Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1988, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988.
11
Mótmæli í S-Kóreu
Um eitt þúsund manns söfhuðust
saman í Seoul í Suður-Kóreu í gær
að mótmæla sölu bandarískra
í landinu. Brenndu mót-
stórar eftirlíkingar af
Tndiingunum.
Frá því um síðustu mánaðamót
vmdiingamir verið seldir á
næstum helmingi lægra verði en
áöur vegna þeirrar ákvörðunar
rödsstjómarinnar að lækka inn-
flutningsgjöld á bandarískum
vindlingmn.
sölu á bandarískum vindlingum.
Símamynd Reuter
Biðlar til spænskra
George Bush, varaforseti Banda-
rikjanna, reynir nú að afla sér
kvæði kjósenda af spænskum æti
um fyrir forsetakosningamai.
Sagði Bush í gær að hann hygðist
útnefna spænskan Bandaríkja-
raann í ráðuneyti sitt ef hann næði
kosningu. Varðandi afsögn Meese
dómsmálaráðherra sagði varafor-
setinn að þaö heíði veriö léttir að
hann hefði tekið slíka ákvörðun.
í gær deildi Jesse Jackson á Bush
fyrir „gróf ‘ viðbrögð við fregninni
um árásina á írönsku farþegaþot-
una. Átti Jackson þar augsýnilega
við orð varaforsetans þegar hann kvað lífið halda áfram þegar hann var
spurður að þvi hvort hann hefði átt að gera hlé á kosningabaráttunni og
halda til Washington.
Bush, varalorsetl Bandaríkjanna,
blðlar nú til kjósenda af spænskum
ættum. Slmamynd Reuter
Árás kontva métmælt
Herbíll sandinista sem kontraskæruliðar réðust á þann 4. júlí siðastlið-
inn. Tólf blðu bana i árásinni. Simamynd Reuter
Yflrvöld í Nicaragua hafa sent opinber mótmæli til Bandaríkjastjóm-
ar vegna árásar kontraskæruliða sera hafði þær afleiðingar að tólf manns
létu lífið, þar á meðal sjö óbreyttir borgarar.
Umsátur skæruliða átti sér stað um rúmlega hundrað kílómetra fyrir
austan Managua.
Fjölmiðlar t Nicaragua telja þessa árás hafia verið grófasta brotið hing-
að til á vopnahléssamkomulaginu en vopnahlé hefur veriö í gildi síöan
1. apríl síöastliöinn.
Mótmælabréfið var stílað á George Shultz utanríkisráðherra í því vom
Bandaríkin sökuð um að vilja ijúfa vopnahlé sem var árangur bráða-
birgðasamkomulags sem undirritað var í mars.
Heimsækja Bandaríkin
Sovéskir heryfirmenn em nú í
heimsókn i Bandaríkjunum til að
skoða bandarískar herstöðvar.
Gestimir munu fylgjast með æfing-
um bandaríska flotans i Norður-
Karólínu og kanna fiugmóðurskip
í Atlantic.
Forseti bandaríska herráðsins,
William Crowe, og Sergei Ak-
hromejev, starfsbróöir hans frá
Sovétríkjunum, tjáöu fréttamönn-
um í gær aö heimsóknin, sem er
Forsetar herráöa Bandaríkianna árangur samkomulags um slíkar
og Sovétríkjanna í Washington i ferðir, væri liður í átt að betri skiln-
gær. Simamynd Reuter ingi milli stórveldanna.
Þingmenn til Panama
Þrir bandarískir þingmenn em væntanlegir til Panama í dag til fundar
viö „fjölda manns", aö því er starfsmenn bandaríska sendiráðsins f Pa-
nama sögðu í gær. Að sögn sendiráösstarfsmannanna munu þingmennira-
ir dvelja jþrjá daga í Panama.
Nokkrir stjórnmálamenn úr röðum stjómarandstæðinga segjast hafa
heyrt heimsóknarínnar getið en ekki um nákvæma dagskrá hennar. Tals-
maður Mahuels Solis Palma, sem nú gegnir embætti forseta Panama,
kvaöst ekkert hafa heyrt um heimsókn þingmannanna.
Bandaríkjastjóm viðurkennir ekki Solis Palma heldur styður hún Del-
valle forseta sem var settur af í febrúar síöasthðnum er hann reyndi að
reka yfirmann herafla landsins, Manuel Antonio Noriega.
