Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Blaðsíða 38
58
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
Konur og aftur konur
Reykjavík 25. júlí
Kæri vin
Þakka þér fyrir kortið frá Feneyj-
um. Ég hef aldrei orðið svo frægur
að koma þangað en ég trúi því vel
að það sé gaman að dóla þarna um
síkin á gondólum. Og eru ekki allir
ræðararnir stórsöngvarar á borð
við Kristján Jóhannsson og Kar-
ússó? Því var allavega logið í mig
einu sinni. En þú segir aö ítalimir
hafi átt bágt með að skilja ítölskuna
þína, vægast sagt. Já, það er leitt
til þess að vita þegar menn skilja
ekki einu sinni sitt eigið móðurmál
en mikið öfunda ég þig að hafa ver-
ið laus við alla bílaumferð þessa
viku sém þú dvaldir í Feneyjum.
Hér er nu verið aö stofna samtök
gegn néikvæðum bílisma, svo sem
hraðakstri og ölvunarakstri. Há-
værar raddir krefjast hærri sekta
eða fangelsisvistar til handa þeim
sem aka eins og óðir eða setjast
undir stýri þegar þeir eru svo fullir
að þeir treysta sér ekki til að ganga.
Auðvitað ber að taka hart á svona
brotum en þaö er svo margt fleira
að í umferðinni hjá okkur og ég er
sannfærður um að þar á stærstu
sök sú staðreynd að mikiil meiri-
hluti íslendinga kann ekki al-
menna kurteisi eða tillitssemi við
náungann. Ég horfði á enskan
ferðamann reyna að finna biðröð í
troðningi fyrir framan afgreiðslu-
stúku bankagjaldkera um daginn.
Þú getur rétt ímyndað þér hvenær
sá enski fékk afgreiðslu, ef hann
er þá kominn að núna. Hér gildir
hnefarétturinn á flestum sviðum
og þá ekki síst í umferðinni. Nú er
verslunarmannahelgin á næsta
leiti og þá hefst þessi hefbundni
umferðarsöngur fjölmiðla sem
flestir eru orðnir leiðir á nema þeir
sem fyrir honum standa. Þetta
mætti nú vera jafnara yfir árið.
Þessi helgi er samkvæmt venju
mörkuö aðilum sem taka að sér að
safna fólki saman og hafa af því fé
undir yfirskini skemmtunar. Úti-
hátíðir eru auglýstar grimmt vítt
og breitt um landið og allir auglýsa
að þangað liggi straumurinn. Ég
heyrði í útvarpi að aðgangur að
þessum skemmtunum væri frá
þrjú þúsund og allt upp undir
fimmþúsundkall á manninn en það
þykir nú ekki mikið miðað við þær
dásemdir sem í boði eru. En eitt er
víst að ekki ætlar Ebba frænka á
útihátíð um verslunarmannahelg-
ina. Ég kom við hjá henni á laugar-
daginn og þá voru fimm opnar
ferðatöskur á stofugólfinu og inni-
hald klæðaskápa flóði út um stóla
og sófa og gaf þar að líta kjóla af
ýmsum gerðum, pils og blússur,
peysur og síðbuxur, auk undirfatn-
aðar í háum hraukum. Mér datt
fyrst í hug aö bíræfmn heildsali
hefði platað Ebbu í söluferð út á
land og hún væri nú að pakka nið-
ur sýnishomum af lagernum. Sá
samt í hendi mér að það gat varla
passað því Ebba hefur ímugust á
heildsölum. Hún hlaut að vera
leggja upp i langferð og ég spurði
hvort hún væri að pakka niður fyr-
ir heimsreisu.
