Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1988, Page 25
íþróttir
FIMMTUDAGUR 7. JULÍ 1988.
Svipmyndir frá Tommamótinu í knattspymu íVestmannaeyjum:
Sigurður Jóelsson vann
sigur i þrautakeppninni á Tomma-
mótinu.
’V''
FH-ingar sjást hér fagna
marki í einum leiknum. Þeir höfóu
ærna ástæðu til að fagna því að
lið þeirra stóð sig mjög vel í Vest-
mannaeyjum.
Guðmundur
Sævarsson, FH-ingur, reynir hér að leika á einn leikmanna Fylkis í leik liðanna á Tommamótinu. Einbeitnin skín úr
andlitum þessara ungu og efnilegu knattspyrnumanna.
DV-myndir
Ómar
Garðarsson
Vestmeyjum
Barist um knöttinn í leik Vik-
ings og Hauka. Bæði þessi lið
stóðu sig vel á Tomamótinu um
helgina.
Ungur ÍR-ingur einbeittur á
svip með knöttinn í leik ÍR og Vals.
Margir ungir peyjar sýndu listir
sínar á Tommamótinu.
Málin rædd hjá Þórsurum í leikhléi og síðari hálfleikurinn
skipulagður.
Þessi mynd var tekin i einum baráttuieiknum. Framherji FH
sækir hér af krafti en markvörðurinn hefur gómaö knöttinn af öryggi.
Völsungur og Stjarnan sjást hér i undanúrslitaleik B-liða þar
sem hart var barist. Húsvíkingar fóru með sigur í leiknum, 4-2.
Hart barist
í leik IR og Vals á Tommamótinu í Vestmannaeyjum.
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988.
25
DV
Fréttastúfar
Norman frá keppni
Greg Norman, kylfmgurinn snjalli, telur sig
ekki í keppnisfæru ástandi en hann slasaðist
fremur illa í opna bandaríska meistaramót-
inu.
„Ég kemst ekki í opna breska meistaramót-
iö,“ sagði Norman nýverið en hann er nú efst-
ur á heimsafrekalista kylfinga.
„Ég ætla mér að losna við meiðslin og gefa
sárunum þijár vikur til að gróa.“
Þess má geta að Norman vann opna breska
meistaramótið árið 1986.
Graf fékk hross
Steffi Graf fékk góðar ihóttökur er hún kom
til Brúehl, heimabæjar síns, eftir frækinn sig-
ur á Wimbledon-mótinu í tennis. Gífurlegur
fjöldi fagnaði Graf er hún kom inn fyrir bæj-
armörkin og var henni færður hestur að gjöf
í tilefni af afreki sínu.
Hrossið er sex vetra geldingur sem bæjar-
stjórinn í Bruehl sagði Jafnhvítan og Graf
og vonandi jafnákafan".
Framdagurinn
Hinn árlegi Framdagur verður aö þessu sinni
haldinn hátíðlegur á Framsvæðinu við Safa-
mýri sunnudaginn 10. júh. Dagskráin verður
að mestu leyti með hefðbundnu sniði. Leikir
verða í yngstu aldursflokkunum í knatt-
spymu. Pollamót KSÍ í 6. flokki fer fram aö
hiuta til á Framdeginum, reyndar bæði á
laugardag og sunnudag. Einnig verða leikir í
íslandsmóti 5. flokks, A- og B-lið, milli Fram
og FH. Fyrsti leikurinn hefst kl. 12 og þeim
síðasta lýkur kl. 17.30. Stórglæsilegar kaffi-
veitingar Framkvenna verða á boðstólum í
Framheimilinu frá kl. 14 á Framdaginn.
Gunnar með
þrennu
„Þaö var að sjálfsögöu mjög gaman að skora
þessi þijú mörk og hvað þá að liðið skyldi
gera tíu því svona lagað gerist ekki á hveijum
degi. Það má segja að allt hafi gengið upp hjá
okkur á meöan flest gekk á afturfótunum hjá
þeim en satt að segja hafði maður ekki búist
við svona stórum sigri,“ sagði Gunnar Gísla-
son, leikmaöur með Moss í Noregi, eftir að lið
hans hafði unnið stóran sigur á 3. deildar lið-
inu Kjelsas, 10-0, í 3. umferð norsku bikar-
keppninnar í gærkvöldi.
Gunnar gerði sjálfur þrú mörk í leiknum
og átti góðan leik. Kjelsas, sem er í efsta sæti
í 3. deild, hafði ekki mikið að gera í 1. deildar
liö Moss en þó var ekki búist við svona mikl-
um yfirburðum Gunnars og félaga. „Þetta
voru nokkuð sérstök mörk fyrir mig enda
skorar maður ekki í hveijum leik,“ sagði
Gunnar ennfremur. Hann skoraði fyrsta
mark leiksins á 20. mínútu og gerði síðan
mörk númer þrjú og sjö. Moss er því komið í
4. umferð bikarkeppninnar en dregið verður
í næstu umferð nú í vikunni.
