Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Side 36
48
' JÖlA988.
Nýr skákstigalisti FIDE:
Stigamet Fischers stendur enn óhaggað
- Kasparov er ekki langt undan
Samkvæmt Elo-stlgalista alþjóöa-
skáksambandsins, FIDE, frá 1. júlí
er Jóhann Hjartarson í 14. sæti yfir
stigahæstu skákmenn heims. Jó-
hann hefur 2620 stig en hæstir
tróna heimsmeistarinn Garrí Ka-
sparov meö 2760 stig og Anatoly
Karpov meö 2725 stig. Englending-
urinn Nigel Short er nokkuð óvænt
í þriöja sæti meö 2665 stig.
Elo-stigin eru gefin út 1. janúar
og 1. júlí ár hvert. Þau eru nefnd
eftir bandarískum prófessor, Arp-
had E. Elo, er var formaður nefnd-
ar bandaríska skáksambandsins
sem falið var aö endurskoða stiga-
gjöf þar í landi. Stigakerfi Elo var
fyrst tekið í notkun í Bandaríkjun-
um 1960 og þótti takast svo vel aö
alþjóðaskáksambandið tók þaö upp
á sína arma í september 1970.
Stigin eru höfð til viðmiðunar
þegar meta á áfanga að alþjóðleg-
um titlum og svonefndir styrk-
tvinnik og Anatoly Karpov komu
næstir með 2630 stig. Næstu nöfn á
listanum frá 1972 voru Tal og Lars-
en í 9. og 10. sæti með 2625 stig,
Smyslov og Stein höfðu 2620 stig,
síðan Keres og Hort með 2600 stig
í 13.-14. sæti. Friðrik Ólafsson var
efstur íslendinga á þessum lista,
með 2570 stig í 22.-24. sæti.
Stigatala Fischers bar merki þess
aö á misserinu á undan hafði hann
unnið ótrúlega sigra í áskorenda-
einvígjunum. Fyrst lagði hann Taj-
manov 6-0, svo Larsen með sömu
tölum og þar næst Petrosjan meö
6,5-2,5 og fylgdi sögunni að Fischer
hefði verið kvefaður í 2. skákinni,
sem hann tapaði. Fischer hafði 125
stigum meira en Spassky er þeir
mættust í heimsmeistaraeinvíginu
í Reykjavík. Yfirburðirnir voru
slíkir, að þrátt fyrir að Fischer sigr-
aði í einvíginu með 12,5-8,5, tapaði
hann 5 stigum! Nú hefur stigakerf-
6. Timman (Holland) 2640
7. Portisch (Ungverjaland) 2635
8. Gurevic (Sovétríkin)
Ribli (Ungverjaland) 2630
10. Andersson (Svíþjóð)
Ivantsjúk (Sovétíkin)
Nunn (England)
Salov (Sovétríkin) 2625
14. Jóhann Hjartarson 2620
15. Jusupov (Sovétríkin) 2615
16. Nikolic (Júgóslavía)
Seirawan (Bandaríkin)
Tal (Sovétríkin) 2610
19. Chandler (England) 2605
20. Hubner (V.-Þýskaland)
Sax (Ungverjaland)
Sokolov (Sovétríkin) 2600
23. Agdestein (Noregi)
Georgiev (Búlgaría)
Hort (V.-Þýskaland)
Kortsnoj (Sviss)
Vaganjan (Sovétríkin) 2595
28. Ftacnik (Tékkóslóvakía)
Gulko (Bandaríkin)
Bobby Fischer hefur komist hæst allra á Elo-stigalistanum. í dag eru liðin 16 ár frá „skákinni í borðtennis-
herberginu", þriðju einvigisskákinni örlagaríku í heimsmeistaraeinvíginu við Spassky i Reykjavik.
leikaflokkar skákmóta gefa til
kynna meðaltal Elo-stiga þátttak-
enda. Þannig er meðaltal stiga í
skákmóti af tíunda styrkleika-
flokki á bilinu 2476-2500 stig og í
móti af ellefta styrkleikaflokki er
meðaltal Elo-stiga 2501-2525 stig.
Stigaútreikningurinn byggist á
einfaldri reikniformúlu sem þó
yrði of langt mál að tíunda hér. í
sem fæstum orðum sagt: Skákmað-
ur sem hefur fleiri Elo-stig en með-
altal stiga andstæðinga háns í móti
er, þarf að fá ákveðið vinningshlut-
fall yfir 50% markinu til að halda
stigum sínum - samkvæmt reikni-
formúlunni góðu. Fái hann ennþá
meira, vinnur hann stig; fái hann
minna, tapar hann stigum.
