Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Síða 53
LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988.
65
Afmæli
Bragi Krístjónsson
Bragi Kristjónsson, Sólvallagötu
30, Reykjavík, verður finuntugur á
morgun. Bragi er fæddur í Rvík og
varð stúdent frá Verslunarskóla
íslands 1958. Hann var kennari og
blaðamaður í Rvík og á Eyrar-
bakka 1959-1967 og fulltrúi og síðar
deildarstjóri greiðsluskila hjá ÍSAL
í Straumsvík 1968-1973. Bragi var
í námi í milliríkjaviðskiptum við
viðskiptaháskólann í Kaupmanna-
höfn 1973-1978 og var gjaldkeri hjá
Superfos í Kaupmannahöfn með
námi 1973-1975. Hann hefur verið
starfsmaöur hjá norska sendiráð-
inu í Rvík frá 1976 og jafnframt
rekið fombókaverslun í Rvík frá
1977. Rit: Landstólpar I-IV, 1959-
1962.
Bragi kvæntist 1. september 1966
Nínu Björk Ámadóttur, f. 7. júní
1941, skáldi. Foreldrar hennar em
Árni Sigurjónsson, b. á Hörgshóli
í Þverárhreppi í Vestur-Húna-
vatnssýslu, og kona hans, Lára
Hólmfreðsdóttir. Synir Braga og
Nínu em: Ari Gísli, f. 3. mars 1967;
Valgarður, f. 21. febrúar 1971, og
Ragnar ísleifur, f. 21. mars 1977.
Systkini Braga em: Jóhanna, f. 14.
febrúar 1940, blaðamaður í Rvík,
og Valgerður, f. 12. nóvember 1945,
bókaútgefandi í Rvík, gift Bimi
Theódórssyni, framkvæmdastjóra
hjá Flugleiðum.
Foreldrar Braga eru Kristjón
Kristjónsson, framkvæmdastjóri í
Rvík, og kona hans, Elísabet ísleifs-
dóttir. Föðurbróðir Braga er Berg-
steinn, faðir Harðar, bamalæknis
í Rvík. Annar föðurbróðir Braga
var Baldur, faðir Halldórs læknis á
Akureyri. Kristjón var sonur Krist-
jóns, b. í Útey í Laugardal,, Ás-
mundssonar, b. á Apavatni efra í
Laugardal, Eiríkssonar, b. á Gjá-
bakka í Þingvallasveit, bróður
Jóns, langafa Ólafs Ragnars Gríms-
sonar. Eiríkur var sonur Gríms,
b. á Nesjavöllum í Grafningi, Þor-
leifssonar, b. á Nesjavöllum, ætt-
föður Nesjavallaættarinnar, Guð-
mundssonar, b. í Norðurköti í
Grímsnesi, Brandssonar, b. á
Krossi í Ölfusi, Eysteinssonar,
bróður Jóns, fóður Guðna í Reykja-
koti, ættföður Reykjakotsættarinn-
ar, langafa Halldórs, afa Halldórs
Laxness. Guðni var einnig langafi
Guðna, langafa Vigdísar Finnboga-
dóttur.
Móöir Ásmundar var Guðrún
Ásmundsdóttir, b. á Vallá á Kjalar-
nesi, Þórhallssonar, og konu hans,
Helgu Alexíusdóttur. Móðir Helgu
var Helga Jónsdóttir, b. á Fremra-
Hálsi í Kjós, Ámasonar, ættfóður
Fremra-Hálsættarinnar.
Móðir Kristjóns Kristjónssonar
var Sigríður ljósmóðir, systir Vig-
dísar, ömmu Þorkels Bjarnasonar
hrossaræktarráðunautar. Sigríður
var dóttir Bergsteins, b. á Torfa-
stöðum í Fljótshlíð, Vigfússonar,
b. á Gmnd í Skorradal, Gunnars-
sonar. Móðir Vigfúsar var Kristín
Jónsdóttir, b. á Vindási á Landi,
Bjamasonar, b. á Víkingslæk, Hall-
dórssonar, ættfóður Víkingslækj-
arættarinnar. Móöir Bergsteins
var Vigdís Auðunsdóttir, prests á
Stóruvöllum, Jónssonar, langafa
Jóns, fóður Auðar Auðuns og bróö-
ur Amórs, langafa Hannibals
Valdimarssonar, foður Jóns Bald-
vins.
