Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1988, Síða 42
42
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988.
Fréttir
Sveinn Eskfirðingur Jónasson:
„ÓrétUátt hvað þeir
komast upp með“
„Ég á ekkert sökótt viö þessa
menn. Mér þykir óréttlátt hvaö
þeir komast upp með. Ef þeir vilja
ljúga þá verða þeir aö gera þaö upp
viö eigin samvisku. Mín fyrstu viö-
brögð eru að mér þykir dómurinn
vægur. Þaö er greinilegt að þeir
nutu vafa um málsatvik. Lögreglan
kemst greinilega upp meö allt ef
hún stendur saman. Mér sýnist
sem þeir hafi ekki getað sannað
sakleysi sitt heldur hafi þeir notið
vafans. Ég er yfirleitt einn til frá-
sagnar en þeir margir og þeir hafa
haft tíma til að stilla sig saman,“
sagði Sveinn Jónasson þegar hann
var inntur álits á niðurstöðum
Sakadóms í handleggsbrotsmálinu.
„í dóminum kemur fram að varð-
stjórinn hafi ákveðið að vista mig
í fangageymslu þar sem hann hafi
óttast að í því ástandi, sem ég var
í, hefði ég getað skaðað mig og aðra
- sem sagt af öryggisástæðum -
þvílíkt öryggi. Það kemur skýrt
fram í dóminum að ekkert hafi
komið fram í málinu annað en að
varðstjórinn hafi ætlað að loka mig
inni af öryggisástæðum þar til
rynni af mér. Lögregluþjónninn
handleggsbraut mig skömmu síðar.
Ég ítreka hvað þetta var mikið ör-
yggi-
Varðstjórinn og lögregluþjónarn-
ir, sem handtóku mig, segja allir
að ég hafi verið mjög æstur og til
alls vís. Tvö vitni sáu þegar þeir
voru að fara með mig í fanga-
geymsluna. Annað þeirra er aðal-
varðstjóri. Þessi vitni segja bæði
að ég hafi verið rólegur og farið
mótþróalaust með lögreglumönn-
unum. Dómarinn tekur frekar
mark á þeim ákærðu og þeim
tveimur lögregluþjónum sem voru
með í að handtaka mig,“ sagði
Sveinn Jónasson
-sme
lógregtufélag Reykjavíkur:
„Runa af rangfærsl-
um, ýkjum og lygum“
„Við meðferð málsins fyrir dómi
hefur hins vegar sýnt sig að sú saga
sem fremst hefur verið höfð fyrir
almenningi í landinu sem heilagur
sannleikur er ekki annað en runa
af rangfærslum, ýkjum og lygum.
Þar hefur verið vikið til máli í
hveiju orði,“ segir í bréfi sem Lög-
reglufélag Reykjavíkur hefur sent
frá sér vegna dómsins í handleggs-
brotsmálinu.
„Þessi þvættingur hefur síðan
verið brúkaöur sem tilefni til að
úthrópa þá menn sem átt hafa hlut
að máli og síðan til að rakka niður
lögreglustéttina og stimpla hana
sem safn hrottamenna sem lygju
til að vernda hver annan.
Við eigum enga von á að sumir
þeir, sem hæst hafa látið, eigi
nokkra löngun til að skyggnast eft-
ir staðreyndum málsins. Þær liggja
nú fyrir í dómsskjölum. Við vonum
og trúum að í íslenskri blaða-
mannastétt finnist þeir menn er
telji rétt að hafa það heldur sem
sannra reynist og fáist til að gera
almenningi grein fyrir því sanna í
málinu," segir ennfremur í bréfinu.
Um niðurstöðu dómsins segir að
hún leiði til þess að skilgreina þurfi
að nýju ábyrgðarþátt lögreglu.
-sme
Jarðarfarir
Þórður S. Kristjánsson lést 1. júlí sl.
