Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Síða 39
Kvikmyndir
Leikstjórinn og leikarinn ásamt Tucker-bílnum.
Tucker
*
I fyrsta sinn síðan þeir félagar Francis
Coppola og George Lucas gerðu American
Graffiti árið 1973 hafa þeir ákveðið að starfa
saman að nýju við gerð myndarinnar Tucker
Öll lönd eiga sín blómaskeiö í kvik-
myndagerð og sum þeirra fleira en
eitt. Til dæmis stóðu Þjóðveijar mjög
framarlega upp úr fyrri heimsstyij-
öldinni þegar Fritz Lang var upp á
sitt besta. Síðan kom öldudalur og
það var ekki fyrr en með „nýbylgj-
unni“ upp úr 1965 sem kvikmynda-
gerð Þjóöveija náði sér á strik aftur
með mönnum eins og Fassbinder,
Kluge og Herzog í fararbroddi.
Eftir marga góða kafla virtist
bandarísk kvikmyndagerð eiga erfitt
uppdráttar upp úr 1955. Það virtist
vanta nýtt blóð, bæði hvað varðaði
framleiðendur og leikstjóra. Þetta
breyttist þó upp úr 1970 þegar hópur
ungra leikstjóra tók völdin í Holly-
wood og sendi frá sér hveija mynd-
ina á fætur annarri sem sló í gegn.
Þessir einstakhngar áttu það allir
sameiginlegt að vera einlægir kvik-
myndaaðdáendur sem höföu verið
meira eða minna allt sitt líf í kvik-
myndahúsum eða við gerð kvik-
mynda. Kvikmyndagerð var ástríöa
hjá þeim frekar en atvinna, a.m.k. á
þessum tíma. Þeir voru uppnefndir
„kvikmyndafríkin“ og talað var um
„endurvakningu Hollywood".
Nýttblóð
En hveijir voru þessir ungu
menn? Jú, við þekkjum flest nöfnin
því enn eru þeir með afkastamestu
og hugmyndaríkustu kvikmynda-
gerðarmönnum Bandaríkjanna og
tengjast flestum vinsælustu mynd-
um alira tíma. Þeir sem oftast eru
nefndir eru þeir Robert Altman,
John Cassavetes, Paul Mazursky,
Martin Scorsese, Brian DePalma,
John Milius, Steven Spielberg, Fran-
cis Coppola og svo síðast en ekki síst
George Lucas.
Fyrir 15 árum gerðu þeir tveir síð-
astnefndu hina vinsælu mynd Amer-
ican graffiti. Skömmu síðar skildi
leiðir þeirra þegar Lucas stofnaði
fyrirtækið Lucas Film meðan Copp-
ola hélt áfram með Zeotrope. Síðan
hefur gengiö á ýmsu hjá þeim félög-
um og skipst á skin og skúrir eins
og síðar verður vikið að. En nú fundu
þeir félagar þörf á aö leiöa saman
hesta sína aö nýju og fyrir vahnu
varð mynd um bandaríska fram-
kvæmda- og uppfinningamanninn
PrestonTucker.
Hver er þessi Tucker?
Ævisaga Tucker minnir um
margt á bandaríska drauminn að
verða heimsfrægur og ríkur á einni
nóttu. Hún minnir einnig á að skjót-
unnið gengi getur verið fallvalt og
það er auðvelt að missa allt úr hönd-
um sér á einni nóttu.
Preston Tucker var hugmyndarík-
ur maður. Hann fann upp vél sem
klóraöi fólki á bakinu, tæki til aö leita
að úraníum, sem festa mátti á bíl
viðkomandi, auk þess sem hann
hannaði bíl sem var með vatn-
skældri vél að aftan, með diskabr-
emsur, öryggisglugga semlosnaði
við árekstur og svo var mælaborðiö
sérstaklega bólstrað til að minnka
líkur á að farþegi slasaðist við snögga
hemluneðaslys.
Árið 1946 ákvað Tucker aö hefla
framleiðslu á bílnum sínum sem
hlaut heitið Tucker. Hér var um ný-
tískulegan bíl að ræða sem var hann-
aður með öryggi í huga án þess að
það kæmi niður á úthtinu og til að
kóróna aht var hann á viðráðanlegu
verði. Meðal nýjunga má nefna að
framhjólin voru tengd aðahjósunum
þannig að þau hreyfðust þegar beygt
varogþáísömuátt.
Ofundsýki
Stóru bílaframleiðendumir voru
ekki yfir sig ánægðir með þetta fram-
tak Tuckers. Þeir sáu th þess að
bandaríska verðbréfanefndin hóf at-
hugun á rekstri og bókhaldi Tuckers
1948 vegna ásakana um verðbréfa-
svik. Þótt Tucker væri sýknaður af
kærunni síðar var skaðinn skeður.