Móðir Sigríðar var Kristín Þor-
steinsdóttir, b. á Norður-Hvoli í
Mýrdal, Magnússonar. Móðir Þor-
steins var Sigríður Þorsteinsdóttir,
systir Bjama amtmanns, fóður
Steingríms Thorsteinssonar
skálds. Móöir Sigríðar var Kristín
Hjartardóttir, b. á Norður-Hvoli,
Loftssonar, bróður Ólafs, langafa
Ingigerðar, langömmu Páls, fóöur
Þorsteins forsætisráðherra.
Elísabet er dóttir ísleifs, kaup-
manns og gamanvísnaskálds á
Sauðárkróki, bróður Dórótheu,
ömmu Elsu Kristjánsdóttur, odd-
vita í Sandgerði. ísleifur var sonur
Gísla, b. á Ráðagerði í Leiru, Hall-
dórssonar, b. í Skeiðháholti á
Skeiðum, Magnússonar. Móðir
Halldórs var Guðrún Ámadóttir,
prests í Steinsholti, Högnasonar
„prestaföður" Sigurðssonar. Móðir
Isleifs var Elsa Jónsdóttir, b. í
Hvammi undir Eyjafjöllum,
Sveinssonar, og konu hans, Ólafar
Þórðardóttur, systur Hlaðgeröar,
ömmu Jóns Laxdals tónskálds, afa
Ragnars Amalds.
Móðir Elísabetar var Valgerður
Jónasdóttir, b. í Keldudal í Hegra-
nesi, Halldórssonar og konu hans,
Helgu Steinsdóttur, systur Kristín-
ar, ömmu Jóns skjalavarðar og
Margrétar, deildarstjóra í félags-
málaráðuneytinu, Margeirsdóttur.
Bjöm Hermannsson
Bjöm Hermannsson brunavörð-
ur, Holtagerði 30, Kópavogi, er
fimmtugur í dag.
Bjöm fæddist að Miklahóli í
Skagafirði og ólst þar upp. Hann
lærði rennismíði en hefur síðustu
tuttugu og tvö árin starfað hjá
Slökkviliöi Reykjavíkur sem
bmnavörður.
Björn kvæntist 11.4. 1964 Guð-
rúnu Jónsdóttur og eignuðust þau
tvær dætur. Þær eru Rannveig
Steinunn og Bima Jóna.
Systur Bjöms em: Anna, hús-
móðir, gift Hjalta Haraldssyni að
Garðshomi í Svarfaðardal; Sigríð-
ur, húsmóðir, gift Jóni Júlíussyni
í Reykjavík; Sigurlaug, húsmóðir,
gift Hjalta Krisfjánssyni á Hjalta-
stöðum í Þingeyjarsýslu; Heiðrún
Dísa, bréfberi í Reykjavík; Sigrún
bréfberi í Reykjavik; og Hallfríður.
Foreldrar Björns em Jónína
Jónsdóttir og Hermann Sveinsson,
b. á Miklahóli í Skagafirði.
Bjöm og kona hans eru á Mall-
orca á afmælisdaginn.
Sigfús G. Þorgnmsson
Sigfús G. Þorgrímsson lögreglu-
varðstjóri, Sléttahrauni 22, Hafnar-
firði, varð sextugur í gær.
Hann fæddist á Geirmundar-
hólum í Sléttuhlíð í Fellshreppi í
Skagafirði en ólst upp á Bræðraá í
Skagafirði. Hann stundaði m.a.
nám við Samvinnuskólann og lauk
þaðan prófi 1950.
Sigfús var hótelstjóri á Hótel
Hvanneyri á Siglufirði 1951-52, rak
verslun á Siglufirði 1952-54, var
skrifstofumaður hjá bandaríska
byggingafélaginu WHSB á Kefla-
víkurflugvelli 1954-55, síðan skrif-
stofumaður og lögreglumaður hjá
lögreglustjóra Keflavíkurflugvall-
ar, en Sigfús hefur verið lögreglu-
varðsfjóri sl. tuttugu ár.
Kona hans er Jónía Inga Harðar-
dóttir.
Sigfús og Jónína Inga eignuðust
fjóra syni. Þeir em: Sigurður, f.
23.7. 1951; Hörður, f. 10.7. 1953;
Margeir Þórir, f. 19.7.1959, og Sig-
fús, f. 29.8. 1960.
Foreldrar Sigfúsar: Sigríður Sig-
fúsdóttir og Þorgrímur Guðbrands-
son bóndi.
Sigfús er að heiman um þessar
mundir.
