Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Blaðsíða 36
56
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
Breiðsíðan
Atli Geir Grétarsson, kátur piltur úr Hafnarfirði sem
vinnur í garðyrkju, stúderar stjórnmálafræði í Há-
skólanum og syngur um feitar konur.
DV-mynd KAE
Kátir piltar úr Hafnarfirði:
„Þetta byijaði
fíflagangi"
„Þetta byrjaði með fíflagangi. Við
vorum allir í Flensborg og tókum
mjög virkan þátt í félagslífi skólans
- vorum í leiklist og farnir að glamra
á hljóðfæri. Þá var Buþbaæði alls-
ráöandi,“ sagði Atli Geir Grétarsson,
söngvari hljómsveitarinnar Kátir
piltar, í samtali við Breiðsíðuna.
Kátir piltar voru óþekktir er plata
► iþeirra kom út fyrir mánuði. „Það
má segja að ferillinn hafi byijað með
plötunni,“ sagði Atli Geir. Þeir félag-
ar áttu talsvert af frumsömdu efni
frá skólaárunum sem þeir ákváðu
að koma á plötu núna. Síðan hún
kom út hafa þeir haft nóg að gera og
lögin þeirra, t.d. Feitar konur, hafa
náð miklum vinsældum.
Þá gerðu þeir stutta kvikmynd,
Hina ómótstæðilegu, sem sýnd var í
sjónvarpinu fyrir viku. Myndin var
skemmtilega gerð enda var hún
byggð upp eins og þættimir Hinir
vammlausu. Gamall Ford kom þar
mikið við sögu. „Það var öðhngsmað-
ur úr Fombílaklúbbnum sem lánaði
okkur bílinn," sagði Atli Geir. Kátir
piltar em úr Hafnarfirði eins og
myndin gaf glögglega tíi kynna. „ Við
reyndum að kynna bæinn enda vilj-
um við gera hann að ferðamanna-
stað,“ útskýrði Atli Geir.
Hann sagði ennfremur að lögin
þeirra hefðu aðailega heyrst í Þórs-
mörk og í veislum áður en þau komu
á plötu. Kátir piltar hafast misjafnt
að fyrir utan tónhstína. Ath Geir
vinnur í garðyrkju í sumar en segist
dunda við stjómmálafræði í Háskól-
anum á vetuma. Öm Almarsson er
efnafræðingur. „Hann er yngsti og
gáfaðasti meðlimurinn, fæddur
1967.“ Hahur Helgason, fyrrum
bamasijarna úr Punktur, punktur,
komma, strik, starfar sem „free lan-
ce“ kvikmyndagerðarmaður, Steinn
Armann Magnússon klárar Leikhst-
arskólann næsta vor, Davíð Þór
Jónsson er þýðandi á Stöð 2 og vinn-
ur við leikmyndagerð hjá Sjónvarp-
inu. „Hann samdi lagið Feitar konur
en ekki veit ég hvað lá að baki því.“
Jakob Bjöm Grétarsson er eldri
bróðir Atía Geirs. Hann er aö klára
BA í bókmenntafræðum. „Við erum
ekki tvíburar.“
Ath Geir sagði að myndin Hinir
ómótstæðhegu hefði verið gerð
vegna þess að nokkrir þeirra félaga
vinni við sjónvarp. „Við fréttum að
það væri laus tími og sendum inn
handritið sem við fengum samþykkt
hjá Baldri Hermannssyni. Við feng-
um einungis þrjá daga í upptöku en
hefðum viljað fá miklu meiri tíma,“
sagðiAtliGeir.
Hann bætti því við að þeir phtar
hefðu svo gaman af spihríinu að þeir
gætu aht eins hugsað sér að lifa á
tónhstínni. „ Við höfum haft nóg að
gera á dansleikjum og verðum á gos-
svæðinu í Mývatnssveit um þessa
helgi. Aht eins gæti farið svo að við
gæfum út aðra plötu áður en langt
um hður. Það skortir að minnsta
kosti ekki áhuga frá okkar hendi,“
sagði káti phturinn Ath Geir Grét-
arsson.
-ELA
Þú ert 2000 krónum ríkari!
Enn veitum viö manninum í hringnum tvö þúsund krónur. Aö þessu sinni er þaö kona sem afgreiddi gosdrykki í veislu sem
Bylgjan, Vífilfell og Stöö 2 héldu á Miklatúni um síðustu helgi. Sennilega hefur verið nóg að gera í afgreiðslunni þennan dag
og mikil vinna hjá þeim stúlkum sem stóðu í því að hella í glösin. En stundum hefur maður heppnina með sér eins og dæmin
sýna. Afgreiðslustúlkan, sem hefur hring um höfuð sér, má vitja peninga sinna hér á ritstjórn DV, Þverholti 11.
ELA/ DV-mynd GVA
Þessi stóri blómvöndur hefur nú
orðið þe$s heiðurs aðnjótandi að
fá inni í Heimsmetabók Guin-
ness. Hann er settur saman úr
fjögur hundruö þúsund nelhkum,
ersjö metra hár og sex metrar á
breidd. Væri ekki gaman aö hafa
slikan vönd í garðinum? En hvað
skyldi hann standa lengi með
útsprungnum blómunum...?
LaToya, 3?ja ára, systir Michaels
Jacksons, hefur slegist í hóp með
Nancy Reagan og fleira góðu fólki
sem berst gegn vímuefnum. La-
Toya söng á mikilh tónlistarhátíð
í Washington fyrir skömmu þar
sem forsetafrúin var viðstödd.
LaToya hefur mikla tónhstar-
hæfileika eins og sy stkini henn-
ar, Michaei, Jermaine og Janet.
Ptótur hennar hafa selst vel en
nú er ný plata sögð á leiðinni.
Bandarísku ikomamir Olh og
Twiggy era bannsettir glannar.
Helst vilja þeir þjóta um á vatna-
skíðum og snjótþotum. Reyndar
er Olli miög skotinn í Twiggy og
nú á pariö von á íkomabami.
Eigendur íkoraanna eru hjónin
Chuck og Luanne sem hafa kennt
þeim ýmsar kúnstír. „Þeim þykir
ofsalega gott að fá eplamús sem
verðlaun fyrir góða frammistöðu
og það fá þau gjaman,“ segir
Chuck.
í Englandi var fyrir stuttu haldin
samkeppni meðal slátrara (kjöt-
gerðarmanna). Meðalþess sem
keppt var í var pylsugerð. Sá
heppni reyndist vera Alan Hump-
hries sem vafði sig inn í pylsur
sínar frá toppi tíl táar í thefni sig-
ursins. ,J>aö er betra að þær séu
langar,“ sagði kappinn. Hann
segir að leyndarmáhð á bak viö
góðu pylsumar sé auðvitaö
kryddið. Það feer samt enginn að
vitasamsetninguna...