Hann fæddist í Reykjavík 29. október
1933. Foreldrar hans voru Sigríður
Kristjánsdóttir og Kristján Guð-
mundsson. Þórður lauk námi í vél-
smíði frá Iðnskólanum. Síðustu 9
árin hefur hann unnið á verkstæði
Reykjavíkurhafnar. Eftirlifandi
sambýliskona hans er Guðrún Jóns-
dóttir. Útfór Þórðar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Guðríður Þ. Einarsdóttir lést 30. júní.
Hún fæddist að Jámgerðarstöðum í
Grindavík 5. september 1900. For-
eldrar hennar voru Guðrún Jóns-
dóttir og Einar Guðmundsson. Guð-
ríður nam ljósmóðurfræði í Reykja-
vík 1919-1920 og var síðan skipuð
ljósmóðir Grindavíkurhrepps. Hún
gegndi því starfi í hartnær aldar-
fjórðung. Hún giftist Jóni Sigurðs-
syni en hann lést á sl. ári. Þeim varð
sjö bama auðið. Útför Guðríöar verð-
ur gerð frá Grindavíkurkirkju í dag
kl. 14.
Páll Halldórsson organisti, Drápu-
• hiíð 10, lést 30. júní. Jarðsett verður
frá Fossvogskirkju fóstudaginn 8.
júlí kl. 16.30.
Wilhelm Holm lést aðfaranótt 1. júlí
sl. Hann fæddist á Flateyri við Ón-
undarfjörð 6. september árið 1896.
Foreldrar hans vom Sophus Henrik
Holm og Sophie F. Nilsen. Wilhelm
starfaði lengst af í Héðni. Útfor hans
verður gerð frá nýju kapellunni í
Fossvogi í dag kl. 13.30.
Kristján Magnús Björnsson, Alfta-
mýrj 28, Reykjavík, sem andaðist 30.
júní, verður jarðsunginn frá kapell-
unni í Fossvogi fóstudaginn 8. júlí
kl. 10.30.
Útfor Jóhönnu Blöndal verður gerð
frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn
9. júlí kl. 14.
Ingvar Þorláksson, Kirkjubraut 6,
Höfn, Hornafirði, verður jarðsung-
inn frá Hafnarkirkju í dag, 7. júlí, kl.
14.
Útfor Ullu Sveinsson fer fram frá
Neskirkju fóstudaginn 8. júlí. At-
höfnin hefst kl. 15.
Minningarathöfn um Ingveldi Eli-
mundardóttur verður fóstudaginn 8.
júlí kl. 13.30 í nýju Fossvogskapell-
unni. Jarðarfórin fer fram frá Stað-
arfellskirkju laugardaginn 9. júlí kl.
14.
Andlát
Pétur Árnason lést í Landsspítalan-
um aðfaranótt 5. júlí.
Leonard Alexander McCook lést í
Flórída 5. júlí.
Jón Björnsson, Hringbraut 87, er lát-
inn.
TiUcyimingar
Hamrahlíðarkórinn syngur á
opnu húsi í Norræna húsinu
Opið hús, dagskrá fyrir norræna ferða-
menn og aðra gesti, verður 1 Norræna
húsinu í kvöld, 7. júlí, kl. 20.30. Hamra-
hlíðarkórinn syngur imdir stjóm Þor-
gerðar Ingólfsdóttur íslensk þjóðlög og
tónlist eftir Þorkel Sigurbjömsson, Jón
Nordal og nýlegt verk eftir Atla Heimi
Sveinsson „Sommerdagen" við texta eftir
Wiliiam Heinesen. Þorgerður mun kynna
dagskrána á norsku. Eftir kaffihlé verður
sýnd kvikmynd Ósvalds Knudsen „Sveit-
in milli sanda" með norsku tah. Bóka-
safnið og kaffistofan verða opin til kl. 22,
eins og venja er á fimmtudögum, eða svo
lengi sem „Opið hús“ verður á dagskrá
í sumar. Allir em velkomnir og aðgangs-
eyrir enginn.
