Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Page 24
24
Breiðsíðan
Hafnarfjörður:
Rekur útvarp í sjálfboðaviiimi
„Ég verð að segja að það hefur
gengið þokkalega að halda úti dag-
skrá og hlustendafjöldinn fer vax-
andi. Hins vegar hefur reksturinn
kannski ekki gengið sem skyldi þar
sem ég vonaðist til að viðbrögð aug-
lýsenda yrðu betri,“ sagði Halldór
Arni Sveinsson, útvarpsstjóri í Hafn-
arfirði. Halldór Arni hefur rekið út-
varpsstöðina í átta mánuöi með eigin
fjármagni og sjálíboðavinnu. „Þetta
er auðvitað strembið þegar maður
vinnur fullan vinnudag fyrir utan
rekstur útvarpsstöðvarinnar en það
gengur,“ sagði Halldór Árni sem
löngum hefur verið talinn bjartsýnn
að þora í samkeppni við stóru út-
varpsstöðvarnar á höfuðborgar-
svæðinu.
„Ég hef aldrei htiö svo á aö ég sé í
samkeppm þar sem útvarp Hafnar-
fjörður sendir út klukkutíma á dag,
milli klukkan 18 og 19, og fjallar nær
eingöngu um innansveitarmál. Þó
hef ég fengið ótrúlega mikil viðbrögð
frá nágrannasveitarfélögunum bæði
Kópavogi og Garðabæ."
Hahdór Árni sagði ennfremur að
auglýsingamarkaður þessara sveit-
arfélaga væri þéttsetinn þar sem
væru bæjarblöðin. „Ég hef ekki farið
út í að hggja í fólki og biðja um aug-
lýsingar eins og aðrir gera,“ sagði
hann ennfremur, en Hahdór Árni
virinur á daginn sem auglýsinga-
teiknari auk þess sem hann er frí-
stundamálari.
„Við héldum úti aukalegri dagskrá
þegar haldið var upp á afmæli Hafn-
aríjarðar og tókum upp mikið af efni
sem viö sendum út eftir á. Ég hef
orðið var við að margir bæjarbúar,
sem misstu af hátíðarhöldunum,
hafa fylgst með þeim í gegnum út-
varpið og þaft gaman af. Þessar upp-
tökur geta ennfremur nýst sem
heimildir," sagðiHahdór.
í vetur var dagskráin þriggja tima
löng og voru þá dagskrárgerðarmenn
í sjálfboðavinnu hjá Halldóri. Hann
sagðist ekki vera í vandræðum með
að fá fólk til starfa fyrir engin laun
enda yrðu menn að gera sér grein
fyrir að útvarpið væri rekið án tekna.
„Skólarnir hafa sýnt útvarpinu mik-
inn áhuga og ég átti gott samstarf við
þá í fyrravetur. Ég vonast eftir að
það samstarf haldi áfram í vetur og
þá meö skipulögðum hætti. Nemend-
ur í Flensborg hafa t.d. áhuga fyrir
að halda úti kvölddagskrá þannig að
þeir gætu nýtt þann tíma sem við
erum ekki með í notkun.“
Hahdór sagði ennfremur að félaga-
samtök sýndu stöðinni einnig áhuga
og hafa mörg þeirra notfært sér að-
stööuna. Hægt er að hringja í útvarp
Hafnarfjörð og bera fram óskir eða
ábendingar á útsendingartíma en
fólk þarf þó ekki að vera hrætt um
að það fari beint í loftið því svo er
ekki.
„Ég er ákveðinn í að halda stööinni
áfram svo lengi sem ég get,“ sagði
Halldór Árni en hann hafði ákveöiö
fyrir sex árum að setja á stofn út-
varpsstöð í Hafnarflrði þegar einka-
leyfi Ríkisútvarpsins yrði aflétt.
Hann stóð viö það og spilar nú létta
tónlist og gefur hlustendum upplýs-
ingar um innansveitarmál á hverjum
virkum degi.
ELA
Þú ert 2000 krónum ríkari!
Mikið líf og fjör var um síðustu helgi fyrir utan útvarpshúsið í Efstaleiti. Þar var Barnaútvarpið með dagskrá fyrir börn og
unglinga og ýmislegt til skemmtunar gert. Meðal annars var farið í útreiðartúra á grasflötinni. Hér er ung stúlka, sem situr á
hesti ásamt umsjónarmanni og við höfum einmitt valið ungu stúlkuna í hringinn að þessu sinni. Hún má því vitja peninganna
sinna hér á ritstjórn DV, Þverholti 11. - ELA - DV-mynd GVA
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988.
Nú segja þeir að blóðflokk-
ar manna geti sagttil um
hvemig þeir eru. Til dæmis
er fólk 10-blóðflokki glæsi-
legt og kynþokkafúllt, 1A-
flokki eftirtektarvert en oft
hlédrægt, 1 B-flokki ástríðu-
fullt, viðkvæmt en engu að
síður skapmikið og í AB-
flokki em „playboy'4 per-
sónurnar sem gjarnan eru
einnigótrúar.
★ ★★
Sú konunglega Fergie, sem
hefur mátt þola á undan-
fómum mánuðum að hafa
óléttusýkií súkkulaði, hef-
ur bætt á sig svo mörgum
aukakflóum að aðrir Qöl-
skyldumeðlimir í höllinni
era famir að hafa verulega
áhyggjur af útliti hennar.
Hún líkist orðið fremur
skriðdreka en ófrískri
konu. Fergie á von á sér í
næsta mánuði og væntan-
lega verður hún þá sett í
strangamegrun.
★ ★★
Og talandi um Fergie. Hún
fékk amerískan innanhúss-
arkitekt til að teikna upp
og hanna svefhherbergi
þeirra hjóna í nýrri íbúð
þeirra. Það þótti Philip
prins, eiginmanni Elísabet-
ar, hins vegar fullmikil só-
un og sló hnefanum í borð-
ið. Hann vildi engan siíkan
fígúrugang og það varð
Fergie að sætta sig við.
★ ★★
Janni Spies kom blaða-
mönnum aldeilis í opna
skjöldu er hún tilkynnti
brúðkaup sitt og Christian
Kjær í ágúst. Eiginlega lék
hún snilldarlega á ljós-
myndara sem hafa elt hana
á röndum allt frá því hún
varð ekkja eftir Spies ferða-
skrifstofukóng. Skandinav-
ísku blöðin hafa mörgum
sinnum gift Janni hinum
og þessum milljónamær-
ingum og sterkasti oröróm-
urinn var um Svíann
Gunnar Helström. En það
var sem sagt Christian
Kjær sem átti hug hennar
og nú segist Janni vera búin
að ákveða að eignast sitt
fyrsta barn á næsta ári.
★ ★★
Liz Taylor er mikill mótor-
hjólaaðdáandi og lætur sig
miklu varða á hvaða tegund
hún ekur um. Nú nýlega
færði Malcom Forbes, vin-
ur leikkonunnar, henni
Hariey Davidson mótorhjól
sem var sérsmíðað sérstak-
lega fyrir Taylor. Ekki
fylgdi sögunni hvað hjóliö
kostaði en öruggt má teljast
að það hafi verið einhverjar
milijónir því Harley David-
son mótorhjól eru þau dýr-
ustuíheimi.