Jafnt hjá
ÍAogKR
Skagastúlkur sóttu KR-stúlkur heim í gær-
kvöldi og deildu liðin stigunum bróðurlega á
milli sín. Fyrri hálfleikur var frekar daufur
og fór leikurinn mestmegnis fram á miðjum
vellinum, hvorugt liðið skapaði sér nein
hættuleg marktækifæri. Staðan í hálfleik var
því jöfn, 0-0. KR-stúlkur sóttu öllu meira
fyrstu mínútumar í síðari hálfleik og skoraði
Helena Ólafsdóttir eftir homspymu Kristrún-
ar Heimisdóttur á 15. mínútu. Eftir markið
drógu KR-stúlkur sig aftur og Skagastúlkurn-
ar komust meir og meir inn í leikinn. Skaga-
stúlkur fengu aukaspymu langt fyrir utan
teig, Halldóra Gylfadóttir tók frísparkið og
lyfti boltanum skemmtilega inn í teig KR-
inga. Markmaður KR kom út á móti en mis-
reiknaði boltann sem fór í stöngina og Ásta
Benediktsdóttir fyldi vel á eftir og náði að
jafna leikinn, 1-1. Skagastúlkur þyngdu sókn
sína eftir þetta og áttu KR-stúlkur í vök aö
veijast þaö sem eftir var af leiktímanum.
Skagastúlkur börðust míög vel í síöari hálf-
leik og náðu þar meö einu stigi. KR-liðið var
nyög jafnt og geta þær verið ánægðar með
að fá eitt stig út úr þessum leik. -MHM
Iþróttir
Meiðsli Einars á hné ekki alvariegs eðlis:
Einar Vilhjálmsson
fékk hvítan miða
„Þessi skoðun gekk vel fyrir sig
og ég fékk hvítan miða á bæði hnén
hjá sérfræöingnum. Ég er mjög
ánægður meö þessa útkomu og aö
hafa fengið þaö staðfest hjá sér-
fræðingi aö ekki hafi veriö um al-
varleg meiðsh aö ræða,“ sagði Ein-
ar Vilhjálmsson spjótkastari í sam-
tali við DV í gærkvöldi. Hann varö
sem kunnugt er fyrir meiðslum á
hné í Stokkhólmi fyrir Grand Prix
mótiö.
Einar kom heim klukkan fjögur
í gær frá Svíþjóö og í morgun
klukkan sex var hann floginn raeð
íslenska landsliöinu til Skotlands
þar sem hann tekur þátt i þriggja
landa keppni í ftjálsum íþróttum.
„Egertil ítuskið“
„Egmun keppai spjótkastinu um
næstu helgi,“ sagði Einar ennfrem-
ur í gærkvöldi og bætti viö: „Ég er
til í tuskiö en þaö fer auðvitað svo-
lítið eftir veðri hvort ég tek á þessu
af fullum krafti. Ef aðstæöur veröa
ekki góðar getur alveg eins veriö
aö ég noti ekki öll köstin sex þvi
aö ég á ekki von á því að fá mikla
keppni frá andstæðingum mínum
í landskeppninni.“
- Nú hefur þú náð frábærum ár-
angri á síðustu mótum. Hvaða
spjótkastarar eru það sem þú
hræðist mest i dag?
„Það er í raun erfitt að svara
þessari spurningu. Ég vil trúa þvi
að þaö sé tiu manna hópur sem sé
líklegastur til þess aö beijast um
verðlaunasæti á mótunum. Þaö er
svo raikill tröppugangur í spjót-
kastinu og oft á tíðum óstöðugleiki
í árangri manna að það er erfitt að
pikka nokkra út úr hópnum. Þessi
óvissa er einmitt þaö sem gerir það
nánast óþolandi að vera spjótkast-
ari í dag,“ sagði Einar Vilhjálms-
son.
• Þegar Einar keraur aftur til
íslands heldur hann til Austur-
lands þar sera hann mun keppa á
íþróttahátíð og ef að likura lætur
er hann til alls vís á sinura heima-
slóöum. -SK
• Einar Vilhjálmsson kom til
landsins í gær og flaug til Skot-
lands í morgun þar sem hann
keppir fyrir íslands hönd.
Fjáröflun SKI fyrir skíðalandslið Islands:
Hjólaskíðaboðganga
í fimm sólarhringa
Skíðasambandið treystir á velvilja einstaklinga og fyrirtækja
I dag hefst á Seltjarnamesi hjóla-
skíðaboðganga til fjáröflunar og
kynningar fyrir skíðalandslið ís-
lands. Ætlunin er að ganga samtals
1500 km á innan við 5 sólarhringum
sem er lengri vegalengd en allur
hringvegurinn. Þaö er norrænu-
greinanefnd SKÍ sem stendur að baki
þessari göngu og það er landsliðið í
skíðagöngu sem mun fara þessa
maraþongöngu.
