Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1988, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988.
Fréttir
Fékk þétt-
riðinn poka
í vörpuna
Geir Guðsteinsson, DV, Dalvilc
Alversbyggingar í Hafnarfjarðarhrauninu verða hugsanlega heldur fyrirferðarmeiri en nú er ef af byggingu nýs álvers verður. A þessari mynd sést hvern-
ig hið nýja álver verður staðsett en því er ætlaður staður hinum megin við Reykjanesbrautina eins og hún liggur nú. Notast verður þá við núverandi höfn
og liklega grafin göng undir veginn. DV-mynd Brynjar Gauti
Nýtt álver við Straumsvík:
Umhveifismálin
í síöustu veiöiferð sinni fyrir.
nokkrum dögum fékk Dalvíkurtog-
arinn Björgvin EA 311 þéttriðinn
poka í vörpuna og kom meö hann til
heimahafnar. Pokinn mun vera
þýskur aö ætt og aö áliti kunnáttu-
manna sleppur ekki nokkurt kvik-
indi gegnum svona þéttriðinn poka.
Þetta var síðasta veiöiferö Björg-
vins hér við land. Fariö veröur með
skipiö til Noregs innan skamms og
þar mun þaö ganga upp i kaupverð
nýs Björgvins sem Utgerðarfélag
Dalvíkinga hf. hefur átt í smíöum í
Flekkefjord í Noregi og verður af-
hentur í lok þessa mánaðar.
Fleiri ný skip eru væntanleg hing-
að til Eyjafjaröar í sumar eöa haust
því Hríseyingar fá nýtt Snæfell í
haust og gengur gamla Snæfellið upp
í kaupin. Nýja Hríseyjarskipið er
einnig smíöaö í Noregi.
Þá fær Bliki hf. á Dalvík nýtt skip
í lok september. Fyrirtækið er að
láta smiöa 280 tonna rækju- og laus-
frystiskip í Hárnösand í Svíþjóð. Upp
í þau kaup gengur Arnar ÁR 55 sem
keyptur var nýlega frá Þorlákshöfn
í staö gamla Blika sem verður geröur
út frá Þorlákshöfn af hinum nýju
eigendum, Auðbjörgu hf.
Þéttriðni pokinn um borð í Björgvini
EA. DV-mynd Geir
látin hafa forgang
- svartar niðurstöður frá Hollustuvernd, segir bæjarstjóri Hafnarfjaróar
Umhverfls- og mengunarmál
vegna hugsanlegs álvers viö
Straumsvík veröa forgangsmál hjá
Hafnfiröingum. Að sögn Guðmundar
Árna Stefánssonar, bæjarstjóra í
Hafnarfirði kemur ekki til greina að
fallast á byggingu nýs álvers nema
mengunarvarnir verði mjög traust-
ar.
Nýlega kom út skýrsla frá Holl-
ustuvemd ríkisins sem byggir á
mælingum á flúoríðum, ryki og
brennisteinsdíoxíði í útblásturslofti
frá ísalálverinu í Straumsvík. Fóru
mælingarnar fram í júlí og ágúst
1986. I lokaorðum skýrslunnar er
félldur þungur dómur yfir ástand-
inu. Þar segir: „Flúoríð- og rykmeng-
un í útblásturslofti frá verksmiðj-
unni mældist óviðunandi. Niðurstöð-
urnar eru hærri en þau mörk sem
ísal hefur talið sig geta ábyrgst.“
„Þetta eru dálítiö svartar niður-
stöður og erfitt að gera sér grein fyr-
ir hvaða áhrif það hefur á okkar
samninga. Það er þó ljóst aö það
verður forgangsmál hjá okkur að frá
umhverfismálum verði gengið á við-
unandi hátt,“ sagði Guömundur
Árni. Hann bætti því við að þaö hefði
verið fullyrt að tækninni hefði fleygt
mikið fram síðan fyrir 20 árum þegar
núverandi álver var byggt. Því ætti
að vera hægt að byggja álver í dag
sem væri tryggara hvað mengun
varðaði en það gamla.
Undir það tók Órn Bjarnason, yfir-
læknir og forstjóri Hollustuvemdar
ríkisins. Örn sagði að ástandið hefði
batnað síðan skýrsla stofnunarinnar
hefði verið gerö. Það væri þó ljóst
aö flúoríömengun væri helsta um-
hverfismengunin viö álveriö. Land-
búnaður væri því ekki fýsilegur ná-
lægt álverinu sem m.a. hefði stuðlað
að þessari staðsetningu á sínum
tíma. Að nokkru styrkti þaö einnig
staðsetningu nýs álvers á þessum
stað.
Örn sagði einnig að tæknilega séð
væri unnt að tryggja að engin meng-
un bærist frá verksmiðjum sem þess-
um - það væri aðeins spurning um
það hve dýru veröi menn vildu kaupa
slíkt.
-SMJ
í dag mælir Dagfari
Viltu verða bankastjóri?
Alltaf kemur það betur og betur í
jjós hvað það skiptir miklu máli aö
vera á réttum stað í pólitíkinni.
