Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Qupperneq 28
28
Sérstæð sakamál
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
DV
í bílslysinu sem varð á vegi í
Suður-Frakklandi týndi maður
lífinu. Hann var sagður Yves
Dandonneau og var líftryggður
fyrir um níutíu milljónir
króna. Féð skyldi renna til kon-
unnar sem hann hafði búið
með. Það var því ef til vill ekki
að undra þótt grunur vaknaði
um að ekki hefði allt verið með
felldu og Yves Dandonneau
hefði verið myrtur.
Slysiö varö á frekar fáfómum vegi
aðfaranótt 7. júní í fyrra. Bíllinn ók
beint á kiett nokkuð fyrir vestan
Marseille, hafnarborgina við Mið-
jarðarhafið.
Um kiukkan hálftvö um nóttina
kom maður að húsi um kílómetra frá
slysstaðnum og bað um aðstoð. „Vin-
ur minn situr meðvitundarlaus í
bíinum," sagði hann. „Vonandi
kviknar ekki í honum.“ Síðari setn-
inguna endurtók maðurinn mörgum
sinnum.
Þegar lögreglan og sjúkrabíll komu
á staðinn kom í Ijós að ótti mannns-
ins hafði verið á rökum reistur því
bíllinn stóð í ljósum logum og sá sem
í honum hafði verið var látinn.
Ökumaður bílsins, sá sem komið
hafði til hússins um nóttina til að
biðja um hjálp, reyndist vera Daniel
Blouard. Bæði hann og Yves Dan-
donneau höfðu verið að koma frá
heimabæ sínum, Montmorency
nærri París. Blouard sagðist hafa
tekið sér frí frá vinnu til þess að fara
með vini sínum til Suður-Frakk-
lands.
Þar sem slysið varð er vegurinn
beinn og þótti einkennilegt að það
skyldi hafa orðið þar en ekki nokkru
áður er bílnum var ekið eftir mjög
hlykkjóttum vegarkafla. Blouard gaf
hins vegar þá skýringu að hann hefði
litið af veginum í nokkur augablik
og þá sveigt óafvitandi til hhðar.
„Líkið skal brennt,“ var eitt af því
fyrsta sem sambýliskona Dan^onn-
eaus, Marie-Therese Herault, sagði
er hún hafði jafnað sig eftir fregnina
af dauöa mannnsins sem hún hafði
búið með í nokkur ár og átti dreng
með. „Það var ósk hans sjáifs að
hann yrði brenndur," sagði hún svo
til skýringar á beiöni sinni.
Enginn efaðist um sannleiksgildi
orða hennar og aö sjálfsögðu er það
siður að fara í þessum efnum eftir
ósk þess látna.
Lík Yves Dandonneaus var því
brennt og grét Marie-Therese á með-
an. Öskunrn var síðan dreift þar sem
slysið hafði orðið og lagður blóm-
sveigur á klettinn. Svo einkennilega
vill til að slysstaðurinn heitir
L’Homme Mort eða Dauði maöurinn.
Grunur vaknar
Sennilega hefði engum þótt neitt
grunsamlegt viö morðið hefði ekki
fljótlega komið í ljós aö nokkrum
dögum fyrir slysið hafði Yves Dan-
donneau líftryggt sig fyrir verulegri
upphæð og skyldi hún þrefaldast léti
hann lífið í bílslysi. Tryggingafélagið,
Generale Accident, hóf því rann-
sókn. Var henni stjómað af manni,
Moser aö nafiii, sem verið hafði lög-
reglufulltrúi en var hættur störfunj.
Yves Dandonneau.
Hann fór þegar á slysstaðinn og
ræddi við fólkið sem Blouard hafði
leitað til um hjálp nóttina sem slysið
varð.
Moser þótti mjög undarlegt hve lít-
ið skemmdur bíll Dandonneaus
reyndist vera að framan eftir slys þar
sem hann hafði átt að missa meðvit-
und í.
Er Moser ræddi við fólkið, sem
Blouard hafði komið til, kom í ljós
að hann hafði ekki einu sinni verið
móður þegar hann kom af slysstaðn-
um og hefði hann þó átt aö vera bú-
inn að hlaupa um kílómetra. Þá
vaknaði enn fremur sú spuming
hvers vegna hann hefði ekki komið
vini sínum úr bílnum úr því hann
óttaðist svo mjög að eldur kynni að
koma upp í honum.
Morð?
Moser velti þeirri spumingu
mjög ákaft fyrir sér næstu dægrin
hvort það gæti verið að Yves Dan-
donneau hefði verið myrtur til þess
að erfingjamir fengju greidda líf-
trygginguna? Á meðan hann reyndi
að komast að niðurstöðu lagði haxm
sig fram um að afla frekari upplýs-
inga sem varpaö gætu ljósi á máUö.
Kom þá í ljós að Yves Dandonneau
hafði verið líftryggður hjá átta trygg-
ingafélögum og að í flestum tilvikum
var þannig frá tryggingunum gengiö
að upphæðin skyldi þrefaldast létist
sá tryggði í bílslysi. Alls var trygg-
ingarféö jafnvirði um níutíu milljóna
króna. Skyldi það allt renna til
MarieTherese Herault.
