Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988.
45
Tækifærisvísur
eftir
Stephan G.
Stephan G. Stephansson var
fæddur í Skagafirði 1853. Hann
fluttist um tvítugsaldur til Vestur-
heims meö foreldrum sínum, var
þar bóndi alla ævi og dó þar. Hann
átti ekki afturkvæmt til íslands,
var að vísu boöið heim til Fróns
sumariö 1917 og stóðu ungmenna-
félögin aöallega aö því og varð það
honum til mikillar ánægju, orti
hann þá mörg góð kvæði og vísur.
Hann má ótvírætt telja höfuðskáld
Vestur-íslendinga en mörg kvæða
hans eru of löng og ort af meira
viti en listfengi. Honum hætti til
að fyrna um of orðalag sitt. Mörg
stórsnjöll kvæði hefur hann ort.
Tækifærisvísur, sem hin viður-
kenndu skáld yrkja, eru kannski
meiri tækifærisvísur í eiginlegri
merkingu en slíkar stökur hagyrð-
inganna, sem svo eru kallaðir.
Skáldin eru dæmd eftir snjöllustu
kvæðum sínum sem þau hafa hefl-
að og snurfusað, legið yfir uns allt
vafasamt er numiö burt, annað sett
í staðinn, sem er þess virði að fá
að standa. En hagyrðingamir eiga
líka sínar náðarstundir. Stundum
yrkja þeir ífjórum hendingum eins
vel þau skeyti til þjóðar sinnar, sem
er aðeins ein vísa, eins efnismikil
og merkileg og hin langa rolla hins
viðurkennda. Þetta hefur oft gerst
og er alltaf að gerast. Sumir yrkja
mikið og mest af því eru miðlungs
kvæöi og vísur. Aörir leggja svo
mikla rækt við gáfu sína og er gef-
ið meira en öðrum og hljóta þegar
best lætur sérstaka viðurkenningu
og skáldsorð.
í þessum þáttum eru með örfáum
undantekningum aðeins birtar
stökur og smákvæði og venjulega
samanblandað efni eftir skáldin
góðu og hagyrðingana sem þó
nokkuð hafa til brunns að bera.
Tækifærisvísur eru óvenju margar
í bókum St.G.St. og mjög misjafnar.
Manni kemur oft í hug hin kunna
kersknisvísa Káins:
Alit er hirt og allt er birt,
ekkert hlé á leirburðe.
Yrkir myrkt og stundum stirt
Stefán G. í Kringlunne.
Ekki varð þessi vísa til neinna
vinslita á milli þessara ólíku skálda
og líklega ekki allt birt í bókum sem
kom í Heimskringlu og Lögbergi,
enda ekki vist að allt sem þar sást
hafi verið prentað með samþykki
Stephans, þótt ekki hafi verið veð-
ur af gert.
Viö munum að þessu sinni birta
tækifærisvísur og stökur sem ekki
hafa komið hér áður eða eru svo
alkunnar að þær séu þegar á allra
vörum.
Ekki er fyrirsögum alltaf fylgt,
stundum sett ártöl.
Spurt og svarað
Hvað sé skáld? Spyr þú að því.
Þarna er einkunn talin:
Það er djúpur eldur í
ösku þunnri fahnn.
í blæ, sem varla bærði rós,
blossa kann og funa,
kveikja hita, líf og ljós -
líka kannski bruna.
1892.
Fimleik skeikar, fórlast mér,
fætur reika eymdir,
giktarveikur armur er,
æskuleikar gleymdir.
Enn er voöa vanasár
veslings almenningur
á þetta kónga pírumpár
og presta bamaglingur.
1899.
Óbæn þinni, Illfús minn,
æðri kraftur reiðist -
Guði fmnst hún framhleypin,
fjandanum kvabbið leiðist.
1899.
Hlæjum þrótt og líf í ljóð,
lúa þótt við höfum.
Kemur nóttin næðisgóð
nógu fljótt í gröfum.
Meðan ís í útlegð fer,
en auðir rísa hjallar,
sólskinsvísu syngja þér
sumardísir allar.
Fáir útvaldir
Daginn eftir dómsdaginn
dyrnar opnast gjörðu.
Lykla-Pétur leit þar inn
á liðið hér frá jöröu.
Svona hóf hann harmamál:
Hér er fátt af gestum.
Það var engin eilíf sál
í þeim, svona flestum.
