Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Síða 26
26
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988.
Popp
Midnight Oil,
flytjendur
lagsins Beds
Are Burning.
Ástralir eru í hátíöarskapi um
þessar mundir, ekki síður en Reyk-
vikingar fyrir tveimur árum. Þeir
fagna því allt áriö 1988 aö tvö hundr-
uð ár eru liðin síðan Evrópubúar
námu þar land. Rokkarar álfunnar
íjarlægu láta ekki sitt eftir liggja. Nú
• skulu aðrir hlutar heimsins fá að
kynnast því sem er að gerast þarna
í neðra.
CBS útgáfan í Ástralíu fagnar tvö
hundruð ára afmæhnu myndarlega.
Sjö hljómsveitir, sem eru á samningi
hjá útgáfunni, hafa allar sent frá sér
plötur á þessu ári og þær fá enn
rækilegri kynningu en ella vegna
afmæhsins. Til að mynda fara allar
hljómsveitirnar sjö í heimsreisu,
meðal annars til Evrópu, á árinu.
Gefið hefur verið út sérstakt kynn-
ingarmyndband með hljómsveitun-
um og lögum með þeim safnað á sér-
staka plötu, 1988 Australian Rocks.
Hljómsveitirnar, sem hlut eiga aö
máli, eru Midnight Oil, Party Boys,
Dave Dobbyn og félagar, Noisew-
orks, Flash and the Pan, Wa Wa Nee
og síðast en ekki síst Mental as Anyt-
hing.
Midnight Oil
Af þessum sjö áströlsku hljóm-
sveitum er Midnight Oil áreiöanlega
þekktust. Á tíu árum hefur henni
tekist að verða stórveldi i ástralska
poppinu, spila víða um heim, halda
góðgerðartónleika fyrir atvinnu-
lausa, styðja málstað hreyfinga eins
og Greenpeace, gerbylta atvinnu-
tækifærum ungra og upprennnandi
hljómsveita í Ástralíu og þannig
mætti lengitelja.
Midnight OU hefur sent frá sér sex
stórar plötur. Flestar hafa liðsmenn
hljómsveitarinnar hljóðritað í Ástr-
alíu. En þeir hafa einnig unnið í
Englandi, Frakklandi og eina plötu
tóku þeir upp í Japan. Nýjasta breið-
skífa Midnight Oil er Diesel & Dust.
Eftir að hún hafði verið þrjá daga á
markaðnum í Ástralíu hlaut hljóm-
sveitin platínuplötu að launum fyrir
góða sölu. Á Diesel & Dust er að finna
lagið Beds Are Burning sem hljómar
talsvert í útvarpi hér á landi þessa
dagana.
Mental as Anything
Kannski muna einhverjir enn eft-
ir laginu If You Leave Can I Come
too? (Ef þú yfirgefur mig, má ég þá
koma líka?) sem heyrðist nokkuö oft
hér á landi árið 1981. Flytjandi þess
lags var hljómsveitin Mental as
Anything. Hún er búin að vera lengi
að og er virt og vinsæl í Ástralíu.
Og þrátt fyrir að plötur hljómsveitar-
innar hafi fengið vinsamlega dóma í
breskum og bandarískum tónlistar-
blöðum var það ekki fyrr en á síð-
asta ári sem hún lét að sér kveða á
breskum vinsældalistum. Þá komst
lagið Live It up hátt á hsta.
Liðsmenn Mental as Anything eru
grínarar ástralska poppsins. Textar
þeirra þykja sérlega góðir og mynd-
böndin ku vera í sérflokki. Til að
mynda fékk tuttugu laga mynd-
bandsspóla hljómsveitarinnar
Monumental as Anything einkunn-
ina „einfaldlega sú besta“ í virtu
áströlsku kvikmyndablaði.
WaWaNee
Leið hljómsveitarinnar Wa Wa
Nee til frægðar hefur verið ótrúlega
bein og breið. Fyrstu þrjár smáskíf-
umar, sem hún sendi frá sér, seldust
betur en nokkrir aðrir nýhðar í ástr-
alska poppinu gátu státaö af. Það var
árið 1986 sem hljómsveitin sló í gegn.
Það ár var hún útnefnd bjartasta von
ársins 1987 í allflestum áströlsku tón-
hstarblöðunum. Wa Wa Nee taldist
hafa átt myndband ársins og hún
þótti meö tíu bestu hljómsveitum
ársins.
