Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Síða 20
20
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988. -
Af vöxtunum skulið þér.
Kæri vin! arbúsins víst eineöngu háð eengi að ríkisstjórnin átti eins árs af- .
Reykjavík 11. júlí
Það var leitt að heyra að þú skul-
ir ekki hafa efni á að skreppa heim
í sumar. Ef þeir sem geta legið uppi
á vinum og ættingjum hafa ekki
efni á að dvelja hér í tvær vikur
þá veit ég ekki hvernig við sem
búum hér fórum að því að komast
af árið um kring. En einhvem veg-
in skrimtum við samt, líka þeir sem
skulda svo mikið að þeir hafa ekki
efni á að spara. En eins og ég hef
sagt þér áður þá er einhver grósku-
mesti atvinnuvegur á íslandi í dag
að taka að sér að ávaxta sparifé
fólks. Það linnir ekki auglýsingum
frá aUs konar fyrirtækjum og stofn-
unum sem auglýsa slíka þjónustu.
Mér skilst að galdurinn sé fólginn
í því að fá peninga hjá þeim sem
eiga þá og lána til þeirra sem ekki
eiga á mun hærri vöxtum. En það
er nú svo að þótt stöðugt sé auglýst
eftir eigendum peninga og þeim
boðið gull og grænir skógar þá er
aldrei auglýst eftir lántakendum,
hvað þá að verið sé að bjóða þeim
hin og þessi vildarkjör eins og gert
er á hverjum degi í alvörulöndum.
Þessi verðbréfamiðlun nútímans
er auövitað af allt öðrum toga en
hér áður fyrr þegar einstakiingar
auglýstu að þeir tækju að sér að
ávaxta sparifé fólks á „vinsælan
og öruggan hátt“ og vora svo tekn-
ir og dæmdir fyrir okur. Eða hvað
heldur þú?
Landsfeður era ekki með hýrri
há þessa dagana þar sem fiskur
hefur hrapað í verði í útlandinu og
okkur er sagt að þetta þýði tekjutap
uppá hundrað milljóna fyrir þjóð-
arbúið. Slíkt muni skerða lífskjör
allra landsmanna. Þetta er eflaust
satt og rétt. Hitt hef ég aldrei skilið
að þegar glutrast niður milljaröar
hér innanlands er lítið sem ekkert
á það minnst að slíkt hafi minnstu
áhrif á lífskjörin. Milljarður týnd-
ist víst í Útvegsbankanum og annað
eins á að hafa fokið út í buskann
meö flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ég
hélt í einfeldni minni að þjóðin
þyrfti að borga þessi ósköp en það
hlýtur að vera misskilningur því
ekki tala pólitíkusarnir um þetta
sem nein áfóll. Enda eru áfóll þjóð-
arbúsins víst eingöngu háð gengi
Bandaríkjadollars og lækkun fisk-
verðs í útlöndum. Það er að segja
„ytri skilyrði“. En „innri skilyrði"
era víst engin til.
Enn er allt vitlaust í Fríkirkjunni
vegna þess að séra Gunnar var rek-
inn og sama ástand ríkir í Háskól-
anum vegna þess að doktor Hannes
Hólmsteinn var ráðinn. Nú vilja
margir í Fríkirkjunni ráða Gunnar
aftur en í Háskólanum vilja menn
reka Hannes áður en hann byriar.
Bréftilvinar
Sæmundur Guðvinsson
Ég var að velta því fyrir mér hvort
ekki mætti slá tvær flugur í einu
höggi með því að setja Hannes í
Fríkirkjuna en Gunnar í Háskól-
ann. Nemendur í stiómmálafræð-
um hefðu eflaust gott af einhverri
nasasjón af guðfræði og söfhuður-
inn ekki síður af stjómmálafræði
því alltaf er verið að tala um nauð-
syn þess að kirkjan skipti sér meira
af pólitík. En svo ég Ijúki nú þessu
Hannesarmáli að sinni þá er orðið
erfitt að vera menntamállaráöherra
hérlendis. Það má hvorki reka
menn né ráða án þess að allt ætli
af göflunum að ganga og kærur
hrannast upp. Ef ég á minnast á
afmæli er rétt að ég segi þér frá því
að ríkisstjórnin átti eins árs af-
mæli á dögunum. Var mikið rætt
um þreytulegt útlit afmælisbarns-
ins. Um svipað leyti átti Bryndís
Schram fimmtugsafmæli en engum
datt í hug að orða þreytumerki á
henni, enda hefur hún aldrei verið
hressari en nú. Annars era allir
sem vettlingi geta valdið í sum-
arfríi um þessar mundir hingað og
þangað um heiminn. Ég hitti kunn-
ingja minn á dögunum sem var á
leið til sólarlanda með allt sitt
hyski. Þar sem hér er um sex
manna fjölskyldu að ræöa en mað-
urinn lágt settur hjá hinu opinbera
varð mér á að spyrja hvernig hann
hefði efni á þessu. Fékk þaö svar
að fjármögnun væri ekkert vanda-
mál. Konan hefði verið að fá lífeyr-
issjóðslán á dögunum og mestur
hluti þess færi til að greiöa ferðina.
