Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Page 29
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
29
IþróttapistHl
Glæsileg
frammistaða
landsliðsins
Einhvern tímann hefði það þótt
saga til næsta bæjar að Laugardals-
hölhn væri troðfull af áhorfendum
á landsleik í handknattleik um há-
sumar, nánar tiltekið í lok júlí.
Þetta gerðist í landsleikjunum gegn
Vestur-Þjóðverjum á dögunum og
áhorfendur fengu mikið fyrir aur-
ana sína að þessu sinni sem oftar
þegar handknattleikslandslið okk-
ar á hlut að máli.
Fyrri leikurinn
I fyrri leiknum gegn Vestur-
Þjóðverjum náði íslenska landshð-
ið þriggja marka forskoti. Auðvitað
voru það vonbrigði aö missa foryst-
una niður. Mörgum fannst það
óþarfi en þegar litið er á allar að-
stæður er það ekki svo óeðlilegt.
Lítum á síðari leikinn.
Sama sagan endurtók sig
íslenska liðið náði alveg glymr-
andi leik í fyrri hálíleiknum í síð-
ari leiknum - komst í 10-3 og yfir-
burðirnir voru algerir. í síöari hálf-
leik gerðist það aftur að forskotið
varð að engu og Vestur-Þjóðveijum
tókst að jafna metin. Ástæðan fyrir
þessu er aðallega sú að okkar menn
hafa verið í gífurlega erfiðum æf-
ingum síðustu vikumar. Fyrri
hálfleikurinn er yfirleitt góöur en
þegar halda þarf haus í þeim síðari
hverfur öh einbeiting, leikmenn
fara að reyna skot í slökum færum
og sóknirnar styttast. Þetta er eðli-
legt á þessum tima. Enn era tæpir
tveir mánuðir fram að handknatt-
leikskeppni ólympíuleikanna og
þann tíma þarf að nýta vel og hann
verður vel nýttur. Sigur íslenska
liðsins í síöari leiknum var gífur-
lega mikih og kannski mikilvægari
en menn gera sér almennt grein
fyrir.
Enn ein stjarnan að
skjótast upp á
stjörnuhimininn
I gegnum árin höfum við íslend-
ingar getað státað af snjöllum
handknattleiksmönnum og mörg-
um í allra frenístu röð í heiminum.
Nú er farið að glitta í næstu stjörnu
okkar en þar á ég að sjálfsögðu við
hornamanninn unga og efnilega,
Bjarka Sigurðsson. Hann sýndi ah-
ar sínar bestu hliðar í síðari leikn-
um gegn Vestur-Þjóðveijum og það
verður erfitt fyrir Bogdan að ganga
fram hjá honum þegar hann velur
landsliðið fyrir ÓL. í Seoul. Bjarki
er ótrúlega snjall og leikinn og það
er engin lygi að hann á eftir að
verða einn allra besti homamaður
heims ef svo heldur fram sem horf-
ir. En að sjálfsögðu er það undir
Bjarka sjálfum komið hvort hann
nær á topppinn eða ekki. Hann má
vara sig á því, sem og aðrir efnileg-
ir leikmenn sem fá verðskuldaða
umfjöhun í fjölmiðlum, að ofmetn-
ast ekki og umfram aht að halda
sínu striki.
Framarar stigu mikilvægt
skref í átt að titlinum
Knattspyrnumennirnir í 1. dehd
eru nú komnir í dulítið frí en næstu
leikir í 1. dehd eru á dagskrá 7.
ágúst, eftir viku. Framarar halda
enn miklu forskoti, sem er tíu stig.
Næst eiga Framarar aö leika gegn
Víkingum í Fossvoginum og helstu
keppinautar þeirra um Islands-
meistaratitilinn, Valur og Akranes,
eiga að leika á Hlíðarendavelh. Sé
mið tekið af síðustu leikjum í dehd-
inni og frammistööu hðanna í sum-
ar er ekki ólíklegt að ímynda sér
að leikur Vals og ÍA endi með jafn-
tefli og að Fram sigri Víking. Þar
með held ég að Framarar væru al-
veg öryggir með íslandsmeistara-
tithinn. Forysta liðsins yrði þá 12
stig og eftir að leika um 15 stig,
fimm umferðir. Auðvitað er það
líka möguleiki að annaðhvort Val-
ur eða IA vinni sigur og að Fram
tapi. Þá yrði forskot Fram hugsan-
lega komið niður í sjö stig og þá
gæti allt gerst. íslandsmótið er því
hvergi nærri búið og spennai^er
þónokkur þrátt fyrir yfirburði
Fram.
Spennandi fallbarátta
Spennan er jafnvel enn meiri á
botni 1. dehdar en á toppi. Mörg lið
geta enn falhð en aðeins þijú orðið
Islandsmeistari. Ógerningur er að
spá fyrir um hvaða lið falla í 2.
deild en Völsungur frá Húsavík
virðist þó líklegur til að yfirgefa 1.
deild. Hvaða lið fylgir Völsungi í
2. deild æfia ég að leyfa lesendum
að velta fyrir sér.
Stefán Kristjánsson
Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar
Fjölskyldudeild
Fósturheimili óskast fyrir 10 ára heimilislausan dreng.
Nánari upplýsingar gefur Áslaug Ólafsdóttir félags-
ráðgjafi í síma 685911.
fcimhjólp
Dagskrá Samhjálpar yfir verslunarmannahelgina
fyrir þá sem ekki komast í ferðalag.
Laugardagur 30. júlí. Opið hús kl. 14-17. Lítið inn og rab-
bið um daginn og veginn. Heitt kaffi á könnunni. Gunn-
björg Óladóttir syngur einsöng. Almennur söngur kl. 15.30.
Allir velkomnir.
Sunnudagur 31. júlí. Samhjálparsamkoma kl. 16.00. Mikill
almennur söngur. Samhjálparkórinn tekur lagið. Vitnis-
burðir. Gunnbjörg Óladóttir syngur einsöng. Ræðumaður
Óli Ágústsson.
ALLIR VELKOMNIR í ÞRÍBÚÐIR UM
VERSLUNARMANNAHELGINA.
ALLT í FERÐALAGIÐ
Komið og kynnið ykkur úrvalið.
Paradiso-fellihýsin uppsett
á Vi mínútu.
Opið föstudag til kl. 22.00
og laugardag frá kl. 10.00
til kl. 16.00
Ferðamarkaðurinn
Bíldshöfða 12
Við hliðina á Bifreiða-
eftirlitinu. Sími 674100
I IúsnæÖisstofnun ríkisins
VEKNIDEILD
Simi 696900
ÚTBOÐ
Eskifjörður
Stjórn verkamannabústaða á Eskifirði óskar eftir til-
boðum í byggingu tveggja hæða fjölbýlishúss,
byggðu úr steinsteypu. Verk nr. Z.05.01 úr teikninga-
safni tæknideildar Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál húss 428 m2.
Brúttórúmmál húss 1371 m3.
Húsið verður byggt við götuna Dalbarð 8, Eskifirði,
og skal skila fullfrágengnu, sbr. útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á bæjarstjórnarskrifstofu
Eskifjarðar, Strandgötu 49, 735 Eskifirði, og hjá
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins frá miðviku-
deginum 3. ágúst 1988 gegn 10.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en þriðju-
daginn 16. ágúst 1988 kl. 11.00 og verða þau opn-
uð að viðstöddum bjóðendum.
F.h. stjórnar verkamannabústaða á Eskifirði.
Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
^Húsnæðisstofnun ríktsins