Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988. Frjálst.óháÖ dagblaö Úlgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 700 kr. Verð I lausasölu virka daga 65 kr. - Helgarblað 80 kr. Tæp staða Þótt ríkisstjórnarbræðslunni takist að komast fram úr deilunum nú, hefur þessi stjórn ekki bitið úr nál- inni. Fólk sér, á hinum hörðu deilum, hversu illa stjórn- in er stödd. Ríkisstjórnin kom sér í gær niður á efnahags- aðgerðir. Þá sagði einn stjórnarþingmaður, að því færi ijarri, að stjórnin hefði tryggt sér neinn friðartíma. Allt plaggið, sem stjórnin sendi frá sér til þingflokkanna, væri lítið bitastætt og vandanum yrði ýtt á undan sér. Þetta eru orð að sönnu. Stjórnin var enn í fallhættu. í samkomulaginu í stjórninni var gert ráð fyrir, að þeir kæmust ekki fram úr öðrum, sem ósamið ættu. Sett yrðu bráðabirgðalög á vinnudeilur þær, sem ekki yrði samið um í tæka tíð, en hinir lægstlaunuðu fengju einhverja umbun. Þannig yrðu skattleysismörk hækk- uð. Ellilífeyrir yrði hækkaður, svo og aðrar slíkar bæt- ur. Til að gefa Framsókn dúsu, fengju bændur ríflegan stuðning. Rætt var um lækkun vaxta, en alls óljóst hvernig það yrði gert, enda vísað til nefndar. Lánskjara- vísitala skyldi felld út á skemmstu lánum. En verð- bréfafyrirtækin skyldu neydd til að kaupa ríkisskulda- bréf fyrir ákveðinn hluta ráðstöfunarfjár. Ekki verður annað séð en slíkt muni valda hækkun vaxta á verð- bréfamörkuðum. Því verður að segja, að alls er óvíst um, hvort vextir lækkuðu eitthvað þrátt fyrir samþykkt stjórnarherranna, í vaxandi verðbólgu, sem í sjálfu sér leiðir til hærri vaxta. Eftir þessar samþykktir ríkisstjórnarinnar var enn gífurlega mikill vandi óleystur. Eftir var að setja niður harðar deilur um stærð geng- isfellingar. Tíu prósent gengisfelling hafði verið ákveð- in. En sumir vildu allt að fimmtán prósent gengisfell- ingu. Það var eðlilegt, því að enn stefndi í, að viðskipta- hallinn yrði tíu milljarðar króna á árinu öllu. Því fylgir að sjálfsögðu sams konar skuldasöfnun þjóðarbúsins. Verðbólguhraðinn verður um 40 prósent á næstunni, miðað við heilt ár. Alls óvíst er, að við komumst aftur út úr þeim dansi á næstunni, því að enn kann að stefna í nýja gengisfellingu. Mikil ósamstaða kom fram hjá ráðherrum þríflokk- anna. Enn gæti svo farið, að stjórnarsamstarfið spryngi, og það fyrr enn seinna. Þessi ríkisstjórn stóð sig illa. Hún lét stóru tækifærin til aðgerða úr greipum sér ganga. Undir hennar yfir- stjórn eða stjórnleysi fór góðærið forgörðum, en eftir sitja landsmenn með sárt ennið. Stjórn Þorsteins Páls- sonar vann ekki til verðlauna. Hver neyðarreddingin fylgdi annarri eftir. Því er eðlilegt, að menn spyrji, hvort önnur stjórnar- mynstur séu ekki betri. Þannig kæmi til greina, að til dæmis Borgaraflokkur- inn kæmi í stjórn í stað Framsóknarflokksins eða Al- þýðuflokksins. Borgaraflokkurinn í stað Framsóknar gæti til dæmis þýtt í raun nýtt viðreisnarmynstur. Líklegt er, að stjórn- ir af þessu tagi yrðu samhentari en þríflokkastjórn Þor- steins Pálssonar. Eðlilegt er, að menn velti þessu fyrir sér í ljósi síð- ustu atburða. Bræðsla þríflokkanna um hádegið í gær, undir for- ystu Þorsteins Pálssonar, átti að vera neyðarredding til að forðast þá stjórnarkreppu, sem við blasti. Reynslan nú sýnir, að ónóg var að gert. Haukur Helgason Jólatréö okkar framdi sjálfsmorð í byrjun desember. Þessi norræna jurt haföi staðið iðgræn undir brennandi miðbaugs- sólinni allt sumarið. Um leið og vitjunartími hennar nálgaðist fékk hún brúnu veikina. „Þetta jólatré er dautt,“ sagði drengurinn. „Fyrst þomaði það upp og svo fúnuðu ræturnar.