Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1988, Page 33
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988.
33
LífsstHl
Fótaaðgerðir:
Komiðí
vegfyrir
líkþom
„Líkþorn þurfa ekki aö vera erfið
lífstíöarvandamál. Þaö er hægt aö
fjarlægja þau og koma í veg fyrir
aö þau myndist aftur,“ segir Hera
Sveinsdóttir fótaaðgeröarfræðing-
ur þegar hún var spurö hvort hægt
væri aö losna viö þau.
„Líkþorn koma oft ofan á tæmar
þegar fólk eldist því þá slakna lið-
irnir og tærnar bogna svolítið.
Skómir eiga þá til aö nudda þær,
þaö er núningurinn sem veldur lík-
þornunum. Þau eiga þaö líka til að
koma undir tærnar vegna þess að
skór eru illa smíðaðir. Þaö getur
staöið nagli upp úr sólanum sem
veldur núningi. Þriöji staöurinn,
sem likþorn geta myndast á, er ut-
an á stóru og litlu tánum, yfirleitt
vegna núnings frá skóm eða sokk-
um.
Fólk getur fengið líkþorn á öllum
aldri þó að algengast sé aö eldra
fólk fái þau. Yngsti einstaklingur-
inn, sem ég hef fjarlægt líkþorn af,
var tveggja ára barn.
Þaö er oft talað um aö það sé
mikilvægt að börn séu í góðum
skóm sem kreppa hvergi að fætin-
um. En þaö er ekki síður nauðsyn-
legt að sokkarnir passi, séu ekki
of stórir, því þá geta þeir nuddað
fótinn. Þeir mega ekki vera of
þröngir því þá geta þeir þrengt um
of að fætinum og tærnar geta böggl-
ast. Yfirleitt liggur saumur yfir
Fótaaðgerðarstofur:
Tíminn
á 1100-
1400
krónur
Allnokkur verðmunur er á fóta-
aðgerðarstofum en þjónustan
sem þær veita er hins vegar í
flestum tilfellum svipuö. Við
könnuðum verð á nokkrum stöð-
um en náöum samt sem áður
ekki í alla þá er leggja stund á
fótaaögeröir, aðaliega vegna þess
aö margir eru nú í sumarfrii.
Á Fótaaðgerðarstofunni Spor-
inu, Miklubraut 68, kostar tíminn
1000 krónur, sömuleiðis á Salon
Ritz, Laugavegi 66, og hjá Hjör-
dísi Hinriksdóttur, Laugavegi
133.
Hjá Ólavíu Ragnarsdóttur, Ból-
staðarlxlíð 15, kostar tíminn 1200
krónur. En hjá Eygló, Langholts-
vegi 17, og hjá Jónu, Laugavegi
163, kostar tímimt 1320 krónur.
Dýrast var hins vegar á Fótaað-
gerðarstofunni Fótabót sf„
Laugavegi 15. Þar kostaði tíminn
1400 krónur.
Víða á fótaaðgerðarstofunum fá
ellilifeyrisþegar og félagar í Fé-
lagi eldri borgara 20% afslátt.
-J.Mar
tærnar og það er mjög mismunandi
hvemig gengið er frá honum. Ef
það er ekki gert á réttan hátt getur
hann nuddað og sært og það getur
leitt til líkþornamyndunar."
Átta mánaða nám
Eins og áður sagði er Hera fótaaö-
gerðafræðingur. Hún læröi í Kaup-
mannahöfn í Læreanstalten for
lægeeksaminerede fodplejere og
útskrifaðist þaðan í desember 1986.
„Þetta var átta mánaða nám, þar
af voru tveir mánuðir í sumarfrí
sem við áttum að nota til að vinna
á fótaaðgerðastofu. Námiö byggðist
að miklu leyti á líffræði og liffæra-
fræði og læra aö gera sjónalkort
fyrir viðskiptavini okkar.
Kartneglur, naglalosun
Það er ákaflega mismunandi
hvað amar helst að fólki sem kem-
ur til fótaaðgerðafræðinga. Fólk
getur verið með líkþom, kartnegl-
ur, sem þarf að þynna, eða að negl-
urnar geta verið niðurgrónar eöa
inngrónar. Þá þarf oft aö smíða
spangir á þær til að auðvelda þeim
að vaxa fram á eðlilegan hátt. Eins
þarf fótaaðgeröafræðingurinn aö
geta gefið ráöleggingar varðandi
naglalosun, fótsveppi, naglasveppi
og annað sem lýtur að umhirðu
fótanna.
Fótaaðgerðafræðingurinn þarf
einnig að geta ráðlagt varðandi
innlegg í skó. Til dæmis ef fólk er
með plattfót. Ef það er með plattfót
þreytist fólk fljótt þegar það geng-
ur, því göngulagið er rangt. En með
réttu innleggi er hægt að laga það.
Svo getur fólk þurft innlegg ef það
er með tábergssig eða háa rist en
slíkt getur valdið óþægindum. Það
er því nauðsynlegt fyrir fólk að fá
rétt innlegg í skó svo það geti hreyft
sig eðlilega.
í heimsókn á stofu
Þegar fólk kemur á stofuna til
mín byrja ég á aö setja viðkomandi
í fótabað með sérstöku fótabaðsalti
til að mýkja upp hömndið. Sumum
finnst að vísu sóðalegt að setja fólk
Hera Sveinsdóttir á fótaaðgerðastofunni Spor.
í fótabað en mér finnst það ekki því
balinn er sótthreinsaður vel á milli.
Því næst eru fæturnir þerraðir og
nuddaðir aðeins með grófu hand-
klæði. Þá er hafist handa við aö
klippa neglumar. Það er mjög mik-
ilvægt að klippa þær alltaf þvert
svo að hornin vaxi síður niður.
Þegar búið er að klippa þær eru
brúnirnar pússaðar svo þær festist
ekki í sokkunum. Því næst er borið
á þær sótthreinsiefni til að fjar-
lægja ló úr sokkum og önnur
óhreinindi sem setjast undir þær.
Ef ekki er um neina naglasjúkdóma
að ræða er hreinsað í burtu dautt
skinn neðan af fótunum. Þaö veld-
ur því að fólk þréytist meira þegar
það gengur sé dauða skinnið ekki
fjarlægt. Svo þarf að hreinsa í
burtu líkþom séu þau til staðar.
Að lokum eru fætumir svo nudd-
aðir upp úr sérstöku kremi og negl-
urnar lakkaðar sé þess óskað.
Heimsókn á fótaaðgerðarstofu á
ekki að valda fólki neinum sárs-
auka. Það á að geta hvílt sig á með-
an fótaaðgerðarfræðingurinn
vinnur sitt verk. Það er ekki nema
eitthvað alvarlegt sé að, að fólk
getur fundið til sársauka. En hann
er yfirleitt skammvinnur og viö-
komandi líður miklu betur þegar
búið er að gera það sem i valdi fóta-
aðgerðarfræðingsins er til að
hjálpa upp á það sem aflaga fer
varðandi fætuma,“ segir Hera að
lokum. -J.Mar
Ef neglurnar vaxa of langt fram geta þær ýst til baka þegar skórinn Til að koma i veg fyrir að likþorn myndist getur verið gott að setja svamp-
þrengir að þeim og það getur valdið naglalosi. Naglalos, naglasveppir, hólk utan um tærnar.
fótsveppir og önnur umhirða fótanna eru meðal þeirra verka sem fótaað-
gerðarfræðingar hjálpa fólki með.
DV-myndir Brynjar Gauti