Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Qupperneq 60

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.1988, Qupperneq 60
 Handknattieikur: íslenska liðið sprakk í lokin Jón Kristján Sigurösson, DV, Magdeburg: Islenska landsliöið í handknattleik tapaöi leik sínum gegn þvi sovéska á alþjóðlega mótinu í Austur-Þýska- landi í gær. Lokatölur 24-28 eftir aö íslenska liöið hafði haft \dir í leik- hléi, 12-11. F\Tri háhleikurinn var mjög vel leikinn af íslands hálfu og komust okkar menn i 12-7. íslenska liðiö hafði síöan forystuna þar til að Sov- étmönnum tókát að jafna 18-18. Þeg- ar hér var komið sögu virtist úthald íslensku leikmannanna á þrotum og Sovétmenn héldu sínu striki. Mörkin f\TÍr ísland: Alfreð Gísla- son 7 3, Páll Ólafsson 4, Þorgils Óttar Mathiesen 3, Karl Þráinsson 2, ^Kristján Arason 2, Atli Hilmarsson 2, Sigurður Sveinsson 2 2, Guðmund- ur Guðmundsson 1 og Geir Sveins- son 1. íslendingar leika í dag gegn Vest- ur-Þjóðverjum um þriðja sætið á mótinu en Sovétmenn leika gegn Austur-Þjóðverjum til úrslita. LOKI Hvernig ætli Helgarpósturinn hefði fjallað um svona mál? Útgáfufyrirtæki Helgarpóstsins kærtfyrir fjáidrátt Blaðamannafélag íslands hefur ákveðið að senda til saksóknara kæru á hendur útgáfufélags Helgar- póstsins vegna fjárdráttar. Aö sögn Lúövíks Geirssonar, formanns BÍ, þá kom í ljós, þegar lögfræöingur félags- ins var að vinna að innheimtu launa, að útgáfufélagið hafði ekki greitt inn- heimta skatta af launum til Gjald- heimtunnar. Síöan í janúar hefur verið tekið af launum vegna staðgreiðslu skatta en ekkert af því borist til Gjaldheimt- C' ifnnar. Fénu hefur því verið haldið eftir. Er hér um að ræða eina milljón sem fyrirtækið hefur haldið eftir í rekstrinum. Þá mun fyrirtækið skulda um tvær milljónir vegna van- goldinna launa. -SMJ Leynimakk í ferskfisksölunni: Ráðuneytið neitar w að gefa upplýsingar - talið víst að kvótinn sé sprunginn Enginn fær að vita hvérnig út- fiutningskvótaá ferskum þorski og ýsu er ráðstafað. Án þess að nefna ástæðu neitar Stefán Gunnlaugs- son i viðskiptadeild utanrikisráðu- neytisins að gefa upp hverjir fái að fljíja út ferskfisk og hve mikiö verði flutt út. Líklegt er aö vikuleg- ur 600 tonna kvóti á ýsu og þorski sé sprunginn og veitt hafi verið leyfi tíl að flytja út mun meira. I gær sat fimm manna nefnd á lokuðum fúndi í utanrikisráðu- neytinu og defidi út útflutnings- ieyfum á þorski og ýsu. Nefndar- menn komu sér saman um að halda leyndum umsækjendum um út- flutningsleyfi og ekki fékkst upp- gefið hveijir njóta góös af skömmt- uninni. Leynimakkið gefur þeim orðrómi byr undir báða vængi að sterkir hagsmunaaöilar í sjávarútvegi ætb með aðstoð ríkisvaldsins að útiloka aðra írá því að geta selt sinn fisk á erlendum fiskmörkuðum. Á sama tlma er verðfall á fiskmörkuðum hérlendis þannig að áhrifasnauðir útgerðarmenn og sjómenn eru dæmdir til að selja fiskinn á lág- marksverði nema 600 tonna kvót- inn sé stórhækkaður. DV hafði af því spumir að fjórir aðilar hefðu sótt um útflutnings- leyfi fyrir .stærstum hluta þeirra 600 tonna sem stóðu til boða. Á sama tima í fyrra voru fiutt út tæp 1500 tonn af ferskum þorski