- Ónei. Ég ætla að skella mér á
kvennafundinn í Osló með henni
Sigríði minni í Gnoðarvoginum,
svaraði Ebba og strauk töskurnar
aö innan með rökum klút. Ég hef
svo sem heyrt talað um þennan
kvennafund í Osló og að héðan
ætluðu einar 700 konur með dygg-
um stuðningi Jóns Baldvins, Dav-
íðs borgarstjóra og annarra verka-
lýðs- og fagfélaga. Hins vegar var
ég búinn að gleyma í hvaða tilefni
þessi fundur fer fram, hafi ég þá
einhvem tímann vitað það.
- Og hvað á að gera á þessum
Bréftilvinar
Sæmundur Guðvinsson
fundi, Ebba mín, spurði ég.
- Hvað á að gera? Hvað gerið þið
á fundum annað en sitja meö bind-
ið upp í háls, reynið að gera ykkur
merkilega og þykjast hafa vit á því
sem þið hafið ekki hundsvit á. Á
kvöldin farið þið svo út á búllurnar
og drekkið ykkur fulla og og.. ,ja
ég ætla bara ekki að segja meira.
Þú veist við hvað ég á.
- það er einmitt það. Ef þú ætlar á
búllumar í Osló, Ebba mín, get ég
kannski reynt að riija upp heiti á
einhverjum slíkum.
- Láttu ekki svona, drengur. Þetta
er sko kvennafundur. Á morgnana
fáum við okkur kaffi og tölum sam-
an og þær sem vilja geta meira að
segja farið í leikfimi. Svo verða
ræður og söngur og leiksýningar
og matur og kaffi allan daginn og
margt margt fleira. Og svo verða
kvöldvökur með ýmsum skemmti-
atriðum og við getum talað saman
og fengið okkur kaffi og með því.
Það var sko tími til kominn aö við
konurnar gætum hist og rætt okk-
ar mál, ég segi nú bara það. En þú
ert auðvitað á móti þessu. Ekki
spyr ég að. Það á að halda konum
niðri, traðka á þeim, troða á þeim,
halda þeim í svaðinu.
Satt best að segja leist mér ekki á
æsinginn í Ebbu því eins og þú
veist er hún ekkert lamb að leika
sér við ef hún kemst í ham. Ég
hefði gaman af að sjá þann karl-
mann sem reyndi að halda henni
niðri, það er að segja ef þaö væri á
móti hennar vilja, eða þannig. Og
ég byrjaði á smáræðustúf þar sem
ég lofaði konur í hástert fyrir dugn-
að, útsjónarsemi, fegurð og yndis-
þokka og þar fram eftir götunum.
Ræðan virtist hafa róandi áhrif á
Ebbu sem greinilega tók þetta allt
til sín persónulega. En þegar mér
varð á að segja að konur væru al-
mennt betri vinnukraftur en karl-
menn varð hún snarvitlaus aftur:
- Betri vinnukraftur, segirðu.
Þakka skyldi þér að nefna það.
Hvar kemur það fram í launum?
Viltu segja mér þaö? Ég skal segja
þér það að konan á að vera fallegri
en karlmaður, hún á að vera dug-
legri en karlmaður en hún fær laun
sem kvenmaður. Lægri laun en
karlar og hafðu það, tyrðillinn
þinn.
- Er þetta þá launafundur þarna í
Osló? Ég vissi nú ekki betur en það
væru greidd sömu laun fyrir
sömu...
- Sömu laun hvað? Heyr á endemi.
Það er auðheyrt að þú hefur aldrei
verið kona. Nei, það er eins og hún
Sigríður sagði: Hér eru konur sví-
virtar á degi hverjum. Þetta er rétt
hjá Sigríði og ég get bara sagt þér
það að þegar við Sigríður vorum
að ganga yfir í Álfheimabakarí um
daginn þá mættum við tveimur
strákormum sem strax fóru að
syngja þetta líka þokkalag: Feitar
konur - feitar konur - og svo eitt-
hvað meira sem ég heyrði ekki. En
þetta er látið líðast að kallar syngi
i útvarpið á hverjum degi. Hefur
þú heyrt sungið svona um feita
kalla? Ég er að hugsa um að kaupa
plötuna og spila hana fyrir fundinn
í Osló svo allar geti heyrt hvernig
leyfilegt er að svívirða konur á ís-
landi. Og eitt skal ég láta þig’vita,
Sæmundur, að...
