Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988. 43 nr* tfi hagsmálum. En það hlýtur að vera skilyrði í hverri ríkisstjórn og ég endurtek það að ég hef ekki nokkurn áhuga á að starfa í ríkisstjórn þar sem ekki er pólitísk samstaða." - Því er þá ekki að neita að þegar ýmsir frammámenn úr ríkisstjórnarflokkunum eru tilbúnir að dæma ríkisstjórnina með þessum hætti þátséu málin komin á alvarlegt stig og ekki verði komist hjá stjórnarslitum: „Eins og ég sagöi áðan varö ég fyrir gífurleg- um vonbrigðum með hvernig málin þróuðust í kringum gengisfellinguna í maí og hef litið svo á að þetta samstarf væri komið á alvarlegt stig eftir þá uppákomu. Ég tel nauðsynlegt að gera úrslitaátak í því að láta á það reyna á næstunni hvort samstaða næst. Við megum ekki loka augunum fyrir því að þetta var raun- veruleg stjórnarkreppa sem kom yfir okkur á þessum tímapunkti." - Hvernig ætlarðu að reyna að ná sáttum og koma í veg fyrir þessi upphlaup á nokkurra mánaða fresti? „Maður verður bara að vera bjartsýnn." - Hafið þið Jón Baldvin og Steingrímur hist til að ræða hversu alvarlegt þetta er orðið og að nú verði að verða breyting þarna á? „Já, já, við höfum gert það. Ég skynja ekki annað en að menn vilji leggja af mörkum það sem þeir geta til að takast megi aö ná sam- stööu. Auðvitað eru þetta þrír ólíkir flokkar og alltaf er erfitt póhtískt, burtséð frá öðrum aðstæðum, að sameina þá um sameiginlega stefnu og ákvarðanir. En ég held að viljinn sé fyrir hendi að reyna þetta.“ - En er Sjálfstæðisflokkurinn nógu sterkur um þessar mundir til að vera i forsvari ríkisstjórn- ar? „Hann er stærsti flokkurinn á þinginu og ef stærsti flokkurinn er ekki nógu sterkur til aö vera í forystu þá er það enginn annar flókkur." - Já, en samkvæmt síðustu kosningum og skoðanakönnunum upp á síðkastið hefur fylgi hans hrapað mikið. Er það ekki vísbending um að kjósendur treysta ekki flokknum til að vera í ríkisstjórn og séu ekki ánægðir með það sem á undan er gengið? „Það er röng fullyrðing í spurningunni. Við urðum að vísu fyrir miklu áfalh í síðustu kosn- ingum en skoðanakannanir hafa heldur sýnt að viö séum að treysta okkar stööu, þótt við hefðum gjarnan kosið að skoöanakannanir mældu okkur meiri sókn.“ - Myndirðu endurskoða stöðu þína sem for- maður Sjálfstæðisflokksins ef slitnaði upp úr stjórnarsamstarfmu á næstunni? „Þaö er út í bláinn aö velta fyrir sér svona ef-spurningu. Á meðan menn eru í ríkisstjórn Viðtal: Rósa Guðbjartsdóttir DV-mynd GVA þá velta menn ekki öðrum hlutum fyrir sér en að reyna að standa sig vel. En þaö er flokkur- inn sem velur sér forystu. Það er ekki mín einkaákvörðun.“ - Líturðu sem sagt ekki á það sem persónuleg- an ósigur þinn og að þér hefði mistekist verk- stjórn ef slitnaði upp úr stjórnarsamstarfinu? „Það hefur engin þriggja flokka ríkisstjórn setið út heilt kjörtímabil. Bregöist samstarfs- flokkarnir er það þeirra áfall en ekki okkar." - Þér finnst ekki sem það hafi reynst þér ofviða að vera í forsvari ríkisstjórnar? „Þetta hefur verið erfitt. Maður vissi það svo sem fyrirfram. Við vissum að það yrði að taka á miklum vanda en hann hefur orðið meiri en við áttum von á þegar þessi stjórn var mynd- uð. Þegar taka þarf á alvarlegum efnahagsmál- um þarf að gera ýmsar aðgerðir sem þykja óskemmtilegar á meðan á þeim stendur.