Stigin fyrir sextán árum
Enn hefur engum tekist að slá
stigamet Bobby Fischers frá 1972. Á
listanum 1. júlí það ár hafði hann
2785 stig og bar höfuð og herðar
yfir aðra skákmenn. Boris Spassky
kom næstur með 2660 stig, síðan
Tigran heitinn Petrosjan og Lev
Polugajevsky með 2645 stig; Viktor
Kortsnoj og Lajos Portisch höfðu
2640 stig og fyrrverandi og verð-
andi heimsmeistarar Mikhail Bo-
Skák
Jón L. Árnason
iö raunar veriö leiðrétt, þannig að
sigurvegari í keppni getur ekki tap-
að stigum.
Kasparov þokast nær
Garrí Kasparov hækkaði um 10
stig frá listanum um áramótin og
eftir glæsilegan sigur hans á heims-
bikarmótinu í Belfort á dögunum á
hann enn eftir að hækka, líklegast
um 10-15 stig til viðbótar, að því
er fróðir menn segja. Mótinu í Belf-
ort lauk ekki fyrr en 4. júlí og verð-
ur þvi ekki reiknað til stiga fyrr en
1. janúar næstkomandi. Nú munar
25 stigum á Kasparov og Fischer frá
1972 en eftir mótið í Belfort er bilið
enn að minnka. Karpov hækkaði
einnig um 10 stig frá síðasta lista.
Þessir tveir eru í sérflokki en list-
inn yfir efstu menn lítur þannig út:
1. Kasparov(Sovétríkin)2760
2. Karpov(Sovétríkin)2725
3. Short (England) 2665
4. Beljavsky (Sovétríkin) 2655
5. Speelman (England) 2645
Ljubojevic (Júgóslavía)
Polugajevsky (Sovétríkin)
Tukmakov (Sovétríkin) 2590
Skákin í borðtennisherberg-
inu
Á stigalistanum nú eru talsvert
fleiri skákmeistarar með um og
yfir 2600 stig en voru fyrir sextán
árum. Breiddin er orðin miklu
meiri en að öðru leyti er saman-
burður torveldur. Fischer var lang-
sterkastur fyrir sextán árum og svo
virðist sem Kasparov hafi tekið við
hlutverki hans nú, þó að Karpov
sé e.t.v. á öðru máh.
Skákstíll Kasparovs er á stund-
um dálítið „Fischerslegur” en þó
er eins og hann tefli enn hvassar
en bandaríski heimsmeistarinn.
Fischer fór alla jafna beittustu leiö-
ina en hann reyndi samt eftir
fremsta megni að finna einfaldar
lausnir og fá skýrar línur í taflið.
Kasparov nýtur sín best þar sem
staðan er sem flóknust eins og
skákir hans frá heimsbikarmótinu
í Belfort bera vitni.
Það gæti verið fróðlegt að líta á
handbragð Fischers annars vegar
og svo Kasparovs til að fá einhvern
samanburð á taflmennsku kapp-
anna. Ég hef valið 3. einvígisskák
Fischers við Spassky í tilefni af því
að í dag, 16. júlí, eru nákvæmlega
sextán ár frá því hún var tefld. Um
leið er skákin dæmigerð fyrir tafl-
mennsku Fischers þó að hún sé
langt frá því að vera besta skákin
í einvíginu.
Fischer tapaði fyrstu einvígis-
skákinni og mætti svo ekki til leiks
er tefla átti 2. skákina, því að hann
taldi aðstaeður á skákstað ófull-
nægjandi. Útlit var fyrir að einvígið
myndi lognast út af en Fischer ák-
vað þó að mæta til leiks að nýju ef
3. skákin yrði tefld í lokuðu her-
bergi, án áhorfenda. Spassky sam-
þykkti þetta en eftir á að hyggja
taldi hann það hafa verið stórfelld
sálfræðileg mistök.
Ellefti leikur Fischers, 11. - Rh5!?
olli miklu fjaðrafoki, því að hann
var álitinn andstæður öllum
grundvallarreglum skákarinnar.
Spassky hitti ekki á besta fram-
haldið, nú er t.d. 13. Rdl og síöan
14. Re3 til að ná tökum á f5, tahð
betra en áætlun hans. Eftir hræði-
legan 18. leik sinn g3? (betra 18. Bg3
og síðan 19. f3) lendir Spassky svo
í ógæfulegri aðstöðu, því að kóngs-
peð hans er veikt í sessi. Síðari
hluti skákarinnar er kennslubók-
ardæmi um þaö hvernig þrýsta
skal að veikum peðum. Taflinu
leikur Spassky endanlega niður í
41. leik og eftir svarleik Fischers
sem jafnframt var biðleikur, gafst
hann upp.