Gangan hefst í dag klukkan 15.00 á
Nesvegi á mörkum Reykjavíkur og
Seltjamarness. Hver landshðsmaður
gengur tvo 8 km hringi í senn, síðan
tekur næsti við og er áætlað að hver
maöur gangi í klukkustund í senn.
Til fjáröflunar verður áheitum
safnað hjá einstaklingum og fyrir-
tækum um land allt. Tekið verður á
móti áheitum í síma Skíðasambands-
ins, 83660, eða í síma 22662 en þar
mun landsliðið dvelja þessa daga.
Áætlað er að göngunni muni ljúka í
síðasta lagi fyrir hádegi á þriðjudag.
Kostnaður yfir 2 milljónir
Skiðasambandið treystir að sjálf-
sögðu á að einstaklingar og fyrirtæki
muni sýna þá góðvild að styrkja sam-
bandið en framundan er mikil æf-
inga- og keppnisáætlun. Landsliðið
hefur þegar lokið einni æfingu í sum-
ar og framundan er önnur æfing í
Fljótunum í Skagafirði. í byijun sept-
ember mun landsliðið halda til Dach-
stein í Austurríki í æfingabúðir og
síöan verður haldið til Svíþjóðar í
nóvember. Kostnaöur Skíðasam-
bandsins vegna þessara æfingaferða
nemur samtals rúmlega 2 milljónum
króna svo að augljóst er að samband-
ið þarf á góðum styrkjum að halda.
Þeir sem ganga eru Haukur Eiríks-
son, Akureyri, Baldur Hermanns-
son, Siglufirði, Rögnvaldur Ingþórs-
son, ísafirði, Sigurgeir Svavarsson,
Ólafsfirði, Ólafur Bjömsson, Ólafs-
firði og Ólafur Valsson, Siglufirði.
-RR
Ólafur Björnsson, einn þeirra sem
ganga i hjólaskíðaboðgöngunni.
DV-mynd GK/Akureyri
Valur fór til Tindastóls
Ægir Már Káxaaon, DV. Suðuniesjinn;
„Mér líst mjög vel á þetta. Það er
mikill uppgangur í körfuboltanum
á Sauðárkróki og liö Tindastóls er
mjög efnilegt," sagði Valur Ingi-
mundarson, körfuknattleiksmaður
í Njarðvík, í samtali við DV í gær-
kvöldi. Valur hefur ákveðið að
ganga til liös viö Tindastól í úrvals-
deildinni næsta vetur og koma
þessi tíðindi nokkuð á óvart. Á síð-
asta tíraabili lék hann með og þjálf-
aði Njarðvikurliðið. Valur var kos-
inn besti leikmaður síöasta ís-
landsmóts.
„Þetta er aö sjálfsögðu gífurlegur
styrkur fyrir okkur því Valur er
einn besti körfuknattleiksmaöur
landins. Við erum með efnilegt lið
og ætlum okkur aö gera stóra hluti
næsta vetur. Það að fá Val var besti
kosturinn," sagði Friðrik Jónsson,
formaður körfuknattleiksdeildar
Tindastóls, í samtali við DV í gær-
kvöldl
• Valur mun einungis leika meö
hði Tindastóls næsta vetur. Hingað
til lands er væntanlegur Banda-
ríkjamaöur, Demtis Dunne aö
nafni, og bendir margt til þess aö
hann muni þjálfa Tindastól.
Magni vann Hugin
Magni sigraði Hugin frá Seyðisfirði
með tveimur mörkum gegn engu á
Grenivík í gærkvöldi. Leikurinn var
frekar harður og slakur og lítið var
um góða knattspymu. Fyrra mark
heimamanna var sjálfsmark en Þor-
steinn Jónsson gerði síðara markið.
Magni náöi með sigrinum að þoka
sér örhtið frá fallsvæðinu í B-riðh.
• Haukar töpuðu fjórða leik sínum
í röð í A-riðli 4. dehdarinnar í knatt-
spyrnu í fyrrakvöld. Þeir biðu þá
lægri hlut gegn Árvakri á heimavelh
sínum á Hvaleyrarholtinu í Hafnar-
firöi, 1-2. Friðrik Þorbjörnsson skor-
aði bæði mörk Árvakurs en Páh
Paulsen svaraði fyrir Hauka.
-VS/MJ/RR
HANDKNATTLEIKS-
ÞJÁLFARI ÓSKAST
Handknattleiksdeild Reykjavíkurfélags óskar
að ráða þjálfara fyrir mfl. karla og mfl. kvenna
Nánari upplýsingar í síma 34112 á kvöldin.