Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Blaðsíða 7
7 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988. Fréttir Iðnrekendur gagnrýna HeilMgðiseftiriHið: Órokstuddar staðhæfingar „Staöhæfingar um aö íslenskir framleiðendur falsi oft innihaldslýs- ingar vísvitandi eru órökstuddar og óábyrgar" segir í yfirlýsingu frá Fé- lagi íslenskra iðnrekenda. Þar er að finna harðorða gagnrýni á yfirlýsingar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um notkun ólöglegra aukefna'í íslenskum matvælaiðnaði. Segir að fullyrðingar Heilbrigði- seftirlits Reykjavíkur um íslenska framleiðendur í matvæla-, og drykkj- arvöruiðnaði séu. Heilbrigðiseftirlit- ið hafi fullyrt að ástand á umbúða- merkingum sé mun verra á innlend- um neysluvörum en erlendum. AI- hæfingar sem þessar séu órökstudd- ar og ekki sannleikanum samkvæm- ar, segir í yfirlýsinbgunni. Máli sínu til stuðnings vísar félagiö í könnun sem þaö gerði ásamt Neyt- endasamtökunum um ástand á um- búðamerkingum á neysluvörum hér á landi. Þar hafi komið fram að ástandið reyndist sýnu verra á inn- fluttu vörunum en þeim innlendu. -PLP Svar Heilbrigðiseftirlitsins: Slæmt ástand er hjá báðum „Ég ætla ekki að fara að kýta við Félag íslenskra iðnrekenda um hvort það séu fleiri erlendir en inn- lendir framleiðendur sem merkja ekki samkvæmt íslenskum lögum og reglum, ástandið er fremur slæmt hjá báðum,“ sagði Oddur Rúnar Hjartarsson hjá Heilbrigði- seftirliti Reykjavíkur í samtali við DV. Oddur sagði ennfremur að þegar um málið var fjallað í fréttum hefðu innflytjendur að mestu verið afgreiddir og var Heilbrigðiseftir- litið fyrst og fremst að eiga við inn- lenda framleiðendur. „Staðreyndin er sú að í báðum hópunum er að finna aðila sem ekki hafa merkt samkvæmt íslenskum lögum og reglum. Neytendur eiga heimtingu á að reglugerð, sem hefur verið í gildi í tólf ár, sé virt. Félag ís- lenskra iðnrekenda ætti frekar að beina spjótum sínum að þeim fram- leiðendum sem standa sig illa en að kenna okkur um brotið.“ -PLP Númer margra bíla fjúka Af þeim 142 bílum sem færðir voru til skoðunar síðusstu tvo daga misstu 16 númerin umsvifalaust og 86 fengu rauðan miða. Rauður miði þýðir að akstur á vegmn sé bannaður nema á verkstæði og þaöan í skoðun. Að sögn Ómars Smára Armanns- sonar aðalvarðstjóra var ástæða til að klippa númerin af mun fleiri bíl- um en þessum 16. Rassía lögreglunn- ar mun standa fram að helgi. -hlh Kodak Filma Ölympluleikarma í LANDSBANKANUM FÆRÐU DOLLARA, PUND, MÖRK, FRANKA, PESETA, FLÓRÍNUR, ESCUDOS OG LÍRUR HVORT SEM ÞÚ VILT í SEÐLUM EÐA FERÐATÉKKUM DUfeH- g þá er ekki allt upp talið. í öllum afgreiðslum Landsbankans geta ferðalangar nánast fyrirvaralaust gengið að gjaldmiðlum allra helstu viðskiptalanda okkar vísum. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar eru ávallt fyrirliggjandi, í öllum helstu gjaldmiðlum. Við minnum líka á Visakortið, - athugaðu gildistímann áður en þú leggur af stað. ósa^TslA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.