Hvítt: Boris Spassky
Bobby Fischer
Benoni-vörn
1. d4 RfB 2. c4 e6 3. Rf3 c5 4. d5
exd5 5. cxd5 d6 6. Rc3 g6 7. Rd2 Rbd7
8. e4 Bg7 9. Be2 0-010.0-0 He811. Dc2
I
k 1 % iii
1 * i
1 A
A
&
á A A A
H A a*
ABCDEFGH
11. - Rh5!? 12. Bxh5 gxh513. Rc4 Re5
14. Re3 Dh4 15. Bd2?! Rg4! 16. Rxg4
hxg4 17. Bf4 Df6 18. g3? Bd7 19. a4
b6! 20. Hfel a6 21. He2 b5 22. Hael
Dg6 23. b3 He7 24. Dd3 Hb8 25. axb5
axb5 26. b4 c4 27. Dd2 Hbe8 28. He3
h5 29. H3e2 Kh7 30. He3 Kg8 31. H3e2
31. - Bxc3 32. Dxc3 Hxe4 33. Hxe4
Hxe4 34. Hxe4 Dxe4 35. Bh6 Dg6 36.
Bcl Dbl 37. Kfl Bf5 38. Ke2 De4+
39. De3 Dc2+ 40. Dd2 Db3 41. Dd4?
Bd3+ og Spassky gafst upp, því aö
42. Ke3 er svaraö með 42. - Ddl
með óviðráðanlegum hótunum.
Fischer hóf þessa skák með mikl-
um látum en síðan vann hann
markvisst úr yfirburðum sínum án
þess að flækja taflið óþarflega. Er
Kasparov er annars vegar er yfir-
leitt meira að gerast á skákborðinu.
Hér er skák hans við Short frá
heimsbikarmótinu í Belfort sem
ekki hefur birst áður í DV. Leikir
Kasparovs í miðtaflinu, 19. - Rb8!,
24. - Db4!! og 25. - e5! sem eru hver
öðrum sterkari eru grundvöllurinn
að fallegum sigri hans.
Hvítt: Nigel Short
Svart: Garrí Kasparov
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. f3 Be7 8.
Dd2 Rc6 9. g4 0-0 10. 0-0-0 Rd7 11.
h4 Rde5 12. Rxc6 bxc6 13. Be2 Hb8
14. g5 d5 15. Ba7 Hb7 16. Bd4 Rd7 17.
exd5 cxd5 18. f4 Da5 19. De3
19. - Rb8! 20. f5 Rc6 21. f6 Rxd4 22.
Hxd4 Bc5 23. fxg7 Hd8 24. Hhdl Db4!!
25. b3 e5! 26. Dxe5 Dxc3 27. Hxd5
Dxe5 28. Hxe5 Ba3+ 29. Kbl Hxdl +
30. Bxdl Hd7 31. Bg4 Hd4 32. Bf3
Kxg7 33. h5 h6 34. gxh6+ Kxh6 35.
Ha5 Bb4 36. He5 f6 37. He8 Bf5 38.
Hh8+ Kg5 39. Hb8 Ba3 40. h6 Hd2
og Short gafst upp.
Efstu íslendingarnir
Jóhann Hjartarson er í 14. sæti á
heimslistanum og hefur hlotið flest
stig íslenskra skákmanna frá upp-
hafi stigaútreiknings. Listi efstu
manna frá 1. júlí lítur þannig út.
Innan sviga eru óvirkir skákmenn
sem halda sínum stigum þó að nöfn
þeirra sé ekki að fmna á lista al-
þjóðaskáksambandsins.
1. Jóhann Hjartarson 2620
2. Jón L. Árnason 2535
3. Margeir Pétursson 2530
4. Helgi Ólafsson 2525 '
5. Friðrik Ólafsson 2485
6. Guðmundur Sigurjónsson 2465
7. Karl Þorsteins 2430
8. (Ingi R. Jóhannsson)
Þröstur Þórhallsson 2410
10. (Ólafur Magnússon) 2405
11. Hannes Hlífar Stefánsson 2395
12. Björgvin Jónsson 2375
13. Ingvar ÁSmúndsson 2360
14. Sævar Bjarnason 2340
15. Jón Kristinsson 2335
16. Benedikt Jónasson 2330
17. Andri Áss Grétarsson
(Björn Þorsteinsson)
(Jónas Þorvaldsson) 2325
20. Elvar Guðmundsson
(Jón Þorsteinsson) 2320
22. Jóhannes Ágústsson
Jón G. Viðarsson
(Jóhannes Gísli Jónsson)
(Jón Þ. Þór) 2315
26. Haukur Angantýsson 2300
27. Bragi Kristjánsson
Róbert Harðarson 2295
29. Ásgeir Þór Árnason
Guðmundur Gíslason
Gunnar Gunnarsson
Þorsteinn Þorsteinsson 2290
33. Benóný Benediktsson 2285
34. Dan Hansson
Sigurður Daði Sigfússon 2280
36. Amþór Einarsson
Davíð Ólafsson
Guðmundur Halldórsson
Halldór G. Einarsson
Magnús Sólmundarsson
Tómas Björnsson 2270
-JLÁ