Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Page 40
52
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988.
RAFHLAÐA
SEM ENDIST
OG ENDIST
Kodak
UMBOOIP
R
KYOLIC
Til hamingju
Árangur meira en 25 ára rannsókna japanskra vís-
indamanna. KYOLIC hvítlaukurinn, engin sambæri-
leg framleiðsla fyrirfinnst í veröldinni. Töflur, hylki,
fljótandi - lyktarlaust-jafngildir hráhvítlauk. KYOLIC
fæst hjá heilsuvöru- og lyfjaverslunum og víðar
Heildsölubirgðir:
Logaland, heildverslun,
Símar 1-28-04 og 2-90-15
Smáauglýsingadeild DV
Opið um hvítasunnuna:
í dag til kl. 14.00.
Mánudag 23. maí frá kl. 18.00-22.00.
LOKAÐ
sunnudaginn 22. maí.
kemur næst út þriöjudaginn 24. maí.
Síminn er 27022.
Gleðilega hvítasunnu!
Edduhótelið á Laugabakka er i um 235 km fjarlægð frá Reykjavík.
Sértilboð hjá Edduhótelunum:
Tuttugu og fimm
prósent afsláttur
1 juni og agúst
I júni og ágúst veröa Edduhótelin
með sértilboö fyrir dvalargesti sína.
Sérstaklega ódýra gistingu er hægt
aö fá á tímabilinu 15. til 30. júní og
8. til 30. ágúst. Boðið upp á minnst
fjögurra daga dvöl á hótelunum.
Ekki er nauðsynlegt að dvelja allan
tímann á einu hóteli heldur er hægt
að skipta dögunum á milli staða.
Dvalartími þarf ekki að vera sam-
felldur.
Ef panta á dvölina fyrirfram má
ekki gera það meira en tveim dögum
áður. Hægt er aö láta hótelstarfsfólk
panta fyrir sig á næsta hóteli sem
fyrirhugað er að ferðast til. Hafi her-
bergi verið pantað og mæti gesturinn
ekki er litið svo á að hann hafi notað
herbergið og dregst frá sá fjöldi gisti-
nátta sem hann nýtti sér ekki.
Verð fyrir tveggja manna herbergi
í fjórar nætur eru 6.900 krónur og
5.200 krónur fyrir einstaklingsher-
bergi. Þetta er um tuttugu og fimm
prósenta afsláttur frá því verði sem
gildir á öðrum tíma. Ekki er innifahð
í þessu morgunveröur né aðrir máls-
verðir.
Edduhótelin átján eru víðs vegar
um landið. Hótelin eru notuð sem
skólar á veturna og í fæstum tilfella
fylgja sérbaðherbergi herbergjum.
Sundlaugar eru víða á hótelunum.
-EG.
Edduhótelið á Akureyri er mikiö notað af íslenskum ferðamönnum.
Hrafnagil er sögufrægur staður skammt vestan Eyjafjarðarár. Hótelið er
um tólf km. sunnan við Akureyri.
LífsstQI
Guðmundur Þ. Halldórsson:
Því er fljótsvarað, það er mið-
hálendiö.
Skúli Óskarsson: Um Austfirð-
ina, ég er ættaður þaðan.
Guðmundur Freyr Sigurðsson:
Vestfirðirnir eru spennandi og
Norðurland kemur einnig til
greina
Linda Jónsdóttir: Mér finnast
Vestfirðirnir ákaflega fallegir.
Halldóra Ingvarsdóttir: Um
Vestfirðina og þá sérstaklega
Austur-Baröastrandasýslu. Þar
finnst mér skemmtilegast að
ferðast.