Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1988, Síða 13
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988.
13
h
4—
Nýjar, vandaðar þáttaraðir í sumar
I sumarskapi
Lifandi og bráöskemmtilegur íslenskur
skemmtiþáttur með Jörundi Guðmundssyni og
Sögu Jónsdóttur. Gestur þáttanna: Flosi
Ólafsson. Þættirnir eru fluttir á Hótel ísland og
sendir út beint á Stöð 2 og Stjörnunni samtímis.
- Föstudagar.
Ruglukollar
(Marblehoad Manor)
Bandarískir þættir. Snarrugluð kímni og
stráksskapur. Afar vinsælir þættir erlendis.
- Laugardagar.
Morðgáta A
ÍMurrifir shfi wrntfi\ ^
(Murdershe wrote)
Þessirvinsælu þættirsjást nú að nýju. Þegar
Jessica Fletcher er á svæðinu er stutt í
magnaða spennu.
- Fimmtudagar.
Óttinn ^
Kona í karlaveldi
(She’s the sheriff) .
Hildy er engin venjuleg konaf ftún tekur upp
merki látins eiginmanns síns sem var
lögreglustjóri. Hún gefur ekkert eftir og
karlrembusvínin mega gæta sín.
- Þriðjudagar.
Á nýjum slóðum j*
(Aaron'sway)
Nýr vinsæll fjölskylduþáttur. Fylgst er með
Aron og fjölskyldu hans þegar þau segja skilið
við lifnaðarhætti gamla tímans og þurfa að
aðlagast nýjum háttum. Þættirnir eru eftir sömu
höfunda og Húsið á sléttunni.
-Sunnudagar.
KataogAllí a*
(Kate and Allie)
Þær eru einstæðar mæður sem hafa nýlega
gengið í gegnum skilnaði. En þær láta ekki að
sér hæða. Taka höndum saman og búa sér
sameiginlegt heimili. Kata vinnur á ferða-
skrifstofu en Allí sér um heimilishaldið og drífur
sig í skóla.
-Miðvikudagar.
Dómarinn
(Night Court)
Næturvaktin reyníst oft erfið hjá dómará.ium
Harry Stone, en hann leysir hin ólíklegustu mál
áhinn ólíklegasta hátt.
- Laugardagar.
Áfram hlátur
(Carry on Laughing) |
Bráðskemmtilegir þæftir. Ýmsir gullmolar úr
gömlu, góðu Áfram myndunum. Allir muna
hina skrautlegu og óforbetranlegu leikara
myndanna.
-Mánudagar.
(Fear)
Breskframhaldsmynd, þrungin spennu. Carl
Galton, ungur, vel idæddur maður en
valdamikill og ruddalegur. Hann ræðuryfir
strætum Islingtons í London og vill gjarnan
aukaveldi sitt.
- Mánudagar.
Pilsaþytur É
(Legwork) T
Hin unga og fallega Claire er einkaleynilög-
regla. Hún vílar ekki fyrir sér hlutina. En hún er
síblönk og verður að leita ýmissa ráða.
- Miðvikudagar.
Leyndardómar og ráðgátur
Mögnuð þáttaröð. Tekin eru fyrir mál sem ▼
vakið hafa athygli almennings og jafnvel óhug.
Óupplýstir glæpir, dularfull mannshvörf,
furðuleg náttúrufyrirbrigði, skrímsli, draugar
o.m.fl. Mjög forvitnilegir þættir.
- Miðvikudagar.
Víetnam f
Framhaldsmyndaflokkur í 10 þáttum byggður
á sannsögulegum atburðum. Þetta er saga
hinnafjölmörgu hermannasem börðust í
Víetnam og guldu jafnvel sumirfyrir mistök
annarra. Raunsannurog mjög vel gerður
þáttur.
-Sunnudagar. ,
Viðskiptaheimurinn.
(Wall Street Journal)
Þekktir fjármálasérfræðingar fjalla um það
helsta sem upp kemur í efnahagsmálum
heimsins á hverjum tíma. Þættirnir eru sýnir á
Stöð 2 í sömu viku og þeir eru framleiddir.
Afar athyglisvert efni.
- Fimmtudagar,
endursýndir f hádeginu á laugardögum.
Listamannaskálinn €
(The South Bank Show)
Nýir, breskir þættir um listir og listamenn.
I þessum þáttum er m.a. ævisaga Andy
Warhol, upptökur af söng Maríu Callas, viðtöl
við Eric Clapton, Doris Lessing og fleiri.
- Laugardagar.
#
Ópera mánaðarins
Óperuflutningur verður nú mánaðarlega á
dagskrá Stöðvar 2 í þáttunum Menning og
listir. Um er að ræða vandaðan flutning,
heimsþekkta söngvara og stjórnendur. Á
næstunni munum við m.a. sýna Don Giovanni,
II Trovatore, Madame Butterfly.
-Sunnudagar.
Á heimsenda i
(Last Place on Earth)
Nýframhaldsþáttaröð í 7 hlutum. Fjallarum
ferðir Amundsens og Scott sem kepptust um
að komast fyrstir manna á Suðurpólinn. Margir
frægir leikarar koma fram í þessum fróðlegu og
spennandi þáttum.
- Miðvikudagar.
Mannslíkaminn
(Living Body)
Mjög vel gerðir þættir þar sem fjallað er um
mannslíkamann, líffæri hans, líkamshlutaog
starfsemi. Fyrsti þátturinn fjallar um hita- og
kuldaþol og aðlögun á breýtilegu hitastigi.
- Miðvikudagar.
Fjalakötturinn
Vegna fjölda tilmæla munum við nú endursýna
á síðkvöldum margar af perlum Kvikmynda-
klúbbs Stöðvar2.
- Mánudagar.