Viöræður mijli sendimanns Hvíta hússins og ráögjafa Noriega um lausn
ástandsins, sem ríkir milli Panama og Bandaríkjanna, fóru út um þúfur
í maí. Rcuter
Útlönd
Einn maður féll í
róstum í Jerevan
„Karabakh-héraðið var, er og mun ætið vera armenskt," stendur á spjöld-
um mótmælenda sem söfnuðust saman I armenska kirkjugarðinum i
Moskvu sl. sunnudag. Símamynd Reuter
Einn maður lét lífið á þriðjudag í
óeirðunum í Jerevan, höfuöborg so-
véska lýðveldisins Armeníu. Maður-
inn, sem var íbúi í Jerevan, lést af
völdum gúmmíkúlu sem hermenn
skutu að mótmælendum á þriðju-
dagskvöld á veginum að flugveliin-
um í Jerevan. Að sögn ritstjóra arm-
ensku fréttastofunnar, Armenpress,
var kúlan sú eina sem skotið var í
óeirðunum á þriðjudag. Þeir sem lát-
ið hafa lífið í óeirðunum síöan í fe-
brúar em nú orðnir 36.
Mörg þúsund manns söfnuðust
saman á götum Jerevan í gær og í
morgun og kröfðust þess aö héraðið
Nagomo-karabakh yrði fært undir
stjóm Armeníu.
í sovéska sjónvarpinu vom sýndar
myndir frá mótmælaaðgerðum á
flugvellinum í Jerevan á þriðjudag
þar sem mótmælendum lenti saman
viö lögreglu. Aðgerðunum lauk með
því að lögregla fjarlægði fólkiö með
valdi. Alls söfnuðust saman um 3.000
Armenar á flugvellinum og lokuðu
honum í tvo daga. Starfsmaður so-
véska flugfélagsins sagði að um 60
feröum hefði verið aflýst og hefðu
mótmælin bitnað á um 14 þúsund
farþegum.
Samkvæmt sovéska sjónvarpinu
hafa alls 36 manns særst í þessum
mótmælum í Jerevan, en eins og
áður sagði hafa nú 36 fallið síðan
rósturnar hófust í febrúar síðastliðn-
um. Deilan snýst um sovéska héraðið
Nagomo-karabakh, en íbúar þess em
flestir Armenar og vilja að héraöið
lúti stjórn Armeníu.
Reuter
Byrangamokkurinn sakað-
ur um kosningasvik
Lögreglan í Mexíkó viðhafði miklar
öryggisráðstafanir vegna forseta- og
þingkosninga sem fram fóru í
landinu gær. Símamynd Reuter
Leiðtogar stjómarandstöðunnar í
Mexíkó saka Byltingarflokk Carlo
Salinas de Gortari forsetaframbjóð-
anda um svik í forsetakosningunum
sem fram fóm í gær. Snemma í morg-
un höfðu engar tölur borist um úr-
slitin en fastlega er búist við að Bylt-
ingarilokkurinn sigri í kosningunum
og tryggi sér þannig áframhaldandi
völd. Flokkurinn hefur setiö á valda-
stóli í nærfellt 60 ár.
„Stórfelld svik eiga sér stað,“ sagði
Cuauthemoc Cardenas, forsetafram-
bjóöandi vinstri manna, í samtaii við
fréttamenn í gær. Hann var ásamt
leiðtogum stjómarandstöðunnar á
leið á fund Manuel Bartlett innanrík-
isráðherra en hann á einnig sæti í
kosninganefnd.
Stjórnarandstaðan sakar Bylting-
arflokkinn um að stela kjörkössum,
sem og að reka fulltrúa stjórnarand-
stöðunnar frá kjörstöðum. Opin-
berra niðurstaðna kosninganna er
að vænta á miðvikudag í næstu viku.
Reuter
Carlos Salinas de Gortari, forseta-
frambjóðandi Byltingarflokksins I
Mexíkó, i augum skopteiknarans
Lurie.
DANSS
Au Ð AR H A R A L DS
Einkatímar fyrir
þá sem vilja
DANS
Stutt sumarnámskeið að hefjast. Kennsla hefst mánudaginn 11. júlí og lýk-
ur miðvikudaginn 27. júlí. Eldhressir tímar, rock'n'roll, tjútt, suðuramerískir
dansar, unglingahópar - Para hópar fyrir byrjendur og framhald.
Kennslustaður Skeifan 17
Innritun og upplýsingar í síma 656522 frá kl. 14-18