Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1988, Qupperneq 12
12
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988.
Utlönd
Meirihluti samþykkur
Brlan Mulroney, forsætisráðherra
Kanada, mun að öllum likindum
efna til kosninga í haust.
Símamynd Reuter
Samningurinn um öjálsa verslim
milli Bandaríkjanna og Kanada
hlaut meirihluta við atkvæða-
greiðslu í neðri málstofu Kanada-
þings í gær. íhaldsmenn, með
Brian Mulroney forsætisráöherra
í broddi fylkingar, bar sigurorð af
andstæöingum samningsins meö
114 atkvæöum gegn 51.
Gert er ráö fyrir að samningur-
inn taki gildi um næstu áramót.
Áður en endanleg atkvæðagreiðsla
fer fram eitir fjórar vikur mun
nefnd rannsaka hann til hlítar.
Öldungadeild þingsins á siðan eftir
aö samþykkja samninginn. Fast-
lega er búist viö að Mulroney eftii
til kosninga í haust þar sem aöal-
kosningamálið mun verða frjáls
verslun.
Fjármálahneyksli í Japan
Forsætisráðherra Japans, No-
boru Takeshita, sagði í morgun að
ritari hans hefði veriö viðriðinn
fjármálahneyksli sem hefði neytt
yfirmann aðalviöskiptablaðs Jap-
ans til að segja af sér. Forsætisráð-
herrann vildi þó ekki tjá sig nánar
um hveraig hagnaðinum hefði ver-
iö varið af þeim hlutabréfum sem
svindlað var með.
Hermt hefur verið að þrír aörir
ritarar háttsettra stjórnmála-
manna hafi tekið þátt í svindlinu
sem gekk út á að selja einkaaðilum
hlutabréf áður en þau fóru á al-
mennan markað.
Ritari Takeshita, forsætisráðherra
Japans, tók þátt í svindli með
hlutabréf, að því er Takeshita til-
kynnti í morgun.
Símamynd Reuter
Skothrið í Manila
Lögreglumenn í Manila á Filippseyjum virða fyrir sér lík eins þeirra sem
féilu í átökum við lögregluna í gær. Simamynd Heuler
Fjórir menn féllu í gær fyrir byssukúlum lögreglunnar í Manila á
Filippseyjum sem herti eftirht í borginrú vegna ofbeldisöidu sem þar
hefur gengið yfir. Að sögn iögreglunnar kom til skotbardaga milh lögregl-
unnar og fjórmenninganna sem fullyrt er að hafi verið þjófar.
Undanfarnar vikur hafa verið framin morð á lögfræðingum og vinstri-
sinnuðum menntamönnum og hefur því verið haldið fram að hægri öflin
hafi staðið að baki þeim.
Sprengt í Namibíu
f^Atí^sh^ S-Afríka
Namibia er undir stjóm Suöur-
Afriku.
Einn maöur lést og átján særðust
í Windhoek, höfúðborg Namibíu, í
gær er sprengja sprakk í kjötbúð.
Við annaö sprengjutilræði í ná-
lægri borg eyðilagðist herbíll.
Verslunin, þar sem fyrri sprengj-
an sprakk, er í úthverfi þar sem
ofbeldisaðgeröir hafa verið hafðar
í frammi undanfarið. Eru það
skæruliöar þjóðemissinna sem
hafa sig í frammi en þeir berjast
fyrir sjálfstæði þessarar fyrrum
þýsku nýlendu.
Seinni sprengjunni var komið
fyrir undir tómum herbfl sem lagt
haföi veriö fy rir utan heimili svarts
hermaims í her Namibíu sem er
undir stjóra Suður-Aflríku.
Létust í hitabylgju
Að minnsta kosti sex manns hafa látist af völdum hitabylgju sem nú
ríkir í suöausturhluta Evrópu.
Fimm Júgóslavar hafa orðið fómariömb hitans og samkvæmt opin-
berum fjölmiðlum hefúr orðið vart við auknar kvartanir sjúklinga undan
óþægindum íyrir hjarta og erfiðleikum með öndum.
Á Italiu lést á þriðjudaginn öldrað kona af völdum hitans. Að sögn
sjúkrahúsyfirvalda þar hafa tugir manna leitað til sjúkrahúsanna vegna
óþæginda af hitanum.
í Aþenu hafa rúmlega þijú hundrað manns leitaö aðstoðar vegna hitans.
Reutcr
Óánægðir verkamenn að mótmæla lækkun launa fyrir utan þinghúsið I Belgrad I Júgóslavíu. Vestrænir stjórnarer-
indrekar segja harðfylgi júgóslavneskra verkamanna hafa aukist. Simamynd Reuter
Réðust inn
í þinghúsið
Fimm þúsund júgóslavneskir
verkamenn úr Borovo skó- og leður-
verksmiðjunni í Króatíu efndu til
mótmæla í Belgrad, höfuðborg Júgó-
slavíu, í gær. Verkamennimir, sem
eru óánægðir með lækkun kaups og
vaxandi verðbólgu, réðust til inn-
göngu í þinghúsið í gær í fyrsta sinn
síðan mótmæli hófust þar í landi.
Fimmtán hundruö verkamenn
rafu varnarhring lögreglunnar um
þinghúsið og brutust til inngöngu.
