Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Page 27
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988.
dv__________________________Nýjar plötur
The Best of Eddy Raven
Vel líst mér á'ann
Það er ekki á hverjum degi sem
bandarískir kúreka- og sveitasöngv-
arar ná umtalsverðum vinsældum
hér á landi. Þó gerðist það nú á dög-
unum að nafn Eddys Raven varð
þekkt á svo til einni nóttu er músík-
útvarpsstöðvamar hófu allar sem
ein að leika lagið I’m Gonna Get
You. Ekki spillti fyrir að Bergþór
Pálsson óperusöngvari flutti lagið í
vinsælum sjónvarpsþætti við ís-
lenskan texta fóður síns. Og sjálfsagt
á vegur kántrílagsins I’m Gonna Get
You eftir að vaxa enn frekar á næst-
unni því að það er að koma út með
Magnúsi Kjartanssyni og kallast þá
Vel líst mér á þig.
í framhaldi óvæntra vinsælda lags-
ins I’m Gonna Get You var flutt inn
plata með níu vinsælum lögum Edd-
ys Raven. Þar má heyra að fyrmefnt
lag er síður en svo eini smellur pilts-
ins sem stendur undir nafni. I Got
Mexico er áheyrilegt, sem og Some-
times a Lady og fleiri. Enda er Eddy
Raven í hópi þekktustu dreifbýhs-
tónlistarmanna Bandaríkjanna. í
þeim hópi eru reyndar aðeins fáir
útvaldir sem tekst að ná heimsfrægð.
Ennþá heyrist mér Raven eiga nokk-
uð langt í land að verða tahnn með
Dolly Parton, Kenny Rogers, Willie
Nelson og Johnny Cash, svo nokkrir
séu nefndir. Það vantar enn dálítið
af poppi í kántríið hans. Þó er Raven
langt frá því að geta tahst th svokall-
aðra „traditionalista" í faginu.
Ég sagði hér framar aö það heyrði
til undantekninga að dreifbýlistón-
list slægi í gegn hér á landi. Það er
raunar ekki nema hálfur sannleikur.
Mörg vinsælustu lög hljómsveitar-
innar Brimklóar voru til að mynda
bandarískir sveitasöngvar með ís-
lenskum textum. Sama má segja um
tónhst Ðe Lónlí Blú Bojs. Þá greip
söngsveitin Randver til nokkurra
slíkra og þannig mætti lengi telja.
Dæmið með I’m Gonna Get You
sannar að margir þessir söngvar í
kúreka- og sveitastíl eiga mjög greiða
leið að eyrum íslendinga. Þeir tón-
listarmenn sem á annað borð eru
fyrir að kópíera erlenda tónlist ættu
kannski oftar að gjóa augunum á
ameríska sveitasöngvalistann og
leggja eyrun við ágætum kántríþátt-
um herstöövarútvarpsins í Keflavík.
Það er að segja þeir sem tök hafa á
að hlusta á stöðina þá.
-ÁT.
Ýmsir - More Dirty Dancing
Flórinn mokaður
Það hefur varla farið fram hjá
neinum að kvikmyndin Dirty Dan-
cing er ein allra vinsælasta kvik-
mynd síðari ára og að platan með
lögum úr myndinni trónar enn í efstu
sætum vinsældahsta um ahan heim.
Þessar miklu vinsældir hafa komið
mönnum nokkuð á óvart. Kvik-
myndin er í besta falli létt afþreying
og frumsömdu lögin úr kvikmynd-
inni, sem vinsæl hafa orðið, eru rétt
í meðallagi. Aðdráttarafhð hlýtur því
að vera dansinn og leikaramir.
Það kemur því ekki á óvart að gef-
in var út önnur plata með lögum úr
kvikmyndinni og nefnist sú plata
More Dirty Dancing. Þaö sem kemur
á óvart er aftur á móti tónlistarfá-
tæktin sem blasir við manni. Greini-
legt er að næghegt efni var ekki fyrir
hendi og er því gripiö til þess ráðs
að skreyta plötuna meö danslögum
sem, þegar eingöngu er hlustað á,
minna helst á lög úr keppnum í sam-
kvæmisdansi. Ótrúlega leiðinleg lög
sem einhver Michael Lloyd er ábyrg-
ur fyrir.
Önnur lög eru gamlir standardar á
borð við Big Girls Don’t Cry, Do You
Love Me, Wipeout og Whl You Love
Me Tomorrow, lög sem era til á ótelj-
andi safnplötum. Þá hafa verið grafin
upp tvö minniháttar lög með Otis
Redding heitnum, Love Man og
These Arms Of Mine, og er minningu
hans lítill greiði gerður með endur-
útgáfu þeirra. Vinsælasta lagið úr
kvikmyndinni (I’ve Had) The Time
Of My Life fær nokkrar sekúndur í
upphafi og endi plötunnar, svona
rétt til að minna á fyrri plötuna.
Það er alveg á hreinu að önnur
sjónarmið hafa ráðið útgáfu More
Dirty Dancing en að gefa hlustendum
kost á góðri tónhst. Utgefendum hef-
ur tekist það sem til stóð, því platan
selst eins og heitar lummur, lummur
sem líta vel út öðrum megin en era
svartar af brana hinum megin.
HK.
27
N
''A'VA
Utboð
Súgandafjörður II, 1988
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk. Lengd vegarkafla 2,7 km, fyllingar
6.600 m3 og neðra burðarlag 2.400 m3.
Verki skal lokið 10. október 1988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rikisins
á isafirði og i Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 18. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum
fyrir kl. 14.00 þann 2. ágúst 1988.
Vegamálastjóri
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður við framhaldsskóla.
Að Menntaskólanum á ísafirði vantar kennara í
dönsku, vélritun og rafeindagreinum. Skólastjóri veit-
ir nánari upplýsingar um störfin.
Við Fjölbrautaskóla Suðurlands eru lausar hlutastöð-
ur í dönsku og ensku.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík, fyrir 25. júlí næstkomandi.
Þá er umsóknarfrestur um áður auglýsta stöðu bóka-
varðar við Stýrimannaskólann í Reykjavík og Vél-
skóla íslands framlengdur til 25. júlí. Starfið felst í
skipulagningu og umsjón með bókasafni skólanna.
Menntamálaráðuneytið
Gulisegla-
meðferð
með Magneking
segulpillum.
* Punktakort fást ásamt leið-
beiningum fyrir meðferð á:
* Verkjum i herðurn, öxlum
og upphandleggjum, vöðva-
bólgu.
* Verkjum i olnboga (tennis-
olnbogi).
* Verkjum í baki og mjöðm-
um.
* Verkjum í hnjám.
* Kvefi, hósta og hálsbólgu.
* Blöðruhálskirtli.
Umsögn læknis i USA:
Áhrifin af þvi að nota segulpill-
ur virðast vera öflugri og hrað-
virkari en að nota nálastungu.
Ronald S. Shapiro MD PhD.
Magneking meðferðin byggist á hinni ævafornu kinversku
nálastunguaðferð. Í staðinn fyrir að örva punktana með nál-
um, þá nuddar þú punktana fyrst og limir síðan Magneking
segulpillu á punktinn. Segulpillan vinnur allan sólarhringinn
og opnar rásina sem stífluð er.
Útsölustaðir: Heilsuverslanir um allt land.