Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Page 41
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988.
5ð
DV
Hamborg:
Fleiii tré en íbúar
„Ég hef tekið eftir því hér á íslandi
að Hamborg er fyrst og fremst talin
vera hafnarborg. Það er að sjálfsögðu
rétt að vissu leyti. í Hamborg er
stæsta höfn Þýskalands og sú þriöja
í röðinni í Evrópu. Þó að hún sé hafn-
arborg er samt ekki sönn sú hafnar-
hverfamynd sem fólk virðist draga
upp af borginni. Mér finnst fólk halda
að borgin sé aðeins dauflegar bygg-
ingar í skítugu hafnarhverfi. Ham-
borg er allt öðruvísi," segir Benecke.
Hamborg er græn
Það sem einkennir borgina eru
grænir htír. Gjarnan er sagt að í
Hamborg séu fleiri tré en íbúar. Þetta
er sagt með stolti því Hamborgarbú-
ar hafa lagt áherslu á að umhverfi
borgarinnar sé í sem bestum tengsl-
um við náttúruna. í borginni er mið-
bæjarkjarni þar sem gömul hús fá
að njóta sín.
í borginni er vatnið Alster sem set-
ur sitt mark á bæjarlífiö. Það er vett-
vangur útiveru og samskipta. Á
sumrin er krökkt af bátum og segl-
brettum á vatninu og á vetuma er
fólk þar á skautum.
„Það er mér gleðiefni að geta sagt
að íslenskum ferðamönnum til Ham-
borgar hefur íjölgað óvenjulega mik-
ið á síðustu ámm. í fyrra fjölgaði
þeim um fjörutíu prósent. íslending-
ar eru góðir gestir. Meðaltal gisti
Ferðir
nátta ferðamanna í Hamborg í fyrra
var 1,8. En íslensku ferðamennirnir
dvöldu 2.6 daga. Þetta er að sjálf-
sögðu ánægjulegt fyrir borgaryfir-
völd því við viljum að gestir okkar
gisti í borginni sem lengst.
Innkaup undir yfir-
byggðum strætum
Norðurlandabúar virðast helst
koma til Hamborgar í verslunar- og
viðskiptaerindum. Hagstætt er að
versla í Hamborg.
„í Hamborg er stæsta yfirbyggða
verslunargata Evrópu. Þar er hægt
aö versla hvernig'sem viðrar,“ segir
Benecke.
Ef ekki á að versla þá er nóg annað
hægt að gera í borginni. Nóg er af
tækifæram til útiveru. Tilvalið er að
fara í hálfsdagssiglingu um vatnið
og skoða borgina frá því sjónarhorni.
Mikiö er af söfnum, leikhúsum og
merkum byggingum. Næturlífið er
eins fjölbreytt og hugsast getur.
Hægt er að velja um hveija þá tegund
skemmtunar sem hugurinn gimist.
Veitingahús og krár eru óteljandi og
svona væri hægt að halda áfram.
„Ég vona að sem flestir heimsæki
Hamborg á næstu árum því ég er
sannfærð um að þegar fólk sér
hvemig borgin okkar raunverulega
er þá komi það aftur,“ segir Christine
Benecke.
-EG.
Óhöpp geta alltaf komið fyrir, einnig í ferðalaginu.
Enn taka íslendingar áhættuna
Flestir fara ótryggðir
í ferðalögin
Þó að kaup á ferðaslysatrygging-
um hafi aukist nokkuð síðasthðin ár
fara enn flestir ótryggðir í ferðalögin.
íslendingar virðast enn viljugir að
treysta á Guð og lukkuna þegar farið
er í ferðalög. Óhöpp gera ekki boð á
undan sér og það sama á við þegar
fólk er í ferðalagi.
Engir peningar,
engin læknisþjónusta
Sendiráð, ræðismenn, flugfélög
og ferðaskrifstofur þurfa oft og iðu-
lega að hlaupa undir bagga með þeim
sem lent hafa í óhöppum á erlendri
grundu. Þessir aðilar eru hjálpsamir
og fúsir að greiða úr vandamálunum
en því miður er stundum erfitt að
greiða úr þeim öllum.
Á ýmsum stöðum er til dæmis ekki
byrjað að sinna sjúkhngi fyrr en ljóst
er að hann getur greitt læknisþjón-
ustuna. Það þarf ekki að orðlengja
hversu alvarlegt það getur verið.
Hringt var í nokkur fyrirtæki, sem
bjóöa upp á tryggingar, og athugaö
hvað í boði er og hvað það kostar.
Hjá Almennum tryggingum feng-
ust upplýsingar um hálfs mánaðar
ferðatryggingar. Þær innihalda einn-
ar milljón króna dánar- og örorku-
bætur, sjúkrakostnað upp á fimm
hundrað þúsund, flmm þúsund
krónur í dagpeninga fyrir hveija
óunna viku og farangurstryggingu
fyrir sjötíu þúsund. Trygging sem
þessi kostar 1.240 krónur. Um er að
ræða Evrópuferð og dagpeninga-
greiðslur hefjast tveim vikum eftir
óhaþp. Sjálfsábyrgð á farangurstjóni
er tuttugu og fimm prósent af tjón-
upphæð og lágmark fjögur þúsund
kónur.
Sjálfsábyrgð á
farangurstryggingu
Samvinnutryggingar bjóða upp á
tryggingapakka sem inniheldur
flmm hundruð þúsund króna dánar-
bætur, eina milljón í örorkubætur,
sjúkrakostnað fyrir allt að milljón,
fimm þúsund krónur í dagpeninga
fyrir hveija óunna viku og eitt
hundrað þúsund krónur eru há-
marksbætur fyrir farangurinn.