Að loknum viðræðum við þingmenn
héldu verkamennirnir að höfuð-
stöðvum verkalýðsfélagsins til fund-
ar við Nenad Krekic, fyrrum for-
stjóra Borovo og núverandi við-
skiptaráðherra. Verkamennirnir
kröfðust 100% hækkunar á kaupi en
Krekic neitaði að verða við kröfum
þeirra og sagði að hækkun kaups
myndi leiða til efnahagslegs óróa.
Mótmælin í gær eru hluti vaxandi
óánægju Júgóslava vegna harðra
efnahagsaðgerða Branko Mikulic
forsætisráðherra. Aðgerðimar, sem
hófust í maí, skerða kaup íbúanna
og gefa verölag frjálst. í kjölfar þess
hefur verðbólgan hækkað úr 149% í
175% í júní.
Vestrænir stjómarerindrekar og
stjórnmálaskýrendur í Júgóslavíu
segja mótmælin sýna vaxandi harð-
fylgi júgóslavneskra verkamanna.
Mótmælendurnir hvöttu alla verka-
menn í Júgóslavíu til að leggja niður
vinnu og fiölmenna á fund þann 28.
þ.m. til að ræða ástand mála.
Reuter
Sovéskur loftbelgur
hrapaði í Kattegat
Gizur Helgason, DV, Reeisnaes:
Ómannaður sovéskur loftbelgur
endaöi flugferð sína við austur-
strönd Jótlands í gærkvöldi.
Loftbelgurinn, sem var 60 metrar
í þvermál og vó 720 kíló, sprakk í
tætlur í um það bil 32 kílómetra
hæð. Áður hafði hann losað sig við
lokaðan gám sem sveif niður í fall-
hlíf. í gámnum em rannsóknar-
tæki sem Sovétmenn krefiast nú
aö fá afhent.
Gámurinn féll niður í Kattegat,
fiórtán sjómílur austur af Maria-
gerfirði. Tætlurnar af loftbelgnum
enduðu einnig í hafinu viö strendur
Jótlands.
Flugstöðin við Karap fylgdist
með loftbelgnum, sem innihélt 180
þúsund rúmmetra af vetni, frá því
augnabliki sem hann kom inn yfir
Danmörku og ein af þyrilvængjum
flughersins fylgdist síðan með ferð
fallhlífarinnar til jarðar. Þaö var
eitt af landhelgisskipum flotans
sem svo tók gáminn um borð og
tætlumar af sjálfum loftbelgnum.
Sovéski loftbelgurinn fór út af
fyrirhugaðri leið sinni og höföu
sovésk yfirvöld tilkynnt danska
utanríkisráðuneytinu að belgurinn
myndi eyða sjálfum sér með þar til
gerðri sprengju klukkan 19.00 en
sprengingin varð þó einum tíma
síðar.
Talsmaður sovéska utanríkis-
ráðuneytisins hafði fullvissað Dani
um að um borö í gámnum væru
engin hættuleg efni, hvorki mann-
skæð né hættuleg umhverfinu.
Gámurinn samanstendur af tíu
lokuðum kössum sem festir eru
saman með málmvír. Engin leiö er
að sjá hvað í þeim er og dönsk yfir-
völd opna þá heldur ekki. Úr þeim
heyrist þó píphljóð og er þar með
upptalið hvað Danir vita um inni-
hald kassanna.
Þeir era nú komnir í land og
reiknað er með að Sovétmenn sæki
þá strax í dag. .
VIII vingast
við nágrannana
Roh Tae-Woo, forseti Suður-Kóreu,
lýsti í morgun yfir endalokum fiand-
skapar Suður- og Norður-Kóreu í
ræðu sem sjónvarpað var til beggja
landanna. Talsmenn landanna
tveggja hafa ekki ræðst við opin-
berlega síðan skaganum var skipt í
tvö svæði við lok seinni heimsstyrj-
aldarinnar. Þau áttu í þriggja ára
styrjöld sem lauk árið 1953 með
vopnahléi en ekki friðarsamningum.
I ræðu sinni í morgun talaði Roh
um tollfrjálsa verslun milh ríkjanna
og aukin samskipti stjómarerind-
reka, stúdenta, blaðamanna o.fl.
Roh minntist ekki á þá kröfu Norð-
ur-Kóreumanna að halda hluta
ólympíuleikanna í september í landi
sínu, en bæði Suður-Kóreumenn og
alþjóða ólympíunefndin hafa hafnaö
því.
Stefna Roh stingur í stúf við stefnu
fyrirrennara hans, Chun Doo Hwan,
en Roh kvaöst vilja stuðla að bættum
samskiptum þjóðanna og kvað Suð-
ur-Kóreu tilbúna til aö veita ná-
grönnum sínum aðstoð viö aö koma
á bættri sambúð við Japan og Banda-
ríkin. Hann sagði einnig að Suður-
Kórea myndi halda áfram tilraunum
til bættra samskipta við Sovétríkin
og Kína.
Reuter
Forseti Suður-Kóreu, Roh Tae-Woo,
kvaðst í ræðu í gær vilja bæta sam-
skiptin við nágranna sína i noröri.
Símamynd Reuter