Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1988, Page 48
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988.
Eriendu lánin:
Ekki ætluð skuss-
um og amlóðum
- segir Jón Sigurðsson
„Nokkrir bankanna eru meö tillög-
ur um heimildir til erlendrar lántöku
umfram þaö sem ætlað var og ég mun
inna þá eftir því hvaö þeir setja
fremst. Ég vona svo sannarlega aö
þaö veröi ekki amlóðamir, eins og
einn bankastjórinn sagði í viðtali viö
DV. Ef það verður þá er þaö algjör-
lega ákvöröun bankastjóranna. Eg lít
svo á aö þeim sé helst til þess treyst-
andi aö meta hverjum helst er treyst-
andi tii þess að bæta rekstur sinn
með þessum hætti og skila peningun-
um til baka. Ég vísa því algjörlega á
bug aö þetta séu lán sem ganga helst
til skussanna," sagði Jón Sigurðsson
viöskiptaráðherra.
í gær bárust viöskiptaráöuneytinu
- '►tillögur frá síöasta bankanum um
hvaöa fyrirtæki skyldu fá heimildir
til erlendrar lántöku.
- Þessar lánsheimildir munu þá
ekki hindra að skussamir fari á
hausinn?
„Ég ætla ekki hafa nein orð um það
önnur en ég hef þegar haft.“ -gSe
Meint landhelgisbrot:
Deilt um tog-
' hraðaogná-
kvæmni mælinga
Ekki er enn ljóst hvort togarinn
Eyvindur Vopni SU 70 var að veiðum
innan friðaös hólfs á mánudag eöa
ekki. Skipstjóranum á Eyvindi
Vopna var skipað að sigla til Seyöis-
fjarðar eftir aö áhöfn á Fokkervél
Landhelgisgæslunnar, TF-SIN,
mældi út staðsetningu togarans.
Samkvæmt upplýsingum Eyþórs
Þorbergssonar, fulltrúa bæjarfóget-
ans á Seyðisfiröi, mældi áhöfn TF;
SIN staðsetningu togarans þrisvar. í
einni mælingunni mældist togarinn
,hafa verið töluvert inni í hólfinu. Þar
-^Bem mælingamar vom gerðar með
fárra minútna millibili telur skip-
stjórinn á togaranum þær ónákvæm-
ar. Hann segir aö mesti mögulegi
hraöi skipsins á veiðum sé mun
minni en mismunur mælinganna
segi til um. -sme
Akvörðun ríkissljómarinnar um hækkun niðurgreiðslna:
Ráðherrar ósammála
um hvað var ákveðið
„Þetta mál er enn til umræöu og
athugunar en í því skiptir mestu
máli hvemig menn skoða þá sam-
þykkt að söluskattsbreytingin um
áramótin skuli ekki hafa áhrif á
álagningu á verði nayðsynlegustu
landbunaðarvara. Ég veit ekki til
þess aö neitt hafi verið samþykkt,
ef svo hefur verið þá hefur það
gerst í fyrri viku þegar ég var fiar-
verandi. En ég hef ekki séð þá sam-
þykkt,“ sagði Jón Sigurðsson við-
skiptaráðherra.
Eins og fram hefur komið telur
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra að röosstjómin hafi sam-
þykkt að hækka niðurgreiöslur um
160 milljónir en heyrst hefur að
alþýðullokksmenn séu lítið hrifnir
af þeirri fjárráöstöfun. En sér Jón
Sigurðsson einhverja meinbugi á
þvi að auka niðurgreiðslumar?
„Það eru auðvitaö þau vand-
kvæði á því að slíkt bætir viö út-
gjöld ríkissjóös. Það eru meinbug-
ir,“ sagði Jón Sigurðsson.
- Munu alþýðuflokksmenn láta
þessa hækkun á útgjöldum ríkis-
sjóðs ganga yfir sig án athuga-
semda?
„Þetta er allt hluti af stærri heild,
fjármálavanda og fjárhag land-
búnaðarins sérstaklega. Vonandi
verður samstaða um þaö innan rík-
issfjómarinnar aö leita leiða til aö
leysa þennan vanda," sagði Jón
Sigurðsson.