að safna almennum upplýsingum um
nám erlendis. Útgáfa bókarinnar hefur
þann tilgang að miðla þeirri þekkingu og
reynslu sem SÍNE býr yflr tfl þeirra er
hafa hug á námi erlendis. í bókinni em
greinargóðar upplýsingar um umsóknar-
máta, umsóknaifresti, inntökuskflyrði,
skólagjöld og ýmsar félagslegar aðstæður
í helstu námslöndunum. I bókinni er
jafnframt að finna ítarlega skrá yfir þær
námsgreinar og þá skóla sem íslenskir
námsmenn hafa stundað á undanfómum
tveim árum og em heimihsfóng skólanna
gefm upp. Bókin er 96 blaðsíður og er
prentuð hjá Borgarprenti. Hún er tO sölu
hjá Bóksölu stúdenta í Félagsstofnun
stúdenta. Máh og Menningu, Bókaversl-
un Sigfúsar Eymundsonar og Bókaversl-
un Snæbjamar.
Fimmta bókin um Kent-fjöl-
skylduna
Prenthúsið hefur nú gefið út fimmtu bók-
ina í bókaflokknum um Kent-fjölskyld-
una. Þessi bókaflokkur nýtur vaxandi
vinsælda og á sér nú þegar dyggan og
ánægðan lesendahóp. Bókin heitir
„Landnemar" og í henni rekur höfundur-
inn, John Drakes, spennandi og sögu-
fræga atburði, auk þess sem hann segir
frá afdrifum Kent-ættarinnar.
„Nám erlendis“
Samband íslenskra námsmanna erlendis
(SÍNE) hefur gefið út bókina „Nám er-
lendis" til gagns fyrir þá er hyggja á nám
utan íslands. Um þessar mundir stunda
hátt á þriðja þúsund íslenskra náms-
manna nám erlendis og em þeir staðsett-
ir viðs vegar um heiminn. SINE, sem er
hagsmunasamtök þessara námsmanna,
hefur undanfama áratugi lagt rækt við
Verkstjórasamband Islands
gefur Hjartavernd
höfðinglega gjöf
Verkstjómasamband íslands minntist
nýlega 50 ára afmæhs síns og af þvi til-
efni ákvað stjórnin að veita Hjartavemd,
landssamtökum hjarta- og æðavemdar-
félaga, kr. 500.000 í viðurkenningaskyni
fyrir rannsókna- og fræðslustarfsemi til
varnar hjarta- og æðasjúkdómum á
landinu. Tveir stjómarmenn, þeir Kristj-
án Jónsson formaður og Jón Erlendsson,
ásamt framkvæmdastjóra sambandsins,
Óskari Mar, komu á fund framkvæmda-
stjómar Hjartavemdar fyrir skömmu og
afhentu þessa höfðinglegu gjöf.
Rotaryhreyfingin á íslandi
heiðrar tvö ung tónskáld
í lokahófi umdæmisþings Rotaryhreyf-
ingarinnar á íslandi sem haldiö var í
Hótel Örk, Hveragerði, 24. og 25. júni sl.
afhenti fráfarandi umdæmisstjóri Rot-
ary, Stefán Júlíusson rithöfundur, tveim-
ur ungum tónskáldum, þeim Karóhnu
Eiríksdóttur og Áskath Mássyni, verð-
laun úr Starfsgreinasjóði samtakanna,
150 þús. kr. hvom fyrir sig. Stefán Júlíus-
son umdæmisstjóri rakti í fáum orðum
tónhstarframlag hinna ungu tónskálda
en gat sérstaklega þess sem þau heföu
nýlokið viö eða væm að vinna að. Karó-
lina var að Ijúka ópem samda við ljóða-
flokk sænsku skáldkonunnar Marie Lou-
ise Ramnefalk og verður óperan frum-
flutt í Sviþjóð í þessum mánuði. Áskeh
er að semja ópem byggða á Klakahöllinni
eftir Teijei Vesaas sem Hannes skáld
Pétursson þýddi. Tónskáldið semur
ópemtextann eftir þýðingu Hannesar og
í samvinnu við hann.
