Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1988, Page 5
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988.
5
Fréttír
Vigdís Finnbogadóttur komin til Beiiínar:
Ibuar Berlínar hugrakkir
HaDdór Valdimarssan, DV, Berlm;
Heimsókn forseta íslands, frú Vig-
dísar Finnbogadóttur, til Berlínar aö
þessu sinni lauk um klukkan níu í
morgun þegar forseti hélt áleiöis til
Frankfurt með sérstöku leiguflugi
frá Air France.
Forsetinn kom til Berlínar laust
fyrir klukkan'll í gærmorgun, að
staöartíma. Á flugvellinum tóku á
móti Vigdísi aðstoðarborgarstjóri
Berlínar, Dr. Hanna-Renate Laurien,
og fulltrúar bresku, bandarísku og
frönsku herstjórnanna í Berlín.
Frá flugvelli var forseta ekið til
Schöneberg ráðhússins í Berlín þar
sem hún átti stuttan fund með Dr.
Laurien aðstoðarborgarstjóra.
Frá ráðhúsinu var haldið til Martin
Gropius byggingarinnar þar sem for-
seti skoðaði sýninguna Topography
of Terror í leiðsögn Renhard Rurup,
prófessors við tækniháskólann í
Berlín. Sýning þessi stendur til minja
um hörmungar síðari heimsstyijald-
arinnar og ofbeldisverk nasista.
Frá sýningunni gekk forseti síðan
að Berlínarmúmum.
Að göngu þeirri lokinni skoðaði
hún sýningu sem nefnist Ágústus
keisari og glataða lýðveldið. Sýning
þessi er hluti af sérstakri dagskrá er
nefnist Berhn - menningarborg í
Evrópu 1988. Einnig var fomgripa-
safnið í Berlín skoðað.
Forseti og fylgdarhð snæddu há-
degisverð í boði aðstoðarborgarstjór-
ans og skoðuðu að því loknu sýningu
á íslamskri hst.
Akkur í að koma til Berlínar
Síðdegis í gær hélt forseti til tónhst-
arrannsóknarstofnunar þýska ríkis-
ins sem jafnframt er hljóðfærasafn
ríkisins. Þar lék blásarakvintett
Reykjavíkur á sérstökum tónleikum
sem forseti bauð til. Við upphaf tón-
leikanna hélt forseti stutt ávarp. Hún
gerði þar Berlín og Berhnarbúa að
umtalsefni, sagði að Berlínarbúar
hlytu að vera hugrakkt fólk að búa
svona hmi í miðju Austur-Þýska-
landi. Hún sagði ennfremur að í Berl-
ín hefði tekist að skapa mikla menn-
Vigdis Finnbogadóttir og Hanna-Renate Laurien, aðstoðarborgarstjóri Ber-
línar, í leiðsögn Reinhard Rijrup, prófessors við tækniháskóla Berlínar. Þau
ganga á lóðinni þar sem höfuðstöðvar Gestapo í þriðja riki Hitlers stóðu
áður. Byggingar í Austur-Berlín sjást í bakgrunni.
inguoghefðiíbúumborgarinnartek- sinni orðspor. Fólki, hvaðanæva úr
ist að gera það sem svo margir reyna heiminum, þætti akkur í að hafa
en fáum tekst, það er að skapa borg komiö til Berhnar.
í gærkvöldi sótti forseti síðan sýn-
ingu á söngleiknum Porgy og Bess í
leikhúsi vestursins í Berlín.
V , -i
Vigdís Finnbogadóttir faðmar að sér lítinn dreng sem bauð hana velkomna við upphaf heimsóknar forseta til
Vestur-Berlínar i gær. DV-myndir HV
Ganga Lerfs Leópoldssonar þvert yfir landið:
Gekk á strigaskóm
yfir Fljótsdalsheiði
- áætlar að ná Öskju á laugardag
„Þaö hefur gengið ágætlega,
nema ef undan er skihnn mánu-
dagsgalli á öðrum gönguskónum.
Sólinn losnaði á þriðja degi og því
varð ég að skipta yfir í strigaskó. Á
þeim gekk ég yfir alla Fljótsdals-
heiði með tæp 30 kíló á bakinu. Það
var erfitt, strigaskór eru ekki vel
fallnir til göngu yfir þúfur og stór-
grýti. Maður reynir svo á ökkl-
ana," sagöi Leifur Leópoldsson
göngugarpur í samtah viö DV í gær
þar sem hann hvíldi sig á Brú viö
Jökulsá á leið þvert yfir landiö frá
Reyðarfirði til Amarstapa. Þar
mátaði hann nýja skó.
Leifur hefur lagt rúmlega 90 kfió-
metra að baki af þeim 560 sem hann
verður að fara. Enn er langt í Arn-
arstapa en Leifur er hvergi bang-
inn. Hann hélt yfir Jökuldalsheiöi
í gær og reiknar meö að ná Öskju
Leifur leggur i’ann.
a laugardag. Þar tekur Leifur eins
dags hvild.
„Það hefur viðrað ágætlega hing-
að til og hundurinn Vaskur er hinn
besti ferðafélagi. Hann hefur vakt-
að mig um nætur sem er ágætt
þegar gæsa eða álftabyggð er í ná-
grenninu. ÁJftimar geta átt til að
ijúka í fólk ef það er of nærri
hreiðrunum.“
Gangan er farin til styrktar
Krisuvíkursamtökunum og á skrif-
stofu þeirra fengust þær upplýsing-
ar að safnast heföu rúmlega 700
þúsund krónur frá einstakbngum
og félögum. Eiginleg sala á kíló-
metrum er ekki hafin en samtökin
munu reiða sig á aÖ9toð fyrirtækja.
Verður fyrirtækjum sendir upplýs-
ingabæklingar um söfnunina á
næstunni auk beiðni um fiárfram-
lög. -hlh
Báðar bifreiðirnar eru mikið skemmdar eftir áreksturinn.
DV-mynd Sigurgeir
Þrír slösuðust í
árekstri á Skaga
- ökumaður sofnaði og ók yfir á rauðu
Sigurgeir Sveinssan, DV, Akranesi:
Mjög harður árekstur varð á Akra-
nesi í gærmorgun á gatnamótum
Stillholts, Kirkjubrautar og Kal-
mansbrautar. í viðtali við DV sagði
Svanur Geirdal yfirlögregluþjónn að
áreksturinn hefði oröið með þeim
hætti að Volvo-bifreið var ekið aust-
ur Stfilholt og Mazda-bifreið að Kal-
mansbraut. Volvo-bifreiðin ók yfir á
grænu ljósi og fuhvíst má telja að
Mazda-bifreiöin hafi ekið yfir á
rauðu. Taldar eru líkur á að ökumaö-
ur hennar hafi sofnað undir stýri.
Farþegi var í Mazda-bifreiðinni og
var hann fluttur, ásamt ökumönnun-
um báðum, á sjúkrahúsið á Akranesi
til rannsóknar. Ökumaður Volvo-
bifreiðarinnar fékk töluvert höfuð-
högg og var fluttur á sjúkrahús i
Reykjavík í gærkvöldi. Hinir tveir
eru ekki taldir alvarlega slasaðir.
Ahir voru með-bílbelti og er talið aö
þau hafi bjargað þama miklu.