“ - Nú hafa verið uppi miklar óánægjuraddir vegna matarskattsins. Margir álíta að í kjölfar hans og annarra aðgerða þessarar ríkisstjórnar hafi stéttabilið breikkað og í raun séu orðnar tvær stéttir í þessu þjóðfélagi. Hvernig liður þér þegar þú heyrir þvílíkt? „Þetta er röng fuhyrðing. En það varð ekki hjá því komist aö auka tekjur ríkissjóðs við þessar aðstæður til aðná jafnvægi og var farið út í það að breikka grunninn fyrir söluskatts- stofninn.“ - Nú hlýtur að vera liður í næstu efnahagsað- gerðum að skera niður á ýmsum stöðum. Hvar sérðu fyrir þér að byrjað verði? „Fjárlagagerðin stendur yfir núna og verður verkefni næstu vikna. Eins og venjulega verða stærstu ákvarðanir í þeim efnum teknar í ágúst og byrjun september. Því er alltof snemmt á þessu stigi að tala um einstaka þætti í fjárlaga- gerðinni. Það fer hins vegar ekkert á milli mála aö hún verður að vera mjög aðhaldssöm." - Ætlarðu að selja einhver ríkisfyrirtæki ef þú heldur áfram? „Aö vísu er pólitískur ágreiningur á milh þessara flokka um hve langt eigi aö ganga í sölu ríkisfyrirtækja. Mikilvægustu fyrirfæki ríkisins í dag eru ríkisbankarnir. Mín skoðun hefur alltaf verið sú að það hefði mesta þýð- ingu aö losa ríkið frá þeim rekstri.“ - Muntu beita þér fyrir að úr því geti orðið? „Ég á nú ekki von á því að mikil breyting verði á viðhorfi okkar samstarfsflokka á næst- unni í þeim efnum.“ Það fer ekki á mihi mála að ríkisstjórnin á erfiö verkefni fyrir höndum; fyrst að reyna aö koma á sáttum og ef það tekst, sem margir eru efins um, þá taka við alvarlegar efnahagsað- gerðir. Vandamál þessarar ríkisstjórnar eru stór; af pólitískum og efnahagsleguip toga. Það verður að segjast að forsætisráöherra og sam- starfsráðherrar hans eru vart öfundsverðir af þessu hlutskipti. - Hvernig er það, Þorsteinn, er það þess virði að standa í öllu þessu þrasi? Langar þig aldrei til að hætta og fara að gera eitthvað annað? „Ég get ekki neitað því aö þegar mest á reyn- ir þá læöast svoleiðis hugsanir oft að manni. Æth það sé ekki þannig í flestum störfum að þegar á móti blæs þá leiði menn hugann að því hvort ekki væri réttast að fara í eitthvað annað. En ég hef gaman af að fást viö stjórn- málaverkefni og önnur erfiö verkefni. Ég hef samt ekki hugmynd um hversu lengi ég kem til með aö standa í stjórnmálum. En ég vona að ég hafi ánægju af því áfram.“ - Hefur þá sóknin eftir völdum verið þess virði? „Það er kannski erfitt um að dæma. Aðalat- riðið er að hafa ánægju af því sem maður er að gera og ég hef þaö yfirleitt. En ég væri varla mannlegur ef hugsanir um það hvort maður sé að gera rétt kæmu ekki upp í hugann. Á meðan ánægjan af starfinu er fyrir hendi er allt í lagi.“ - Varla hefurðu haft beinlínis mikla ánægju af starfi þínu síðastliðið ár: „Það hefur út af fyrir sig ekki verið nein sér- stök hamingja að sitja í þessum forsætisráð- herrastól. En ég hef ánægju af að fást við þau verkefni sem stjórnmálastarf felur manni.“ - Þú getur þá hugsað þér að verða forsætisráð- herra í annarri ríkisstjórn: „Já, já, ég gæti það. En ég geri mér líka grein fyrir því að ég gæti verið hamingjusamur í ýmsum öðrum störfum. í mínum huga er ég afar frjáls gagnvart þessum störfum.“ - Hefur þitt persónulega líf ekki verið mjög takmarkað? „Jú, auövitað er það rétt og þetta bitnar á fjölskyldu manns, enda fær maður stundum samviskubit. Ég hafði nú hugsað mér að fara í sumarfrí á næstunni og var reyndar búinn að lofa börnunum mínum því. En þar sem maður er ekki búinn að efna öll kosningalof- orðin sín er ekki hægt að efna öll fjölskyldulof- orðin heldur."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.