Neikvætt umtal í fjölmiðlum gerði
fólk, sem haíöi ætlað aö fjárfesta í
fyrirtæki Tuckers, hrætt, sem gerði
það að verkum að hann varð gjald-
þrota eftir að einungis 50 bílar höfðu
veriðframleiddir.
Tucker gafst ekki upp og hélt áfram
að reyna að finna leið tll aö framleiða
bha sína. Þegar hann dó, aðeins 53
ára að aldri árið 1956, var hann að
vinna að bh framtíðarinnar sem átti
að framleiöa í Brasihu og bar hið
framandi nafn Caricoa.
Samlíking
Margir hafa velt fyrir sér hve hkt
lífshlaup Tuckers er lífi Coppola.
Hafa sumir komist svo að orði að
engu líkara sé en Coppola sé að kvik-
mynda ævisögu sína. Þessi ummæli
eru ekki heldur alveg að ástæðu-
lausu því margt hefur drifið á daga
Coppola.
Coppola hafði leikstýrt einum fjór-
um myndum áöur en hann sló í gegn
með TTie Godfather árið 1972. Síðan
gerði hann hina stórgóðu mynd The
Conversation sem nýlega var sýnd í
sjónvarpinu. Síðan tókst Coppola að
sýna fram á aö það var engin thvhjun
að myndin The Godfather varð svona
vinsæl þegar hann gerði framhalds-
myndina, The Godfather n, sem
reyndist vinsæhi en fyrsti hlutinn.
Hápunkturinn á ferh Coppola verð-
ur að teljast Víetnam-myndin Apo-
calypse Now sem hann gerði 1979.
Myndin fór fram úr áætlun á öhum
sviðum og orsakaöi m.a. að Coppola
fékk taúgaáfah. Hann lagði aht undir
og þegar myndin sló í gegn hélt Copp-
ola að honum væri allir vegir færir.
Hallarundanfæti
Eitt fyrsta verk Coppola var að
kaupa kvikmyndaver sem hann kall-
aði Zoetrope kvikmyndaverið. Þang-
að hóaði hann vinum og kunningj-
um. Ætlunin var aö gefa ungu og
óþekktu fólki tækifæri th að koma
sér á framfæri. Einnig bauð hann
aðstöðu mörgum eldri leikstjórutfr—
sem áttu erfitt með að fá fjármagnað-
ar myndir sínar hjá stóru kvik-
myndaverunum. Sjálfur lagði Copp-
ola út í gerð myndarinnar One From
The Heart sem var ástarsaga sem
gerðist í Las Vegas. Myndin reyndist
feiknadýr og þegar hún var frum-
sýnd vhdi enginn sjá hana. Coppola
fór á hausinn með kvikmyndaverið
ogmisstiahtsitt.
Th að borga skuldimar og th að
sanna að hann gæti enn gert ódýrar
myndir og á áætlun tók hann að sðsL
nokkur verkefni sem leikstjóri. Hann
leikstýrði tveimur nettum myndum,
byggðum á sögum S.E. Hinton, þ.e.
The Outsiders og svo Rumble Fish.
Síðan tók hann að sér The Cotton
Club sem hlaut mjög misjafna dóma
og stórtap varð á. Hins vegar sló
Peggy Sue Got Married í gegn en hún
var unnin fyrir eitt af stóm kvik-
myndaverunum í Hohywood. Svo
viröist sem Coppola standi sig betur
þegar hann vinnur fyrir stóru kvik-
myndaverin en fyrir einkaaðha.
Framtíðin
En áfóllin vom ekki öh aö baki.
Meðan Coppola var að vinna að
myndinni Gardens Of Stone, sem
yfirleitt hlaut lélega dóma, drukkn-
aði sonur hans þar sem hann var að
sigla á bát þeirra feðganna.
En enn að nýju virðist Coppola
kominn vel á strik. Tucker, sem er
gamalt draumaverkefni hans, er
komin vel af stað og aht bendir th
þess að myndin eigi eftir að verða
vinsæl. í hlutverki Tuckers er Jeff
aro. Paramount hefur tekið að sér
dreifinguna svo líklega birtist mynd-
in í Háskólabíó. Fyrir bhaáhuga-
menn má nefna að enn em 45 eintök
th af Tucker-bílnum og munu áhorf-
endur fá aö sjá eina 19 bha sem sam-
tök Tucker-bheigenda lánuöu Copp-
ola.
Baldur Hjaltason
Heimildir: American Film/Variety.
Hér sést hinn raunverulegi Tucker ásamt fyrsta bílnum sinum.