Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Síða 2
Fréttir
LAUGÁRDAGUR lá JÚLÍ 1988. -
DV
Sviptir leigubflaleyfinu:
Geta samt keyrt leigubíl
„Þessar reglur eru fáránlegar.
Mennirnir eru sviptir atvinnuleyf-
inu af því að þeir eru orðnir 75 ára
en það er ekkert sem mælir gegn því
að þeir geti keyrt síðan leigubíl í af-
leysingum þvi þeir halda meiraprófs-
vottorðinu. Þeir geta þannig keyrt
rútu og steypubíl í atvinnuskyni en
ekki leigubil. Auðvitað ætti að svipta
menn meiraprófmu en ekki bara at-
vinnuleyfinu," sagði leigubílstjóri
sem DV ræddi við í gær.
Eins og áður hefur komið fram
voru 26 leigubílstjórar sviptir leyfi
til að aka leigubíl í atvinnuskyni
vegna þess að þeir höfðu náð 75 ára
aldri. Þetta er gert í samræmi við
reglugerð samgönguráðuneytisins
og umsjónamefnd leigubifreiða fylg-
ist með.
Starfsmaður hjá Frama, félagi
leigubifreiðarstjóra, sagöi að þær
reglur sem giltu um afleysingamenn
væru þær að þeir þyrftu að hafa
hreint sakavottorð og meirapróf. Þaö
væri hins vegar leyfishafmn sem réði
afleysingamann á bílinn.
Richard Björgvinsson, formaður
umsjónarnefndar leigubifreiða,
sagði að það væri mjög einföld lög-
skýring á reglugerðarákvæðinu;
menn mættu ekki keyra leigubifreið
í atvinnuskyni þó að þeir væru í af-
leysingum ef þeir gætu ekki fengið
leyfi vegna aldurs.
Þegar Richard var spurður um það
hvort slík lögskýring bryti ekki í
bága við almenna jafnræðisreglu
borgaranna, aö réttiir manna með
meirapróf væri hinn sami burtséð frá
aldri, sagði hann:
„Þetta er auðvitað hægt að tína til
á mörgum sviöum í þjóðlífinu. Svona
mál hefur ekki komið til kasta nefnd-
arinnar ennþá en þau eiga sjálfsagt
eftir að gera það einhvem tíma. Ann-
aöhvort sem kæra eða á annan hátt.“
JFJ
Albert Guðmundsson var i fyrradag sæmdur foringjanafnbót í frönsku heiðursfylkingunni sem er sérstakur heið-
ur. „Frakkar hafa veriö ansi rausnarlegir við mig, þetta er fjórða orðan sem ég fæ frá þeim,“ sagði Albert og bætti
við að Frakkar mætu þessa orðuveitingu meira en flestar aðrar þjóðir. Það er Frakkiandsforseti sjálfur sem veit-
ir þessa oröu. Albert hefur einnig fengið orðu á Ítalíu og þá hefur hann fengið islensku fálkaorðuna. Að sögn
Alberts veitir orðan ýmis sérréttindi enda fellur þessi orða fáum i skaut. Á myndinni sést Pierre Schmit, foringi
í frönsku heiðursfylkingunni, sæma Albert orðunni. DV-mynd KAE
Einar Jónsson kaupmaður:
Aldrei verið lægra
verð á laxinum
„Ég man aldrei eftir lægra verði á
laxi út úr búð. Verðið á laxi er svipað
í dag og það var þegar það var lægst
í fyrra. Það þýðir aö laxinn hér á
landi hefur stórlækkað frá í fyrra,“
sagði Einar Jónsson kaupmaður í
samtali við DV. „Þetta er einfaldlega
vegna þess að það er offramboð á
laxi.“
Einar sagði að hann seldi Hvítárlax
í búð sinni og hefði gert það undan-
farin ár. Kflóið af heilum laxi í Nóa-
túni kostar 425 kr. en í sneiöum 455
kr.
„Þegar við byijuðum að selja lax í
vor kostaði kflóið um 1000 krónur en
hefur fariö hríölækkandi síðan. Það
er ekki óliklegt að hann lækki enn
Það hefur aldrei fengist meira af
laxi og hann hefur aldrei verið ódýr-
ari, segir Einar Jónsson kaupmaður.
meira á næstunni vegna þess að það
er hægt að fá lax hvar sem er og
hvenær sem er,“ sagði Einar.
-GKr
Áfram landris við Kröflu:
Eitthvað hlýtur
að láta undan
„Þetta er orðið svo ansi mikið að
það hlýtur eitthvaö að láta undan,
hvort sem úr verður eldgos eða
kvikuhlaup. Ég get hins vegar ekki
sagt hvenær eitthvað gerist," sagði
Ármann Höskuldsson, jarðfræðing-
ur í Mývatnssveit.
