Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
27
Popp
sem kórstjóri. Hvaða kórum he-
furðu stjómað?
„Mjög mörgiim kórum. Versl-
unarskólakór íslands í fjölmörg-
um myndum og búið,“ svaraði
Jón. „Mér hafa verið boðnir
nokkrir kórar, þar á meðal kór
Strætisvagnafélags Reykjavíkur í
tvígang. Við skulum segja að ég
sé enn að íhuga það tilboð og
kanna þau hlunnindi sem fylgja
starfinu. Frítt í strætó og svoleiö-
is.“
Innheimtan
Við ræðum peningamál popp-
tónlistarmanna dálítið frekar og
erum sammála um að popparam-
ir séu dálítið misnotaðir. Reynt
að komast ódýrt frá viöskiptun-
umvið þá.
„Sjáifsagt virka ég oft frekur
og full ákveðinn í þessum málum.
Popparar em oft látnir mæta af-
gangi þegar laun eru greidd í veit-
ingahúsunum. Það fá allir sitt
umslag áður en við fáum okkar.
Og viö þurfum gjaman að fara
trilljón ferðir eða næstum því til
að fá það sem búið var að semja
um viö okkur. Svo líða kannski
vikur og mánuðir, kaupið hækk-
ar ekkert en víxlar falla á meðan
og á okkur hlaðast dráttarvextir.
Þar af leiðandi þarf að beita ýtni
til að fá það sem manni ber.“
- Ogsvoersífelltveriðaðbiðja
ykkurumgreiða?
„Það hefur nú minnkað eftir því
sem maður hefur orðið frekari,"
svaraði Jón og hló við. „Það er
helst að einhveijir gamlir sam-
stúdentar hringi sem ég hef ekki
heyrt í í fimm ár. Þá veit ég að
þeir era að fara að gifta sig og
vantar spilara í brúökaupið. Það
er aðallega á þann hátt sem ég
er misnotaður. - Eins og þú þekk-
irsjálfur!"
- Ofthefurþóttskortaásam-
stöðu poppara í peningamálum
sem og öðram. Hvemig er
ástandið núna?
„Ég get ekki sagt annað en aö
andinn sé góður. Að minnsta
kosti milli þeirra tónhstarmanna
sem komu fram á sjónarsviðið
um svipað leyti og ég, þaö er
þeirra sem skipa Skriðjökla,
Stuðkompanfið, Greifana, Snigl-
ana og fleiri. Ég kann vel við
þessa stétt og verð ekki var við
þær neikvæðu bylgjur milli
hljómsveita sem mér skilst að
hafi tíðkast hér áður fyrr. Ég get
nefnt sem dæmi að við í Sálinni
hans Jóns míns fengum eitt sinn
ekki leyfi fyrir balli sem við æt-
luöum að halda. Við þurftum því
að fá eitthvaö annað að gera í
snarhasti. Geirmundur Valtýs-
son gekk í málið og bókaði okkur
á dansleik á Sauðárkróki og
hengdi upp fyrir okkur plaköt þar
á staðnum. Skriðjöklar sáu síðan
um aö hengja upp fyrir okkur
auglýsingar á Blönduósi og í nær-
sveitum. Þetta skilst mér að hefði
þótt fáheyrt fyrir nokkrum áram
svo að menn elda að minnsta
kosti ekkert rosalega grátt silfur
um þessar mundir.“
Sumarpopp
Sumarpoppið ber næst á
góma. Síðustu vikur hafa alln-
okkrar plötur komið út með lau-
fléttri sumartónlist. Jóni finnst
ekkert mikið til koma. En...
„Þegar upp er staöið held ég að
sumarpoppið sé af hinu góða.
Þessari tónlist fylgir lífsgleði og
þó að plötur seljist ekkert sérs-
taklega um þessar mundir þá er
þó að minnsta kosti spilúð létt
íslensk tónlist í staðinn fyrir létta
erlenda. Þessi tónlist - og okkar
meðtahn - er ekkert gæðapopp.
Mér finnst hún þó síst verri en
margt það sem flæðir yfir. Rick
Astley-lög og þess háttar drasl.“
- Hinndæmigerðipopparií
dag. Hvemig er hann?
Jón varð hugsi. „ Ja, ætli hann
sé bara ekki hress og lifsglaöur.
í stíl við sumarpoppiö.“
- Sukksamur?
„Njaaa. Aö minnsta kosti ekki
miðað við það sem þótti tilhlýði-
legt fyrir nokkram áram. Sög-
umar sem þessir eldri og reynd-
ari segja okkur um lífemi stéttar-
innar hér áður fyrr fá mig til að
finnast við vera hreinustu böm.