Jenný Sólborg
Jenný Sólborg Franklínsdóttir,
Refsstöðum, Hálsahreppi í Borgar-
firði, er fimmtug í dag.
Jenný fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Borgarfirðinum þar sem hún
var til sautján ára aldurs. Hún
starfaði um skeið við hótelið að
Fomahvammi hjá Páli Sigurðs-
syni, ráðsmanni þar, og vann við
verslunarstörf á Akranesi.
Fyrri maður Jennýjar var Gunn-
ar Guðvarðarson loftskeytamaður,
f. 17.10.1940, og eignuðust þau tvö
böm. Þau eru Ágústa Ólöf, hús-
móðir Qg fiskvinnslukona á Akra-
nesi, f. 18.2.1959, gift Vilhjálmi Diö-
rikssyni, bifvélavirkja og starfs-
manni slippstöðvarinnar á Akra-
nesi, og eiga þau einn son, og Guð-
laugur Kristinn, sjómaöur á Akra-
nesi, sambýliskona hans er Sig-
gerður Sigurðardóttir þroska-
Franklínsdóttir
þjálfanemi. Jenný og Gunnar slitu
samvistum.
Seinni maður Jennýjar er Dag-
bjartur Kort Dagbjartsson, f. 16.9.
1942, og sonur þeirra Jennýjar er
Sigurður Árni, f. 8.11.1978.
Foreldrar Jennýjar: Franklín
Steindórsson, lengi starfsmaður
hjá Shell í Reykjavík, f. 16.2. 1914,
d. 1967, og kona hans, Ágústa Rósa
Andrésdóttir, f. 15.11.1915.
Foreldrar Franklíns vom Stein-
dór Nikulásson, vélstjóri í Reykja-
vík, og Jenný Helgadóttir, hafn-
sögumanns í Reykjavík, Teitsson-
ar. Foreldrar Ágústu vom Andrés
Jóhannsson, b. á Bakka í Bjarnar-
firði, og kona hans, Júlíana Guð-
mundsdóttir.
Jenný tekur á móti gestum í fé-
lagsheimilinu Brúarási á afmælis-
daginn, eftir klukkan 17.00.
Valdimar Helgason
Sigurbjörn Valdimar Helgason
leikari, Skaftahlið 12, Reykjavík,
varð áttatíu og fimm ár í gær.
Valdimar fæddist í Gunnólfsvík í
Skeggjastaðahreppi en var alinn
upp að Ásseli á Langanesi.
Valdimar var skrifstofumaður
hjá Skipaútgerð ríkisins 1930-32,
sölumaður og fulltrúi hjá ÁTVR
1932-61 og fulltrúi þar frá 1961-73.
Valdimar var leikari hjá Leik-
félagi Reykjavíkur frá 1931-50 og
hjá Þjóðleikhúsinu 1950-82. Hann
hefur tekið þátt í leiksýningum
einkaleikflokka í Reykjavík og far-
ið leikferðir um landið, auk þess
sem hann hefur leikið fjölda hlut-
verka í Ríkisútvarpið.
Valdimar sat í stjóm Finnlands-
vinafélagsins í fjölda ára. Hann sat
í stjóm Félags Þingeyinga í Reykja-
vík 1942-61.
Kona Valdimars er Jóhanna, f.
7.4. 1903, dóttir Bjöms, 'b. á Grjót-
nesi á Melrakkasléttu, Sigurðsson-
ar og konu hans, Vilborgar Sigríðar
Guðmundsdóttur.
Sonur Valdimars og Jóhönnu er
Amaldur, varadeildarstjóri sölu-
skattsdeildar á Skattstofunni í
Reykjavík, f. 12.8. 1936, og á hann
fjögur böm.
Valdimar átti fjóra bræður og er
einn þeirra nú á lífi: Bræður hans:
Hólmsteinn, útgerðarmaður á
Raufarhöfn, f. 1893, lést sl. vor; Jón-
as, b. á Hlíð á Langanesi, f. 1896,
d. 1978; Páll, lengst af verkamaður
á Raufarhöfn, f. 1907, og Jón, sem
lengi var búsettur í Reykjavík, f.
1912, d. 1982.
Foreldrar Valdimars vom Helgi
Sigurður Pálsson, síðast b. í Ásseli
í Sauðaneshreppi á Langanesi, og
kona hans, Arndís Karitas Sig-
valdadóttir.
