með Möan barnanna en ekki vægi mótsins. Þjálfarar, látið börnin aldrei fmna annað en að þetta sé fyrst og fremst leikur, en með mátulegum aga þó. Það er vanda- verk að vera unglingaþjálfari og algert frumskilyrði er að börnun- um líði vel. Umsjón Halldór Halldórsson 4. fl. karla A: Stórsigur Fram Fram og Fylkir leiddu saman hesta sína í 4. fl. A-hða á Framvellin- um sl. þriöjudag. Framarar höfðu mikla yfirburði í leiknum sem lykt- aði með stórsigri þeirra því lokatölur uröu 6-0. Fylkisstrákamir fengu tækifæri til að laga stöðuna aðeins þegar vítaspyma var dæmd á Fram en mistókst. Framhðið er skipað mörgum góð- gegn Fylki um einstakhngum og strákarnir reyndu að spila þó svo að aðstæður til slíks séu takmarkaðar á möl. Mörk Framara gerðu þeir Kjartan Ragnarsson, sem skoraði þrennu, Guömundur Benediktsson, sem skoraði tvö mörk, og Ólafur Theó- dórsson eitt. B-hðsleikinn vann Fram einnig stórt eða 10-3. HH Dregih til tíðinda í Reykjavíkurmótinu Reykjavíkurmóti yngri flokka fer senn að ljúka. Línur er þónokkuð farnar að skýrast en allt getur þó gerst í síðustu leikjunum og vara- samt að slá einhverju föstu. Hér á eftir eru úrslit þeirra leikja sem þegar hafa farið fram milli A-liða. 2. flokkur A: KR-Víkingur 1-1 Fylkir-Valur 0-6 Þróttur-Leiknir 6-1 Víkingur-ÍR 2-0 Valur-KR 0-1 Fram-Víkingur 4-4 ÍR-Valur 0-6 KR-Leiknir 8-1 Valur-Fram 3-0 Þróttur-KR 1-3 Fram-Leiknir 7-1 KR-Fylkir 1-1 Þróttur-Fram 0-5 Valur-Víkingur 0-3 Fylkir-ÍR 3-2 Fram-Fylkir 2-0 ÍR-KR 2-2 KR-Fram 4-0 Þróttur-Víkingur 1-2 Víkingar standa einna best að vígi. Þeir eiga þó eftir leik gegn Fylkir 26. mai. 3. flokkur A: Víkingur-KR 1-1 Valur-Fylkir 0-0 Leiknir-Þróttur 3-2 ÍR-Víkingur 1-4 KR-Valur 5-0 Fylkir-Leiknir 9-0 Víkingur-Fram 0-8 Leikni-KR 1-7 Valur-ÍR 10-0 Þróttur-Fylkir 2-7 Fram-Valur 3-0 KR-Þróttur 11-0 Fylkir-KR 3-2 Þróttur-ÍR 0-17 Fram-Þróttur 17-0 Víkingur-Valur (M Fylkir-Fram 1-0 Leiknir-V íkingur 1-2 KR-ÍR 4-0 Valur-Leiknir 4. flpkkur A: 4-2 ÍR-Ármann 14-0 KR-Víkingur 3-0 Fylkir-Valur 1-1 Þróttur-Leiknir 1-6 Ármann-Fram 0-21 Víkingur-IR 1-5 Valur-KR 2-2 Leiknir-Fylkir 1-1 Fram-Víkingur 5-1 KR-Leiknir 4-0 Fylkir-Þróttur 3-1 Valur-Fram 0-6 V íkingur-Ármann 18-0 Fram-Leiknir 12-0 Ármann-Valur 0-16 ÍR-Þróttur 15-0 KR-Fylkir 3-0 Þróttur-Fram 0-5 Leiknir-Ármann 6-0 Fram-Fylkir 6-0 Ármann-Þróttur 0-7 ÍR-KR 1-2 5. flokkur A: Víkingur-KR 0-5 Valur-Fylkir 1-2 Leiknir-Þróttur 9-3 KR-Valur 4-0 Fylkir-Leiknir 4-3 Valur-ÍR 1-2 Leiknir-KR 1-10 Fram-Valur 1-1 KR-Þróttur 8-1 Leiknir-Fram 2-5 Þróttur-ÍR 0-9 Fylkir-KR 0-7 Fram-Þróttur 4-0 5. flokkur B: Vikingur-KR 2-4 Valur-Fylkir 9-0 Leiknir-Þróttur 5-3 KR-Valur 3-1 Fylklr-Leiknir 0-4 Leiknir-KR 0-10 Fram-Valur 1-3 KR-Þróttur 4-2 Leiknir-Fram 0-5 Fylkir-KR 0-14 Fram-Þróttur 5-1 2. flokkur kvenna: Fylkir-Valur 1-4 KR-Fylkir 3-0 Valur-KR 0-4 3. flokkur kvenna: Fylkir-KR 0-8 Valur-Fylkir 5-0 KR-Valur 5-2 KR-Fylkir (Fylkir gaf). Sameiginlegur stigafjöldi A- og B- liða í 5. flokki sker úr um Reykjavík- urmeistaratitil. KR-ingar standa vel að vígi þar sem strákamir hafa unn- ið alla sína leiki, bæði í A- og B-hði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.