Ástæðumar era sjálfsagt ýmsar
fyrir því að viö förum hægar í
sakimar núna en popparamir
fyrir tíu til fimmtán árum. Meðal
annars sú að það era minni pen-
ingar í spilinu nú en áður. Menn
fara ekki og kaupa sér íbúð eftir
verslunarmannahelgina eins og
mér skilst að hafi veirð hægt áður
fyrr. Það þykir þokkalegt að fá
fjórðung úr bílverði fyrir spila-
mennsku um verslunarmanna-
helgi.“
- Hversvegnaberiðþiöminna
úr býtum nú en áður?
„Þar kemur margt til. Núna era
nfiklu fleiri hljómsveitir að spila
en fyrir fáeinum áram. Þá vora
það kannski bara Stuðmenn og
ein önnur - jafnvel Upplyfting -
sem fengu einhverja aðsókn. Það
vogaði sér enginn að halda ball í
námunda við þessar hljómsveitir.
Maður gat eins aflýst. Núna era
það fjórar til fimm hljómsveitir
sem gengur vel og kakan í heild
sinni skiptast því í fleiri staði.
í öðra lagi era samningar við
félagsheimili og skemmtistaði
orðnir mun óhagstæðari en áður
þekktist. Nú þýöir ekkert að segj-
ast vilja fá alla innkomuna og
hverfa síðan á braut með fulla
vasa fjár. Ríkið hefur einnig stór-
aukiö skattheimtuna á þessu
sviði sem öðrum.“
Syngjandi sveittir
Syngjandi sveittir er nafnið á
plötunni sem Sálin hans Jóns
míns sendi frá sér fyrir réttri
viku. Jón kvað hana í svipuðum
anda og annað gleðipopp sumars-
ins.
„Við eram þama að leika okkur
dáiítið með soultónlist sem mér
skilst aö íslenskir popparar hafi
litiö fengist við. Það eru frums-
amin lög á A-hliðinni auk eins
erlends sem hljómsveitin Ýr flutti
hér áður. Á B-hliðinni tökum við
svo fyrir nokkur þekkt soullög.
Við ákváðum strax að nota „tví-
fætta" tónlistarmenn til að sjá um
blásturshljóðfærin. Sleppa öllum
tölvum og fylgihlutum þeirra.
Þannig er þetta kannski dálítið
dýrara en fyrir bragðið getur
maður hlustað kinnroðalaust á
plötuna. Við í hljómsveitinni er-
um ákaflega á móti trommuheil-
um og því dóti öllu... Auðvitað
er þessi plata ekkert skárri en
gengur og gerist - en kannski
ekki alveg jafngeld og þessar
tölvuspiluðu. - Platan kemur
tæpast til með að standast tímans
tönn. Það virðist þurfa að vera
einhver húmor undir niðri í sum-
artónlistinni og við reyndum að
hafa hann og allt alvöraleysið til
staðar. Fyrir bragðið er líka ákaf-
lega auðvelt að afsaka sig og
segja: Ja, þetta er bara grín og
glens.“
Á þeim plötum sem Jón Ólafs-
son hefur leikið inn á ber dálítið
á erlendum lögum sem gjarnan
eru tekin upp á hljómleikum. Er
það ekkert slæmt fyrir orðstírinn
aö fást svo mikið við erlenda tón-
list?
„Jú, sjálfsagt er það það,“ svar-
aði Jón og yppti öxlum. „Ég veit
að mörgum poppurum þykir það
mesta lágkúra sem um getur aö
kópíera erlenda tónlist. Alfir hafa
þeir þó gert þetta einhvem tíma.
Mér þykir ekkert að því að setja
góð erlend lög á plötu. Það er í
öllu fafii skárra en að vera að
hnoðast með léleg íslensk. Hinir
ýmsu popparar úti í heimi hafa
gert þetta og ég sé ekki hvers
vegna popparar mega ekki kópi-
era góð lög eins og til dæmis þeir
sem fást viö sígilda tónlist. Sjáðu
bara Sinfóníuhljómsveit íslands.
Er hún ekki endalaust að kópíera
Beethoven, Mozart og fleiri
gamla? Það þykir aldeilis saga tfi
næsta bæjar þegar Sinfónían
frumflytur eitthvað.“
- Þúvfitfrekarspfiagóðaer-
lenda tónfist en lélega íslenska.
Ertu með öðram orðum að segja
að þú sért ósáttur við eigin tón-
smíðar?
„Nei, nei. Ekki allt aö minnsta
kosti.“ Jón hugsaði málið smá-
stimd. „Mér finnst reyndar ekk-
ert varið í að setjast niður og búa
til lag sem á að slá í gegn. Ég
neita því ekkert að ég get samið,
samið og samið dægurlög en mér
er bara ekki alveg sama hvað
kemur út. Það hefur svo sem ekki
verið mjög mikiil metnaður að
baki þvi litla sem hefur komið
út eftir mig á hljómplötum en ég
er ekki ósáttur við það.“
- Erþaðekkifáumgefiðað
gera eins og til dæmis Sverrir
Stormsker sem dælir út lagi eftir
lag og er meira að segja hættur
að geyma lögin sín af því að hann
kemur þeim ekki frá sér?