Ég slapp út frá Ebbu við illan leik
seint um kvöldiö en ég ætla bara
að vona að hún fíli sig vel í kvenna-
fansinum þarna í Osló. (Það held
ég að Óli Norðmaður hugsi sér gott
til- ■ •)
Með bestu kveðju,
Sæmundur
PP KAT\ 1 EÐA V EÐA 7 lO | Héreruáttaspurningarog J-iXV hrJr\JLM JL -/V ju | hverriþeirrafylgjaþrírmögu-
i Ólympíuliö íslands í skák teflir í Grikklandi í haust. Það A hefur fengið erlendan þjálfara og heitir sá: 1: Spasskí X: Smyslov 2: Bronstein tj Jerevanernafnáborgsemtalsverthefurveriðífréttum. j eittsvarréttviðhverrispurn- ** ÞettaerhöfuðborgeinsRáðstjórnarríkjanna.nánartiltekið 1 !n&u- ^kraio mðurrettar lausn- 1: Azerbajdzhan . írogsendiðokkurþærasvar- X: Armeníu ' seðhnum. Skilafrestur er 10 2: Afganistan 1 dagar. Að þeim tíma hðnum drögum við úr réttum lausnum
B Morgunblaðið verður 75 ára í nóvember nk. Fyrsti rit- stjóriþess hét: 1: VaJtýrGuðmundsson X: JónÓlafsson 2: ViIhjálmurFinsen | ogveitumþrennverðlaun,öll G Þegarþúsérðþettavörumerkiveistuað 1 frá Póstyersluninni Primu í verið er aðfjahaum: Hafnarfirði. Þau eru: i- Tölvur | 1-Töskusett,kr.6.250,- x: Ljósmyndun i 2. Vasadiskó og reiknitölva, kr. 2: Hljómtæki ' 2-100,- | 3.Skærasett,kr.l.560,-
c Þegar þú sérð þetta merki þá veistu að það tengist: 1: Heimilistækjum X: íþróttavarningi 2: Mótorhjólum H Fyrstinýsköpunartogariokkar(áriðl947)varkenndurvið 1 íoðruhelgarblaðiheðanifra landnámsmann og hét: | ^irtast nofn hmna heppnu en 1: Ingólfur Amarson nýjarspurningarkomaínæsta X: ÞorfinnurKarlsefni | helgarblaði. 2: HahveigFróðadóttir i Merkið umslagið: 1 eða x eða 1 2, c/o DV, pósthólf5380,125
| a | KeyKjaviK. D HafmerkvikmyndunáKristnihaldiundir Jökh.Aðkvik- | | Vinningshafarfyrir leðaXeða mynduninni stendur félagið: i Sendandl , 2íelleftugetraunreyndust 1: Sandra I vera: Guðrún Eiríksdóttir, X: JÓnPrímus 1 1 HialIalandilfi.infiRevkiflvík
! 2: Umbi E Þráinn Bertelsson undirbýr nú töku á sinni 6. kvikmynd. Nafnið á myndinni er stutt og laggott: 1: Nonni X: Magnús 2: Guðjón (töskusett), Sverrir Olafsson, HAimin 1 Aðalstrætill2,450Patreksfirði | (vasadiskóogreiknitölva), .—. .—. .—. Matthildur Oskarsdóttir, Faxa- Réttsvar: A 1 1 B 1 1 C 1 1 D 1 1 1 braut38D,230Keflavík(skæra- 1 sett). Vinningarnir verða sendir r I 1 r| 1 r| 1 u 1 I 1 heim- ta i— M — | RéttlausnvarX-2-l-2-l-X-2-2