Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1988, Side 10
10
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988.
Gleðifrétt fyrir
WordPetfect notendur
Ný útgáfa af WordPerfect bókinni er komin
út, með bókinni fylgir disklingur með
fjölmörgum gagnlegum fjölvum.
Ath: Nemendur Tölvufrœðslunnar fyrr og
síðar fá 25% afslátt af bókinni.
Nemendaverð kr. 1.500,-
Sendum einnig í póstkrófu.
i> Tölvufræðslan
Útlönd____________________________________________DV
Forsetakosningar í Bandaríkjunum:
Vandamál Reag-
anstjómarinnar
erfið fýrir Bush
Borgartúni 28. Símar 687590 og 686790
Treystirðu annarn filmu
fyrir dýrmœtu
minningunum þinum?
Áður Nú
Khaki-buxur 1.490 500
Galla-buxur • 1.490 500
Joggingpeysur 1.425 600
Joggingbuxur 1.190 400
Peysur 2.490 1.900
Skyrtur 1.790 400
Gallajakkar 2.900 1.400
Dömujakkar 2.790 1.395
Barnabuxur 1.100 600
Áprentaðirbolir 600 300
Skólavorðustíg 42
Stjómmálaskýrendur í Bandaríkj-
unum velta nú fyrir sér afleiðingum
árásar bandarísku freigátunnar á
sunnudag á gengi George Bush, lík-
legs frambjóðanda repúblikana og
núverandi varaforseta, í forseta-
kosningunum í haust. Ekki eru allir
aðilar sammála um hversu mikil
áhrifm verða. Víst er þó aö árásin
er enn eitt vandamálið sem Reagan-
stjómin stendur frammi fyrir og get-
ur haft veruleg áhrif á kosningabar-
áttu Bush.
Afstöðubreytingar
skaða Bush
Að mati stjómmálskýrenda í
Bandaríkjunum, hafa snögg við-
brögö bandarísku ríkisstjómarinnar
þess efnis að um mistök hafi verið
að ræöa að öllum hkindum dregiö
nokkuð úr neikvæðum áhrifum
árásarinnar á framboð Bush.
Stephen Hess, stjómmálaskýrandi
hjá Brookings-stofnuninni í Banda-
ríkjunum, sagði að áföll sem slík
væra hluti vandamála allra ríkis-
stjóma. „Hverri ríkisstjórn verður
kennt um allt sem gerist á valdatíma
hennar, jafnvel veðráttuna. Ég held
að allar afstöðubreytingar sem þess-
ar muni skaða Bush,“ sagði hann.
Hess tók þó fram að í flestum tilfell-
um styrktist staða embættismanna,
sem þegar ættu sæti í ríkisstjórn-
inni, þegar þjóð ætti í átökum á er-
lendri grand. íbúar landsins fyllast
þjóðemiskennd og standa sameinað-
ir að baki þjóðfánanum.
Norman Ornstein, stjómmála-
fræðingur hjá American Énterprise
Institute, sagði að árásin mundi án
efa hafa áhrif en á hvaða hátt væri
ekki vitað. Hann tók sem dæmi örlög
Jimmy Carter, fyrram forseta. Cart-
er missti af endurkjöri árið 1980
vegna „aðgerðaleysis" Bandaríkj-
anna þegar starfsmenn bandaríska
sendiráösins í íran voru teknir í gísl-
ingu. Omstein kvaðst halda að árás
bandarísku freigátunnar hefði ekki
mikil áhrif á kosningabaráttuna en
sagði þó að fréttir af henni myndu
líklega breytast.
Dukakis verður að sýna styrk
Að mati sérfræðinga verður Mic-
hael Dukakis, hklegur frambjóðandi
demókrata, að forðast að nota
ástandiö sér til framdráttar. Hann
verður einnig að skera sig úr hópi
fyrri forsetaframbjóðenda demó-
krata og sýna það og sanna að hann
Vandamál Reaganstjórnarinnar reynast George Bush varaforseta þung
skauti.
sé tilbúinn að verja bandaríska hags-
muni á erlendri grund.
Strax og bandaríska ríkisstjómin
viðurkenndi atburðinn sendi Dukak-
is frá sér yfirlýsingu þar sem áhersla
var lögð á rétt bandaríska hersins til
sjálfsvarnar.
önnur vandamál Bush erfið
Að sögn stjómmálaskýrenda á
Reaganstjórnin við önnur alvarleg
Michael Dukakis, líklegur forsetaframbjóðandi demókrata, verður að forð-
ast mistök fyrirrennara sinna og sýna að hann sé tilbúinn að verja hags-
muni Bandaríkjanna á erlendri grund. Símamynd Reuter
Símamynd Reuter
vandamál aö stríða sem skaðað geta
framboö Bush. Ásakanir um mútu-
þægni bandarískra embættismanna
hjá vamarmálaráðuneytinu era al-
varlegar og ganga sumir jafnvel svo
langt að jafna því máli við hneykslið
varðandi vopnasöluna til íran.
Einnig er talið að miklir þurrkar í
miðvesturríkjum Bandaríkjanna
muni reynast Bush þungir í skauti.
Bush hefur átt undir högg að sækja
í landbúnaöarhéraðum og tahð er að
þurrkarnir geti jafnvel haft úrshta-
áhrif í kosningunum. Margir bændur
standa nú frammi fyrir gjaldþroti
verði ekkert að gert.
Afsögn Edwin Meese dómsmála-
ráðherra, en hann sagði af sér á
þriðjudag, er talin verða Bush til
framdráttar í kosningabaráttunni.
Með afsögn Meese er einn þáttur,
sem tengdur hefur verið hneyksh í
ríkisstjóm Reagans forseta í hugum
almennings, fjarlægður.
Dukakis sagði að hvert hneykslið
heföi rekið annað og uppsögn Meese
mundi engu breyta. Hann vitnaði til
hneykshsins í vamarmálaráöuneyt-
inu en það er einmitt tahð munu
hafa mikil áhrif á gengi Bush.
Enn era rúmlega fjórir mánuðir
þar til Bandaríkjamenn ganga aö
kjörborðinu og kjósa sér forseta.
Endanleg útnefning frambjóðenda
fer fram á tveimur næstu mánuðum.
Reuter