Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Qupperneq 12
12
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
ÚtLönd
Gagnvýni á Thatcher
Ummœli Margaret Thatcher um
Evrópubandalagið saeta nú mikilfi
gagnrýni. Símamynd Reuter
Forsætisráðherra Bretlands,
Margaret Thatcher, sætti í gær
gagnrýni stjómmálamanna í Vest-
ur-Evrópu og fjölmiðla vegna um-
mæla hennar þar sem hún hafnaði
auknum völdum fyrir Evrópu-
bandalagið.
Thatcher hafði í útvarpsviötah á
miðvikudaginn lýst sem fjarstæðu
þeirri spá forseta framkvæmda-
stjómar bandalagsins, Jacques
Delors, að innan tíu ára myndi
Evrópubandalagiö ef til vill sjá um
alla fjárhagslega og félagslega lög-
gjöf bandalagsríkjanna.
Ekki náöist í Delors þegar leitaö
var eftir viöbrögðum hans en heim-
ildarmaður náinn honum kvaö
hann haía áhyggjur af afstöðu
breska forsætisráðherrans.
NeHa lekanum
Tveir fulltrúadeiidarþingmenn sökuðu í gær embættismenn Reagan-
stjómarinnar um að bera ábyrgð á lekanum til fjölmiðla um áætlun um
leynilegar aögeröir til aö bola hæstráðanda í Panama, Antonio Manuel
Noriega, frá völdum. Neituðu þeir harðlega að lekinn hefði komið frá
þingmönnum.
Embættismaður sljómarmnar staðfesti á miðvikudaginn frétt í Was-
hington Post um að Reagan forseti hefði samþykkt aðgerðimar.
Frá því aö gefm var út ákæra á hendur Noriega í Bandaríkjunum fyrir
aöild að eiturlyfjasmygli hefur hann staðist allar tilraunir Bandaríkja-
manna til þess aö koma honum frá völdum.
Búast vlð ofbeldisverkum
Skæruliðar tamíla eru nú taldir láta til skarar skríða til aö mótmæla
friðarsamningi Indlands og Srí Lanka sem undirritaður var fyrir ári.
Simarnynd Reuter
Skæruliöar tamíla myrtu fjórtán sinhalesa í norðurhluta Sri Lanka í
gær, réttu ári eftir að friðarsamningur Indlands og Sri Lanka var gerður.
Skæruliöar tamila em andvígir friðarsamningnum sem gerður var til
að binda enda á sjálfstæðisbaráttu tamfla á Sri Lanka.
Auknar öryggisráöstafanir em nú á Sri Lanka þar sem búist er við
óeirðum í tilefni þess að ár er liöið frá undirritun samningsins. Sett var
á sólarhringsútgöngubann í morgim í suðurhéruðum tU að koma í veg
fyrir mótmæli. Reuter
Hassíð handa hænunum
Gizur Helgascm, DV, Reersnæs
Á eyjunni Mors f Danmörku hefur nú verið sett óopinbert met Lögreglu-
yfirvöld hafa lagt hald á 743 kíló af hampjurt og hefur slíkt magn ekki
verið gert upptækt áður á einni eftirlitsferð.
Á einum stað vora sex hundrað fermetrar undirlagöir undir ræktunina
og varð lögreglan aö fá vörubíl til að fjarlægja þau 570 kíló af hampi sem
þar náðust.
Eigandinn gaf lögreglunni þá skýringu að hann hefði ætlaö að fóðra
fjórar hænur með uppskerunni. Lögreglan er á annarri skoðun og við
væntanieg réttarhöld kemur í ijós hvor skoðunin veröur þyngri á metun-
um.
Styðja geim-
stöðvarverkefni
Gizur HalgasQti, DV, ReeiBnæec
Bonnsfjómin hefur nú lýst þvi
yfir að V-Þýskaland muni styðja
af alefli Kólumbus-geimstöðvar-
verkefnið. Heinz Riesenhuber, vís-
inda- og þróunarmálaráðherra, til-
kynnti sl. sunnudag að rikisstjóm-
in heföi á fundi sl. miövikudag sam-
þykkt samninga þá er ráðuneyti
hans hefði gert við ESA, Evrópsku
geimferðarstofnunina.
Samkomulagið felur í sér að V-
Þýskaland tekur á sig 38 prósent
af kostnaðinum við útgjöld Evr-
ópuþjóðanna viö Kólumbusarverk-
efhið, en það verður framkvæmt í
samvinnu við Bandaríkin og Jap-
an. Framlag Evrópuþjóðanna í
heild verður um níu milljarðar
þýskra marka.
Samningurinn veröur formlega
undirritaöur í september og síöan
verður hann lagður fyrir þingið í
Bonn tíl endanlegrar samþykktar.
Þessi sameiginlega geimstöð
verður send út í himingeiminn í
friösamlegum tilgangi. Bandaríkin
hafa þó í sérsamningi leyfi til þess
að ffamkvæma verkefni sem falla
undir „öryggi þjóðarinnar“. Evr-
ópuþjóðímar hafa aftur á móti fulla
heiroild til þess aö framkvæma eig-
in vfsindaathuganír.
Kveikt í heimili
Mandela
Heimih Winnie Mandela, eigin-
konu blökkumannsins og mannrétt-
indaleiðtogans Nelsons Mandela í
Suður-Afríku, brann til kaldra kola
í gær. Tahð er að um íkveikju hafi
verið að ræða og að ungir blökku-
menn eigi sök á brunanum. Enginn
var í húsinu þegar eldurinn braust
út.