„Ég get gert alveg það sama og
Sverrir. Það er ekkert mál að
semja lög á tvær til þijár plötur
á ári. Ég er kannski bara aðeins
gagnrýnni á sjálfan mig en Sverr-
ir sem reyndar er góður vinur
minn. Margir okkar snjöllustu
lagahöfunda eiga margra ára
birgðir af lagasmiðum. Ef ein-
hver leitar til þeirra um lag á
plötu segja þeir bara: Gerðu svo
vel og veldu. Þannig gæti ég ekki
haft þetta. Mér er ekki sama hvað
er gert við lögin mín. Ég vil fá að
fylgja þeim frá vöggu til grafar
ef þannig má að orði komast.
Maöur verður helst að hugsa tutt-
ugu ár ffarn í tímann í þessum
efnum þótt um popptónlist sé að
ræða. Þess vegna vllégtil dæmis
ekki nota tölvur og trommuheila
þegar ég tek upp plötur. Ég er
viss um að þessi hljóðfæri eldast
ákaflega illa. Sjáðu bara gömlu
plötumar með Stuðmönnum og
Spilverki þjóðanna. Á þeim vora
heföbundin hljóðfæri notuð.
Enda era þær jafngóðar í dag og
þegar þær komu út. Öll tískufyr-
irbrigði verða haflærisleg með
tímanum."
Útvarp
Jón Ólafsson fékkst við út-
varpsþáttagerð hjárás2í nokkur
ár. Hann var með fyrstu mönnum
til að hefja störf þar og var þar
lengi innanborðs. Síðastliðinn
vetur og fram á vor sá hann um
þáttinn Létta ketti. Nú era kett-
irnir hins vegar þagnaðir. Hvað
gerðist? Var Jón rekinn í vor-
hreingemingum Ríkisútvarps-
ins?
„Nei, nei. Ég var bara ráöinn
til 1. júní. Ég ætlaði að spila í
hljómsveit í sumar og þetta
tvennt fer ekki saman. Það er
reyndar búið að bjóða mér vinnu
á rás tvö í haust. Ég hef enn ekki
sagt þeim það en best að ég geri
það hér með að ég ætla ekki að
þiggjaþað.“
- Afhveijufórstuútíútvarps-
þáttagerð?
„Mér fannst ég bara ráöa við
þess háttar starf. Taldi mig hafa
gott vit á tónlist, - gat blaðrað
endalaust. Langaði til að reyna
mig við þáttagerð. Reyndar var
ég búinn að fást svolítiö við blaða-
mennsku og haföi mikinn áhuga
á fjölmiðlafræði. Ég taldi mig því
fá dýrmæta reynslu í útvarpi. Nú
er fj ölmiðlafræðiáhuginn rokinn
út í veður og vind og kemur
kannski aldrei aftur. Og þó. Ég á
frekar erfitt með að sjá mig fyrir
mér 45 ára gamlan á endalausum
hringferðum um landið spilandi
á böllum. Það er langtíma mark-
mið hjá mér aö taka viö af Bjarna
Fel í íþróttunum. Ætli ég nái því
ekki þegar ég verð fimmtíu og
fimm.“
-ÁT-
VERSLUNIN IÐUFELL
Opið frá 9-20 mánudaga til föstudaga,
10-19 laugardaga.
Eitt ódýrasta kjötborð landsins
VERSLUNIN IÐUFELL
Iðufelli 14
Næsta blað kemur út
þriðjudaginn 2. ágúst.
Smáauglýsingadeild
verður opin um
verslunarmannahelgina
sem hér segir:
OPIÐ í kvöld, föstudag,
til kl. 22.00
LOKAÐ laugardag,
sunnudag,
og mánudag.
Ath. Blaðaafgreiðsla verður lokuð
laugardag, sunnudag og mánudag.
Ánægjulega
verslunarmannahelgi
og góða ferð
SUMARHUS
LF.IÐ TIL AÐ LÁTA
SUMARFRÍIÐ ENDAST
ALLT ÁRIÐ!
Trésmiðja Guðmundar Friðrikssonar hefur um árabil
framleitt glæsileg sumarhús, sett saman úr einingum.
Húsin eru heilsárs hús sem þýðir að rnjög er vandað til
einangrunar, samsetningar og alls frágangs.
Sumarhúsin frá Trésmiðju Guðmundar Friðrikssonar
eru á hagstæðara verði en þig grunar.
Hafðu samband við okkur hjá TGF og við sendum
þér bækling með nánari upplýsingum um verð og
kjör.
Trésmiðja Guðmundar Friðrikssonar,
Sólvöllum 8, 350 Grundarfjörður.
Sími: 93-86995.