Ég benti honum á aö þetta yrði
eflaust dýrasta sólarlandaferð í
manna minnum því þau yrðu ára-
tugi að borga hana upp gegnum líf-
eyrissjóðinn og ekki væra þau lán
gefin. - Blessaður vertu. Hér er allt
orðið vitlaust hvort sem er þannig
að úr þessu skiptir engu hvort við
brennum peningana í sólinni suður
frá eða sökkvum þeim í fenið hér,
var þaö svar sem ég fékk. Svona
geta nú auglýsingar verðbréfasal-
anna, sem ég gat um í upphafi, far-
ið gjörsamlega framhjá skynsam-
asta fólki.
Þama var ég næstum því byijað-
ur aftur á verðbréfakjaftæðinu og
bið þig forláts. Þá væri nú nær að
segja þér að Karl Bretaprins ætlar
að skreppa hingað í næsta mánuði
og renna fyrir lax. Díana kemur
ekki með þvi hún verður í sólinni
á Mallorka á sama tíma. En KaUi
er maður ábyrgur og lætur ekki
sólarlönd glepja sig frá þeirri
skyldu að afla björg í bú meö því
að sækja lax j árnar á íslandi. Þeg-
ar heipi kemur munu þeir feðgar,
Karl og Filippus, síðan reykja lax-
inn í konunglegu taði sem fengið
er úr hesthúsum Önnu systur. Hef
ég það eftir áreiðanlegum heimild-
um að taðreyktur lax þyki lostæti
í höllinni. Viö skulum bara vona
að prinsinn verði ekki svo óhepp-
inn að fá eldislax á öngulinn.
Með bestu kveðjum.
Sæmundur
VAXTARSJOÐURI^
NÝR VERÐBRÉFASJÓÐUR
STÍGUR SÍN FYRSTU SKREF
■NÝTT MET-
KJARAÐRÉF VER06ÓLQA “AXVT - J Aætluðhækkuni .júlT f
l!
lí
r
\ / \/ ^ V □í / í
\A / \/\ \/J
' V
v'
1» COn Á S Ó N Ó J F 17 1868 ywt hrt tfw fnénnWlajt Ú Á M j J nMilWMnr.
ái#unverótiyggöum
%
V/
það bil 15 þúsund íslendingar
a treyst Fjárfestingarfélaginu
ir sparifé sínu undanfarin ár!
hafa fjárjest i Kjara-
eru tryggðir gegn
eiflum þjóðfélagsins
jarabréfin stendur
iðurinn bf.^tcersti
idur landsil
Þar af leiðandi bafa Kjarabréfin
skitað umtalsverðum vöxtum
umfram verðbólgu, eins og sést
greiríilega á linuritinu.
1'
BtonNGARFÉAGÐ
Hafnarstræti 7,101 Reykjavík * (91) 28566
Kringlunni, 103 Reykjavík í (91) 689700
Ráðhústorgi 3,600 Akureyri s (96) 25000
ERÞAÐ 1EMXEDA2
A Sex manna landslið í skíðagöngu setti á dögunum heims-
met í hjólaskíðagöngu - gekk sleitulaust
1: lOOOkm
X: 1500 km
2: 2000 km
B utogarinn Hafþór var tekinn að meintum ólöglegum
veiðum á Dornbanka. Skipið var áður varðskip og hét þá
1: Óðinn
X: Týr
2: Baldur
G
Þettaermerki
1: Flugfélags Norðurlands
X: Arnarflugs
2: Flugfélagsins Ernis
Þettaermerki
1: Dalvíkur
X: Sigluíjarðar
2: Sauðárkróks
Hér eru átta spurningar og
hverri þeirra fylgja þrír mögu-
leikar á réttu svari. Þó er aðeins
eitt svar rétt við hverri spurn-
ingu. Skráið niður réttar lausn-
ir og sendið okkur þær á svar-
seðlinum. Skilafrestur er 10
dagar. Að þeim tíma hðnum
drögum við úr réttum lausnum
og veitum þrenn verðlaun, öll
frá Póstversluninni Primu í
Hafnarfirði. Þau eru:
1. Töskusett, kr. 6.250,-
2. Vasadiskó og reiknitölva, kr.
2.100,-
3. Skærasett, kr. 1.560,-
C Hann heitir Norodom Sihanouk og til þessa hefur hann
verið áhtinn hæfastur til að stjórna
l:.Kambódíu
X: Burma
2: Thailandi
D Yitzhak Shamir er forsætisráðherra
1: Sýrlands
X: Tyrklands
2: ísraels
E Ólympíuleikamir í Seoul em hinir 24. í röðinni. Þeir hefj-
ast í haust, nánar tiltekið
1: 17.september
X: 17.október
2: 17. nóvember
H Tvær kýr drápust nýlega af völdum eldingar í Leirársveit,
nánar tiltekið á bænum
1: Lýsuhóh
X: Sunnuhóh
2: Svarfhóh
I
Sendandi
Heimili
Rétt svar:
A □
E □
B □ C □ D □
F □ G □ H □
í öðru helgarblaði héðan í frá
birtast nöfn hinna heppnu en
nýjar spumingar koma í næsta
helgarblaði.
Merkið umslagið: 1 eða x eða
2, c/o DV, pósthólf5380,125
Reykjavík.
Vinningshafar fyrirl eða X eða
2 í níundu getraun reyndust
vera: Gísh Jónsson, Hjarðar-
haga 60,107 Reykjavík (tösku-
sett), Stefán Jónsson, Bjarkar-
braut 9,620 Dalvík (vasadiskó
og reiknitölva), Ragna Svan-
laugsdóttir, Sólheimum 23,
Reykjavík (skærasett). Vinn-
ingar verða sendir heim.
Rétt lausn var 2-X-2-1-2-X-2-X