Ekki var hægt að bjarga neinu úr
húsinu sem þau Mandela-hjónin hafa
haft á leigu síðan árið 1962. Einka-
bréf þeirra hjóna og minjagripir um
baráttu Mandela fyrir jafnrétti
svartra og hvítra í Suður-Afríku
eyðilögðust í eldinum.
Sjónarvottar segja að ungir
blökkumenn, drengir á skólaaldri,
hafi notað bensín og annan eldfiman
vökva til að kveikja í húsinu. Ná-
grannar Mandela segja að ástæðu
íkveikjunnar megi rekja til ágrein-
ings á milli fótboltaliðs sem ber nafn
Mandela og ferðast oft um með
Winnie sem nokkurs konar lífverðir
hennar og ungu blökkumannanna
sem talið er að hafi kveikt í.
Kvikmyndin „Cry Freedom", sem
íjallar um ævi mannréttindaleið-
togans Steve Biko, hefur enn ekki
verið sýnd í Suður-Afríku. Yfirvöld
í Pretoríu munu tilkynna í dag hvort
sýningar á myndinni verða leyfðar.
Búið var að leyfa sýningar á mynd-
inni svo til óstyttri en innanríkisráð-
herra Suður-Áfríku, Stoffel Botha,
hefur beðið ritskoðunarnefnd yfir-
valda að endurskoða leyfi sitt um
birtingu myndarinnar.
Reuter
Litlu sem engu var hægt að bjarga úr brunarústum íbúðarhúss Winnie og
Nelsons Mandela en húsið varð eldi að bráð í gær. Símámynd Reuter
Gefa sameiginlegt
kosningaloforð
Guimlaugur A. Jónsson, DV, Lundi;
Formenn borgaralegu flokkanna
í Sviþjóð, þeir Carl Bildt, formaður
íhaldsflokksins, Olof Johannsson,
formaður Miðflokksins, og Bengt
Westerberg, formaður Þjóðar-
flokksins, héldu sameiginlegan
kosningafund í Visby á Gotlandi í
gær. Þar gáfu þeir sameiginlegt
kosningaloforð um að borgaralegu
flokkarnir myndu að loknum kosn-
ingasigri í haust selja ýmis ríkis-
rekin fyrirtæki fyrir sem svarar
100-140 miRjörðum íslenskra
króna.
Það er nefnd sérfræðinga frá
flokkunum þremur sem hefur í
tæpt ár unnið að því að samræma
sjónarmið flokkanna í þessu máh.
Jafhaðaimenn gruna sænsku
öiygglslógregluna um græsku
Gunnlaugur A. Jónssan, DV, Lundú
„Ef útlend leyniþjónusta hefði ætl-
að sér að skaða sænsku öryggislög-
regluna mjög alvarlega hefði henni
ekki geta tekist betur en Ebbe Carls-
son.“ Þessi ummæh lét P.G. Máss,
einn af yfirmönnum sænsku öryggis-
lögreglunnar, falla við yfirheyrslur
sænsku stjómarskrámefndarinnar í
Ebbe Carisson-málinu svonefnda
sem héldu áfram í gær.
Ebbe Carlsson hafði áður gefið
Máss að sök að vera sá aðili innan
sænsku ömggislögreglunnar sem
bæri ábyrgð á því að upplýsingar,
sem öryggislögreglan hefði haft und-
ir höndum um aö líf Olofs Palme
væri í hættu, hefðu aldrei borist til
réttra aðila og því hefði ekki reynst
unnt að koma í veg fyrir morðið á
Palme. Hefur öryggislögreglimni
jafnframt verið gefið að sök að vissir
aðilar innan stofnunarinnar hefðu
ekki haft áhuga á að koma í veg fyr-
ir moröið á Palme. Máss vísaði öllum
slíkum ásökunum á bug en þó virðist
ljóst að ýmsir jafnaðarmenn grnna
Ebbe Carlsson hefur sakað sænsku
öryggislögregluna um að koma upp-
lýsingum, sem hefðu getað komið í
veg fyrir morðið á Palme, ekki áleið-
is.
enn sænsku öryggislögregluna um
græsku. Þannig sagði Sten Anders-
son utanríkisráðherra t.d. í gær að
augljóst væri að unnt hefði verið að
koma í veg fyrir morðið á Palme.
íhaldsmaðurinn Anders Björk,
sem er varaformaður stjómarskrár-
nefndarinnar og jafnframt sá nefnd-
armanna sem harðast hefur gengið
fram í yfirheyrslunum, sagðist hins
vegar vera sannfærður um að um
væri að ræöa áróðursherferð jafnað-
armanna gegn öryggislögreglunni.
Yfirheyrslurnar í Ebbe Carlsson-
málinu minna að ýmsu leyti á vopna-
sölumál Bandaríkjanna til írans og
er Ebbe Carlsson þá í svipuðu hlut-
verki og Ohver North. í báðum tilfell-
um er um að ræða menn með góð
sambönd inn á æðstu valdastofnanir
og í báðum tilfeUum Utu aðalpersón-
urnar svo á að tilgangurinn helgaði
meðahð. Starf þeirra væri svo mikU-
vægt að ekki skipti máh þótt leikregl-
ur samfélagsins væm brotnar.
Margir hafa þó orðiö tíl þess að
vekja máls á því að afgerandi munur
sé á bandarísku og sænsku yfir-
heyrslunum sem felist í því að með-
hmir sænsku stjómarskrámefndar-
innar kunni greinUega lítt til verka
og séu óvanir að standa í yfirheyrsl-
um sem þessum.