Tryggingin nær yfir hálfs mánaðar
Evrópudvöl og dagpeningagreiðslur
byija hálfum mánuði eftir óhapp.
Sjálfsábyrgð á farangurstryggingu
er tuttugu og fimm þúsund krónur
og ef einn hlutur er verðmætari en
það þarf aö tryggja hann sérstaklega.
Ferðakostnaður vegna rofs á orlofi
er einnig greiddur eftir ákveðnum
reglum. Tryggingin kostar 1.397
krónur.
Visa tryggir korthafa, þeim að
kostnaðarlausu, ef þeir hafa greitt
helming ferðarinnar meö Visa
greiðslukorti. Þar eru innifaldar
dánar- og örorkubætur upp að fimm
milljónum króna, sjúkrakostnaður
allt að einni milljón, heimsókn að
heiman og endurgreiðsla á hluta or-
lofskostnaðar ef helmingi dvalar hef-
ur ekki verið náð.
Til viðbótar er hægt að kaupa
aukatryggingu sem inniheldur níu-
tíu þúsund króna farangurstrygg-
ingu þar sem sjálfsábyrgð er tuttugu
og fimm prósent af tjónupphæð, aldr-
ei þó lægri en fjögur þúsund krónur.
§jö þúsund og fimm hundruð krónur
eru greiddar í dagpeninga á viku.
„Heilt heim“ tryggir þá hluti sem
keyptir eru úti og ferðast er með
heim og bætir allt að sextíu þúsund
króna tjón. Ferðarofstrygging og
ábyrgðartrygging gagnvart þriöja
aöila eru einnig innifaldar í þessari
viöbót. Aukatrygging þessi kostar
1.020 krónur.
Smáa letrið
Rétt er að benda fólki á að lesa
vel tryggingaskilmálana. Þeir eru
svipaðir hjá flestum tryggingafélög-
um. Sem dæmi um undanþágur á
ábyrgð ferðatryggingarinnar má
nefna eftirfarandi:
Ef þú deyrð vegna sjúkdóms á
ferðalaginu eru ekki greiddar dánar-
bætur (gildir þá einu hvort þú lagðir
sjúkur af stað eða varðst veikur úti).
Áfleiðingar náttúruhamfara, stríðs,
geislavirkni og þess háttar era und-
anþegnar ábyrgð tryggingafélaga.
Ef tryggingahafi er drukkinn og
lendir af þeim sökum í slysi eða öðr-
um vandræðum á hann ekki rétt á
bótum. Þetta eru nokkur dæmi um
smáa letrið.
Því miður eru þessar undantekn-
ingar á tryggingaskírteinunum á
máli sem er allt því óskiljanlegt fyrir
þorra fólks. Máhð er útatað í lög-
fræðilegum hugtökum og flóknum
orðasamböndum. Það væri vel ef fyr-
irtækin létu fylgja þýðingu sem væri
á venjulegu mannamáli, viðskipta-
vinum sínum til glöggvunar. Þangað
til verða væntanlegir tryggingahafar
að spyija fulltrúa tryggingasala um
sérákvæði tryggingasamninga sinna.
-EG.
Lífetm
Christine Benecke er sölufulltrúi hjá ferðamálayfirvöldum i Hamborg. Hún
segist meðal annars hafa það hlutverk að ieiðrétta ímynd íslendinga af
borginni.
Sumarstúlka
Stúlka óskast til heimilisstarfa
á gestaheimili
úti á landi
mánuðina júní, júlí og ágúst.
Góð laun og aðstaða. Æskilegur aldur 20-30 ár.
Orlofsbúðirnar sf.
Tilboð merkt „Sumar 1905" óskast send
auglýsingadeild DV fyrir 26. maí nk.
Samvinnuskölinn
Bifröst
Rekstrarfræði á háskólastigi
Samvinnuskólapróf í rekstrarfræðum á háskólastigi
miðar að því að rekstrarfræðingar séu undirbúnir til
ábyrgðar- og stjórnunarstarfa í atvinnulifinu, einkum
á vegum samvinnuhreyfingarinnar.
Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði- eða vió-
skiptabrautum eða lokapróf í frumgreinum við Sam-
vinnuskólann eða annað sambærilegt nám.
Viðfangsefni: Markaðarfræði, versiunar- og fram-
leiðslustjórn, fjármálastjórn og áætlanagerð, starfs-
mannastjórn og skipulagsmál, almannatengsl, lög-
fræði og félagsfræði, félagsmálafræði, samvinnumál
o.fl.
Námslýsing: Áhersla lögð á sjálfstæð, raunhæf verk-
efni og vettvangskannanir í atvinnulífinu, auk fyrir-
lestra og viðtalstíma o.fl.
Námstími: Tveir vetur, frá september til maí hvort ár.
Aðstaða: Heimavist, fjölskyldubústaðir, skólaheimili,
félagsaðstaða og mötuneyti á Bifröst í Borgarfirði
ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaði o.s.frv.
Kostnaður: Fæði, húsnæði, þjónusta og fræðsla
áætluð um 32.000,- kr. á mánuði fyrir einstakling
næsta vetur.
Umsóknir: Með persónulegu bréfi til skólastjóra Sam-
vinnuskólans á Bifröst fyrir 10. júní. Umsókn á að
sýna persónuupplýsingar, upplýsingar um fyrri skóla-
göngu með afriti skírteina og upplýsingar um fyrri
störf. Ekki sérstök umsóknareyðublöð.
Veitt er innganga umsækjendum af öliu landinu.
Þeir umsækjendur ganga fyrir sem orðnir eru eldri
en 20 ára og hafa öðlaststarfsreynslu í atvinnulífinu.
Miðað er m.a. við reglur um námslán.
Samvinnuskólinn á Bifröst,
311 Borgarnesi, sími 93-50000.