Land heldur áfram að rísa við
Kröflu. Ármann Pétursson, bóndi í
Reynihlíð, sem sér um mælingar seg-
ir að land rísi um 2 sentímetra á viku
á Leirhnjúkssvæðinu. „Menn óttast
gufusprengingar þegar kvikan kem;
ur upp í jarðvatnið. Ef eldgos er á
leiðinni fáum við yfirleitt 3-4 stunda
fyrirvara þegar land sígur aftur á
meðan eldgígurinn er að brjótast
upp. Þetta höfum við ekkert orðið
varir við,“ sagði Ármann Pétursson.
JFJ
Tilraunabúið á Stóra-Áimóti:
Föst greiðsla í
stað tímakaups
- kemur í veg fyrir gjaldþrot
Tflraunabú Búnaðarsambands
Suðurlands hefur átt í erfiðleikum
með reksturinn. Búiö flutti fyrir
nokkru frá Laugardælum, þar sem
það leigði aðstöðu, að Stóra-Ármóti
í Hraungerðishreppi en búnaðar-
sambandið fékk jörðina þar geflns
undir tilraunastarfsemi.
Til að bæta reksturinn hefur komið
fram hugmynd um fasta greiðslu fyr-
ir þau verk sem þarf að vinna, þaö
er ákvæðiskerfi, í stað þess aö vera
með tímalaunakerfi. Reksturinn yrði
þannig í höndum verktakanna. DV
hafði samband viö Svein Sigur-
mundsson, framkvæmdastjóra Bún-
aðarsambands Suðurlands.
„Það hefur verið á brattann að
sækja. Við misstum framleiðslurétt-
inn úr höndunum þegar við fluttum
frá Laugardælum en gátum keypt
helming hans af eigandanum sem er
Kaupfélag Ámesinga. Uppbyggingin
hefur verið dýr og launakostnaður
hefur verið mikill. Vinnudagur er
langur og því mikið um álagsgreiðsl-
ur. Við reyndum því aö reikna út
hvað viö gætum greitt fyrir vinnuna
á búinu miðað við ákveðnar forsend-
ur og komumst að ákveðinni niður-
stöðu. Voru gerð drög aö samningi
og mögulegt aö tveir vinnumanna á
búinu í dag taki verkið aö sér.“
Ekki er vitað tfl að fyrirkomulag
þetta fyrirfinnist annars staðar á tfl-
raunabúum en Sveinn segir þetta
vera sama kerfiö og bændur búi í
raun við. Með ákveðinni mánaðar-
greiðslu lækki launakostnaður og
ýmis launatengd gjöld en mötuneyt-
is- og ferðakostnaður hverfur.
Valdimar Ágústsson er annar
þeirra sem mögvflega taka verkin á
búinu að sér og er ekki viss um aö
mikið verði á þvi að græða, miðað
viö laun síðasta árs og verðbólguna.
„Það má kalla þetta hálfgert hug-
sjónastarf en peningar eru ekki ailt.
Við lærum heilmikið á þessu. Viö
þurfum að leggja heflmikið á okkur,
vinnum allt árið og missum öll frí.
Þetta ætti þó að minnka launakostn-
að búsins um helming og forða því
frá gjaldþroti sem blasir við við nú-
verandi launakerfi.“
-hlh
T----
i>6s»<
Simaklefinn í miðbæ Kópavogs sem ekki hefur tengio ao vera i trioi tyrir
skemmdarvörgum. Nú vona bæjaryfirvöld að fólk sýni sinn betri mann og
hann fái að standa enda er þetta lokatilraun. DV-mynd KAE
Símakiefi í Kópavogi:
Síöasta
tilvaunin
„Við höfum verið að snyrta og
fegra miðbæinn og vonum að það
hafi bætandi áhrif á bælda skemmd-
arhneigð þess fólks sem svona gerir.
Ég vona að þetta fari nú ekki að mis-
takast einu sinni enn því þetta verð-
ur síðasta tilraunin," sagði Kristján
Guðmundsson, bæjarstjóri í Kópa-
vogi.
1 miöbæ Kópavogs hefur nú verið
sett símtæki í símaklefann að nýju-
Símtæki hefur verið þar áður en hef-
ur aldrei fengið að vera í friði fyrir
skemmdarvörgum og hefur verið
skemmt margoft.
„Þetta hefur verið eyðilagt margoft
en nú er þetta lokatilraunin og við
vonum að fólk sýni sinn betri mann
og láti símaklefann í friði, ef ekki þá
verður þama ekki símaklefi í fram-
tíöinni,“ sagði Kristján Guðmunds-
son. JFJ
VIDEO - ITi
í nýjasta hefti Lögbirtingablaös-
ins má sjá að bú Ásbjamar K. Mort-
hens, sem er auðvitað enginn ann-
ar en Bubbi Morthens, verður tekið
til gjaldþrotaskipta 4. október. Er
þeim sem eiga kröfu i búið ráðlagt
að lýsa eftir kröfum sínum.
Haft var samband við Bubba og
hann spuröur um ástæður þess að
svo væri komið: „Það kemur þér
ekki við,“ var það eina sem Bubbi
vildi segja um málið. -SMJ