“ Hann veit allt. „Af hverju heldurðuþað?" spuröi ég og hélt áfram að nudda lífi í aðframkomna limi trésins. „Af því ég gleymdi að vökva það í allt sumar og svo vökvaði ég þaö á hverjum degi eftir að rigningarn- ar byrjuðu." Ég skreytti það samt. Tréð fór minnkandi yfir jólin. Þetta brúna molnaði af. Af þessu varð nokkur vinnu- sparnaður. Þegar þrettándinn rann upp hafði tréið tekiö sig að mestu niður sjálft. Upp úr því fóru jólakortin að koma. Þetta var ár dökkbláu kort- anna. Við fengum: Háskólann í myrkri. Hríslu í klakaböndum í myrkri. Háteigskirkju í myrkri. Hallgrímskirkju í myrkri. Þingvallakirkju í myrkri. * Freðna styttu af frammámanni. í myrkri. Þessi voru í þjóðlega andanum. í listræna stílnum voru: Silfurlitt kerti á dökkbláum grunni. Obbulítill mávur að svífa í hom- inu á svarbláum fleti. Á þessu var ein undantekning. Hún sameinaöi þjóðlegt og hstrænt í grádrapplitu. Verkið hét eitthvað þegar það kom en við skírðum þaö upp: Móðuharðindin leggjast þungt á eyðibýlið. Við röðuðum þeim á bókahilluna. Svo fengum við þunglyndiskast í hvert sinn sem viö gengum fram hjá. Löngu seinna komu jólapakkarn- ir. Jólagjafahefðin ku eiga rætur að rekja til gjafanna sem vitringarnir færðu Jesúbaminu. En þegar það fæddist voru vitringarnir víðs- fjarri. Fyrst þurftu þeir tð stússa, kaupa jólapappír og límband og svoleiöis. Það hefur verið erfitt, það var ekki búið að finna neitt af því upp. Þá áttu þeir eftir að beisla úlf- alda sír og brokka yfir lönd, ef ekki álfur. Því hðu að minnsta kosti tveir mánuðir áöur en jesúbarnið fékk fyrstu jólagjafimar í heimi. Þetta veit ítalski pósturinn. Því bera þeir aldrei út jólapakka fyrr en þeim telst svo th aö vitring- arnir standi í bæjarhliði Betlehem. En í ár kom eitthvað fyrir. Þeir voru komnir niður á hangikjötslög- in í jólapóstfjallinu strax um miðj- an janúar. Við fórum í lopasokkana og bjuggumst til að rífa harðfisk frá roði og bregða sjálfskeiðung á ket- ið. Harðfiskurinn kom undan brúna bréfinu ferskur eins og islensk sveitastúlka um aldamótin (vant- aði bara fléttuna). Prinspólóið í talfæri Auður Haralds varpaði seiðandi gullnum blæ. Tollurinn hafði ekki smakkað á ópalnum í ár. En hangikjötið var grænt. Hvar var nú ahur baneitraði salt- péturinn? Flotglampinn stirönaði í augum okkar. En var okkur ekki alveg óhætt að borða það samt? Höfðu ekki íslendingar í ellefu aldir stýft í sig myglað, maðkað, úldið, kæst og pestardautt? Og voru hraustasta þjóð í heimi? Já, komu ekki skóladrengir í Lat- ínuskólann að hausti með smjer- birgðir sem áttu að endast fram á voriö? Og voru orðnar grænar fyrir áramót. Og voru etnar samt. Það sagði allavega kennarinn í gaggó þegar einn strákurinn ullaði á brauðsneiðina sína. Var það kannski einhver annar gerih sem htaði vetrarsmj erbirgðir latínunema grænar? Annar og meinlausari gerhl en sá sem var að eðla sig í hangikjötinu okkar. Og varð ekki uppreisnin á Pot- emkin einmitt út af möðkuðu kjöti? Það gaf nú í skyn aö maðkað væri ekki alveg í lagi. Eða köstuðu mennirnir sér í dauðann fyrir PÍPP? Var kannski ekkert að marka svona austantjaldsheimild- ir? Þá vestantjaldsheimildir: Hetjur Steinbecks fóru aldrei í kauffélagið. Þeir fóru í ruslatunnurnar. Og hirtu úr þeim úldið kjöt. Einmitt svona eins og við áttum. Svo skutl- uðu þeir kjötinu í sóda í tvo tíma og þá fór þetta græna. Kom bara upp úr eins og af nýslátruðu. Og hetjurnar allar á lífi í næsta hefti. Og lifir ekki Vestfjarðakjálkinn á kæstu? Að vísu þarf að míga á matinn áður en hann er grafinn en við töld- um alls ekki úthokað að þessi kind hefði einhvem tíma pissaö upp í vindinn og þá skvest á lærið. En gátum við treyst á það? Svo morar líka landið th dals og fiöru af gamalmennum sem gráta það sárast að fá ekki lengur lost- ætiö mesta úr æsku, pestardauða sauði. Var þetta kannski þannig sælgæti? Ég las hehbrigðisvottorð læris- ins. Kindin, sem átti það á undan okk- ur, hafði verið með eindæmum hraust. Grænmetisæta. Stundaði að staðaldri skokk á ómenguðu hálendi íslands. Aldrei verið bólu- sett og aldrei hrokkið hor úr nös. Það var þá ekkert varið í þetta kjöt, þannig. Á endanum buguðumst við og fórguðum ketinu. Þaö var ekki að við óttuðumst matareitmn. Að vísu töldum við að við þjóðarbrotið væmm svo úr- kynjuð að við hefðum ekki þær hrægammamagasýrur sem íslend- ingar höfðu á öldum áður. En ef það er eitthvað sem ítalska lækna- stéttin kann á þá era það matareitr- anir. Þaö gerir æfingin. Heldur fylgdum við þessu frammálambi um hehbrigt líferni th grafar í ruslagámnum vegna þess að við héldum að bragðið að því gæti verið svipað og lyktin. Heilbrigðisvottorðið innrammaði ég. Mahóníramma. Heilsa og hreysti þessa lambs kom því ekki að notum við landa- mæri lífs og dauða. Ég hef líka ahtaf sagt það. Þaö er ekkert líf eftir dauð- ann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.