og ýsu. Þeir sem fluttu út í fyrra fá sjálf- krafa leyfi til að flytja út helming þess magns. Því er ólíklegt að tek- ist hafi að halda útflutningsleyfum undir 600 tonna markinu. Stjómvöld ákváðu í sumar aö takmarka útflutning á ferskum fiski vegna þess að það kemur oft fyrir að sumarlagi aö offramboð er á íslenskum fiski á einstökum mörkuðum í Bretlandi og Þýska- landi Nánast fyrirvaralaust var samin reglugerð um að takmarka vikulegan útflutning á ýsu og þorski við samtals 600 tonn. Reglu- gerðin gildir til septemberloka. Landssamband útgerðarmanna mótmælti ákvöröun stjómvalda og taldi reglugerðina taka til of langs tíma og að ekki þyrftí aö takmarka útflutning á ýsu, Reglugerðin getur kippt fótunum undan fyrirtækjum og bátum sem nýlega hafa byijað útflutning þar sem kveðið er á um að þau skuli mæta afgangi þegar kvótanum er úthlutað. Með því að halda kvóta- skiptingunni leyndri veröur erfið- ara um vik að meta ásakanir sem komið hafa fram um aö ákveðnir aðilar í sjávarútvegi reyni meö aö- stoð sjórnvalda að eigna sér er- lenda fiskmarkaöi sem hingaö til hafaveriðöllumopnir. pv Sniglarnir ásamt Ómari Smára Ármannssyni, aðalvarðstjóra umferðadeildar, t.v., og Sturlu Þórðar- syni, fulltrúa lögreglustjóra, fyrir utan Félagsmiðstöð Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði. Þar hafa Sniglarnir fundaaðstöðu. DV-mynd S Veðrið á sunnudag og mánudag: Hæg breyti- leg átt Á sunnudag og mánudag verð- ur fremur hæg breytileg átt á landinu. Víða bjart veður og 12 til 17 stiga hiti inn til landsins en svalara og sums staðar skýjað viö ströndina. Sniglar og lögregla: Reynt að bæta samskiptin „Niöurstaða þessa fundar okkar með Sniglunum varð sú að allir gerðu sitt besta til að samskipti okk- ar yrðu sem best. í upphafí fundarins voru nokkuð skiptar skoðanir, en þegar á leiö urðu umræðurnar lífleg- ar og margar hugmyndir komu úr báðum áttum. Þetta er vonandi upp- hafið að góðum samskiptum milli þessara aðila," sagði Ómar Smári Ármannsson, aöalvarðstjóri umferð- ardeildar lögreglunnar, við DV. Töluvert hefur verið um alvarleg umferðarlagabrot á mótorhjólum undanfarið. Hafa umræður um þau verið nokkrar. Sniglunum hefur þótt þeir vera settir undir sama hatt og allir lögbrjótarnir og ekki verið alls kostar ánægðir með þaö. „Viðhorf okkar til þeirra og þeirra til okkar voru rædd. Á bak við hjálm- inn og gallan er venjulegt fólk sem þarf að taka tillit til eins og annarra. Meðal þess sem við heyrðum var að ökukennslu á mótorhjól væri mjög ábótavant og viðhorf lögreglu við afskipti af þeim gæti verið betra. Það er nauðsynlegt að heyra áht þeirra. Eins geta þau gengið á undan með góðu fordæmi og kveðið niður for- dóma gagnvart mótorhjólafólki,“ sagði Ómar. Loks var talað um möguleika á svipaðri braut fyrir Sniglana og kvartmílumenn hafa, þar sem fólk fengi útrás fyrir leikþrána. -hlh Þorsteinn hhttir Reagan Þorsteinn Pálsson forsætisráð- herra hefur þegið boð forseta Banda- ríkjanna, Ronalds Reagan, um að koma í heimsókn til Bandaríkjanna. Fundur forsætisráðherra með Bandaríkjaforseta verður í Hvíta húsinu miðvikudaginn 10. ágúst. JFJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.