Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
11
Utlönd
■y&A | | gSk I HAA éSÉB^ I ■ ■ HAA
mioia maium
Gizur Hedgaðcn, DV, Reeranæs:
Utaxiríkisráðherra V-Þýskalands,
Hans Dietrich Genscher, mun á
morgun hitta aö máli leiðtoga Sov-
étrikjanna, Michail Gorbatsjov, í
Moskvu. Genscher vonast til að fó
nánari útskýringar á tillögum Var-
sjárbandalagsins um hernaðarlegt
jafnvægi í Evrópu.
Auk Gorbatsjovs mun hann hitta
starfsbróöur sinn, Edvard Sé-
vardnadse, að máli en hann hefur
nú nýverið vakið athygli um heim
allan fyrir að gagnrýna utanrQds-
málastefnu Sovétríkjanna síðast-
liðin tiu ár.
Opinberiega er talað um að heim-
sókn Genschers sé til þess að und-
irbúa opinbera heimsókn Hehnuts
Kohl kanslara tH Moskvu i lok okt-
óber. Genseher hefur að undanf-
ömu veriö mikið á ferðinni en talið
er aö þessi skotferð hans til
Moskvu sé aðallega farin til þess
aö hægt verði að undirrita samn-
inga sem nú eru til umræðu í Vín-
arborg en þar eru þijátíu og flmm
lönd frá Austur- og Vestur-Evrópu
aö raeða um valdahlutfóllin og
styrkleika heija í austri og vestri.
Gert er ráö fyrir að fljótlega komi
í ijós hvort endar ná saman.
Aöalatriðiö i endanlegum samn-
ingi er að ákveða hvort koma eigi
á laggirnar alþjóðlegri ráðstefnu
um fækkun hefðbundinna vopna
ogheija.
Genscher þrýstir á
Genscher hefur bæði ieynt og
Ijóst hvatt Vesturlönd tU þess aö
grípa i framrétta hönd Gorbatsjovs.
Haim þrýstir því á að samningar
um jafhvægi í heijum og hergögn-
um verði settir af stað þegar á
þessu ári.
Síðastliðinn mánudag birtist
greinargerð eftir Genscher þar sem
hann benti á að jafnvægið milli
austurs og vesturs í heijum og her-
gögnum væri aðalatriðið þegar
rætt væri um öryggi Evrópu.
Genscher benti á að Varsjárbanda-
lagsríkin hefðu á toppfundi sinum
í Varsjá komið til móts viö óskir
Atlantshafsbandalagsins á mörg-
um sviðum. Sá möguleiki sem nú
væri fyrir hendi að ná jafnvægi á
milli þessara tveggja bandalaga
mætti ekki fára til spillis.
Helaumt viöfangsefni
Genscher benti einnig á það
vandamál í greinargerð sinni að
erlend ríki heföu herafla í öðrum
ríkjum. Þar var hann að ræða um
herafla Sovétmanna í A-Þýska-
landi, Póllandi og Tékkóslóvakíu
og herafla Bandarikjanna í V-
Þýskalandi En það er vitaskuld
helaumt viöfangsefni.
Genscher benti á að tillögur V-
Evrópu innihéldu einmitt tak-
markanir við staðsetningu heija á
erlendum landsvæöum. Genscher
fagnaði þeirri yfirlýsingu Varsjár-
bandalagsins að herstyrkurinn
skyldi eingöngu takmarkast við
varnaraðgeröir og aö hann, miðað
við uppbyggingu og vopn, raætti
alls ekki nota til árása.
Yflrlýsingar Genschers hafa nú
þegar fengið stuðning frá skrifstof-
um kanslaraembættisins í Bonn og
auk þess, öllum tíl undrunar,
stuðning frá framkvæmdastjóra
Atiantshafsbandalagsins, Manfred
Wömer, sem annars, sem v-þýskur
varaarmálaráðherra, var ætíð
verulega hógvær og varkár þegar
Genscher var á ferðinni með vin-
áttuhugmyndir sinar varðandi A-
Evrópu.
Nýrkapítuli
Þegar kanslari V-Þýskalands,
Helmut Kohl, fer í opinbera heim-
sókn til Sovétríkjanna í október
vonast hann til aö geta hafið nýjan
kapítula í samskiptum V-Þýska-
lands og Sovétríkjanna. V-Þýska-
land vill nú leika eins konar mála-
miðlunaraðila í slökunarstefnu V-
og A-Evrópu en V-Þýskaland vill
einnig auka áhrifamátt sinn í evr-
ópskum stjómmálum, eða svo segir
stjómmálalegur ráðgjafi Kohls.
Merkin frá Sovétríkjunum eru
jákvæð og það veröur aö fullnýta.
Bonn ætlar sér - sem einn þátt í fiár-
málasamvinnu - að þjóðast til þess
að veita sovéskum hagfræðingum
aukna menntun í V-Þýskalandi, í
v-þýskum iðnaöarháskólum. Menn
eru afar spenntir i Bonn aö sjá hvort
fijálslyndisstefiia Gorbatsjovs nær
svo langt aö Sovétmenn viðurkenni
að þeir geti lært heilmikiö af v-
þýskri fjármálasnilld.
Hans Dietrich Genscher, utanrikisráðherra V-Þýskalands, sem er á for-
um til Moskvu, hefur bæði ieynt 09 ijóst hvatt tit að Vesturlönd grípi í
tramrétta hönd Gorbatsjovs. Simamynd Reuic-r
.._J
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RlKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1984-1. fl.A 01.08.88-01.02.89 kr. 325,92
"Innlausnarverö er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júlí 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS
Skyldaðir í
dönskunám?
Sumarliði ísleifason, DV, Arósum:
Danskir sósíaldemókratar hafa
lagt til aö innflytjendur í landinu
veröi skyldaðir í dönskimám. Er
þetta hugsað til þess að bæta stöðu
þeirra kvenna sem flytja til landsins
á fullorðinsáruin, einkum frá lönd-
um múhameðstrúarmanna.
Sósíaldemókratar telja að mörg
dæmi séu um aö eiginmenn þeirra
komi í veg fyrir að þær fái tækifæri
til að læra dönsku og aðlagast sam-
félaginu. Þeir viiji sumir hveijir
halda þeim inni á heimilinu án
tengsla út fyrir það. Afleiðingin sé
sú að þær einangrist og séu algjör-
lega upp á menn sína komnar.
Leggja sósíaldemókratar til að þær
konur, sem ekki uppfylla þá kröfu
að koma í dönskukennslu, verði
sviptar opinberri fjárhagsaðstoð.
Telja þeir að þá muni körlum þeirra
fljótt snúast hugur og leyfa þeim að
stunda námið.
Þessum tiilögum hefur verið tekið
heldur fálega. Stjómmálamenn,
bæði til hægri og vinstri við sósíal-
demókrata, hafa varað við þeim en
leggja þess í stað til að kennsla í fjöl-
miölum, til dæmis í útvarpi og sjón-
varpi, sé aukin.
Yfirvöld menntamála hafa sömu-
leiðis verið neikvæð og kennarar,
sem hafa lagt aðaláherslu á að kenna
útlendingum, benda á að kennslan
sé yfirleitt árangurslaus ef nemand-
inn taki ekki þátt í henni af fúsum
og fijálsum vflja.
Skólavörðustíg 30 • Sími 23233