Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1988, Side 40
40
FIMMTUDAGUR -7, JÚLÍ 1988.
PI I• 1 * *I. 'i n! iv IA{' i I l IVl i'fll 1
Lífsstfll
Notkun á ólöglegum litarefnum:
Eilífðaivandamál
- segir Oddur Rúnar Hjartarson
„Þetta er eilílðarvandamál. Þegar við
stöðvum eina vöru er umsvifalaust
farið að nota efnið í aðra,“ segir Odd-
ur Rúnar Hjartarson, forstöðumaður
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, tun
notkun á ólöglegum litarefnum í
matvælaframleiðslu.
Fyrr í vikunni birti DV fréttir af
ólöglegu litarefni sem nokkur íslensk
matvælafyrirtæki hafa notað í mat-
vælaframleiöslu. í fréttinni kom
fram að Efnagerðin Valur hefur
þijóskast lengi við að hætta að nota
þessi efni.
„Valur hefur reynst okkur einna
erflðastur í gegnum árin að öðrum
ólöstuðum. Við stöðvuðum sölu á
ýmsum framleiðsluvörum fyrirtæk-
isins ’83 og höfum staöið í því að fá
þá til þess að hætta þessu síðan. Val-
ur er hins vegar ekki í okkar lög-
sagnarumdæmi."
I máli Odds Rúnars kom ennfrem-
ur fram að Heilbrigðiseftirht Reykja-
víkur hefur komið á fót lítilli rann-
sóknarstofu þar sem þeir gata greint
ýmis efni. Erfiðasti hjallinn er hins
vegar sá að rannsóknaraðstöðu
skortir tiifinnanlega.
„Það er ekki bara efnið sem skiptir
máli. Oft getur magnið ráðið úrsht-
um. Við getum ekki mælt magniö, til
þess höfum við ekki tæki.“
Slakt eftirlit
Vegna þess að rannsóknaraðstöðu
skortir geta hehbrigðisnefndir iha
sinnt eftirhtshlutverki sínu. Vegna
þess hefur oft skort mikið th þess að
þessi mál væru í góðu lagi. Frægt er
dæmi um niðursoðna rækju frá K.
Oddur Rúnar Hjartarson, forstöðu-
maður Heilbrigðiseftirlits Reykjavík-
ur.
Jónssyni á Akureyri en í Þýskalandi
kom á daginn að í rækjuna hafði
verið blandað stórhættulegu eitur-
efni.
„Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins var sjálfsagt búin að finna efnið
í rækjunni. Máhö er bara að hún er
bundin þagnareiði. Hún má ekki gefa
okkur upplýsingar nema hún sé að
framkvæma rannsóknina fyrir okk-
ur.“
Innflutningur óheftur
En hvemig er þá eftirliti háttað
með innfluttum matvælum?
„Þaö er altalað að vörum, sem vís-
að er frá landi þar sem gott eftirht
er, sé beint til annars þar sem eftir-
ht er slakt. Það er upplagt að koma
þessum vörum th íslands. Þó bregð-
ast innflytjendur yfirleitt mun betur
við thmælum frá okkur en innlendir
framleiðendur.
Falsanir
En hvaða hag hafa þessi fyrirtæki
af því að nota þessi efni?
„Ég bara skil það ekki. Sumar af
þessum afsökunum eru svo barna-
legar að þær eru ekki einu sinni haf-
andi eftir. Fákunnátta manna virðist
alveg með óhkindum."
Er þá almenn fákunnátta í innlend-
um matvælaiðnaði?
„Stundum virðist það en oft er um
beina fólsun að ræða því þessi fyrir-
tæki hafa matvælafræðinga í þjón-
ustu sinni. Mér finnst að neytendur
eigi skihð að menn hætti þessu.“
-PLP
Neytendur
Neytendur þurfa að vera vel á verði gagnvart framleiöendum þar sem heilbrigðiseftirlit er af skornum skammti.
upplýsingaseðilinn
:t0*«ft>;
ívt-vjj
| umtt
| -.1 ■■<.*<:*!*
jl
Azorubine hefur gjarnan verið notað til að gefa tómatsósu rauðan liL
Efnið er bannað og flestir framleiðendur virða það.
Mörg litarefni
stórhættuleg
- fyrir ofnæmis- og asmasjúklinga
Eins og kunnugt er af fréttum
DV eru brögð aö því að matvæla-
framleiðendur noti ólögleg htarefni
í framleiðsluvöru sina. Sérstaklega
var framleiðsla Efnagerðarinnar
Vals tekin sem dæmi en hún hefur
orðið uppvís að því aö nota efniö
azorubine (E122) í framleiðslu sína.
Azorubine, stundum nefiit
carmoisine, er gervilitareíhi í
flokki azoefna. Stór hópur fólks
hefur ofnæmi fyrir þessum eíhum
og þau geta valdið heiítarlegum
viðbrögðum hjá asmasjúklingura
og fólki með exem. í sumum tilfell-
um hafa þessi efni valdið losti og
heiftarlegum asmaköstum, auk
þess sem þau geta valdið bjúg-
myndun.
Eftirfarandi efni eru öh í flokki
azohtarefna:
E102 Tartrazine
E107 Gulur 2G
EllO Sólarlagsgulur FCF
E122 Carmoisine (azorubine)
E123 Amaranth
E124 Ponceau 4R
E128 Rauöur 2G
154 Brúnn FK
155 Súkkulaðibrúnn HT
E151 Svartur PN
E180 Pigment Rubine
-PLP
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi i upplýsingamiölun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnað-
ar ftöiskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
j Heimili
! Sími
! Fjöldi heimilisfólks
i Kostnaður í júní 1988:
j Matur og hreinlætisvörur kr.
1 Annað kr.
Alls DV kr.