Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988.
Popp
J acksonæði
ríður yfir
Bretland
- heimsferðin endar í Japan um jólin
Þeir eiga vart orð sem séð hafa
Michael Jackson á sviði í Evrópu-
ferðinni. Hópur íslendinga fór á
hljómleika stjörnunnar í Hamborg
á dögunum. Landa vora skorti lýs-
ingarorð að tónleikunum afstöðn-
um.
„Maður reiknar auðvitað með
einhverju stórkostlegu en það
reynist vera tíu sinnum betra.
Maðurinn er einfaldlega snilling-
ur,“ sagði einn Hamborgarfaranna.
Hljómleikaferð Jacksons um
Bretlandseyjar hófst á fimmtudag-
inn var meö tónleikum á Wembley.
Löngu er uppselt á alla konsertana
í Bretlandi, sem og viðbótarkonsert
að Milton Keynes. Ekki reyndist
unnt að fjölga hljómleikum á Wem-
bley, sem tekur 72.000 manns, þar
eð leikvangurinn er búinn með
hljómleikakvótann þetta árið.
Vegna íbúa í grenndinni má ekki
halda nema vissan fjölda hljóm-
leika á ári.
Alls er talið að um milljón manna
muni sjá og heyra Michael Jackson
að þessu sinni. Tekjur stjörnunnar
af hljómleikaferðinni um Bretland
verða sennilega um sem nemur
milljarði króna. Alls kostar um
1200 krónur á Wembleytónleikana.
Miðaverð á svörtum markaði er
um sex þúsund.
Ferð Jacksons um heiminn til að
fylgja eftir LP plötunni Bad hófst í
Japan í september í fyrra. Nú hefur
verið ákveðið að enda forina einnig
þar eystra. Jackson heldur sex tón-
leika í Japan um jólin. Allir verða
þeir á stað í Tokyo sem rúmar um
45.000 manns. í upphafi heimsferð-
arinnar í Japan kom Michael Jack-
son fram á fjórtán hljómleikum og
skemmti um 450.000 manns. Nú
eiga sem sagt um 250.000 Japanir
til viðbótar kost á að sjá þessa
mestu poppstjörnu samtímans.
Michael Jackson. Þeir sem séð hafa hann á tónleikum eiga vart orð til
að lýsa hrifningu sinni.
Bjartmar á Austur-
og Norðurlandi
Bjartmar Guðlaugsson er þessa
dagana á hljómleikaferð um landið.
Ferðin hófst þann sjötta þessa
mánaðar á Höfn í Homafirði. Það-
an lá leiðin til Djúpavogs og síðan
áfram á Austfirðina. Annað kvöld
kemur Bjartmar fram á sumar-
hátíð U.Í.A. á Eiðum.
Tónleikaferðin stendur í raun og
vera út ágústmánuö. Fyrri helm-
ingnum lýkur þó þann 26. Þá kem-
ur Bjartmar fram í Grímsey.
„Ég tek mér frí yfir verslunar-
mannahelgina og byija svo aftur í
ágúst,“ segir Bjartmar. „Þá fer ég
á Vestfirði, Vesturland, Suöurland
og hluta Norðurlands."
Er hljómleikaferðinni lýkur hefst
vinna við næstu plötu Bjartmars.
Áætlað er að hún komi út snemma
vetrar. Síðasta plata Bjartmars, í
fylgd meö fullorðnum, kom út fyrir
síðustu jól. Hún seldist í hátt á
annan tug þúsunda eintaka.