Sjáiö þiö til að mynda Hannes
Hólmstein. Ef hann væri ekki sjálf-
stæðismaður meö réttar skoöanir
myndi Háskólinn ekki fá að pjóta
hæfileika hans. Örlögin hafa hagað
því svo að einmitt þegar Hannes
er tilbúinn að taka aö sér kennslu
í Háskólanum vill svo heppilega til
að menntamálaráðherrann er sjálf-
stæðismaður sem hefur skilning á
því hvað Hannes er góður maður.
Dómnefndir og atkvæðagreiðslur
kommanna í Háskólanum breyta
þar engu um. Þegar Hannes Hólm-
steinn sækir um lektorsstöðu, til
aö hafa ofan af fyrir sér milli þess
sem hann leggst í ferðaiög í útlönd-
um, hefur menntamálaráðherra
kjark til að skipa Hannes í stöð-
una. Það sem gefur ráðherranum
kjark og vit til að taka svo djarf-
mannlega ákvörðun, þvert ofan í
vfija kommanna í Háskólanum, er
auðvitað sú staðreynd að Hannes
er sjálfstæðismaður, réttur maður
á réttum stað.
Sama gildir um bankastjórastöð-
ur, svo eitthvaö annaö sé nefnt.
Þegar Jónas Haralz hætti í banka-
stjórastöðunni í Landsbankanum
vildi svo heppilega til aö annar
sjálfstæðismaður var á lausu.
Sverrir Hermannsson, sem er lengi
búinn að vera sjálfstæðismaður,
gat gengið að því vísu að hann yrði
bankastjóri af því aö hann var rétt-
ur maður á réttum stað, sjálfstæð-
ismaður á lausu, sem var tilbúinn
að fóma sér fyrir flokkinn og mál-
staðinn og láta tilleiðast að hlaupa
í skarðið.
Auðvitað skipti það ekki neinu
máli hvort Sverrir þekkti eitthvað
til bankamála. Það breytti heldur
engu hvort Sverrir haföi staðið sig
vel eða illa sem ráðherra. Aðalat-
riðiö var að vera sjálfstæðismaður,
rétt eins og það skiptir ekki höfuð-
máli í félagsvísindunum hvort
Hannes Hólmsteinn þekkir eitt-
hvað til þeirrar greinar sem hann
á aö kenna, heldur hitt að hann er
í réttum flokki þegar staðan er aug-
lýst.
íslendingar verða nefnilega að
átta sig á því óumbreytanlega lög-
máli að ábyrgðarstöðum er ekki
úthlutað eftir þekkingu, reynslu
eða hæfni. Það sem skiptir máli er
aö vera í réttum flokki á réttum
tíma. Bankasljórastöður í ríkis-
bönkunum tilheyra ekki þjóðinni.
Þær tilheyra ekki venjulegum
mannaráðningum. Bankastjóra-
stöður falla eingöngu þeim í hlut
sem eru til þess fallnir samkvæmt
flokksskírteinum. Sjálfstæðimenn
eiga sínar stöður, framsóknar-
menn eiga hinar. Nú er nýbúið að
ráða Sverri í Landsbankann og þá
er röðin komin næst að framsókn-
armönnum. Helgi Bergs er að
hætta í bankanum og spumingin
hefur aðeins veriö sú hvaða fram-
sóknarmaður er heppilegastur eða
réttara sagt á lausum kili þegar
Helgi hættir.
Það hefur komið í ljós á undanf-
ömum dögum að það er ekki til
nema einn maður og einn fram-
sóknarmaður í landinu sem getur
tekið að sér þessa stöðu. Sá er Val-
ur Amþórsson, sem er búinn að
vinna langt og þrotlaust starf fyrir
Framsóknarflokkinn og sam-
vinnuhreyfinguna. Hann hefur
safnað skuldum fyrir Sambandið
og komiö kaupfélögunum á haus-
inn. Kaffibaunamálinu er lokið og
jörðin er sem sagt vel og rækilega
sviðin. Valur Amþórsson hefur
sannað svo ekki verður um villst
að hann hefur fjármálavit. Þess
vegna er hann sjálfkjörinn sem
bankastjóri í Landsbankanum.
Þegar Sverrir var ráðinn tóku
margir bankamenn upp á því að
sækja á móti honum. í þetta skiptið
gegnir öðru máli, enda em banka-
menn búnir að læra sína lexíu. Ef
þeir eru ekki framsóknarmenn og
heita ekki Valur Amþórsson þá
eiga þeir engan sjens í þessa banka-
stjórastöðu. Það eina sem aftrar því
að gengið sé frá stöðuveitingunni
er Valur Arnþórsson sjálfur. Hann
hefur af lítillæti sínu tekið sér
umhugsunarfrest, hvort hann vilji
verða bankastjóri. Gengur nú mað-
ur undir manns hönd til að þrá-
biðja Val um að taka að sér þetta
vanþakkláta starf, enda veit maður
satt að segja ekki hvernig þjóðin
eða Landsbankinn færu aö ef eini
núlifandi íslendingurinn, sem er
fær um að gegna stöðunni, hafnaði
boðinu. Vonandi tekst að telja hon-
um hughvarf.
Dagfari