Ekki verður ös um mann -
autt er um himnasali.
Það varð auma upprisan
eftir höfðatali.
1903.
Um lundleiðan
mann og fleira
Þú hefur uppi önug svör,
illhryssan í geði.
Til þín marga fýlufór
fóru bros og gleði.
1904.
Bað til Guðs að bæta mér
bilaða trúgirnina. -
Er það syndlaust, segðu mér,
að svæfa skynsemina?
1904.
Guðir og dísir, í sögur og sið
settar og trúfræðakerfi:
Mannlegar ástríður eruð þið
ort upp í veruleiks gervi.
1905.
Spor manns liggja utar oft
en ævisaga -
um bæinn þinn og heimahaga
hugurinn reikar marga daga.
Sólskinsstundin ögrun er,
ama að lund hún setur.
Inni bundinn óska ég mér
út á fund þinn, vetur.
Er í höndum huga móðs
hálfgerð önduð staka -
nú eru löndin lokuð óðs
lúaböndum klaka.
Úr vinnumanni er sönglist
svelt.
Sinna kann ei brögum, -
minna anna allt er skeflt
undir fanna lögum.
1905.
Reimleikarnir
Það var fyrr í fomum siö
- fátt þó uppi hangi -
skáldin okkar aðallið
urðu í draugagangi.
Vígslur juku gauragang
guðshúsin í kringum,
draugar buðu bróðurfang
bæn og krosssigningum.
Helguð jörö var hóti verst,
hlaðin minnisvöröum.
Akur fjandans allra best
óx í kirkjugörðum.
Enn er sama sagan spurð:
Svarri skáld á strenginn,
þegar ríður húsi og hurð
heimskan afturgengin,
sem sér draga ætlar að
allt í sína hauga -
sama er kvæðakvööin, það:
að kveða niður drauga.
1907.
Stökur út í veður
og vind
Þegar í höku hleður snjá
húsaþökum stormur á,
mínar stökur þora ei þá
þorravöku bænum frá.
Úti er vetraraukinn,
unnt að sá og plægja -
í gær ég heyröi gaukinn
gamanvísu hlæja.
Stephan mun, eins og siður er í
löndum þar sem hægt er að rækta
korn, hafa sett kornöx út á garð-
staur handa fuglum. Hann átti í því
sammerkt vini sínum og skáld-
bróður, Þorsteini Erlingssyni, að
kenna í bijósti um smáfuglana. Um
þá verður síðasta vísan núna.
Um þessara fugla þorratöf,
því er til að gegna:
Ég tók þá af Guði á gjöf
greyin, Þorsteins vegna.
Jón úr Vör
Fannborg 7, Kópavogi
Félagsstarf aldraðra
í Reykjavík
Sýningar á unnum munum í félagsstarfinu á sl. vetri
verða haldnar í Bólstaðarhlíð 43, Hvassaleiti 56-58
og Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi dagana 28.,
29. og 30. maí frá kl. 13.30 til 17.00.
Sala á handavinnu aldraðra Reykvíkinga veróur á
áðurnefndum stöðum og einnig í Lönguhlíð 3.
Kaffisala á öllum stöðunum.
Allir velkomnir
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
UTBOÐ
Kiæðingar á Vestur-
landi 1988
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum i ofan-
greint verk. Nýlagnir og yfirlagnir á sjö köflum,
samtals 30 km.
Verki skal lokið 1. september 1 988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rikisins
i Borgarnesi og Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 24. maí nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 6. júni 1988.
Vegamálastjóri
v
Félagsstarf aldraðra
í Reykjavík
Orlofsdvöl
Eins og undanfarin sumur efnir Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar í samstarfi við íslensku þjóðkirkj-
una til orlofsdvalar að Löngumýri í Skagafirði.
I sumar hafa eftirfarandi tímabil verið ákveðin.
1. hópur 30. maí til 10. júní
2. hópur 4. júlí til 1 5. júlí
3. hópur 18. júlí til 29. júlí
4. hópur 15. ágúst til 26 ágúst
5. hópur 5. sept. til 16. sept.
Innritun og allar upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu félagsstarfs aldraðra í Hvassaleiti 56-58,
símar 689670 og 689671 frá kl. 9.00-12.00.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Sólbaðsstofa
Astu B. Vilhjálms,
Grettisgötu 18,
sími 28705
VERIÐ VELKOMIN
ÁVALLT HEITT Á
KÖNNUNNI