„Ég ætla að hafa nýju plötuna
rokkaðari en í fylgd með fullorön-
um,“ segir Bjartmar. „En stefnan
Bjartmar Guölaugsson byrjar ó nýrri þlötu i september er hljómleikaferð-
inni lýkur. DV-mynd
er að hafa hana dálítiö skemmti-
lega líka!“
Bjartmar verður á eftirtöldum
stöðum út júlí:
17.júlí Sumarhátíð U í A á Eiðum
19. júlí Grenivík
20. júlí Hrísey
21. júlí Akureyri (Dynheimar)
22. júlí Dalvík
24. júlí Akureyri (Sjallinn)
25. júlí Ólafsfjörður
26. júlí Grímsey
Motown hljóm-
plötuútgáfan seld
Þá hafa orðið kaflaskil í sögu banda-
rísku Motown hljómplötuútgáfunn-
ar. Berry Gordy, stofnandi og aða-
leigandi fyrirtækisins, seldi á dögun-
um sinn hlut. Kaupendur vorumarg-
ir en stærstan hlut eiga nú MCA
Records og fjármögnunarfyrirtækið
Boston Ventures. Gordy fékk 61
milljón dollara fyrir fyrirtækið.
Motown var um skeið stærsta fyr-
irtæki Bandaríkjanna í eigu blökku-
manns. Berry Gordy stofnaði útgáf-
una 1959. Hann vann þá hjá bílafram-
leiðanda í Detroit og samdi lög.
Gordy fékk lánaða 700 dollara hjá
systur sinni til að hefja hljómplötu-
útgáfu og hefur svo sannarlega
ávaxtað sitt pund eöa öllu heldur
dollar á tæpum þrjátíu árum.
Þegar vegur Motown var sem mest-
ur gaf fyrirtækið út plötur Diönu
Ross og The Supremes, Four Tops,
Stevie Wonders, Temptations,
Mörthu & The Vandellas, The Con-
tours og fleiri góðra þeldökkra tón-
listarmanna. Á síðustu árum hallaði
nokkuð undan fæti. Stjömumar
sömdu við önnur fyrirtæki. Stevie
Wonder er þó enn hjá Motown sem
Berry Gordy uppgötvaði Stevie
Wonder tíu ára gamlan og gerði við
hann plötusamning. Wonder er enn
á mála hjá Motown útgáfunni.
og Smokey Robinson sem var stjórn-
arformaður fyrirtækisins síðast þeg-
ar fréttist.
Með því að Berry Gordy er búinn
að selja fyrirtækið sitt má segja að
lokið sé sögu stærstu óháðu hljóm-
plötuútgáfunnar í Bandaríkjunum
þar eð nú spyrðist hún væntanlega
við MCA.
Sólóplata væntan-
leg frá Tom Petty
Ný plata er á næstu grösum með
Tom Petty. Þó svo að hann hafi
hljómsveitina sína, Heartbreakers,
ekki til fulltingis að þessu sinni er
of mikið að segja aö hann sé einn
Helgarpopp
Ásgeir Tómasson
síns liðs. Með honum stýrðu upptök-
um þeir Jeff Lynne og Mike Chap-
man úr Heartbreakers, George
Harrison leikur á gítar í einu lagi og
Roy gamli Orbison var fenginn til að
syngja bakrödd í öðru.
Petty hyggst ekki fylgja plötunni
eftir með hljómleikaferð. Þess í staö
reiknar hann með að byrja á nýrri
plötu með Tom Petty & The Heart-
breakers með haustinu. Hvergi slak-
aö á á þeim bæ.
tekurupp
Billy Idol er byrjaður á nýrri samning um sólóplötu fyrir Warn-
plötu. Keith Forsey er upptöku- erBrothersogeraðvinnaviðhana.
stjóri eins og venjulega og með ÞaðmunveraöruggtaöBillyldol
þeim vinna að plötunni þeir Phil er ekki á flæðiskeri staddur fjár-
Soussan bassaleikari og Mark Yo- hagslega. Hann hafnaði á dögunum
unger-Smith gítarleikari. Steve tilboði frá Sony um aö koma fram
Stevens er ekki með aö þessu sinni í auglýsingu. Hann átti að fa eina
og verður vart Hann hefúr gert milljón dollara fyrir viðvikið.