Moser gaf tryggingafélaginu Gen-
erale Accident brátt skýrslu en félag-
ið sendi hana til lögreglunnar í Mont-
pellier. Tók þá við málinu lögreglu-
fúlltrúi aö nafni Male. Hann var
Bernard Depene.
honum aftanverðum. Helst leit því
út fyrir að bensíni hefði verið hellt
yfir manninn sem setið hafði við hlið
ökumannsins. Og aftur vaknaði
spumingin um hvort hægt væri að
sanna að hann hefði verið einhver
annar en Dandonneau.
Tannflísar
í bílnum fundist nokkrar beinflís-
ar og flísar úr tönnum. Þær vom
reyndar svo smáar að erfitt var að
átta sig á þeim en eftir nokkum tíma
tókst sérfrEeðingum rannsóknarlög-
reglunnar að sýna fram á að þær
væm úr manni sem vantað hefði
aðra augntönnina. Hefði hún verið
tekin mörgum ámm áður.
Er rætt var við tannlækni Dan-
donneaus kom í Ijós að hann hafði
hvomga augntönnnina vantað. Hver
hafði þá maðurinn í bílnum verið?
Og hvar var Yves Dandonneau?
Símahleranir vom næsta ráð rann-
sóknarlögreglunnar. Var fylgst með
öllum símtölum Marie-Therese því
líklegast var að hún gæti leitt lögregl-
una til Dandonneaus. Hún heyrðist
hins vegar aldrei ræða við neinn sem
talinn var geta verið hann. Aftur á
móti kom í Ijós að hún ræddi stund-
um við konu í Cannes. Spurði hún
þá jafnan hvemig herra Depene hefði
það. Gat það verið að herra Depene
væri Yves Dandonneau? Þetta var
nú spumingin sem lögreglan varð
aö fá svar við.
Grunaði ekkert
Er hér var komið sögu grunaði
Marie-Therese ekki að fylgst væri
með ferðum hennar og sími hennar
Marle-Therese Herault.
þeirrar skoðunar að Moser hefði haft
rétt fyrir sér í skýrslu sinni er hann
hélt því fram að Yves Dandonneau
hefði ekki verið myrtur heldur hefði
hann sjálfur myrt einhvem óþekkt-
an mann sem hann hefði komið fyrir
í bílnum sínum sem hann hefði borið
eld að. Væri það Yves Dandonneau
sjálfur sem ætlaði sér, ásamt Marie-
Therese Herault, að lifa í vellysting-
um er allt tryggingarféð hefði fengist
greitt. Spumingin væri bara hvar
Dandonneau héldi sig.
Var tryggingasali
Rannsókn á ferli Dandonneaus
leiddi í ljós að hann hafði áður selt
líftryggingar. Þekkti hann því það
vel til starfsemi tryggingafélaga að
óhætt virtist að ganga út frá því að
hann hefði vitað aö hægt væri aö
tryggja sig fyrir talsverða upphæð
án þess að slysadauði vekti það mikla
athygli að sérstök rannsókn yrði lát-
in fara fram. Það að selja slys af
þessu tagi á svið kraföist hins vegar
samstarfsmanna. Daniel Blouard
hlyti að vera í þeim hópi.
Bfllinn.
í Ijós kom nú að áður en atvikið á
L’Homme Mort átti sér stað höfðu
þeir Dandonneau og Blouard farið
saman til Suður-Frakklands til þess
að leita að einbýlishúsi. Sá grunur
vaknaöi, er þetta varð ljóst, að sam-
tímis hefðu þeir verið að leita að
hentugum „slysstaö",- Hlyti það að
vera ætlun Dandonneaus að kaupa
hús á fallegum stað í Suður-Frakk-
landi er hann gæti á ný leyft sér að
koma fram í dagsljósið eftir „dauða“
sinn. En ekkert yrði sannað nema
tækist að sýna fram á að Dandonne-
au væri ekki sá sem látist hafði í bíln-
um.
Bíllinn grandskoðaður
Bíllinn var illa farinn eftir elds-
voðann. Farið var með hann á rann-
sóknarstofur lögreglunnar þar sem
hver smáblettur var skoðaöur og allt
sem fannst tekið til frekari rann-
sóknar hversu lítið sem það var.
Þessi rannsókn leiddi meðal ann-
ars í Ijós aö ekki hafði kviknað fram-
anvert í bílnum eins og búast hefði
mátt við eftir slíkt atvik heldur í
hleraður. Hún vissi því ekki að í
Cannes var fylgst með ferðum Dani-
ele Simonin, konunnar sem hún
hringdi stundum til. Simonin reynd-
ist hafa tekið að sér ráðskonustörf
fyrir mann að nafni Bemard Depene.
Er hann var borinn saman við Yves
Dandonneau kom í ljós að hann var
bláeygur og dökkhærður en Dan-
donneau haföi verið með Ijóst hár og
brúneygöur. En hár má lita og
augnalit má breyta með sjónlinsum.
Handtakan fór fram 15. janúar síð-
astliðinn. Þá barði lögreglan að dyr-
um hjá herra Depene í Cannes og var
hann handtekinn. Reyndist hann
vera Yves Dandonneau, maöurinn
sem „látist" hafði sjö mánuöum áð-
ur. Samtímis vom Marie-Therese og
Daniel Blouard handtekin.
En hver haföi hann þá verið sá sem
myrtur hafði verið svo hægt væri að
komast yfir tryggingarféö? Hann
reyndist hafa veriö drykkjumaður
sem gekk undir nafninu Joel. Var
hann lokkaöur til Suöur-Frakklands
með áfengi og brenndur inni í bílnum
er hann svaf áfengisdásvefhi.