Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Síða 29
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988.
29
Hinhliðin
húsfadir í
augnablikinu''
- segir Ómar Torfason, knattspymumaður í Fram
Ómar Torfason og
aðrir knattspyrnu-
menn úr Fram hafa
verið í sviðsljósinu
síðustu daga og þá
kannski sérstaklega í
kringum dráttinn í
Evrópukeppnina í
knattspymu. Fram-
arar drógust sem
kunnugt er gegn
spænska stórliðinu
Barcelona 1 fyrstu
umferð og var Ómar
mjög ánægður með að
fá þetta fræga lið sem
mótherja í fyrstu um-
ferðinni.
Ómar er svo að segja
nýkominn til íslands
eftir tæplega þriggja
ára veru í Sviss. Ómar
er nú aftur kominn til
Fram en síðast er
hann lék með liðinu
varð hann marka-
kóngur í 1. deild. Svör
Ómars,. sem fæddur
er á ísafirði, fara hér
á eftir:
Fullt nafn: Ómar Torfason.
Fæöingardagur og ár: 1. febrúar
.1959.
Eiginkona: Sigurlaug Hilmars-
dóttir.
Börn: Sandra, sex ára, og Sif, níu
rriánaða.
Bifreiö: Opel Omega, árgerð 1987.
Starf: Húsfaðir.
Laun: Laun erfiðisins.
Áhugamál: íþróttir.
Hvað hefur þú fengið margar töi-
ur réttar í lottóinu? Ég hef ekki
spilað grimmt en fengið mest
þrjár tölur réttar.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Vera i góðu fríi.
Hvað fuinst þér leiðinlegast að
gera? Ég er einna minnst fyrir
garðvinnu ýmiss konar.
Uppáhaldsmatur: Vel matreiddur
fiskur.
Uppáhaidsdrykkur: Bjór.
Hvaða íslenskur íþróttamaður
stendur fremstur í dag? Einar
Vilhjálmsson og Arnór Guðjohn-
sen.
Uppáhaldsblað: DV.
Uppáhaldstímarit: Mannlíf.
Fallegasti kvenmaður sem þú
hefur séð fyrir utan konuna þína:
Bo Derek.
Hlynntur eða andvígur rikis-
stjórninni: Ég er nú svo að segja
nýkominn til landsins en er frek-
ar hlynntur henni og vonandi
tekst henni að leysa .úr þeim
vanda sem við er aö glíma.
í hvaða sæti hafnar íslenska
Jandsliöið í handknattleiks-
keppm ólympíuleikanna? Ég er
bjartsýnn og spái þvi að ísland
leitó um 3.-4. sætið.
Hvaða persónu langar þig mest
til að hitta? Hnefaleikakappann
Mike Tyson.
Uppáhaldsleikari: Jack Nichol-
son.
Uppáhaldssöngvari: Helgi
Björnsson, gamli kunninginn frá
ísafirði.
Uppáhaldsstjómmálamaður: Jón
Baldvin Hannibalsson, en þaö er
spuroing hvaö það varir lengi.
Hlynntur eða andvígur bjómum:
Hlynntur honum.
Hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi: Hlynnt-
ur en ég neita því ekki aö þeir
mættu borga meira en Þeir gera.
Hver útvarpsrásanna fmnst þér
best? Sfjarnan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Bjarni
Dagur Jónsson á Stjömunni.
Hvort horfir þú meira á Sjón-
varpiö eða Stöð 2? Ég horfi sama
og ekkert á sjónvarp yfir sumar-
mánuðina og get því ekki gert upp
á milli.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Nafni minn Ragnarsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ég hef
bara einu sinni fariö á skemmti-
stað frá því ég kom aftur til lands-
ins. Þá fór ég á Hótel ísland og
það var mjög gott.
Uppáhaldsfélagí íþróttum: Fram.
Að hverju stefhir þú á þéssu ári?
Að verða ísiands- og bikarmeist-
ari meö Fram í knattspymunni.
Hvað ætlar þú að gera í sumar-
leyfinu? Ég reikna meö því aö
taka sumarfrí í haust og fara þá
til útlanda og hafa þaö huggulegt
-SK
Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtalinni fasteign: á eigninni sjálfri fimmtudaginn 21. júlí nk. kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur eru: Ámi Guðjónsson, hrl, Gjald- heimtan í Reykjavík og Landsbanki íslands.
Óttarstaðir I, Hafriarfirði þingl. eig. Óli A. Bieltvedt, 061042-7099, fer fram BÆJARFÓGETINN í HAFNARFIRÐI, GARÐAKAUPSTAÐ 0G SELTJARNARNESL SÝSLUMAÐURINN í KJÓSARSÝSLU.
—
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður við grunnskóla.
Vesturlandsumdæmi:
Stöður grunnskólakennara við grunnskólana: Akra-
nesi, meðal kennslugreina líffræði og stærðfræði í
7.-9. bekk, sérkennsla, tónmennt og kennsla yngri
barna, Ólafsvík, meðal kennslugreina enska, mynd-
mennt, sérkennsla og kennsla við forskóladeild, Hell-
issandi, Eyrarsveit, meðal kennslugreina danska, líf-
fræði og samfélagsfræði í eldri bekkjum, Stykkis-
hólmi, meðal kennslugreina enska og kennsla yngri
barna, Andakílsskóla, Laugargerðisskóla, meðal
kennslugreina enska og íþróttir og Laugaskóla, með-
al kennslugreina íslenska og erlend mál.
Austurlandsumdæmi:
Staða skólastjóra og grunnskólakennara við Grunn-
skólann, Bakkafirði. Staða skólastjóra og grunnskóla-
kennara við Brúarásskóla. Stöður grunnskólakennara
við grunnskólana: Seyðisfirði, meðal kennslugreina
íþróttir, smíðar og náttúrufræði. Eiðum, Fáskrúðs-
firði, meðal kennslugreina smíðar og náttúrufræði
og Djúpavogi, Fellaskóla, Nesjaskóla, meðal
kennslugreina íslenska og enska og Hrollaugsstaða-
skóla.
Sérkennarar og aðstoðarfólk óskast við Skóla barna-
og ungiingageðdeildar Landspítalans.
MARSHAL
■
HJOLBARÐAVERKSTÆÐIÐ
HAGBARÐI HF.
ARMULA 1 - SIMI 687377
Það er ekki nóg að vera á góðum bil, hann
þarf einnig að vera á góðum dekkjum. Hjól-
barðinn þarf að vera endingargóður og með
góðu mynstri. Hann þarf að grípa vel og hafa
góða aksturseiginleika. MARSHAL hjólbarðinn
er byggður upp með þetta í huga.
STÆRÐ VERÐ
155 sr 12 1750
135 sr 13 1750
145 sr 13 2050
155 sr 13 2090
175/70 sr 13 2550
185/70 sr 14 2850