Wa Wa Nee hefur verið að vinna
sér frægð í Evrópu aö undanfórnu,
sérstaklega fyrir lagið Sugar Free
þar sem eiturlyf eru fordæmd.
Hljómsveitin er talin eiga eftir aö
gera stóra hluti á næstunni ef marka
má erlend músíktímarit.
Party Boys
Hljómsveitin, sem brýtur allar
leikreglur ástralska rokksins, er
Party Boys. Hún er nú oröin sex ára
gömul og sló í gegn á sinni fyrstu
hljómleikaferð. Þegar hún hafði
haldið þrenna tónleika var ákveðið
að taka þá fjórðu upp, svona rétt til
minningar um hressilega ferð. Upp-
takan þótti heppnast vel, var gefin
út á hlj ómplötu og seldist í 45.000 ein-
taka upplagi fljótlega eftir útkom-
una. Eftir það varð ekki aftur snúið.
Það sem helst einkennir The Party
Boys eru örar mannabreytingar. Til
dæmis leikur Alan Lancaster, fyrr-
um bassaleikari Status Quo, með
sveitinni um þessar mundir.
Noiseworks
Saga hljómsveitarinnar Noise-
works er tiltölulega stutt. En þó svo
að hljómsveitin hafi ekki verið til
lengi hafa liðsmenn hennar langa
reynslu í ástralska rokkinu. Fyrstu
smáskífur Noiseworks fengu mikla
athygh í áströlskum útvarpsstöðvum
og seldust sömuleiðis ágætlega. No-
iseworks hitaði upp fyrir Eurythmics
þegar sá frægi dúett sótti ástrah síð-
ast heim.
Dave Dobbyn
Dave Dobbyn sló fyrst í gegn á
Nýja Sjálandi með hljómsveitinni DD
Smash. Þpgar hann náði ekki lengra
þar í landi flutti hann sig um set til
Ástralíu og hefur þar verið flestum
öðrum duglegri við hljómleikahald.
- Fyrir tveimur árum rak Dobbyn
Noiseworks, ein af yngstu en jafnframt efnilegustu hljomsveitum Ástralíu.
Flash & the Pan, kapparnir fornfrægu Harry Vanda og George Young.
Mental as Anything, húmoristar ástralska rokksins.
Dave Dobb-
yn, háttskrif-
aöur tónlist-
armaðurá
Nýja Sjálandi.
Flash&thePan
Árið 1967 sló í gegn áströlsk
hljómsveit sem kallaði sig The
Easybeats. Hún gerði firnavinsælt
lagið Friday on My Mind sem enn
hljómar. Easybeats heyra sögunni til
en tveir hðsmenn hennar gera nú
garðinn frægan með stúdíóhljóm-
sveitinni Flash & the Pan.
Þessir tveir eru Harry Vanda og
George Young. Sásíðarnefndi er
reyndar bróðir Angusar, hljómsveit-
arstjóra AC/DC, og þeir Young og
Vanda hafa nokkuð látið til sín taka
á plötum þeirrar ágætu þungarokk-
hljómsveitar.
Flash and the Pan var stofnað fyrir
tæpum áratug. Árið 1982 var sveitin
lögð niður en endurreist í fyrra til
aö hljóðrita plötuna Nights in Fran-
ce.
hljómsveitina sína og hefur komið
fram undir eigin nafni síðan.
Það fyrsta sem Dobbyn tók sér fyr-
ir hendur eftir aö DD Smash var öll
var aö semja tónlist fyrir kvikmynd-
ina Footrot Flats (The Dog’s Tale).
Platan með lögum myndarinnar var
á toppnum í átta vikur á Nýja Sjá-
landi og sex vikur í Ástrahu.
Dobbyn hefur verið kjörinn söngv-
ari ársins síðastliðin fjögur ár í röð
á Nýja Sjálandi. Hann var hlaðinn
titlum fyrir góðan árangur á síðasta
ári. Til að mynda taldist hann hafa
sent frá sér smáskífu ársins, breið-
skífu ársins, bestu kvikmyndamús-
íkplötu ársins, hann var valinn upp-
tökustjóri ársins og jafnframt
skemmtikraftur ársins. Greinilega
talsvert spunnið í Dave Dobbyn frá
NýjaSjálandi.
Umsjón: Ásgeir Tómasson