Ferðlög
Ferðafélag íslands
Dagsferðir Ferðafélagsins
Laugardagur 9. júlí:
kl. 08 Veiðivötn/ökuferð. í Veiðivötnum
verður ekinn vatnahringurinn og aðrar
skoðunarferðir eftir því hvaö tíminn leyf-
ir. Verð kr. 1.200.
Dagsferðir sunnudag 10. júli
kl. 08 Þórsmörk/dagsferð. Verð kr.
1.200. Þessi ferð er kjörin fyrir þá sem
ætla að dvelja í Þórsmörk.
kl. 10 Klóarvegur/gömul þjóðleið milli
Grafnings og Olfuss. Verð kr. 1.000.
kl. 13 Reykjafjall við Hveragerði. Verð
kr. 800.
Helgarferðir Ferðafélagsins
8.-10. júlí: Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist í sæluhúsi F.í. í Laugum. Ekiö í
Eldgjá og gengið að Ófærufossi.
8.-10. júlí: Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal. Gönguferðir um Mörk-
ina. Áth. að auðvelt er að framlengja
helgarferðina og dvelja lengri eða
skemmri tíma í Þórsmörk. Aðbúnaður
fyrir gesti Ferðafélagsins í Skagfjörðs-
skála er sá besti sem gerist í óbyggðum.
8.-10. júlí: Hveravellir. Gist í sæluhúsi
F.í. á Hveravöllum. Það er ótrúleg fjöl-
breytni í nágrenni Hveravalla. Skoðun-
arferð sem borgar sig.
8.-10. júlí: Hagavatn - Jarlhettur. Gist
í sæluhúsi F.í. við Einifell og í tjöldum.
Gengið að Hagavatni og Jarlhettudal.
8.-10. júlí: Hagavatn - HlöðuvelUr -
Geysir (gönguferð). Gengið frá Haga-
vatni aö Hlöðuvöhum og gist í sæluhúsi
F.í. þar. Næsta dag er gengið að Geysi.
Útivistarferðir
Helgarferðir 8.-10. júlí:
1. Þórsmörk - Goðaland. Mjög góð gisti-
aðstaða í útivistarskálunum Básum.
Gönguferðir við allra hæfl, m.a. í Teigst-
ungur. Útitónleikar þýsks kórs frá Ham-
borg verða á laugardag kl. 16 við Útivist-
arskálann.
Dagsferð í Þórsmörk sunnudaginn 10.
júli kl. 08.
2. Núpsstaðarskógar. Aukaferö í þessa
náttúruperlu Suðurlands sem allir ættu
að kynnast. Tjöld.
3. Jökulheimar - Hraunvötn - Veiði-
vötn. Tilkomumikil óbyggðaferð. Gíg-
vötn og gróðurvinjar.
t
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu
okkur samúð og vináttu við andlát
og útför bróður okkar
KJARTANS ÞORGILSSONAR,
kennara,
HJarðartiaga 24, Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll
Helga S. Þorgilsdóttir,
Sigriöur Þorgilsdóttir,
FriAa Þorgilsdóttir.
Þakka af alhug öllum þeim fjölmörgu
sem glöddu mig með blómum, skeytum
og gjöfum á sextugsafmæli mínu
1. júní síðastliðinn.
Sérstakar þakkir færi ég starfsfólki
og læknum á gjörgæslu Borgarspítalans
sem og starfsfólki og vistmönnum
á Grensásdeild Borgarspítalans
fyrir vinsemd þeirra og umönnun.
Guð geymi ykkur öll.
JÓN TRAUSTI KRISTJÁNSSON
frá Blönduósi
Látum fara vel um barnið
og aukum öryggi þess
um leið!
IUMFERÐAR
RÁÐ