Jón Helgason landbúnaðarráö-
herra sagði aö þetta hefði veriö
bókaö á ríkisstjómarfundi og hann
liti á þetta sem samþykkt. Hann
hefði að vfsu ekki veriö á fundinum
og forsætisráöherra heföi boriö
málið upp og yrði því aö segja til
um hvort þetta heföi verið sam-
þykkt. „Þetta er sérstakt með sölu-
skattinn á landbúnaöarvörur því
vegna verölagshækkana hækkar
álagning og þaö þarf aö endur-
greiöa,“ sagöi Jón Helgason.
Magnús Torfi Ólafsson, ritari rík-
isstjórnarinnar, sagði að hann vissi
ekki betur en málinu væri lokiö af
ríkisstjómarinnar hálfu. Ef ráð-
herra greindi á um sllkt skæri for-
sætisráðherra úr. -JFJ
Borgarsijóm:
Kvennalistinn
skiptir inn á
- Elín í stað Ingibjargar
Breyting er orðin á borgarstjórn
Reykjavíkur því að Elín G. Ólafs-
dóttir sest nú þar í stað Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur sem fulltrúi
Kvennalistans. Ingibjörg hefur setiö
í borgarstjórn í 6 ár en það er sá tími
sem kvennalistakonur í borgarstjórn
miða við núna. Elín sagði að hún
kæmi til með að sitja sinn fyrsta fund
í borgarráði á þriðjudaginn en borg-
arstjórn er nú í sumarfrí.
Þessi innáskiptingastefna Kvenna-
listans hefur vakið upp gagnrýnis-
raddir. Um þaö segir Élín:
„Við höfum kynnt þessa stefnu
okkar bæði inn á við og út á við.
Kjósendur okkar vissu af þessu í síð-
ustu kosningum þannig að þetta er
ekkert sem kemur í bakið á fólki.
Þetta lýtur að kjarna Kvennalistans.
Við erum ákveðin hreyfmg sem legg-
ur meiri áherslu á málefni en menn.“
Elín lagði áherslu á að þetta væri
ekkert óumbreytanlegt enda hefðu
kvennalistakonur enn ekki mikla
reynslu af þessum skiptingum. Kon-
um hentaöi að vinna í skorpum og
því hefði þetta orðið ofan á.
Varamaður Elínar í borgarstjóm
verður Hulda Ólafsdóttir sjúkra-
þjálfi. -SMJ
Viðskiptahallinn:
Enn spáð 10-11 milljarða halla
Það þarf að hyggja að ýmsu þegar siglingar eru annars vegar. Það ráku
þeir Brynjólfur, Einar og Konráð sig á þegar þeir voru að æfa sig í að
binda upp segl á bátnum sinum. Þeir félagarnir eru á siglinganámskeiði
íþrótta- og tómstundaráðs sem haldið er i Nauthólsvík og kunnu greinilega
vel að meta undraheima sjómennskunnar. DV-mynd BG
í nýrri þjóðhagsspá, sem birt verð-
ur eftir helgi, er gert ráð fyrir 10-11
milljarða króna viðskiptahalla. Það
er jafnmikill halli og ráð var fyrir
gert í spá Þjóðhagsstofnunar í mars
síðastliðnum. Þjóðhagsstofnun gerir
ráð fyrir að einkaneysla aukist á
þessi ári um fáein prósentustig en
áður hafði verið gert ráð fyrir sam-
drætti. Stofnunin gerir ráð fyrir 28
prósenta verðlagsbreytingum milli
ára.
Innan fjármálaráöuneytisins eru
menn ósammála spá stofnunarinnar
um viðskiptahallann. Þeir telja
bráðabirgðatölur frá hagsstofunni
frá fyrri hluta ársins benda til þess
að hallinn verði minni. -gse
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsíngar - Áskrift - Dreifing: Slmi 27022
LOKI
Ekki er von á góðu fyrst
ráðherrarnir vita ekki einu
sinni hvað þeirsamþykkja
Veðrið á morgun:
Hægviðri
víðast
hvar
Hægviðri víðast hvar á landinu.
Skýjaö að mestu einkum vestan
og suðaustanlands. Þar má einnig
finna súldarvott, annars úr-
komulaust.
i
Fíkniefnamálið:
Tveir eru enn
í gæslu-
varðhaldi
Tveir menn eru enn í gæsluvarð-
haldi vegna fíkniefnamálsins sem nú
er til rannsóknar. Alls voru fimm
menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald
vegna rannsóknarinnar. Þremur
þeirra hefur verið sleppt.
Fíkniefnadeild lögreglunnar hefur,
eins og kunnugt er, handtekið 35
manns vegna málsins. Mun fleiri
hafa verið yfirheyrðir.
•sme