Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Blaðsíða 41
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
61
DV
Lífsstm
Veglegar hallir saltinu að þakka:
______________________ ^ v
Salzburger Land
Salzburger Land er eitt af níu fylkj-
um Austurríkis. Flestir kannast viö
nafniö Salzburg en þaö er höfuöborg
fylkisins. Hún er ein af þekktari
borgum Evrópu en héraöið hefur upp
á margt annað aö bjóða en þessa
frægu borg.
Land saltsins
Fylkið er 7.154 ferkílómetrar aö
stærö og þar búa um fjögur hundruð
og fjörutíu þúsund manns. Nafniö á
héraðinu má rekja til aðaltekjulindar
þessa svæðis til foma, sem var sal-
tið. Auöæfin sem saltvinnslan skap-
aöi komu héraðinu og sérstaklega
borginni Salzburg til góða. í gegnum
aldirnar hafa veglegar byggingar og
halhr verið reistar fyrir saltauðinn.
Fylkið var undir stjóm hinna ýmsu
prinsa þar til 1816 en þá sameinaöist
það Austurríki. Katólskir biskupar
prinsar stjórnuöu fylkinu i áratugi
og er katólska ríkjandi trú í héraðinu
eins og annars staðar í Austurríki.
Vatnið Wolfgang
Fylkið skiptist í fimm svæði. Þau
eru Flachgau, Tennengau, Pongau,
Kortið sýnir svæðin fimm sem tilheyra fylkinu Salzburger Land. Á minna
kortinu sést hvar fylkið er í Austurríki.
t Pinzgau er hægt að stunda skíði sumar sem vetur. Fegurð fjallanna er
heillandi og fólki finnst eins og þaö sé statt í póstkortamynd.
Pinzgau og Lungau. Þessi fimm
svæði eru ekki aðeins sjálfstæð efna-
hagssvæöi heldur eiga þau einnig
mismunandi sögu og arfleið.
í Flachgau er höfuðborgin Salz-
burg. Þar er einnig frægt vgtnasvæði
sem teygir sig norður af borginni.
Þó að nafnið Flachgau þýöi flatn-
eskja er það ekki fullkomin lýsing á
Ferðir
svæðinu. Við rætur íjallanna höfðu
keisarar fyrri tíma sumarhallir sín-
ar.
Vatniö Wolfgang er trúlega frægast
þeirra vatna sem em í þessu héraöi.
Vötnin í Flachgau eru einstaklega
hlý á sumrin og mjög vinsæl af fólki
sem sækir í útiveru.
Yngsta svæðiö er Tennengau sem
er fyrir sunnan Salzburg. Þar stend-
ur borgin Hallein en hún var aösetur
kelta fyrr á tímum. Keltar byrjuðu á
saltnámi í Tennengau upp úr átta
hundruð eftir Krists burð. Saltnám-
urnar í Tennengau eru mjög sér-
kennilegar og þess virði að skoða
þær.
Skíði sumar og vetur
Ef ferðast átti til fjallasvæðisins
Pongau fyrir hundraö árum þurfti
að fara erfiðar leiðir í gegnum Lueg
íjallaskarðið. Nú er auðveldlega
hægt að komast þangað eftir hrað-
brautum og með járnbrautarlestum.
Vatnasvæði Flachgau er vinsælt meðal sumarferðalanga. Hitastig vatnanna
er notalegt til baða og íþróttaiðkana.
Pongau er þekkt fyrir baðstaði sína.
Þar eru heimsþekktar lindir sem
hægt er að baða sig í. Þessi böð éru
sögð holl og góð fyrir heilsuna. Pon-
gau er einnig paradís fyrir þá sem
hafa áhuga á gönguferðum. Fallegar
leiðir liggja um héraðið og henta sér-
lega vel til slíkra ferða.
Pinzgau er stærsta fjallahéraöið í
Salzburger Landi. Þar eru frægir
ferðadvalarstaðir, eins og Zell am
see, Kaprrun og Saalbach. Hægt er
að fara á skíði bæöi sumar og vetur.
Dalir og vötn gefa góða möguleika
til sumardægradvalar. í Pinzgau er
Hohe Tauern þjóðgarðurinn. Þar eru
meðal annars Krimmler-fossarnir
sem eru þeir hæstu í Evrópu.
Síðast en ekki síst ber að nefna
syðsta héraðið, Lungau. Þetta svæði
er mjög vinsælt meðal ferðamanna
og talið mjög fallegt. Þarna eru í
heiðri hafðir gamlir siðir, svo sem
að skreyta stangir á torgum með
blómum. Fjöldi kastala og herrasetra
er í þessu héraði og rómantíkin svíf-
ur yfir vötnum.
í Salzburger-landi er mikil áhersla
lögð á móttöku ferðamanna. Þaö leið-
ir af sjálfu sér þar sem þjónusta við
ferðamenn er ein aðaltekjulind þessa
héraðs. Austurríkismenn hafa sér-
hæft sig í þessari þjónustu og telja
sig fremsta meðal jafninga í þeim
efnum.
í héraðinu eru yfir 120 þorp sem
bjóða upp á ferðamannaþjónustu.
Gistirými eru um tvö hundruð og
fimm þúsund. Milljónir manna
heimsækja Salzburger Land allt árið
og virðist sem vinsældunum linni
ekki á næstu árum. -EG.
Kíeppsvegi 150 simi 84860
OPIÐ
á laugardögum
frá kl. 10-16.
Opið alla virka daga
til kl. 20.
Fáðu þér snúning meðan þú borðar
Úr sjónvarpsturninum í Hamborg er stórkostlegt útsýni yfir borgina.
Turninn snýst þonnig oð þú fœrð oð sjá hono ollo meðon þú
borðor góðon mot.