Helgi var sonur Páls, b. í Byrgi,
bróöur Ingibjargar, langömmu
Guðmundar Bjarnasonar heil-
brigðisráðherra. Páll var sonur
Guðmundar, b. á Litluströnd í
Mývatnssveit, bróður Björns, lang-
afa Bjöms á Hróaldsstöðum, lang-
afa Halldórs sjávarútvegsráherra.
Guðmundur var sonur Páls, b. í
Brúnagerði, Guðmundssonar,
bróður Þorgerðar, langömmu Guð-
mundar, afa Sigurðar Guðmunds-
sonar vígslubiskups. Önnur systir
Páls var Halldóra, langamma Guö-
laugs, langafa Kristins Sigtryggs-
sonar, forstjóra Arnarflugs. Móðir
Helga var Guðrún Jónasdóttir, b. á
Hólum í Laxárdal, Sigfússonar.
Arndís Karitas var dóttir Sig-
valda, b. á Þorsteinsstöðum á
Langanesi, Eiríkssonar. Móðir
Arndísar var Sigurbjörg Sigurðar-
dóttir, b. á Hróaldsstöðum í Vopna-
firði, Jónssonar. Móðir Sigurðar
var Guðrún Jónsdóttir, systir Jóns,
langafa Halldórs, foður Ragnars,
stjórnarformanns ísals.
Birgir Guðmundsson
Birgir Guðmundson, fyrrv. bryti
hjá Landhelgisgæslunni, en nú
húsvörður í Morgunblaðshúsinu,
til heimilis að Hátúni 6, Reykjavík,
er sjötugur í dag.
Kona Birgis er Ingileif Friðleifs-
dóttir, matráðskona hjá Kennara-
háskóla íslands.
Bræður Birgis eru Ólafur Guð-
mundsson, fyrrv. útibússtjóri Bún-
aðarbanka íslands í Stykkishólmi,
f. 17.8.1916, og Haukur Guömunds-
son, skrifstofustjóri hjá Reykjavík-
urborg, f. 29.12.1921.
Móðursystkini Birgis eru Jón
Grímsson, lögfræðingur á ísafirði;
Sigurður Grímsson, rithöfundur og
borgarfógeti; Grímur Grímsson
prestur; Hildur Grímsdóttir í
Kaupmannahöfn og Kristín Gríms-
dóttir, ekkja í Reykjavík.
Foreldrar Birgis voru Guðmund-
ur Ólafsson, hrl. og framkvæmda-
stjóri Brunabótafélags íslands, f.
5.6.1881, d. 22.5.1935, og kona hans,
Sigríður Grímsdóttir húsmóðir, f.
17.4. 1892, d. 2.9. 1973.
Foreldar Sigríðar voru Grímur
Jónsson; guðfræðingur og skóla-
stjóri á Isafirði, og kona hans, Ing-
veldur, systir Önnu, langömmu
Ólafs ísleifssonar, efnahagsráðu-
nautar ríkisstjórnarinnar. Ingveld-
ur var dóttir Guðmundar, prests í
Amarbæli, Johnsen, bróður Ingi-
bjargar, konu Jóns forseta. Bróðir
Guðmundar var Ólafur, faðir Þor-
láks Johnsen, kaupmanns í
Reykjavík, afa Arnar Johnsen,
fyrrv. forstjóra Flugleiða. Guð-
mundur var sonur Einars Jónsson-
ar, kaupmanns í Reykjavík, bróður
Sigurðar, fóður Jóns forseta.
Grímur var sonur Jóns, prests á
Gilsbakka, Hjartarsonar og konu
hans, Kristínar Þorvaldsdóttur,
prófasts og skálds í Holti undir
Eyjaíjöllum, Böðvarssonar, fóður
Þuríðar, langömmu Vigdísar for-
seta.
Faðir Guðmundar Ólafssonar var
Ólafur fríkirkjuprestur, bróðir Ól-
afíu, móður Grétars Fells. Önnur
systir Ólafs var Valgerður, amma
læknanna Stefáns og Þorsteins Ól-
afssona. Ólafur prestur var sonur
Ólafs Ólafssonar, bæjarfulltrúa og
dbrm. í Reykjavík, og konu hans,
Ragnheiðar Þorkelsdóttur.
Birgir verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Arin sem stúdentar og verkamenn
sameinuðust i harðvítugri
baráttu gegn ofriki ríkisstjórna
hins vestræna heims.
Allt um það og lygilegustu
uppákomur þessarar aldar . . .
Upplögð atmælisgjöf.